Tíminn - 14.08.1983, Qupperneq 8

Tíminn - 14.08.1983, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 14. AGUST 1983 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðsiustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik indriðason, Guðmundur Sv. Hermannsson, Guðmundur Magnússon, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttlr, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrif stofur og auglýsingar: Síðumúla 15, fleykjavik. Sími: 86300. Auglýsingasimi 18300. Kvöldstmar: 86387 og 86306. Verð i lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 230.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Félagshyggja og mannúðarstefna ■ Þær raddir heyrast stundum að útgjöld vestrænna þjóðfélaga til velferðarmála almennings sé að sliga þjóðarbúskapinn. Ingvar Gíslason, alþingismaður, ritaði nýlega athyglisverða grein í Tímann, þar sem hann vísar slíkum fullyrðingum á bug. Ingvar bendir á, að velferðarstefnan sé í höfuðatriðum viðtekinn hugsunarháttur nútímafólks, eins konar pólitísk meginforsenda í lýðræðisþjóðfélagi nútímans. Velferðarríkið sé þannig sjálfsagður hlutur í augum Vestur-Evrópumanna án tillits til stjórnmálaskoð- ana eða stéttaskiptingar. Það sé hins vegar alrangt að velferðar- stefnan sem slík sé baggi á skattgreiðendum og atvinnuvegum. Skattgreiðendur fái endurgreitt framlag sitt í sameiginlegan sjóð þjóðarinnar í formi margs konar lífsgæða og þjónustu, sem þeir hefðu ekki ráð á ella, og það væri vafasamur greiði við atvinnuvegina að ætla að umbylta velferðarþjóðfélaginu m.a. vegna þess, að ef draga ætti úr eða fella niður félagsleg útgjöld hins opinbera, þá myndi byrðin og ábyrgðin í þeim efnum fljótlega flytjast yfir á atvinnulífið í mun ríkari mæli en nú er. í grein sinni fjallar Ingvar einnig um efnahagsvandann í Vestur-Evrópu, sem hann telur að stafi af ágöllum sem varða stjórn, skipulag og markmið atvinnufyrirtækjanna sjálfra, og segir m.a.: „Alþjóðaauðmagnið, sem ræður atvinnurekstri - iðnaði - Vestur-Evrópuþjóða, telur sig hafið yfir félagslegar skyldur, þ.á.m. þá grundvallarskyldu að tryggja næga atvinnu í þessum löndum. Ef atvinnuleysisbætur eru að sliga þjóðarbúskap Vestur- Evrópulanda, þá er frumorsökin sú, að atvinnurekendur festa fé í fyrirtækjum (iðnfyrirtækjum) annars staðar, í öðrum löndum. Enda fer það ekki milli mála. Alþjóðaauðmagnið hefur stuðlað að því að iðnfyrirtæki í Evrópu eru lögð niður (þar er of hátt kaupgjald) og þau sett upp í iáglaunalöndum, allt til þess að tryggja hávexti og gróða af fjármagni milljónamæringa og alþjóölegra auðhringa." Síðan víkur Ingvar Gíslason að fslandi og segir þá m.a.: „fslendingar hafa verið svo lánsamir að láta ekki ánetjast að fullu erlendum auðmagnsáhrifum eða hugsunarhætti stórkapita- lista til þessa. Hefur sú meginstefna orðið ofan á hjá íslenskum stjórnmálaflokkum í reynd - að opna landið ekki upp á gátt fyrir erlendum atvinnurekstri, heldur hitt að setja lagaskorður við eignarhaldi útlendinga á atvinnufyrirtækjum hér á landi. Hér er að vísu mjótt á munum, þar sem er álbræðslan í Straumsvík - umsvifamikið fyrirtæki í eigu útlendinga - og þær yfirlýsingar sem stundum má heyra af vörum Sjálfstæðismanna og nú síðast iðnaðarráðherra úr þeim hópi, að íslendingar eigi ekki að sækjast eftir eign á stóriðjuverum, ef reist yrðu í landinu. Ef þetta er almenn skoðun