Tíminn - 15.04.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 15.04.1983, Blaðsíða 20
Opið vírka daga 9-19. Laugardaga 10-16 H HEDD Skemrruvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikið úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs 5AMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 T* abriel HÖGGDEYFAR GJvarahlutu ST1 „UKLEGA ALDREI MEIRI PÓUTÍSKUR AHUGI HÉR” — segir Páll Pétursson, alþingismadur á Höllustödum ■ „Við crum ágætlcga ánægðir cftir því sem um er að gera. Það er mjög gott fólk að fá fólk til að vinna og góður hugur í liöinu“, sagði Páll Pétursson, alþingis- maður, frá Höllustöðum er við spurðum hann um gang kosningabaráttunnar í hans kjör- dæmi. „Sameiginlegu fundirnir eru nú bara rétt að byrja -erum búin að halda einn á Skagaströnd. En sameiginlegir framboðsfundir eru yfirlcitt vel sóttir hér. Fundir okkar framsóknarmanna - sem við höfum haldið all marga - hafa líka veriö mjög vel sóttir, bæði flokksfundir og eins al- mennir stjórnmálafundir sem við höfum boðað til.“ - Þaö virðist þá ekki bera mikið á pólitískri deyfð eða þreytu í Norðurlandskjördæmi vestra? „Síður en svo. Það er mikill pólitískur áhugi hér í kjördæm- inu - líklega aldrei meiri en nú. Þetta er allt ólíkt léttara en ég hefi kynnst áöur“. - En hver eru 'svo helstu kosningamálin þar nyrðra? - Það er nú kannski ekki svo mikill stigsmunur' á þeim, því það vill nú svo til að allir fram- bjóðendurnir hér eru ábyrgir fyrir þessari ríkisstjórn - tveir ráðherrar og svo við. En það er auðvitað tekist á um efnahags- málin. Landbúnaðinn hlýtur einnig að bera hér á góma og Alþýðubandalagið hefur nú sennilega hugsað sér að gera sér eitthvað úr álmálinu, sagði Páll. Flann kvað þó málin eiga eftir að skýrast á sameiginlegu fram- boðsfundunum næstu daga. En Páll var að léggja af stað á fund á Hvammstanga um kvöldið (mið- vikudag), Annar fundur var á Blönduósi í gærkvöldi, í Mið- garði næsta sunnudag, mánu- dagskvöldið á Siglufirði, þriðju- dagskvöldið á Hofsósi og síðasti fundurinn er fyrirhugaður að kvöldi sumafdagsins fyrsta á Sauðárkróki. - HEI ■ Þeir voru að „dimmittera", stúdcntsefnin í MR í gærdag og að fornum vana MR-inga klæddust menn ogkonurmarg- víslegum búningum, sem verið var í nieðan staöiö var uppi á kerrum seni dráttarvélar drógu hcim að dyrum lærifeðranna. Bekkurinn hér á myndinni er stúlknabekkur og því klæddust dömurnar allar sanian flug- freyjubúningi,- enda á að fljúga beint út i lífið eftir próíin. Þess ber þó að gela að einn karlmaöur var í bekknum og auövitað varö hann þá að vera í úníformi flugstjóra. (Tímamynd G.E.) ■ Viðræður standa nú yfir milli Hafnarfjarðarbæjar annars vegar og Carmelítareglunnar í Hafnarfírði um kaup bæjarins á húsnæði nunnuklausturs reglunnar, en klaustrið verður lagt niður í vor og munu nunnurnar fíytja úr landi. Að sögn Markúsar Á. Einars- sonarbæjarfulltrúa í Hafnarfirði er mikill áhugi á því innan bæjar- stjórnar að bærinn eignist þetta húsnæði ef viðunandi samningar um kaupverð takast. Markús vildi ekki á þessu stigi greina frá hugsanlegu söluvcrði á húsnæði klaustursins, en hins vegar sagði hann að þegar væru ýmsar hugmyndir manna á með- al um til hverra nota mætti hafa það, sem er á annað þúsund fcrmetrar á stærð ef ekki cr meðtalið ris og kjallari. Mcðal hugmyndanna væri að þángaö flytji Tónlistarskóli Hafnarfjarð- ar með starfsemi sína, þar mætti koma fyrir minjasafni bæjarins, hugmyndir eru um að koma þar upp leikskóla, en stór garður fylgir húsinu. Þá hafa menn látið í Ijós hugmyndir um að í þessu húsnæði mætti koma fyrir alhliða menningarmiðstöð Hafnarfjarð- arbæjar. Vel er mögulegt ef af kaupum bæjarins verður að sameina fleiri en eina af þessum hugmyndum um nýtingu húsnæðisins. Reglan hefur boðið bænum húsnæðið til kaups og halda viðræður um þau áfram milli reglunnar og bæjarins. JGK Flugumferdastjóramálid sent