Tíminn - 01.07.1983, Qupperneq 17
KÖSTUDAGUR 1. JLi.11983
17
■ Einar Ólafur Arnbjörnsson
Nýr doktor í skurðlækningum
■ Þann 14. júní síðaslliðinn varði Einar
Ólafur Arnbjörnsson, læknir, doktorsritgerð
við læknadeild háskólans í Lundi í Svíþjóð.
Einar er fæddur í Reykjavík þann 27.
ágúst 1950, sonur Arnbjörns Ólafssonar
læknis í Keflavík og Fjólu Einarsdóttur.
Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík (við Lækjargötu) 1969. Lauk
námi í læknisfræði við Háskóla íslands í
febrúar 1975. Fékk sérfræðiviðurkenningu í
skurðlækningum 1981. Hefur undanfarin ár
stundað framhaldsnám og rannsóknir við
háskólann í Lundi í Svíþjóð og starfar nú sem
deildarlæknir við barnaskurðlækningadeild
háskólasjúkrahússins í Lundi. Hafa greinar
eftir hann birst í þekktum læknisfræðitíma-
ritum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.
Doktorsritgerðin er skrifuð á ensku og
nefnist: „Acute appendicitis in adults, ep-
idemiologic, pathogenetic, diagnostic and
socioeconomic aspects." Fjallar ritgerðin um
botnlangaaðgerðir og botnlangabólgu.
Niðurstöðurnar breyta verulega hugmyndum
manna um orsök sjúkdómsins, oggefa tilefni
til að draga í efa eldri kenningar um þýðingu
mataræðis, sérstakelga trefjaefna innihaldi
fæðunnar, fyrir tíðni sjúkdómsins.
Kona Einars er Runa Kerstin Arnbjörns-
son, stjórnunarfræðingur, og eiga þau einn
son, Sven Arnbjörn Einarsson.
sundstaðir
Reykjavík: Sundhöllin, Laugardalslaugin
og Sundlaug Vesturbæjar eru opnar frá kl.
7.20-20.30. (Sundhöllin þó lokuð á milli
kl. 13-15.45). Laugardaga kl. 7.20-17.30.
Sunnudaga kl. 8-17.30. Kvennatímar í
Sundhöllinni á fimmtudagskvöldum kl.
21-22. Gufuböð í Vestubæjarlaug og Laugar-
dalslaug. Opnunartíma skipt milli kvenna og
karla. Uppl. í Vesturbæjarlaug í síma 15004,
í Laugardalslaug í sima 34039.
Kópavogur: Sundlaugin er opin virka daga
kl. 7-9 og 14.30 til 20, á laugardögum kl. 8-19
og á sunnudögum kl. 9-13. Miðasölu lýkur
klst. fyrir lokun. Kvennatímar þriðjudaga og
miðvikudaga.
Hafnarfjörður: Sundhöllin er opin á virkum
dögum kl. 7-8.30 og kl. 17.15—19.15 á
laugardögum 9-16.15 og á sunnudögum kl.
9-12.
Varmárlaug i Mosfellssveit er opin mánud.
til föstud. kl. 7-8 og kl. 17-18.30. Kvennatími
á þriðjud. og fimmtud. kl. 19-21.30. Karlatím-
ar á miðvikud. kl. 19-21.30. Laugardaga opið
kl. 14-18, sunnudaga kl. 10-12.30. Sauna,
kvennatímar á þriðiud. og fimmtud. kl.
17-21.30, karlatímar miðvd. kl. 17-21.30 og
laugard. kl. 14.30-18. Almennir saunatímar i
baðfötum sunnud. kl. 10.30-12.30.
Sundlaug Breiðholts er opin alla virka
daga frá kl. 7.20-9 og 17-20.30. Sunnudaga
kl.8-13.30.
áætlun akraborgar
Frá Akranesi
Kl. 8.30
kl. 11.30
kl. 14.30
kl. 17.30
I apríl og
sunnudögum
Frá Reykjavík
Kl. 10.00
kl. 13.00
kl. 16.00
kl. 19.00
kvöldferðir á
október verða
— í mai, júní og september
verða kvöldferðir á föstudögum og sunnu-
dögum. - I júli og ágúst verða kvöldferðir
alla daga nema laugardaga.
