Tíminn - 29.07.1983, Qupperneq 4
GRJOTGRINDUR
Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA
KVORT
KÝST ÞÚ
GATEÐA
GRIND?
, „r
1 •
Eigum á lager sérhannaðar grjót-
grindur á yfir 50 tegundir
bifreiða!
Ásetning á
staðnum
Kverkstæðið
nastðs
Lögtaksúrskurður
Að beiðni sveitarsjóðs Bessastaðahrepps úrskurðast hér með að
lögtök geti farið fram fyrir gjaldföllnum en ógreiddum fasteignagjöld-
um, álögðum 1983, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum geta farið fram á
ábyrgð Bessastaðahrepps, en á kostnað gjaldenda að liðnum átta
dögum frá birtingu þessa lögtaksúrskurðar.
Hafnarfirði 8. júlí 1983,
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Lögtaksúrskurður
Að kröfu sveitarsjóðs Bessastaðahrepps, úrskurðast hér með að
lögtök geti farið fram fyrir gjaldföllnum, en ógreiddum útsvörum,
fasteigna- og aðstöðugjöldum, álögðum 1982 og fyrr.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum ásamt dráttarvöxtum
og kostnaði geta farið fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar
þessa.
Hafnarfirði 11. maí 1983
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu
Auglýsing frá Æsku-
lýðsráði ríkisins.
Stuðningur við nýjungar og
tilraunir í æskulýðsstarfi.
Æskulýðsráð ríkisins auglýsir hér með eftir umsóknum
um stuðning við einstök verkefni á sviði æskulýðsmála
samkv. heimild í 9. gr. III. kafla laga um æskulýðsmál.
Að þessu sinni er styrkveitingin einungis miðuð við
nýjungar og tilraunir í æskulýðsstarfi. Landssamtökum
æskulýðsfélaga hafa verið send umsóknareyðublöð
vegna þessara styrkveitinga en eyðublöð er einnig hægt
að fá hjá Æskulýðsráði ríkisins, Hverfisgötu 6. Umsóknir
þurfa að hafa borist Æskulýðsráði fyrir 1. september
1983.
Æskulýðsráð ríkisins
Hross í óskilum
( Ölfushreppi er í óskilum brún hryssa ómörkuð. Brúnn
hestur markaður. Mógrár hestur dökkur á fax og tagl.
Mark: Heilrifað og gagnbitað vinstra. Rauður hestur
glófextur sokkóttur.
Hrossin verða seld á uppboöi 5. ágúst kl. 4 síðdegis að
Auðsholti hafi eigendur ekki gefið sig fram fyrir þann
tíma.
Hreppstjóri Ölfushrepps Bakka
Milli 50 og 60 manns
atvinnulausir á Akranesi:
Viðrar ekki einu sinni
tii votheysverkunar
Margir bátar
bundnir við
bryggju
Akranes: Atvinnuleysi hefur aukist all
verulega á Akranesi í sumar og eru nú
milli 50 og 60 manns skráðir þar
atvinnulausir, að því er fram kom á
fundi Verkalýðsfélags Akraness ný-
lega. Af þeim atvinnulausu eru m.a.
sagðir nokkrir sjómenn á sama tíma og
bátar séu bundnir við bryggju og ekki
gerðir út.
Fundurinn skoraði því á atvinnu-
málanefnd bæjarins og atvinnurekend-
ur á Akranesi að vinna að því að lagt
verði kapp á það að láta atvinnutæki
bæjarbúa ganga, svo aukið atvinnu-
leysi komi ekki til viðbótar þeim
launaskerðingum sem bráðabirgðalög
ríkisstjórnarinnar hafi lagt á launafólk.
Haldi fram sem horfir með atvinnu-
ástandið virðist stefna í vandræði á
Akranesi, segir í samþykktinni. _ HEI
■ „Við heitum Monsi og Búlla og erum 2 mánaða. Fædd í Reykjavík, en enim
nú að fara í sveitina okkar. Verðum bæði á sama bænum í Rangárvallasýslu hjá
alveg ágætis fólki og hlökkum við mikið til. Við biðjum kærlega að heilsa öllum
krökkunum okkar sem voru svo góð að passa okkur stundum og fóru með okkur
í gönguferð þegar veðrið var gott, Verið þið öll blessuð og sæl.
Tímamynd: GE.
Hlíf í Hafnarfirði:
25-30% kaup-
máttarrýrraun frá
júní til áramóta
Hafnarfjörður „Með bráðabirgða-
lögum ríkisstjórnarinnar ásamt gengis-
sigi og gengisfellingu er augljóst að
kaupmáttur launa fer hraðminnkandi
og mun á tímabilinu frá 1. júní s.l. til
áramóta rýrna um 25-30% ef ekkert
verður að gert, segir m.a. í ályktun
slmenns félagsfundar í Verkamanna-
félaginu Hlíf í Hafnarfirði frá 21. júlí
s.l.