til RLR: „Lögsaga yfir öðrum aðilanum” ■ „Sú rannsókn sern ég óska eftir beinist að því atviki sem átti sér stað þegar lá við árekstri íslenskrar .flugvélar í áætlunar- flugi og flugvélar frá varnarlið- inu. Það er Ijóst að lsland á ekki lögsögu yfir hinum bandaríska flugstjóra. Hins vegar á ísland að sjálfsögðu lögsögu í máli flugumferðarstjórans ef leitt yrði í Ijós að hann hefði gerst sckur um refsiverða háttsemi," sagði Þórður Björnsson ríkissak- sóknari í samtali við Tímann í gær, en hann hefur falið rann- sóknarlögreglu ríkisins að rann- sak‘a þettaumtalaðaatvik og skila skýrslu um rannsóknina til sak- sóknaraembættisins. „í bréfi mínu til rannsóknar- lögreglunnar er því beint til hennar að hún framkvæmi ná- kvæma rannsókn á málinu, sér í lagi með tilliti til refsiverðrar háttsemi flugumferðarstjórans. Málið er annars sérstætt að því leyti að hugsanlega er um það að ræða að tveir menn hafi brotið af sér en ísland á aðeins lögsögu yfir öðrum þeirra. Á hinn bóginn gefur auga leið að háttsemi ann- ars kann að hafa haft áhrif á háttsemi hins. En aðalatriðið er að rannsóknarlögreglan rann- saki þetta mál til að fá úr því skorið hvort um brotlegt athæfi var að ræða eða ekki." - JGK Nöfn þeirra sem fórust. ■ Ungmennin sem fórust í bílslysinu á mótum Þrengsla- vegar og Ölfusvegar t fyrradag hétu Sigríður Steinunn Ingi- mundardóttir fædd 11.6.1962 til tiéimilis að Syðri Hól Austur Eyjafjallahreppi í Rangár- vallasýslu og Guðmundur Ein- arssonfæddur 7.2.1965 til heim- ilis að Skálholsbraut 5 í Þorlákshöfn. Stúlkan sem slasaðist heitir Helena Kristín Jónsdóttir frá Þorlákshöfn. lafnarfjaröarbæ býöst húsnædi nunnuklaust- ursins til kaups: MIKILL AHUGI BÆIARSTJORNAR dropar Sæmundur vissi betur... ■ SæmundurG. Jóhannsson, trúboði á Akureyri, er maður Biblíufastur og lætur enga van- trúarmcnn vaða uppi átölu- laust með villukenningar. Þannig hefur hann brugðist hart við, þegar hann sá í biblíuþáttum sjúnvarpsins full- yrðingu þess efnis að engar minjar væru til um dvöl Isra- elsmanna í Egyptalandi. Sæ- mundur veit betur í grein sem hann ritar í DV í gær: „Móse kom með boðskap sinn: að Drottinn ætlaði að leiða ísrael frjálsa á brott. En Faraó brást illa við og sagði: Það verður að þyngja vinnuna á fólkinu, svo að það hafi nóg að starfa og hlýði ekki á lygifor- tölur. Skyldi það enga hálm- leggi fá til að nota við fram- leiöslu tígulsteina... Sjálft skyldi það fara og afla sér stráa. Fólkið fór og tíndi venju- leg puntstrá sem það kippti upp með rútum. Stcinarnir voru búnir til úr efjunni við bakka Nflar. Er þeir þornuðu minnkuðu þeir. Greinilega má sjá að í cndum þeirra eru förin eftir ræturnar á stráunum! Þar með er fallin sú staðhæflng að engar minjar flnnist um dvöl ísracls á Egyptaiandi...“ Við tökum undir með séra Sigvalda: „Nú er víst best að fara að biðja Guð að hjálpa Deilt um ráðherrans skegg ■ Oft fara þingmenn á kost- um í ræðustól Alþingis. Þannig vantar ekki myndríkið hjá Halldóri Blöndal í eftirfarandi broti úr ræðu hans, sem lesa má í nýjustu Alþingistíðindum, en ráðherrann er Hjörleifur Guttormsson: „Herra forseti. Eg skil það svo að í huga hæstvirts forseta sé það réttlát fundarstjórn að leyfa hæstv. ráðherra að rausa hér - ætli það sé ekki kominn klukkutími? Hæstv. ráðh. fékk orðið áðan strax eftir að hæst- virtur forseti hafði sagt að umræðu yrði frestað... Ber að skilja fundarstjórn hæstv. for- seta svo að vér venjulegir þing- menn sitjum ekki á sama bekk og hæstv. ráðherra? Eg veit að við höfum minni stóla og kannske skegg, en ég ætla mér ekki að láta mér vaxa skegg til þess að hafa jafnan rétt við ráðherra...“ Já, menn verða að vera yflr- vegaðir í orðum á þinginu, enda er þetta allt prentað með ærnum kostnaði fyrir okkur hin. Krummi ...er á því að „þjóðræði“ Vil- mundar Gylfasonar sé hið mesta fljótræði!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.