Tíminn - 23.10.1983, Blaðsíða 15

Tíminn - 23.10.1983, Blaðsíða 15
14 SUNNUDAGUR 23. OKTOBER 1983 SUNNUDAGUR 23. OKTOBER 1983 15 v / ’>-s' Árið 1942, eða fyrir rúmum fjórum áratugum, þegar síðari heimsstyrjöldin var í algleymingi, settu óvægnar deilur Jónasar Jónssonar frá Hriflu, þáverandi formanns menntamálaráðs og eins áhrifamesta stjórnmála- manns þjóðarinnar, við Bandalag íslenskra listamanna mjög svip á menningar- og stjórnmálalíf hér á landi. Agreiningurinn snerist um viðhorf til myndlistar og lista- verkakaupa menntamálaráðs, en að baki virðast hafa búið djúpstæð- ari átök, jafnt stjórnmálaleg sem menningarleg. Við ætlum að rifja þessa sögu upp. Sögu myndlistar á íslandi er unnt að rekja til landnámsaldar, en sjálfstæðir listamenn er fengust við gerð málverka og höggmynda komu ekki frant fyrr en í upphafi þessarar aldar, svo að heitið gæti. Brautryðjendur íslenskrar mynd- listar í nútímaskilningi voru menn eins og Þórarinn B. Þorláksson og Ásgrímur Jónsson, sem fengust einkum við gerð landslagsmálverka. Síðar bættust í hóp- inn Ríkarður Jónsson, Einar Jónsson, Guðmundur Thorsteinsson, Jón Stefáns- son, Jóhannes Kjarval o.fl. Vinsælasta viðfangsefni málaranna var landslangið, og svonefndur natúralismi, þ.e. eftirlík- ing náttúru eða hluta sem menn hafa búið til ásamt frásagnarlist var ríkjandi. Þetta viðhorf til myndlistar var orðað svo í ræðu við opnun fyrstu almennu listsýningarinnar í Reykjavík haustið 1919: „Vér þráum að sú fegurð er líðandi stund bregður skyndilega yfir láð og lög mætti verða varanleg eign vor og allra þeirra sem hennar eru hæfir að njóta... Hlutverk listamannsins er að gera þennan auð að varanlegri eign þjóðarinnar, festa sérkennileikann og fegurðina á léreftið eða móta í málm og stein“. En myndlist, sem vill rísa undir nafni, getur ekki unað forskriftum. Það eru gömul og ný sannindi, að þegar efni og form eru fjötruð af hefð og vana fer myndlist að hnigna. Nýstárleiki er kvika allrar sannrar listar. Þegar nýjar listastefnur t.d. express- ionismi og abstrakt list, fóru að láta að sér kveða hér á landi, og myndlistar- menn eins og Finnur Jónsson, Þorvaldur Skúlason, Gunnlaugur Scheving, Jó- hann Briem og Jón Engilberts, svo nokkrir séu nefndir, tóku einnig að velja sér ný myndefni, kom til árekstra á milli þeirra og hinna sem stunduðu hefð- bundna myndgerð eða aðhylltust hana. Listamannadeilan 1942 er dæmi um slíkan árekstur. Baksvið listamannadeilunnar s Til að átta sig á listamannadeilunni 1942 er ekki nægilegt að huga að eigin- legri eða sýnilegri atburðarás hennar; baksviðið, jafnt í menningarlegu sem . stjórnmálalegu tilliti, verður einnig að hafa í huga. 1 blaðagrein er að sjálfsögðu ógjörningur að fjalla um það efni nema á stuttaralegan og yfirborðslegan hátt, og verða hér aðeins nokkrar ábendingar látnar nægja. Fyrst er þess að geta að hernám Breta 1940 og síðar hervernd Bandaríkja- manna raskaði öllu þjóðlífsmynstri ís- lendinga, og breytti fremur fábrotnu sveitaþjóðfélagi á örskömmum tíma í borgaralegt nútímaþjóðfélag. Þessi þró- — Jónas Jónsson frá Hriflu ■ — Asgrimur Jónsson málari; náðinni ■ - Þórarinn B. Þorláksson mál- ari; í