Tíminn - 23.10.1983, Blaðsíða 11
SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983
jesúaði sig auðvitað og strauk ímyndað
kusk af svuntunni, eins og sveitakvenna
var vandi í þann tíð. En hún áttaði sig
nú fljótt, gestunum var boðið inn og
borið fyrir þau kaffi og meðlæti.
Bjarni bróðir minn var um þetta leyti
í Verzlunarskólanum, þá 16 ára gamall.
Hann hafði ætlað í hjólatúr með Gísla
Ólafssyni (bróður Davíðs Ólafssonar,
Seðlabankastjóra) og nú frestuðu þeir
hjóiatúrnum, svo Bjarni gætið aðstoðað
sem túlkur með þeirri enskukunnáttu
sem hann hafði aflað sér.
Treystu okkur
fullkomlega
Lindberghhjónin vildu fyrir alla muni
að við fjölskyldan drægjum okkur á
engan hátt í hlé, að við sætum til borðs
með þeim og svo framvegis. Eins man ég
það að þegar Lindbergh fór í land til þess
að komast á pósthúsið, þá skildu þau
allan sinn farangur eftir fyrir ólæstum og
opnum dyrum, þar á meðal tvær skamm-
byssur. Pau treystu okkur greinilega
fullkomlega og það er ef til vill merki-
legt, jafn miklar hörmungar og þau
höfðu liðið eftir barnsránið.
Frúin var miklu mannblendnari en
Lindbergh sjálfur og vildi láta vel að litlu
frændum mínum. Sagt var reyndar að
hún hefði farið með í þessa ferð til þess
að jafna sig á barnsmissinum, en ekki
skal ég segja um það. Lindbergh virtist
mér heldur einrænn og stundum fór
hann í gönguferðir um eyna einsamall,
m.a. til þess að líta eftir flugvéiinni.
Hann var hár vexti og dálítið lotinn, en
hún var fremur lítil kona.
Þegar Lindbergh fór þessa ferð sína í
land á pósthúsið, þá man ég að fjöldi
manns safnaðist að honum. Hann fann
þá upp á því að fara út bakdyramegin og
komast þannig óáreittur frá mannfjöld-
anum. Nei, honum virtist ekki um fjöl-
mennið gefið.
Gífurlega frægur maður
Mér er næst að halda að Lindbergh
hafi um þetta leyti verið frægari maður
en nokkur á okkar dögum. Þegar fréttir
voru að berast af barnsráninu og réttar-
höldunum vegna þess nokkru áður, þá
stóðu allir á öndinni af eftivæntingu efti
r nýjum fréttum.
Einu sinni kom til okkar annar flugg-
arpur, Salberg að nafni, og hann vildi
endilega fá að leggja vélinni sinni við
sama duflið og Lindbergh og fá að sofa
í sama rúminu og hann. Svona lék mikill
frægðarljómi um þennan mann.
En við höfðum víst ekki mikinn skiln-
ing á Söfnunargildi hlutanna í þann tíð,
því eflaust vildi einhver eiga hjónarúmið
foreldra minna núna, en þar sváfu þau
Lindberghhjónin. Þetta rúm var selt
þegar húsið var rifið niður og flutt til
Grindavfkur, þar sem það var reist að
nýju.
Lindbergh gaf Birni bróður mínum
fimm-kall fyrir túlksstörfin og einhverjir
bentu honum á að ef til vill væri
fimmkallinn meira virði en fimm króna,
vegna gefandans. Ég held að Bjarni hafi
átt seðilinn í tvö ár, - en fargað honum
þá. Kreppan varð safnaranáttúrunni
yfirsterkari.
- AM
31.
OKTÓBER
UXF
IFERÐAR
Tíminn kennir Nákvæmnislaufið
■ Bridge er vinsælasta spil sem fundið
hefur verið upp og líklega er ekki ofmælt
að spilið sé almennasta tómstundagaman
íslendinga. Ótrúlega margir spila bridge
í bridgefélögum og klúbbum einu sinni
eða oftar í viku og enn fleiri hittast
reglulega í heimahúsum og taka slag.
Langflestir þeirra sem spila bridge sér
til gamans hér á landi notast við gamla
góða Vínarkerfið, þó þeir sem stunda
íþróttina af meiri alvöru hafi lagt það á
hilluna, enda hefur þróun sagnkerfa
verið mjög ör á síðustu árum. Sjálfságt
stafar þessi tryggð við Vínarkerfið af því
að lítið hefur verið skrifað um bridge á
íslensku og þeir sem ekki hafa tök á að
nálgast erlendar bridgebókmenntir læra
bara Vínarkerfið af næsta manni. Og nú
er víða komið fyrir Vínarkerfinu eins og
gömlum munnmælasögum: það er kom-
ið alllangt frá upprunalegu útgáfunni.
Sá sem þetta ritar hefur orðið var við
að margir hafa áhuga á að breyta til og
læra nýtt kerfi, sérstaklega Precision
Club eða Nákvæmnislaufið eins og það
er kallað á íslensku. Að vísu hafa bækur
um þetta kerfi verið þýddar á íslensku
en þær eru nú allar löngu uppseldar og
raunar úreltar. I'ví hefur svo um samist
að í næsta Helgar Tíma hefjist bridge-
kennsla þar sem farið verður yfir Ná-
kvæmnislaufið. Þessir þættir yerða þá
frekar miðaðir við þá sem einhverja
nasasjón hafa af spilinu.einnig þá sem
kunna meira en hafa hug á að skipta um
kerfi.
Hugmyndin er að þessir þættir birtist
í 9 blöðum og í hverju blaði verði tekin
fyrir ein opnunarsögn og helstu svör við
henni. Auðvitað er ekki rúm fyrir að
fara eins nákvæmlega útí þýðingu ein-
stakra sagnraða og þörf er á en vonandi
loknum þáttunum.
Svona kennsluþættir verða auðvitað að
miðast við óskir lesenda og því óskað
eftir hugmyndum og ábendingum og
spumingum frá lesendum. Ef í ljós kemur
að áhugi er fýrir þessu efni kemur til
greina að halda áfram og taka þá t.Ö.
fyrir sérstakar sagnvenjur sem hægt er
að bæta í grunnkerfið.
- G.S.H.
••
ERT ÞÚ BÚIN(N)ílM
ADFAMIÐA? ÆJ«
<dl® m ii>x«ai
Framtíðar höraiim
ínútímaþágu
Falleg traust og örugg blöndunartæki fyrirkra
hönnun Damixa blöndunartækjanna CZ&Tzrf.
OKKAR VÖRUM ER ÓHÆTT AÐ TREYSTA -
VIÐ BYGGJUM Á REYNSLUNNI
Innflutningsdeild Sambandsins
Byggingavörur - Holtagörðum - Sími 812 66