Tíminn - 17.04.1983, Side 22
SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983
nútíminn
Kosninga-
hátíð fyrir
þásem
skila auðu
■ Nú er í undirbúningi enn ein
kosningahálíöin og að þessu sinni
eru það hljómsveitir sem munu sjá
um fjörið. Stefnan er sú aö fá auð
sæti á þing og til þess að það
markmið náist þarf sem flcst upptek-
in sæti í Félagsstofnun stúdenta þann
20. apríl. Þar munu aðöllum fíkind-
uin spila Van Heutens Koko, Iss! og
Bylur og jafnvel Tappi Tíkarrass,
Þeyr og fleiri.
Sem og aðrar kosningahátióar
verður þessi auglýst nánar hdr og þar
um bæinn.
Bra
Mogo Homo
U Lítið liefur farið fyrir hlfómsvcit-
inni Mogo Homo síðan Rokk i
Rcykjavík var sýnd. En nú viröist
smáskriöur vcra kominn á þá, þeir
hafa nú hljóðritað nokkur lög'og
þegar hefur vcrið lauslega ákveðið
að eitt þcirra muni koma út á
samansafnsplötu scm Skífan gefur út
bráðlega. Mogo Homo er skipuö
Óskari og Óðni fyrrum Taugadciid-
tirmeðlimum og gitarleikari sem hcitir
Tómas. Næsta miðvikudag mun
hljómsvcitin líklega koma fram í
vcitingahúsinu Safari.
Bra
Vonbrigði
í
stúdíó
■ Þcssa helgi mun Vonbrigði haida
í hljóðver í þeim tilgangi aö hljóðrita
fimni lög scm Gramm mun gcfa út á
sumarmánuðum. Þykir þctta gleði-
efni þar sem Vonbrigði hafa sannað
þaö á tónleikum í vetur að þeir eru í
iiópi allra bestu hljómsvcita á íslandi
og þótt yíðar- væri lcitað. Er þaö
einnigánægjúlegt.a.m.k. t'y'rir undir-
ritaðan, að lög á borð við Sexý veröi
nú loks'fest á vynil.
Bra
Sattkvöld
1
Klúbbnum
■ SATr-kvöld vcrður að vcnju í
Klúbbnum í kvöld, laugardítgskvöld
en í gærkvöldi tróðu þar upp hljóm-
sveitirnar KIKK og Puppets en sú
síðarnefnda kom fyrst fram á Satt-
kvöldi á þessunistað fyrir páska.
í kvöld koma fram hljómsveitirnar
Vaka og Tappi Tíkarrass. Hljóm-
sveitin Vaka, er þannig skipuð: lón
Trausti Harðarson, bassi, Gylfi Már
Hilmarsson, gítar, Srnári Eiríksson.
Trommur, Sigurgeir Grímsson.
hljómborö og Jón Pór (áður í
hljómsv. Fjörcfni) syngur og leikur á
hljómborð. Hljómsveitiri flytur létt
frumsamið rokk. Kl. 10.45 kemur
svo fram hljómsveitin Tappi Tíkar-
rass, sem talin er af mörgum ein
besta og frumlegasta rokkhljómsveit-
in sem við eigunt í dag. Hljómsvcitin
flytur frumsamiö efni af"Væntanlegri
plötu, ásamt efni af fyrri plötu hljóm-
sveitarinnar.
Húsið opnar að sjálfsögðu kl. 9 og
Bjórkjallarinn býður upp á Ijúfar
veitingar ásamt sjónvarpi og vídeói
(virkilega heimilisTegt - ekki satt).
Það ei1 því óhætt að mæla með því að
þcir sem hafa gaman af að fylgjast
með uppgangi lifandi tónJistar á
Reykjavíkursvæðinu mæti snemma
í Klúbbinn næsto helgi. .
DOÐII AFDÖLUM
■ Mikil örvænting virðist vera farin að
grípa Satt-klúbbinn. Nú hefur hann
fengið það í gegn að troða lifandi tónlist
inn á dauðu staðina, en í þessu tilfelli
þetta laugardagskvöld, hafði Klúbbur-
inn betur í viðureigninni og mig grunar
að svo muni vcrða á meðan fyrirkomu-
lagið er eins og það var þarna. Hljóm-
svcitirnar áttu að byrja korter í tíu og
vera búnar fyrir tólf svo að lífið gæti
gcngið sinn vanagang í a.m.k. þrjá
klukkutíma. En allt byrjaði of seint og
fyrirkomulagið raskaðist. Tveir menn
settust hjá mér með nokkru millibili,
annar með brotinn putta og brennivín og
kók, og aðalpróblemið hjá þeim var að
salirnir uppi og niðri skyldu vera lokaðir
og þeir fengju ekki að spássera um eins
og vcnjulcga.