Kvöldferðir eru frá Akranesi kl. 20.30 og frá
Reykjavík kl. 22.00.
Afgreiðsla Akranesi simi 2275. Skrifstof-
an Akranesi sími 1095.
Afgreiðsla Reykjavik, simi 16050. Sím-
svari í Rvik, simi 16420.
FIKNIEFNI -
Lögreglan í
Reykjavík, mót-
taka upplýsinga,
sími 14377
flokksstarf
Kópavogur
Hin árlega sumarferö Framsóknarfélagana í Kópavógi veröur farin á
Snæfellsnes og út í Breiöafjarðareyjar dagana 2. og 3. júlí, n.k.
Upplýsingar í símum: 42643 Þorvaldur .45918 Inga. Ferðanefnd
Til Englands með SUF
Þann 24. ágúst verður farið í einnar viku ferö til Englands á vegum
SUF. Farið verður með MS EDDU og haldið frá Reykjavík að kvöldi
24. ágúst. Komið til Newcastle kl. 10 á laugardagsmorgun. Farþegar
munu dvelja tvær nætur á Imperial Hotel í Newcastle. Laugardagurinn
er frjáls, en fólki er bent á að gott er að versla í Newcastle, þar er
m.a. ein stærsta verslunarmiðstöðin í allri Evróþu. Á sunnudaginn
verður farið í skoðunarferö um nágrenni Newcastle. Rútur koma og
ná í farþegana að morgni mánudagsins og farið verður um borö I
EDDU. Samkvæmislífið er fjölskrúðugt um borð og svo mikið er víst
að engum ætti að leiðast. Vel er hugsað um börn um borð í skipinu.
Til Reykjavíkur er komið miðvikudagskvöldið 31. ágúst. Fararstjóri er
Guðmundur Bjarnason alþingismaður og ritari Framsóknarflokksins.
Nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu SUF og hjá Farskipi í síma
91-25166. Góðir greiðsluskilmálar.
P.s. þetta er tilvalinn sumarauki fyrir framsóknarfólk á öllum aldri.
Óflokksbundnu fólki, sem hefur áhuga á að skemmta sér með
framsóknarmönnum, er að sjálfsögðu heimilt að koma með.
íbúð
Hjón með eitt barn
óska eftir 2ja til 3ja herb. íbúð í þrjá tii fimm
manuði.
Fyrirf ramgreiðsia - Reglusemi og góðri umgengni
heitið.
Uppiýsingar: símar 86396 — 72250.
Odýrar
skjalamöppuhillur
fyrir skrifstofur
Léttar
handhægar
steypu
hrærivélar
Á MJÖG
GÓÐU VERÐI
Skeljungsbúðin 4
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
OLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnurt ",
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIDJAN
Cl HF.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45000
Lausar stöður
Við Fjölbrautarskólann í Breiðholti eru eftirtaldar stöður lausar til
umsóknar: 1. Kennarastaða í íslensku. 2. Kennarastaða í tölvu- og
kerfisfræðum. 3. Kennarastaða I hjúkrunarfræðum. 4. Kennarastaða
í matreiðslufræðum. Varðandi siðastnefnda starfið skal tekið fram að
krafist er meistararéttinda í matreiðslugreinum. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt ýtarlegum uþþlýs-
ingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 27. júlí n.k. Umsóknareyðublöð
fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneyfið
29. júní 1983
Ertu hættulegur
í UMFERÐINNI
án þess að vita það?
Mörg lyf hafa svipuð áhrif
ogáfengi
^ Kynntu þér vel lyfið
sem þú notar
il®
t
Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
Bjarna Halldórssonar
frá Reykjadalskoti
Gilsbakka, Hrunamannahreppi
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands er veitti honum
kærleiksríka umönnun
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Sólveig Ólafsdóttir
og tjölskyldur
■hotbbí
i rinriinMriiipii i iiii n