Tíminn - 05.06.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 05.06.1983, Blaðsíða 20
SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 MAGNUS MED NÝJA SVEIT ■ Magnús Stefánsson fyrrum trommu- leikari hljómsveitarinnar Egó er að berja saman nýju bandi þessa dagana. í samtali við Nútímann sagði Magnús að tónlistin yrði á nýbylgjurokksviðinu, fín- pússaöri en það sem Egó voru að gera síjfustu vikurnar... „þeir voru meir að leita aftur í pönkið".. Magnús sagði að of snemmt væri að geta um önnur nöfn í sveitinni en hann hefði hugsað sér að í henni væru sex menn, gítarleikari, bassaleikari, hljóm- borðsleikari og tveir trommarar auk söngvara.....svona svipuð uppstilling og er hjá Roxy á tónleikum... Magnús reiknaði mcö að æftngar hæfust hjá þeim upp úr miöjum júní og hann vildi koma því á framfæri að enn vantaði í bandið annan trommulcikar- ann og hljómborðsleikara. - FRI ■ Magnús Stefánsson. PUPPETS VERBA DEILD 1 — Björgvin Gíslason genginn í sveitina sem hljómborðsleikari ■ Hljómsveitin Puppets hefur skipt um nafn og kallast nú Deild I. Jafnframt hcfur þeim áskotnast nýr mcðlimur, Björgvin Gíslason, en hann kemur í sveitina scm hljómborðslcikari, ckki söngvari eins og ranghermt var hér í síðasta blaði. Deild 1 cr bökuð á tónleika og böll út allan júnímánuð og verður hið fyrsta haldið í Félagsgarði í Kjós í kvöld, 4. júní. 10. júní cr sveitin svo á Hornafirði, II. júní á Reyðarfiröi, 12. júní á Fáskrúðsfirði, 17. júní í Vestmannaeyj- um, 24. júní í Skjólbrekku og I. júlí í Sandgerði. v Prógramm þeirra mun veröa þannig uppbyggt að þriðji hlutinn er frumsamin lög eftir „Puppets", þriðji hlutinn er lög et'tir Björgvin Gíslason og þá væntanlega af nýjustu plötu hans og þriðji hlutinn verðagóð rock'n roll lög, ekki endilega , þekkt en „traust" eins og þeir félagar Jorg',|n Gislason segja. _ FRI Q4U með Classix Nouveaux ■ Það verður hljómsveitin Q4U sem mun hita upp á undan hljómsvcitinni Classix Nouveaux í Laugartialshöll þann 16. júní n.k. Hljómsveitin kemur fram nokkuð breytt frá því sem verið hefur þar sem Kormákur er aftur genginn inn í hana sem trommari. Þótt hann sé kominn mun trommuheilinn samt áfram verða notaö- ur og sennilega forvitnilegt að sjá þá útkonju. Hljómsveitin hefur æft af krafti að undanförnu og sennilega verða þau meö fimjn ný lög á prógrammi sínu í höllinni. - FRI Upptalning í auglýsinga- skyni Einmitt - Fálkinn ■ Megnið af þessari plötu er bresk tonlist, þ.á.m. Kajagoogoo, Underton- cs, Dire Straits, Dexy's Midnight Runn- ers og U2. Auk þess eru bandartsk, hollensk og íslensk lög sem flest, fyrir mirin sntekk, gera manni crfitt fyrir að hlusta á plötuna t heild. Fyrri hliðin byrjar vel með Kajagoo- goo, Tcars for Fears, The Undertones og U2. Petta eru góð lög frá hljómsveit- um sem maður myndi tæpast kaupa piötu með, nema Undertones. En það sem er eftir fyrri hliðarinnar er gjörsam- lega ómögulegt. John Watts syngur lag sem gæti gefið góöa mynd af því ef The Who tækju þátt í Eurovision keppninni og af Scarlet Party og Eddie Rabbit/ Crystal Gayle lekur slepjan. Pað er cinmitt sams konar slepjá og finnst í Eurovisiön og heyrist úr kassettutækjum smápía í tjaldútilegum. Aðeins þrjú lög get ég sætt mig viö á seinni hliöinni, Twisting by the pool með Dire Straits. Let’s get this straight tneð Dexy’s og My Jamaican Guy með Gracc Jones. Pö þessi lög séu talsvert öðruvísi en fjögur fyrstu á fyrri hliðinni heföu þau sómt sér betur þar því þá væri að minnsta kosti hægt að hlusta á einagóða hlið. Hollenska innleggið hér cr gamla hljómsveitin Golden Earring sem hefur nú endurnýjað sig með styrkari bassa- trommu og öðrum nauðsynlegum trixum. Útkoman er popphávaði. Lag Jóhanns G. Jóhannssonar. I ean't take it no more, sem Björgvin Halldórs- son syngur, gæti allt eins