Hlíf skorar á verkalýðshreyfinguna
að standa einhuga saman og brjóta á
bak aftur þau öfl sem ætla sér með
mannréttindabrotum að rýra enn nú
meir lág laun verkafólks.
Jafnframt samþykkti Hlíf að segja
uppkaup- og kjarasamningum við at-
vinnurekendur þannig að þeir falli úr
gildi 31. ágúst 1983.
- HEI
Snæfeilsnes: „Af heyskaparhorfum
er ekki hægt að segja neinar góðar
fréttir. Það er ekkert lát á rigningunni
- þótt það hafi kannski einstaka
sinnum stytt upp part úr degi notast
það ekki neitt þegar allt er rennandi
blautt,“ sagði Kristján Þórðarson í
Ölkeldu í Staðarsveit spurður hey-
skaparfrétta þar úr sveit.
Kristján kvað slátt ekki hafinn
nema á einstaka bæ og þá í vothey.
En sums staðar séu túnin líka svo
blaut að menn komist ekki um þau
með véiar og verkfæri. Jafnframt
kvað Kristján grassprettu fremur lé-
lega vegna kulda og nokkuð sé unt
kal í túnum.
- HEI
Samn-
ingum
sagt
upp á
Akra-
nesi
Akranes: Verkalýðsfélag Akraness
samþykkti nýlega á félagsfundi að
segja upp öllum samningum við at-
vinnurekendur, eins og mjög mörg
verkalýðsfélög í landinu hafa gert að
undanförnu.
Fundurinn mótmælti jafnframt
harðlega og afdráttarlaust kjaraskerð-
ingum þeim sem í bráðabirgðalög-
unum felast og þeim félagslegu árásum
sem verkalýðshreyfingin verður fyrir
með því að af henni sé tekinn frjáls
samningsréttur fyrir lífskjörum sínum.
Þá segir að verðbólgan hafi aldrei
verið magnaðri en þá tvo mánuði sem
liðnir séu frá því kaupránið var framið,
sem vera skyldi takmark og ráð gegn
verðbólgunni. Þurfi kaupmáttur því
að hækka um 40% um næstu áramót ef
nást eigi aftur sá kaupmáttur er
launþegar bjuggu við á síðasta ári.
Fundurinn telur að nú beri að spyrna
við fótum og hnekkja þeim ólögum
sem hér hafi verið sett. Verkalýðs-
hreyfingin hafi áður hrundið ólögum
og muni enn takast að finna leið til að
vernda rétt félaga sinna, beri hún gæfu
til að standa sameinuð að væntanlegum
aðgerðum.
- HEI
Kirkjubæjarklaustur:
Fjölbreytt þjónusta við ferðamenn
Kirkjubæjarklaustur: Upplýsinga-
þjónusta fyrir ferðamenn hefur nú
tekið til starfa á Kirkjubæjarklaustri
og hugmyndin að hún verði starfrækt
til mánaðamóta ágúst/september. Að
sögn Valgeirs Inga Ólafssonar er þarna
um tilraun að ræða til þess að veita
ferðamönnum aukna og betri þjónustu
en áður hefur verið.
Starfsemin er til húsa í Félagsheimil-
inu Kirkjuhvoli og er opin alla daga
frá kl. 8,30 til 10,30 á morgnana og
aftur frá kl. 20,00 til 21,00 á kvöldin.
Auk þess verður hægt að ná sambandi
við framkvæmdastjórann í síma 99-
7645 á öðrum tímum.
Auk þess að veita ferðamönnum
upplýsingar hefur Upplýsinga-
þjónustan umsjón með tjaldsvæði sem
nýlega hefur verið tekið í notkun við
Kleifar, ca 1 kílómetra frá Klaustri.
Jafnframt sér Upplýsingaþjónustan
um hestaleigu í styttri eða lengri ferðir,
sölu veiðileyfa í nokkrum ám og
vötnum á svæðinu milli sanda, bílferðir
inn á hálendið, leigu á svefnpokaplássi
í Kirkjuhvoli og herbergjum til gisting-
ar á einkaheimilum.
- HEI
Nýr verkalýðskór í Borgarnesi
Borgarnes: Tillaga um stofnun kórs
félagsmanna og annarra áhugamanna
á félagssvæðinu sem nýlega var borin
upp á fundi í Verkalýðsfélagi Borgar-
ness var samþykkt á fundinum. Þriggja
manna undirbúningsnefnd var kosin til
þess að vinna að undirbúningi og
framgangi málsins. Tónlistarkennar-
arnir Björn Leifsson og Ingibjörg Þor-
steinsdóttir hafa boðist til að æfa hinn
nýja kór Verkalýðsfélags Borgarness.
í samtali við formann V.B., Jón
Agnar Eggertsson, kom fram að hann
taldi ekki ólíklegt að.heimsókn Ála-
fosskórsins á 1. maí hátíðarhöldin í
Borgarnesi s.l. vor hafi átt nokkurn
þátt í tilurð fyrrnefndrar tillögu.
- HEI