Tíminn - 29.07.1983, Blaðsíða 1
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna næstu viku - sjá bls. 13
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAD!
Föstudagur 29. júlí 1983
173. tölublað - 67. árgangur
Siðumula 15—Posthólf 370Reykjavík—Ritstjorn86300—Augiysingar 18300- Atgreidsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
Ríkisstjórnin:
HBMIUR VERÐ-
HÆKKANIR A BIL-
INU 17% TIL 44%
■ „Það er öllum sem kæra sig
um Ijóst að þessar stofnanir eru
konmar á sprengipunkt. Verði á
þeirra þjónustu hefur verið hald-
ið niðri svo lengi. Það sem gerist
núna er einfaldlega að nú er
starfandi ríkisstjórn sem þorir að
taka á hlutunum, þó að hún sjálf
hafi ekki skapað vandann,“
sagði Albert Guðmundsson,
fjármálaráðherra, þegar hann
var spurður um ástæður gjald-
skrárhækkana opinberra fyrir-
tækja, sem ríkisstjórnin heimil-
aði í gær, en þær eru á bilinu
17% til 44%.
Mesta hækkun fær Hitaveita
Reykjavíkur, 43,9% á heitu
vatni og 20% á heimæðagjaldi.
heildsöluverð Landsvirkjunar
hækkar um 31 og útsöluverð
rafveitna til dæmis Rafmagn-
sveitu Reykjavíkur um 26,6%.
Þjónusta Pósts og síma hækkar í
verði um 18%. Aðrar hitaveitur
en Hitaveita Reykjavíkur fá að
meðaltali um 17% hækkun á
útsöluverði á heitu vatni. í
krónutölu er hækkun þeirra
álíka, sem kemur til af því að
vatn frá þeim er mun dýrara.
Forsætisráðherra og iðnaðar-
ráðherra munu efna til blaða-
mannafundar í dag þar sem skýrt
verður frá ástæðum þessara
hækkana. Samkvæmt heimildum
Tímans munu fyrirtækin ekki fá
frekari hækkanir á þessu ári -
þannig að í raun er um að ræða
hækkanir fyrir tvö verðlags-
tímabil.
- Sjó.
Sjá nánar viðtal
við Ásmund Stefáns.
sonbls.3.
Ríkisstjórnin:
FEUJR NIÐUR
10% ÁLAG Á
GIALDEYRI
Brádabirgdalög væntanlega
gefin út f dag
■ Ríkisstjórnin hefur ákveðið
að fella niður 10% skattheimtu
af fcrðamannagjaldeyri, sem
veríð hefur í gildi um nokkurra
ára skeið. Bráðabirgðalög um
niðurfellinguna verða gefin út í
dag eða á morgun.
„Þetta hefur alla tíð verið
leiðinlegur skattur og afnám
hans mun létta mikið á ferða-
mönnum. Málið fékk vinsamlega
umfjöllun í ríkisstjórninni og var
ákveðið að leita samþykkis
þingflokkanna og það fékkst í
■ Um þessar mundir eru unnið
að ýmsum samstarfsverkefnum
á vegum Bréfaskólans og ann-
arra aðila og meðal annars er í
undirbúningi að kennslu til
stúdentsprófs geti hafist í bréfa-
formi. Einnig er unnið að undir-
búningi fyrir bréfakennslu fyrir
kennara heyrnleysingja og fyrir
starfandi bókaverði. Þetta kem-
ur fram í nýjum Sambandsfrétt-
um en aðalfundi fulltrúarráðs
þeim báðum í gær,“ sagði Stein-
grímur Hermannsson, forsætis-
ráðherra, í samtali við blaðið í
gær.
Hann sagði ennfremur að Al-
þjóðagjaldeyrissjððurinn hefði
nýlega látið í ljós vanþóknun
sína á þessari skattheimtu og
talið hana stríða gegn alþjóð-
legum samþykktum.
Ríkisstjórnin kannar nú
hvernig hægt verður að brúa það
bil sem afnám skattsins gerir í
fjárlögin. - Sjó
Bréfaskólans er nýlokið.