náðinni - Jón Stefánsson málari; í ónáð — Jóhann Briem málari; i ónáð ■ Steinn Steinarr skáld LISTAM un var að vísu hafin mun fyrr en styrjöldin hratt henni miklu örar fram. Hefðbundin viðhorf á flestum sviðum, viðhorf til vinnu, fjölskyldu, stjórnmála, lista, vísinda, tækni o.s.frv., breyttust líka, sumpart vegna kynna fólks af nýstárlegum hugmyndum erlendis frá og að nokkru vegna nýrra viðfangsefna, eins og gengur og gerist. Annað mikilvægt atriði cru hinar beinu stjórnmáladeilur á íslandi um þetta leyti, en þær voru harðskeyttari og persónulegri en nú þekkist, og að auki voru andstæðurnar í stjórnmálum miklu skarpari. Árið 1939 höfðu stærstu stjórn- málaflokkarnir, Framsóknarflokkar, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur myndað ríkisstjórn saman, þjóðstjórn- ina svonefndu, undir forystu Hermanns Jónassonar. Jónas Jónsson frá Hriflu, einn helsti leiðtogi Framsóknarflokks- ins, sat ekki í stjórninni, en það er skoðun margra að hann hafi verið hinn raunverulegi faðir hennar. Þessi stjórn reyndi að fást viðefnahagsvandann, sem þá var mikill, en náði ekki samkomulagi um aðgerðir, og upp úr samstarfinu slitnaði snemma árs 1942. Tvennar kosn- ingar fóru fram það ár, en í þeim efldist mjög eini stjórnarandstöðuflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn. Eftir vorkosning- arnar myndaði ÓlafurThors minnihluta- stjórn Sjálfstæðisflokksins sem sat fram í desember. Upptök deilunnar Þegar sagan hefst síðla árs 1941 var meirihluti menntamálaráðs, en það ráð sá um listaverkakaup ríkisins og opin- beran stuðning við listamenn, skipaður Pálma Hannessyni rektor, Guðmundi Finnbogasyni landsbókaverði, Árna Pálssyni prófessor og formanninum Jón- asi Jónssyni alþingismanni frá Hriflu. Þegar flett er skýrslum menntamálaráðs yfir árið 1941 og 1942 og athugað hvers konar listaverk hafa einkum verið keypt og af hverjum, kemur á daginn að það er hin hefðbundna myndlist, natúralismi og frásagnarlist, sem er í náðinni, ekki síst ef myndefnið er „þjóðlegt" í ein- hverjum skilningi. Svo dæmi séu tekin, og hér er stuðst við myndlistarsögu Björns Th. Björnssonar (II. hefti, bls. 209), keypti ráðið þessi tvö ár fjórar myndir eftir Eggert Guðmundsson, sex eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal, þrjár eftir Gunnlaug Blöndal, þrjár eftir Höskuld Björnsson, fimm eftir Svein Þórarinsson og brjóstlíkneski eftir Rík- arð Jónsson. Hin sömu ár keypti það hins vegar enga mynd eftir Jón Stefáns- son, enga eftir Snorra Arinbjarnar, enga eftir Gunnlaug Scheving, enga eftir Þor- vald Skúlason, enga eftir Júlíönu Sveins- dóttur, né eftir hvorugan þeirra mynd- Vinnttfóih 1 0,1 h'b, * *«« Í „K •« ■»* > « „ ■ ...» . , „ " ' " ■'■■■■■■':■■. ■■ ' * ——- Wm \um i'iKái *,<?»'. $«<»**$** '■<*■**** Mi ti *«<St ' fcti i>. >k i- í rttittfeitK u«>* «*!**$* (Ktm V«8! 1 Ifrn ***** «*« iten, *.;■ iéh* rv kw onr&>rik. a aiASftftH i tmt »»»»*&*** \ it Utifm Ul «4 & «6* fifcli* *.ium Í ítitm i RIll i TVtiiT tijsíík tltelt 4 ik.v Aii* 4i>*, j ytíJiýyS i sr ,mi&&:M)& kgiKtttfttafe ««** t*** b nin tmmú- m i ttamitxm -mm .