Sjálfstæðismanna og (væntanlegt) stefnuskráratr- iði Sjálfstæðisflokksins, þá efast ég um að uppbygging orkufreks iðnaðar geti átt sér stað í samstarfi við Framsóknarflokkinn, þegar til kastanna kemur. Ástæða er til að vara fólk við lítt hugsuðum áfellisdómum um velferðarþjóðfélagið, eða röddum sem boða einhvers konar afturhvarf varðandi vestræna félagshyggju og mannúðarstefnu. Hafa menn hugleitt hvað við tæki, ef félagshyggju og vestrænum mannúðarskilningi yrði kastað fyrir róða sem ráðandi afli í stjórnmálum Evrópulanda, þ.á.m. Islands? Tal um „afsósíalíser- ingu“ er af hinu vonda. Hitt er annað mál, að í því háþróaða velferðarkerfi, sem orðið er, kann að þróast andfélagsleg starfsemi eða hugsun, jafnvel spilling, ef notað er sterkt orð. Sú hætta er m.a. fyrir hendi að kerfið sjálft taki völdin og láti sjálft sig vaxa umfram þarfir eða eðlileg markmið. Sú hætta vofir ahtaf yfir að metnaður einstakra stofnana eða fyrirtækja ráði meiru en góðu hófi gegnir hvað varðar viðfangsefni þeirra, umsvif og útþenslu. Þetta hefur vafalaust gerst innan velferðarkerfisins eins og það hefur gerst á ýmsum öðrum sviðum opinberrar starfsemi. Mönnum hlýtur m.a. að blöskra kostnaður við heilbrigðisþjónustu, þ.á.m. launakostnaður jafnvel verkaskipting heilbrigðisstéttanna og margt í uppbyggingu heilsu- gæslunnar og þau viðhorf sem þar ríkja oft og einatt varðandi skipulag, tækjakaup og nýtingu fjármagns, bendir til nauðsynjar á aðhaldi á þessu sviði. Það er hlutverk stjórnmálamanna að koma í veg fyrir ofvöxt opinberrar starfsemi og stöðva misnotkun velferðarkerfisins, ef á slíkt reynir, en ekki að fyllast andúð gegn félagshyggju almennt og pólitískri mannúðarhugsjón, þótt einhverjir verði til þess að misnota kerfið í eigingjörnum tilgangi. Misnotkun velferðarkerfis- ins er sem betur fer undantekning og þar á almenningur engan hlut að máli,“ segir Ingvar Gíslason alþingismaður. - ESJ skuggsjá ■KVIKMYNDIN UMINDVERSKA ÞJÓÐARLEIÐTOG- AN MAHATMA GANDHIVAR FRUMSÝND í REYKJA- VÍK Á MIÐVIKUDAGINN VAR. Það gilti um hana eins og fáeinar aðrar „stórmyndir", að frægð hennar hafði borist hingað til lands á undan myndinni. Framleiðendurnir sjálfir auglýsa ófeimnir að kvikmyndin sé „A World Event“ eða „heimsatburður“. Kvikmyndagerðarfólk í Bandaríkjunum hefur hlaðið á hana fleiri Óskarsverðlaunum - eftirsóttustu kvikmyndaverðlaunum heimsins - en títt er um einstakar kvikmyndir. Myndin um Gandhi var þannig útnefnd til tíu Óskarsverðlauna og hlaut átta þeirra, þar á meðal ýmis þau veigamestu. Þeir, sem atkvæði greiddu um Óskarinn, töldu „Gandhi“ ekki aðeins bestu mynd ársins, heldur veittu þeir myndinni einnig Óskar fyrir leikstjórn, (Richard Attenbor- ough), leik í aðalhlutverkinu (Ben Kingsley), frumsamið handrit (John Briley), kvikmyndatöku (Billy Williams og Ronnie Taylor), klippingu (John Bloom), búninga (John Mollo og Bhanu Athaiya) og leikmynd (Stuart Craig og Bob Laing). Þá hefur mikið verið um kvikmyndina skrifað og lýsingarorð á hástigi ekki spöruð. Og hvernig er svo myndin sjálf? Á allt þetta lof rétt á sér? Svarið við því hlýtur að verða persónubundið eins og gengur. Að því er mig varðar uppfyllti þetta afreksverk Richard Attenboroughs flestar þær væntingar, sem orðsporið hafði vakið, en þó ekki allar. ÞAÐ ER VISSULEGA í MIKIÐ LAGT AD GERA KÝIKMYND UM GANDHI, ÞVÍ MARGIR EIGA ERFITT