Nokkru færri nemendur innrit-
uðust í skólann á síðasta ári en
undanfarin ár 754. 25 kennarar
annast úrlausnir verkefna. Tals-
vert hefur verið gert til að
áminna nemendur um að halda
áfram námi og hefur það skilað
sér í auknum námsbréfafjölda
og auknum fjölda þeirra sem
Ijúka námi.
- JGK
Bjarni Gud-
mundsson
adstodar-
maður Jóns
Helgasonar
■ Bjarni Guðmundsson
kennari á Hvanneyri hcfur ver-
ið ráöinn aðstoðarmaður Jóns
Helgasonar landbúnaðar- og
dómsmálaráðherra. Mun hann
cinkum sinna landbúnaðar-
málum.
„Ég neita þvi ekki að það er
spennandi að taka þetta starf
að sér en það eru auðvitað ekki
bjartir tímar framundan hjá
landbúnaðinum," sagði Bjarni
■ samtali við Tímann í gær.
Bjarni hefur verið fastráðinn
kennari á Hvanneyri frá 1973
og hefur kennt fóðuröflun og
bútækni. Hann var við nám á
Hvanneyri á sínum tíma, fór
síðan í framhaldsnám við
Landbúnaðarháskólann í Ási í
Noregi og lauk þar doktors-
prófi árið 1971.
Bjarni kvaðst í samtali við
Tímann eiga von á því að
meðal fyrstu verkefna sinna
væri endurskoðun á ýmsum
lagabálkum um landbúnað-
armál, þ.á.m. á lögunum um
Framleiðsluráð.
Kona Bjama er Ásdís Geir-
-dal. - GM
Bréfaskólinn:
Stúdentspróf
í bréfaf ormi?
■ Bara hringja, þákomum við. Einstök þjónustaá úrvalsbílum. Og að sjálfsögðu eru gömlu taxtarnir enn
í fullu gildi hjá okkur.
Tímamynd Ari
Ákvörðun f dag um nýja
húsnæöislánavísitölu:
HÆKKAR UM 3%
I SEPTEMBER!
— en lánskjaravísitalan um 6%
■ Búist er við að ríkisstjórnin
muni í dag taka ákvörðun um
nýja húsnæðislánavísitölu og
nýja lánskjaravísitölu. I ráði er
að grunnur þessarar nýju íbúða-
lánavísitölu verði að einum
þriðja frá hverri eftirtalinna:
kaupvísitölu, framfærsluvísitöju
og byggingarvísitölu. Varðandi
vísitölulánakerfíð er svó helsta
breytingin sú að viðmiðunar vísi-
tölurnar verði reiknaðar mánað-
arlega í stað þess að þær hafa
verið reiknaðar á þriggja mán-
aða fresti til þessa.
Samkvæmt heimildum Tímans
mun hin nýja íbúðalánavísitala
verða til muna hagstæðari þeim
er skulda íbúðalán næstu mánuð-
ina, þannig að 1. sept. n.k. muni1
lánskjaravísitalan jafnvel hækka;
um ca. 6% en íbúðalánavísitalan
í kringum 3%. Þessi munur muni|
síðan þynnast út þegar lengra.
líður og dæmið gætið jafnvelj
snúist við ef kæmi til skyndilegra
kauphækkana. Ekki eru því allir
jafn vissir um að launþegahreyf-
ingin verði svo ýkja hrifin af
breytingunni þegar til fram-í
kvæmdanna kemur.
Ríkisstjórnin fjallaði um þessi'
vísitölumál á fundi sínum í gær.
Niðurstaðan varð þá sú að nokk-
ur atriði þyrfti að athuga betur
áður en breytingarnar kæmu til
framkvæmda og voru þvf 3 ráð-
herranna settir í ákveðna nefnd
til að kanna málin. Óvissu-
þættirnir eru m.a. um tenging-
una við eldri grunn lánskjaravísi-
tölunnar, um það hvor vísitalan
skuli gilda fyrir skyldusparnað
unga fólksins, sem fer inn í
lánasjóð Húsnæðisstofnunar, og
það sama gildir um lánsfé líf-
eyrissjóðanna í húsnæðislána-
kerfið. -HEI