*« tmi nmm kyts t*i<- SiMvtiftt « «3 á Páum nxtiiam iftá 4 w., m*T «ni i*mtr ptf »t/4Uí |r«t ** $***, t?tir Úftrm * &Mxr tíwn-ur * tíAt&SA J wr ©f • t þaz «85 **■ 1 mri * SÍTTUiJiUís tðS feA** 2^ ' ' *■ mBdð uinW TOdrðgto ttí f* .„Únwig hatí. Ut u * [a isöKXura «m»'! .mi&stilm, rnt***.' <*** *•**•* Myndirnar hér ah *»« S • voru nýlega í4^‘®*rí.USrl^íÁ'mfig^ eru k*öid-is mödfi urutnl Tildröífht íx „ .ie'.dsnH'nn haíaiur owwtv-* —- — -■ um blaSíto* hunn. Þar aem rrArg Timantns * wtrasuur ««<*( Z áu ^ tat - zsvfi rétt jBHfli ŒtijxuiJE mt vahýr 3tel->e,, Uj. j Árið 1942 lét Jónas Jónsson frá Hriflu hengja upp opinherlega sýningu á „klessumálverkum”, nokkrum myndlistarmönnum til háðungar. Hér segir frá sýningunni, aðdraganda hennar og eftirmála. I mi I I yh | VxiU ttmnlsttátoMiiBÉinMil Bandalag íslcnzkra lístanianna sendtr alþingi röbslufl ábæroskfai, sem 66 mcdlimír þess undirrifa Efiirfekíarverðar upplýstngar um reihnínga ráðsins og mcðferd lónasar Jónssonar á opinberu fé Kandalag íslenzbra lísfamanna hefur senf alþingi j •*’ *bi«l úi af framfetði Mcnnlamálaráðs: í Verður innrás gerfi frá ísiandi til Noregs ? SttT TKTPir* irk BMmiP. senda AJh,wa,f S^Ufeían, aa™lnna ^ _ ' í>að IJI . ^ 'hanna. w fr. '**r. W hjer Wrfet. feL íís^. «***» „. /á ,ar -»» ainoT, 3nra xer„ju f-irt) ortun, • i v *fe„C7 % þin^J tmfi t#í .jj. ■* r>f( hnrtr. .... •am'W<ráðs »r_, í f>1‘ hafti, S”SZ* S,~lnr »«■« elt' í5. ®r öJ. a. ■ — Á forsíðu Tímans sunnudaginn 3. maí 1942 var birt mynd af málverk- um þeim sem Jónas Jónsson setti á háðungarsýninguna i Gef junargiuggan- um í Aðalstræti. ■ — Frásagnir Morgunb/aðsins og Nýja dagbiaðsins af mótmælum Bandalags íslenskra listamanna vegna málverkasýningar Jónasar Jónssonar í Alþingishúsinu. ,,g#ly«lð: bnn ■"?111 hinna best |)u .Jm seymast særðu á i að vera t-Trn.fer.LUráeb°^ÓIum afU;fae&,U;Únn‘orve.d. trvnt . ,npl,nun’ 1 o» «r B. í? **** a« L2í£oajt*tn| höggvaranna, Ásmund Sveinsson ogSig- urjón Ólafsson. Með þetta í huga þarf það ekki að koma á óvart að seint á árinu 1941 tóku 14 myndlistarmenn sig saman og sendu ávarp tjl Alþingis þar sem þeir gagn- rýndu störf menntamálaráðs, einkum listaverkakaup þess, og fóru þess á leit að lögum um ráðið yrði breytt og kveðið á um að í því sæti maður sem hefði sérþekkingu á myndlist, og annaðist hann kaup á listaverkum fyrir ríkið. Stjórn myndlistardeildar Bandalags ís- lenskra listamanna studdi þessa hugmynd, og gekk m.a. á fund mennta- málanefndar neðri deildar sem hafði með erindið að gera. Nefndin taldi öll tormerki á lagabreytingu, en skrifaði menntamálaráði þess í stað bréf þar sem hún lagði til að það tæki sérsérmenntað- an ráðunaut í þessum efnum. f rmYtft t ftvtx* hiííitr tt frtn om og K hnm ur 'ðmgvU öfcfcjtr öi> t»m ■*V Pðá I; máí tmi. i niíigto, jsuðí m tm* a* itilmir I tíútt w& viljum viljum ð. hvað língað m \<w r oklif >ýkk|» uðín n, ikkur, ðarín<< i jwn- nami' tíl að ökimt jiátt i iMk ángin nóga iterk,- tfg«- kur í rttaktt wtagi ÍSOU. S20JÍ, áftt fÍtfAlTí , y 55ð Í*'H Hikoði o-kki ’^l . ”***&? k-Ml C0I, J m4l«rittA»ar, fcljítttt ,» *» rvit a&?, ***“ ; mttm «v* jþwwú __ K ? twr Bar.K.', tw». m r»amr v«r á/Sar * m3,K.,r * «r«, - «« hBr <!M i íetl>um fimm ógíctix ?