verið með Bob Williams eða Tom Starlight cöa cin- hverju bandarísku skriðdýri upp vin- sældaríistann. Pað er vonandi að Björg- vin finni sér einhvern framtaksaman viðskiptajöfur til að komti þessari ís- lensku tónlist á framfæri í útlandinu, þar skilja þeir hana betur. Robert Palnter og Nancy Nova tlytja popplög af því taginu sem vcrða oft vinsæl ef rétt er haldið á spilunum. Samansöfn eru oft sniðug og þörf, einkum ef veriö cr aö koma á framfæri tónlist sent ekki nær á stórar plötur eöa ef_ safnað er saman ákveðinni tegund tónlistar. „Einmitt" inniheldurmörggóð lög en ál.íka mörg slæm og er tónlistar- lega séð óheilsteypt. En ég efast ekki um að hún seljist og þá er tiigangnum náð. " - Bra Ríkur en góður David Bowie - Let’s Dance / Fálkinn ■ Nú þegar Bovvie er orðinn upptekinn af kvikmyndaleik, forríkur og fluttur tii S' iss. og búinn að lýsa þyí-yfir t návist nokkurra tuga blaðamanna að nú loks- ins sé hann hreinskilinn í tónlist sinni. eftir að hafa gert nokkrar stórkost- legar plötur síðustu árin. er erfitt að ímvnda sér hvers konar- hljóð- hann kreistir út ur sér. Fyrír mig var það þv i mikill spenningur að hcyra Let's Dance og kannski helst vegna þess að Bowic var kominn með alveg nýja hljomsveit. Sem sagt ekki lengur meö hið sérstæða rythmapar, Dennis Davis og George Murray. sem átti einna ntestan þátt í aö skapa hinn skemmtjlega tón á plötum Bowie. allt frá Stations to Stations. Auk þess vakti það svo lítinn beyg að Nile Rodgers og Bernand Edwards úr hljóm- svcitinni Chic væru við stjórn ásamt Bowie sjálíum. Síðast en ekki síst, í Ijósi þess að Bowie hafði gefið til kynna að hann hefði ekki sama metnað til að gcra eitthvað nýtt og áður, var titillinn nánast ógnvekjandi. En þótt ntaður sc bless- unarlega búinn að losa sig við aila fordóma t garð danstónlistarog búinn að viðurkenna fyrir sér sjálfum að oftast cr danshæf tónlist skemmtilegust, á maður eitthvað erfitt meö að kyngja því að cinn uppáhaldspopparinn sinn sc að lenda undir sama hatti og flestir aórir. En David Bowie cr ennþá einn á báti og dansar meira að segja betur en flestir aðrir. Það er ótvírætt merki þess að gamlir popparar séu orðnir gamlir (og farið að förlast) þegar tcxtar þeirra eru orðnir fullir af bjartsýni, sól og ást tii konu sinnar. Dænii unt þaö er George Harri- son, Lou Reed og fleiri. I titillaginu býður David Bowie upp á dans undir „alvarlega tunglskininu" eins og segir í textanum og dansar bjartsýnn án þess þó að verða sentimental. Þessi boð- skapur verður þó ekki yfirþyrmandi þvt hin lögin fjalla öll um önnur mál. Vert er að geta textans í China Girl eftir Bowie og Iggy Pop. sem lýsir vanmætti vestrænna allsnægtamannsins gagnvart ómcnguöu Kínastúlkunni sem hcfur hann á valdi stnu: „And when 1 get excited/ my little-China Girl says/ Oh Baby just you shut your rnouth/ she says sh-sh-shhh." Einnig afgreiðir hann kynni sín af stórborginni þar sem hann hefur löngum dvalið á skemmtilcgan hátt í iaginu Shakc it: „I could take you to heaven/1 could spin you to hell/ But Pll take you to New York/ lt's the place that I know well." (Skyldu íslendingarnokk- • urn tíma geta lýst Rcykjavík á þennan hátt?) Upptakan á þessari plötu er mjög ólík fjórum síðustu plötum Bowie sem voru frekar hráar, á þeim var trommusándið nánast eins og f öskutunnuloki og mixið „skítugt". Hljómurinn á Let's Dance er hins vegar mjög professional og tær en kraftmikill og greinilega miðaður við nútíma tóngæði diskótekanna og bítla- hljómtækjanna. En krafturinn er ekki framleiddur í söluicgu sjónarmiði einu, tónlisfin sjálf er knúin miklum krafti og nyti sín ekki i lakari hljómgæðum. Pað er engin ástæða til að hrósa cinstökum lögum því platan er ein góð heíld, hljóðfæraleikur og útsetningar eru hugmyndaríkar og skemmtilegt cr að hcyra