MEÐ AÐ LÍTA Á HANN SEM MANN. Meðal verulegs hluta þjóðar sinnar var hann talinn heilagur maður, dýrlingur, ogsú skoðun var ríkjandi víðar-ekki síst á síðustu árum ævi hans. Það er forvitnilegt, til þess að átta sig betur á þessari afstöðu manna til Gandhis, að vitna í ummæli, sem birtust í Tímanum 2. febrúar 1948, þ.e. rétt eftir lát hans, en sú grein hófst með þessum orðum: „Síðan styrjöldinni lauk hefur enginn atburður vakið meiri athygli en morðið á Mahatma Gandhi, er var framið síðastliðinn föstudag. Það var ekki aðeins í Indlandi, heldur hvarvetna í veröldinni, að menn urðu sem þrumulostnir, er ■ Ben Kingsley í hlutverki Mahatma Gandhis í kvikmynd Richard Attcnboroughs, sem nú er sýnd í Stjörnubíó í Reykjavík. Kvikmyndin um leið- togann og manninn Mahatma Gandhi þeir heyrðu þessa fregn. í ýmsum blöðum var þessum atburði jafnað til þess, er Kristur var krossfestur. Hvað sem um þá samlíkingu má segja, verður hinu ekki neitað, að fáir menn hafa meira líkst Kristi í ýmsum athöfnum en Gandhi og sennilega hefur engum manni tekist síðan Kristur leið að verða slíkur leiðtogi með andlegum vopnum einum og Gandhi var“ I kvikmynd Richard Attenboroughs er reynt að sýna manninn Gandhi - „að finna leið að hjarta mannsins“ eins og hann orðar það. Kannski hefði verið nær að segja að finna leið að hjarta þjóðarleiðtogans, því hér er fyrst og fremst lögð áhersla á að sýna Gandhi sem hinn mikla leiðtoga þjóðar sinnar - manninn sem var eitt með þjóð sinni og leiddi hana til sjálfstæðis, þótt það yrði að vísu með öðrum hætti en hann hafði vonast til. Hér er nefinlega lögð megináhersla á að tengja saman epíska frásögn af baráttu þjóðar gegn erlendri nýlendukúgun og persónulegan þátt Gandhis í þeirri baráttu. Hinir sögulegu atburðir eru þó tengdir frásögninni af ævi Gandhis með nánari hætti en stundum verður í kvikmyndum af þessu tagi, þar sem miklir atburðir eru oft aðeins sem baksvið persónufrásagnar (nýjasta dæmið um slíka kvikmynd er „Reds“ eftir Warren Beatty). í þessu efni er auðvitað stiklað á stóru, því Gandhi hóf þegar að taka nokkurn þátt í frelsisbaráttu Indverja þegar á fyrstu áratugum aldarinnar, jafnvel áður en hann snéri aftur til heimalands síns frá Suður-Afríku árið 1915 -en þangað hafði hann haldið sem lögfræðingur árið 1893 eftir að hafa misheppnast að koma undir sig fótum sem slíkur í Indlandi. Kvikmyndin hefst reyndar þegar Gandhi er nýkominn til Suður-Afríku, og mun ég ekki vera einn um að harma það, að þroskaskeiði hans séu engin skil gerð í þessari mynd. En fyrsti hluti myndarinnar fjallar sem sagt um reynslu Gandhis í Suður-Afríku. Hún varð honum mikilvæg, þar sem hann lagði þar grundvöllinn að kenningu sinni um baráttu án ofbeldis. Þegar Gandhi snéri heim aftur til Indlands árið 1915 var hann þegar þekktur fyrir baráttu sína í Suður-Afríku og fyrir skrif sín uni sjálfstæðismál Indlands, en, eins og hann sagði sjálfur, þá var hið raunverulega Indland honum sem fjarlægt land. Og hann lagði því land undir fót og ferðaðist næstu árin vítt og breitt um landið og kynntist fólkinu, hinum fátæka fjölda, sem hann sá brátt að var í engum tengslum við þá forréttindastétt, sem starfaði í þeim samtökum, sem börðust fyrir sjálfstæði Indlands - Kongressflokknum. Gandhi tók skrefið til fulls, gerðist einn hinna fátæku, þar sem hann kvaðst ekki geta veitt fólkinu forystu