«r vro hver JUOhmti hotH og eiu M xm "M***1Ú& \*r iáögt kumto, ^ Jroííri þro^abmot htm á »4 htíki r. Mér hrlur gjgJáfta orðkj M íj<rt»ara, j«t« oðkajUrrii »A koóiA mátyrtrkum rík- Uitw tyrir i viðumx\úi KCcaaltytm. «tn, jiiir .-X'tn aifiaettiúögi gyfít kr^tur » 11Á M, t*< myiáír boru þuö mcA mr ** k&tmúxr þrirm hjtfR rirufeh- t m u\\i hiÁ bí*l» ur núlifna’j «jy«»flw> F'vt>'íj>í>, ícír b«.r,t sýjji* s ■>■>* btnn.n t.„ h t.>ií:t,Wb hhtiu ktgfi'iumi wittjtttk <>g :«m : iyíitó - 'I ' r 'i Í.cóíi h;.< i.'í^-iilt <>J* fyrsi <>*., frtýttts' j'#n?nakir. AA . htki t málÝúrfc^ í j sloiosiuturfx U*»ar miltífi »lArf, i öítkil Jtjfikkijsjí, attkU rxrsáiíutrs rcyjwUt oy v.tr&öíeii. Þuu >>m coitttun (»•««, kft víA Istt-ftdútxar mjm uu'immgarþjéd, u>5 euiuíy ItjA okkur tr umtió óriRUtgjarnt <>g trútt viaxí I þfet aiuikgra, vrrf.jtt.iMa. AA tvndu fv þr**ar myndtí- tíl vjfivánmar bg itm-yk»i mmr cr biÁ Ajuuít og brnda ú «Jlt; hiA fegur«í8 <>g Iwrtta t evrúpdrttrt »>'}*. ímalíst í «ítnjn iiíyangí. A5 Iw&á tiirsunír þéaaiák' övahtra, er Itífi tumta og aá fyrirllts ; allt hlá Ikíta I kÚmiktt þjóó* ttfl, viðleltnma •>■■• þrátt fyrír allt • til þCíW nð *kifn uyjurjt ver(V matUutt I littndvir óboraum kyxt’ alóðttöt. Mcr er jyið fyiHirga Uwt jx<8MtJör aýumitar v<rðtír icsí» ntímint i tiK-mtiugursbtÁJ þj^' itutar — tts «fS óaka ni Uurunum hjart&uírí’u ‘Aí bambgtju fiitt hhitkkípU « >lm vettvws* Að lukyrn þcttn . það ur hasttiticjft f.vrif póli'ísiui «ku«'<í»' skutíwemn og l«ktj»Watnakkftra> aA kétgja áfúiiii á boröíð Off mttiefni öitt hriibrís-ðri Mkywo* íótkain* á valtL ■— og |m ð er aat sagt ótrúííift nð Jóuti* ÍóM’ soa iafu ^Wkóíigeugittn í aioni Ub» 8kuii fara aír ftð vuð» 4 Iltfblini kinlniu t »»ru 1181 BtvUJi 1 Öny: m«u«bJ.............. Mfítttt m mtí ■ — Grein Steins Steinarr skálds í Nýja dagblaðinu 29. april þar sem hann tekur upp hanskann fyrir myndaiistarmennina sem Jónas Jónsson hæddi. Jónas Jónsson og meirihlutinn í menntamálaráði lét þessi tilmæli sem vind um eyru þjóta. Afstaða Jónasar er að mörgu leyti skiljanleg. Hann var sannfærður um að hinar nýju stefnur í myndlist væru ómerkilegar, og risu satt að segja ekki undir nafni, en hitt hefur líka vegið þungt að margir gagnrýnendur hans í hópi myndlistarmanna og sam- herja þeirra voru svarnir fjandmenn hans í stjórnmálum og flestir róttækir sósíalistar. Blöð sósíalista, Þjóðviljinn og Nýja dagblaðið (sem gefið var út meðan Þjóðviljinn var um hríð bannað- ur) veittust reglulega að honum með óbótaskömmum og líktu honum gjarnan við Hitler eða aðra foringja þýskra nasista. Jónas svaraði fyrir sig fullum hálsi, og tókst iðulega að espa andstæð- inga sína upp, enda einhver beittasti pólitíski penni aidarinnar hér á landi. „Skald og hagyrðingar“ Ágreiningsefni Jónasar og myndlist- armanna lágu kyrrt um stund eftir af- skipti menntamálanefndar, en undir niðri kraumaði. Þegar kom fram á útmánuði 1942 tók að birtast greina- flokkur hér í Tímanum sern Jónas var höfundur að og bar yfirskriftina „Skáld og hagyrðingar" (31/3, 2/4, 9/4 og 11/4). í þessum greinum fjallaði Jónas um ólík viðhorf manna til lista, og þá einkum myndlistar hér á landi, varði gerðir menntamálaráðs og réðst með ótæpi- legum orðum að þeim listamönnum sem staðið höfðu að ávarpinu, kallaði þá einu nafni „lánleysingja, sem guð hefur synjað um alla getu til að skapa listaverk og yfirleitt synjað um alla hæfileika til annars en þess að skruma og blekkja.