Tíminn - 14.08.1983, Síða 7
!•' 4 I
SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1983
hafa orðið straumhvörf í viðhorfum til
landbúnaðarframleiðslunnar hér á landi
síðustu ár. Fram á síðasta áratug var
stefna allra sem nálægt landbúnaði
komu, bænda og annarra. að stækka
búin og auka framleiðslu. Þáttaskil urðu
með nýrri tækni, þannig að ekki var
heyfengur sem skammtaði lengur hve
búin gátu verið stór og framleitt mikið.
Þá kom annað til; markaðsaðstæður.
sem gjörbreyttu viðhorfinu. Ekki þýddi
að framleiða nteira en markaður leyfði.
Bændasamtökin hafa viljað framfvlgja
þessari stefnu og í staðinn reynt að leita
nýrra leiða. Eg tel það skyldu mína að
reyna að styðja eins og kostur er. þá
stefnu sem æskileg ■ er bæði fyrir
bændur, neytendur og þjóðarbúið í
heild.
Telur þú að markaðsleit og tilraunir til
að framleiða kjöt til útflutnings hafí
verið fullreynt?
- Margar tilraunir hafa verið gerðar til
að leita nýrra markaða. Það er búin að
vera starfandi Markaðsnefnd landbún-
aðarins í allntörg ár, skipuð af Landbún-
aðarráðuneytinu. Nefndin hefur þreifað
fyrir sér, gert tilraunir með útflutning,
en út úr því hefur minna komið en menn
gerðu sér vonir um. Þar með er ég ekki
að segja að ekki eigi að halda áfram
tilraunum og leit að nýjum leiðum, en
við verðum að gera okkur grein fyrir því
að sama viðhorf og aðstæður hafa skap-
ast allt í kringum okkur. Framleiðslugeta
á búvörum er orðin svo mikil í löndunum
í kringum okkur, að þar er alls staðar
yfirfullt af mat. Meira að segja er flutt
lambakjöt um hálfan hnöttinn og boðið
á ákaflega lágu verði. Við þessar aðstæð-
ur verðum við að keppa og ekki þýðir að
vera með óraunsæi eða loka augunum
fyrir þessum staðreyndum. Við verðum
þó að vera vel á verði og sífellt að rcyna
íið ná sem bestum árangri.
Gleypa milliliðirnir of ntikið af kök-
unni?
- Samkvæmt athugunum sem gerðar
hafa verið er minni munur á því verði
sem bóndinn fær og því sent neytandinn
þarf að greiða, samanborið við ná-
grannalönd okkar og er þá miðað við
óniðurgreidda vöru. Það virðist því ekki
benda til þess að milliliðirnir taki allt of
stóran hlut. Þó að vitanlega þurfi sífellt
að vinna einnig á því sviði að meiri
hagkvæmni.
Þú segir að bóndinn sé atvinnurek-
andi. Getur þú skýrt það nánar?
- Búið er fyrirtæki og bóndinn kaupir
rekstrarvörur og nýtir þær með aðstoð
jarðargróður. og búpenings til þess að
framleiða búvörur. Að vísu er það svo
að algengast er að það sé fjölskyldan
scm vinnur við þennan atvinnurekstur
og ég held að það sé lang-besta formið.
Reynslan virðist vera sú að arösömustu
búin eru þau þar sem bóndinn með
aðstoð sinnar fjölskyldu getur ráðið vel
við að sinna bústörfunum.
Að lokum til þín, sem forseta Samein-
aðs Alþingis. Eru Alþingi og störf
þingmanna að tapa fyrri stöðu og virð-
ingu í Itugum almennings?
- Ef maður flettir í gömlum blöðum
og ræðum þingmanna frá fyrri tíð, má
sjá að menn báru ærnar sakir á pólitíska
andstæðinga. Ég held að úr þessu hafi
dregið. Hafa ber í huga þau sannindi
scm birtast í spakmælinu: Fjarlægðin
gerir fjöllin blá og mennina mikla.
Fjölmiðlar hafa fært stjórnmálamennina
nær fólkinu og allur almenningur kynnist
stjórnmálamönnum betur en áður var og
þess vegna njóta þeir e.t.v. ekki þess
sem í spakmælinu felst. Jafnframt hefur
það gerst að fjöimiðlarnir. eru orðnir
sjálfstæðari stofnanir sem heyja harða
samkeppni um tilveruréft sinn. Af þessu
leiðir að keppt er um það, sem athygli
vekur hjá almenningi og það virðist vera
svo að áhugi almennings sé almennt
nokkuð mikill um stjórnmál og störf
stjórnmálamanna.
- Birgir
NÝIR KAUPENDUR
HRINGIÐU^n
BLAÐIÐ
KEMUR UM HÆL
SÍMI 86300
Wíwáwn
Bflaleiga ^
Carrental
Dugguvogi23. Sími82770
Opið 10.00-22.00.
Sunnud. 10.00 - 20.00
Sími eftir lokun: 84274 - 53628
Leigjum út ýmsar Þvoið, bónið og
gerðir fólksbíla. gerið við bílana
Sækjum og sendum ykkar í björtu og
rúmgóðu húsnæði.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
viLiu ruuGA
AÐRA LEHHNA
OGSIGIA mm?
í samvinnu vló Arnarílug og Flugleiðir bjóðum vlð nýjan íerðamáta.
Þú getur ílogið úr landi, eða heim
____og notið siglingar um borð í ms Eddu hina leiðina._
Á milli haínarborgar og ílugvallar, hvar sem hann er,
íerðast þú á þann hátt sem þér best hentar.
Svona íerð er upplagt að tengja við dvöl í sumarhúsi,
í íljótabáti eða gistingu á sveitakrám og leigu á bíl erlendis.
Við getum verið þér innan handar við útvegun á öllu slíku.
og ekki spillir verðið ánægjunni:
Flug + Sigling Verð
GLASGOW NEWCASTLE 10.355
LONDON NEWCASTLE 11.138
AMSTERDAM NEWCASTLE 11.728
LUXEMBORG BREMERHAVEN 13.828
AMSTERDAM BREMERHAVEN 13.828
KAUPMANNAHÖFN BREMERHAVEN 13.914
DÚSSELDORF BREMERHAVEN 13.958
Allt verð er mióað við dvöl í tveggja manna kleía um borð í ms Eddu og gengi 5.7. 1983.
o
-<
r~
2
3J
FARSKIP
Aðalstræti 7, 101 Reykjavík.
Símanúmer: 91-25166.