nema hann lifði eins og það. Sú hugsun, að foringjar eigi að deila kjörum með því fólki sem þeir leiða, er víst ekki það eina í kenningum Gandhis, sem engum félagsmála- eða stjórnmálaforingja dettur í hug í dag að fara eftir sjálfur. í kvikmyndinni er því vel lýst hvernig Gandhi tengdist fátækum löndum sínum sífellt nánari böndum og öðlaðist ást þeirra og virðingu - og hlýðni. Hann lagði áherslu á að Indverjar leystu sig undan viðjum efnahagslegrar ánauðar og óréttlátra laga. Þannig fékk hann landa sína til þess að hætta að kaupa bresk klæði en vefa sjálfir í staðinn. Spunarokkurinn varð tákn þessarar baráttu, sem hitti breskan iðnað illilega. Annar hápunktur baráttu Gandhis var gangan mikla til að mótmæla einokun brékku nýlendustjórnarinnar á saltsölu, og tollum sem á saltið voru lagðir. Báðum þessum þáttum í baráttu hans, og þó sérstaklega saltgöngunni, er frábærlega lýst í myndinni og sýnir baráttumanninn Gandhi í skýrustu ljósi. GANDHI BARÐIST FYRIR SJÁLFSTÆÐU INDLANDI ÞAR SEM ALLIR TRÚARFLOKKAR, HINDÚAR JAFNT SEM MÚHAMMEÐSTRÚARMENN, GÆTU LIFAÐ SAMAN í SÁTT OG SAMLYNDI. Það voru því mestu vonbrigði lífs hans, að hatrið á milli þessara tveggja stóru trúarhópa skyldi leiða til skiptingar landsins í tvennt - Indlands og Pakistans -, gífurlegra búferlaflutninga á milli þessara landsvæða, harðra átaka og mikilla hörmunga. Hann gat ekki Komið í veg fyrir þessa skiptingu í tvö ríki, en með því að beita sterkasta vopni sínu - föstunni og áhrifum hennar á landsmenn - tókst honum þó að stöðva óeirðirnar og koma á friði. Þar komu enn einu sinni í Ijós þau ótrúlegu áhrif, sem Gandhi gat haft á landa sína til að eyða hatri þeirra. Það fer ekki á milli mála, að í mörgum hinna epísku fjöldaatriða myndarinnar rís hún hæst. Þar sýnir Attenbor- ough snilli sína sem leikstjóri. Frammistaða Ben Kingsleys í hlutverki Gandhis er einnig svo frábær, sem af hefur verið látið, og erfitt að hugsa sér annan mann í því hlutverki. Allir aðrir leikarar og sögupersónur hverfa þar í skuggann - kannski um of, því vafalaust hefur hlutverk sumra, svo sem Nehrús, verið áhrifameira í sjálfstæðisbaráttu Indverja en gefið er í skyn í myndinni. Breska nýlendustjórnin í Indlandi er sýnd í mjög slæmu Ijósi, stundum þannig að nálgast skopmynd af nýlenduherrum, sem vart hefur verið ætlunin. Og bandarískur ljósmyndari fær miklu stærra hlutverk í myndinni en nokkurt tilefni er til, og er það hálf vandræðalegt. Hér er ekki ætlunin að fjalla frekar um sagnfræði myndar- innar, enda mun erfitt að gera kvikmynd af þessu tagi, sem er algjörlega hlutlæg í dómum um sögulega atburði. Það er heldur ekki meginmálið, því þetta er jú kvikmynd um Gandhi fyrst og fremst, manninn og þjóðarleiðtogann og söguna aðeins að því leyti sem hún tengist æfi hans og baráttu. Ogsá Gandhi, sem hér birtist, er vissulega maður, en mjög óvenjulegur - ekki aðeins vegna þeirra kenninga, sem hann boðaði, heldur einnig vegna þess, að hann lifði í samræmi við þær kenningar. Það tvennt sameinaðist um að gera hann að Mahatma, hinum mikla anda, sem Einstein sagði réttilega um, að komandi kynslóðir myndu eiga erfitt með að gera sér grein fyrir, að slíkur maður hefði virkilega lifað á þessari jörð. Sá mikli andi birtist okkur á breiðtjaldinu í Stjörnubíó í mætti sínum og einfaldleika. - ESJ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.