“ Hann sagðist þekkja mæta vel verk þessara „klessumálara, sem þykjast hafa reynslu fyrir bláum engjum, grænum himni og brennisteinsgulum skýjum”, og bætti síðan við: „Ég ætla mér ekki að rökræða við þessa sjónvilltu menn, en ég vil í nafni þjóðar minnar leggja blátt bann við því að þessum grátlega ógæfu- sömu mönnum gefist tækifæri til að halda áfram að blekkja landslýðinn og telja honum trú um að það sem þeir séu að gera sé list.“ „Klessumalverk“ til sýnis Jónas frá Hriflu lét sér ekki nægja að senda myndlistarmönnum tóninn í Tímanum. Hann lét menntamálaráð kaupa nokkur eintök af málverkum er sýndu hina „úrkynjuðu list“ og efndi til sýningar á þeim fyrir alþingismenn í hliðarsai þinghússins í páskavikunni. Ekki taldi hann þörf á að biðja höfund- ana um leyfi til sýningarinnar. Um sýninguna fjallaði hann síðan í grein í Tímanum 9. apríl og komst þá m.a. svo að orði: „Sýningin í Alþingishúsinu er að því leyti sögulegur viðburður að hún er fyrsta tilraun sem gerð er hér á landi til að sýna hnignun samtíðarlistarinnar, eins og sú hrörnun er túlkuð í verkum myndgerðarmanna sem eru fæddir og búsettir á íslandi. Því betur sem menn kynna sér þessa hrörnun því þakklátari verða menn hinum snjöllu afburðar- mönnum íslenskrar myndlistar. Verk þeirra verða enn dýrmætari í augum þjóðarinnar, þegar menn vita að til eru hér á landi menn sem vilja gera hið sama við myndlist íslendinga eins og þeir bögubósar sem ætla sér að gera íslenska Ijóðlist að rímlausum samsetningi.“ Jónas fór síðan orðum um einstök myndverk „klessumálaranna“ á sýning- unni. Um verk Jóns Stefánssonar Þor- geirsbola segir hann t.d.: „Þorgeirsboli er algerlega sérstaklegs eðlis. Myndin er að efni til svo gróf, andstyggileg og ósönn í öllu eðli sínu, að hún mun ætíð þýkja óhafandi bæði á almannafæri og í húsum einstakra rnanna." Þetta verk er nú í eigu Listasafns íslands. Fleiri fengu sendingar frá formanni menntamálaráðs: „Á þessari sýningu", , skrifaði hann, „er nakinn kvenmaður eftir Jóhann Briem. Um þá mynd höfðu þingmenn þau orð, að ef allar konur væru jafn illa vaxnar, líkastar liðdýrum, og með litblæ öskuhrúgunnar á hörund- inu, þá myndi ellihugsjón Tolstoys kom- ast í framkvæmd af sjálfu sér. Öll sú aðdáun sem karlmenn hafa á konum myndi hverfa á svipstundu og ekki verða eftir annað en óbeit og leiðindi." Myndlistarmenn mótmæla Skrifum Jónasar og myndlistarsýningu var ekki tekið með þegjandi þögninni. 16. apríl skýrðu dagblöðin frá því að 66 félagar í Bandalagi íslenskra listamanna hefðu sent Alþingi ávarp og mótmælt „hinu vítaverða framferði menntamála- ráðs.“ Hér var á ferð fjölmennari hópur en fyrr, og samstaðan gegn formanni menntamálaráðs gekk þvert á hefðbúnd- na flokkaskiptingu. Harðar ádeilugrein- ar birtust í blöðum, og ýmsir kvöddu sér nú hljóðs til að rökræða um stefnu Sjá næstu síðu...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.