Þótt þcssi tilraun Satt sé viröingar-
vcrð, þarf yfirlýsta lifandi tónlistin að
vera lifandi og til þarf betri stað en
Klúbbinn, því hann er bara eins og hann
er og verður varla breytt úr þessu.
Eins og nafnið benti óneitanlega til,
léku Möðruvallamunkarnir frá Akureyri
afdalamúsík. Þeir tilkynntu að fyrsta og
síðasta lag prógrammsins yrðu ástarlög
en það væru örugglega þau einu af þeirri
sortinni, og aðrir textar fjölluðu um
verðbólgu og Tarsan svo dæmi séu
nefnd. Tónlistin, sem framin var á
trommur, bassa og píanó, var gjörsam-
lega hugmyndasnauð þrátt fyrir smá
átök hér og þar en hafði þó einn mátt
fram yfir flesta aðra tónlist: hún leiddi
mann aftur um svona tíu til tólf ár. Með
hjálp staðarins gerði hún það að verkum
að ég fékk sterka aðkenningu af því sem
kallað er menningaráfall og hún átti
mestan þátt í að ég hrökklaðist út fyrr
en huggulegt taldist.
Það væri ósanngjarnt að dæma tónlist
munkanna algjörlega með tilliti til
„aldurs“. En í öllum bænum þá þarf
tónlistin að innihalda eitthvað og hafa
einhvern svip, og ef það er ekki samfara
svona fyrri ára popptónlist þá er ansi
stutt í að manni verði flökurt. En ekki
er allt með öllu hræðilegt svo ei boði
sæmilegt: áhorfendur klöppuðu af stakri
hógværð á milli laga og einn gaukur,
augljóslega svekktur yfir að hafa þurft
að borga meira en venjulega rúllugjald-
ið, hrópaði we want rock ’n ’roll á milli
sjússanna.
Skömmu fyrir tólf, rétt áður en ég fór,
kynnti Bergþóra Árnadóttir sitt fólk,
Gísla blokkflautuleikara og hjón frá
Búðardal, og afsakaði fjarveru Pálma
Gunnars sem sat fastur úti á landi.
(Landsbyggðin var farin að spila allstóra
rullu í þessu showi) Tónlistin, sem samin
var af Bergþóru og vinum hennar frá
Búðardal, var kannski eins og við mátti
búast; vel sungin og spiluð, en hlýtt
andrúmsloft hennar féll hreinlega eins
og fírtomma við ungbarnsrass í miðnæt-
urrómantík Klúbbsins. Svona yfirmáta
Ijúf tónlist með draumkenndum textum
um vorið og horfin fljóð átti engan
samstað þarna, nema ef vera skyldi
sveitalegt yfirbragð hennar á köflum.
Um leið og Bergþóra kynnti sig og sitt
fólk sem Nöðruvallanunnurnar, þakkaði
hún munkunum fyrir sitt framtak, m.a.
með þeim orðum að þeir hefðu getað
verið verri, og sagði að þeir væru búnir
að taka upp plötu. Ég hvet fólk eindregið
til að hafa eyrun opin ef sú plata kemur
út, því ef mark ertakandiáorðum Mark
E. Smith: „Ef ég sé mjög slæma dóma
um hljómsveit í pressunni ftr ég strax að
sjá hana því hún er áreiðanlega athygl-
isverð", eru Möðruvallamunkarnir ef-
laust spennandi.
Bra
BARA- FRÁBÆRT
■ Fremur þunnskipaður salur fyrstu hæðar Klúbbsins blasti
við er útsendari Nútímans stakk sér þar inn fyrir viku að
fylgjast með hljómsveitunum Q4U og Baraflokknum á
SATT-tónleikum 5em virðast ætla að verða fastur liður á
þessum stað í framtíðinni.
Það hafa varla verið meir en fímm manns í salnum er Q4U
átti að byrja að leika, en undir dúndrandi hressu tölvupoppi
þeirrar sveitar tíndust áhorfendur smátt og smátt inn á
staðinn.