svona frjálsan. nánast gamal- dags, gítarleik Stcvie Ray Waughn í svona mikilli andstöðu við taktfasta diskö/funk músíkina. Þó er Cat People kannski eirta lagið sem fellur ekki inn í þessa heilstevptu mvnd. það er talsvert mciri rokkfílingur í því en á litlu plöt- unni. en verður fyrir bragðið mun hress- ara. Hvað sem tönlistin er góð og hvað sem hún kemur á óvart er það þó alltaf rödd Bowie sent er mesta ununin og sctur mesta svipinn á allt klabbið. Aldrei hefur hann verið jafn þýður, tilfinninga- ríktir og kynæsandi og hér og aldrei hefur hann sungið betur en nú. Ég held að rödd hans hafi átt mesta þáttinn í gcysilegum vinsældum hans og það er ekkert undarlegt viö það að hevra litla Bávia hér og þar í poppheiminuip. Prátt fyrir að David Bowie sé orðinn hættulega ríkur hef ég það á tilfinning- unni að Let's Dance sé ekki hans síðasta sending sem einhverju máli skiptir og samkvæmt verslunarlögmálunum verður hann að syngja meira þvi það viröist vcra risin upp ný kynslóð af Bowie-að- dáendum. -Bra Roxy Music - The High Road/Fálkinn ■ Ég hef sáralítið heyrt frá Roxy Music frá þeirri frábæru plötu Siren 1975 fyrir utan lög og lög á stangli. AÍtur á móti hefur maður heyrt hljómsveitir uppá síðkastið sem líkjast svolítið Roxy Music og þá sérstaklega Brian Ferry, söngvara hljómsveitarinnar. Þar rná helst nefna Martin Fry, söngvara ABC, sem í klæðaburði er álíka mikill sjarmör og Brian. Ég er heldur ekki frá því að Roxy Music séu með „frumlegri" hljóm- sveitum í albúmagerð, allt frá fyrstu plötu hennar hafa léttklæddar og léttúð- ugar píur prýtt albúmin að undan- skildum tveimur eða þrcmur. Þrátt fyrir að cflaust hafi þessi hönnun hjálpað upp á sölu. fældi hún mig einu sinni næstum frá að kaupa fjórðu plötu Roxy, Country Life, því maður skammaðist sín hálfveg- is að koma heim með mynd af tveimur berbrjósta konum í gegnsæjunt nærbux- um, lostafuilum á svip. Albúm þcssarar mini-live LP The High Road sýnir konu sem togar í annað munnvikið, konu sem húsmæður mýndu kalla drós. Ég cr ekki frá því að tónlist Roxy og albúmin haldist í hcndur og þrátt fyrir að hljómsveitin hafi starfað í svona mörg ár, alltaf með sama kjama, er tónlistin ennþá kraftmikil og heit og þessi Roxy Music-stíll er alveg eins tímabær nú eins og hann var. Fáar þær hljómsvcitir scm voru hvað ntest áberandi upp úr 1970 hafa elst vel, þær sem þóttu spila þróaða músík líkt og Yes og ELP hljóma nánast líkt og miðaldatónlist í dag, en einstaka hljómsveitir og þar á meðal Roxy hljóma enn ferskar. Enda spilandi einfaldari músík. The High Road er tekin upp á hljómleikum í Skotlandi og inniheldur fjögur lög. Á fyrri hliö eru tvö lög eftir Brian Fcrry, Can’t let go og My only love en á seinni eitt eftir Neil Young og annað eftir Lennon, Jealous Guy. Pað síðastnefnda er eina lagið sem ekki er gott og ekki hæfir jafnkröftugri hljóm- svcit og Roxy þótt Brian hafi oft sungið skemmtilega væmin lög. Aftur á móti gefur hljómsveitin lagínu Like á Hurric- ane eftir Neil Young mjög sannfærandi kraft með miklu rafmagni og sterkum kvenbakröddum sem og í báðum Ferry lögunum. En samt sem áður eru það bestu lögin á þessari plötu þótt Phil Manzancra, gítarleikarinn fái að lcika svolítið of mikla hetju. Ásamt Bowie er Brian Ferry einn af örfáum lciðandi öflum áttunda áratugar- ins sem enn hafa ekki kúkað í buxurnar, þótt eftirvæntingin eftir verkum hans sé kannski ekki eins mikil og áður. Og Brian virðist alltaf vera jafn góður stjörnandi, t.d. hefði ég aldrei getað ímyndað mér að trommuleikarinn Andy New mark, sem oftast hefur haldið sig í návist léttari poppara, gæti lamið eins og hér. - Bra BilaleiganJ^ § CAR RENTAL 29090 REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK Kvöldsimi: 82063

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.