Það er að koma meir og meir í Ijós að
Ellý söngkona Q4U, er hálf sveitin og
vel það, geysilega skemmtileg rödd
hennar og sviðsframkoma setur mestan
svip á tónlistina auk margumrædds trom-
muheila sem er fimmta hjól undir vagni
hjá þeim.
Q4U tók lög af nýútkominni plötu
sinni Ql, auk þess sem þau reyndu tvö
ný og í lokin tóku þau svo tölvuútgáfu af
gamla góða slagaranum Creeps, að vísu
aðeins þrjú þar sem Danni hafði gengið
af sviðinu.
Hljóðblöndunin, í höndum Bjarna
„Egó-lims“, var hreint frábær en þar
sem hljómsveitin var með nokkuð einfalt
kerfi kom tónlistin hrárri og grófari út en
á plötunni, hlutur sem ekki skaðaði
flutninginn nema síður sé.
„Bowie-flokkurinn“
Baraflokkurinn frá Akureyri tróð upp
næst en þeir hafa ekki leikið hér fyrir
sunnan í langan tíma, mættu gera mun
meir af því þar sem þeir voru hreint
frábærir þetta kvöld.
Fyrsta lagið sem þeir tóku varákaflega
líkt Bowie enda sagði einhver við hliðina
á mér. „Bowie-flokkurinn?“ ... raunar
virðist tónlist þeirra þessa stundina taka
nokkuð mið af þessum ódauðlega kappa
nútíma dægurtónlistar enda tóku þeir í
lokin „lag sem einhverjir kannast örugg-
lega við...“ eins og Ásgeir kallaði það en
það var The Jean Genie af Stardust-plöt-
unni.
Innanum gömul kunnug Baraflokks-
lög eins og „I dont like your style" léku
þeir ný lög sem í bígerð er að gefa út á
plötu, auk þess sem eitt blúslag var á
prógramminu, að venju.
Gott rokk er sem fyrr tónlist Bara-
flokksins keyrt áfram af öflugri rödd
Ásgeirs Jónssonar sem hefur tekið stórs-
tígum framförum frá fyrstu plötu þeirra
og að mati undirritaðs nú með okkar
bestu söngvurum á þessu sviði en auk
þess má geta að Þór Freysson gítarleikari
er orðinn mun meir áberandi en áður,
hlutur sem bætir tónlistina enn frekar.
Ef fyrirhuguð plata þeirra er eitthvað
í líkingu við frammistöðuna í
Klúbbnum, þar sem áhorfendur hrifust
mjög með, verður það gripur sem menn
ættu að leita eftir.
-FRI
■ Baraflokkurinn
hHsgögn
— ný hljómsveit
■ Hómosexjúalræbblarokkhljómsveit-
in Húsgögn gleður almenning hér með
þeim upplýsingum að hún er tekin
formlega til starfa. Hljómsveitin hefur
falið sig fyrir skarkala heimsins undan-
farið misseri og unnið að tónsköpun og
hefur það borið stórkostlegan árangur.
Sveitin er ferskur blær utan af víðáttum
algleymisins með nýjar og gamlar laglín-
ur og útsetningar. Ef aðstæður og
fjármagn leyfa er tónleikaferð fyrirhug-
uð í sumar og ætti enginn að vera illa
svikinn af slíku ferðalagi.
Meðlimir Húsgagna hafa víðtæka
tónlistarreynslu í hinum ýmsu sveitum
og starfa jafnvel enn í sumum þeirra.
Má þar á meðal nefna Vébandið, Negatíf,
Án nafns, Dúett ’82, Mad, Niðurlægingu
Norðurlanda og Kúk í poka. Húsgögnin
eru þeir Friðrik Rúnarsson, trymblari,
Jón Sigurðsson, sönglari, Einar Ingólfs-
son, baslari og Erpur S. Hansen sólógít-
arleikari.
Á vegum aðdáendaklúbbs Húsgagna
stendur nú yfir fjársöfnun til plakata og
barmmerkjaprentunar. Klúbburinn er
öllum opinn og inntökuumsóknir og
annað sendist til:
Húsgögn e/f,
Heiðarhorn 14,
230 Keflavík.
Ef mikið liggur við er einnig hægt
að ná í Sævar Ingimundarson formann
klúbbsins í síma 92-2228.
Húsgögn vonast til að sjá sem flesta
landsmenn sem fyrst og senda þeim
öllum ástar og saknaðarkveðjur.
Hóinóscxjúalræbblarokkhljómsvcitin
HÚSGÖGN