Tíminn - 23.12.1983, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983
5
fréttir
ÞETTA ER STÓRMYND SEM A
??
AÐ GERAST A 21. OUNNNI
??
— segir Gfsli Gestsson hjá Vfdsjá, um kvikmynd sem 20th Century
Fox hyggst taka upp hér á landi næsta sumar
■ „Þetta verður stórmynd. Hún á að
gerast á 21. öldinni og að miklu leyti á
annarri plánetu, þar sem ýmsir merkileg-
ir atburðir gerast. Þessi skrítna pláneta
er ísland“, sagði Gísli Gestsson, kvik-
myndatökumaður í Víðsjá m.a. er Tím-
inn spurði hann um kvikmynd þá sem
„20th Century Fox“ kvikmyndafélagið
hefur í hyggju að taka hér á landi í
sumar. Gísli og þeir Víðsjármenn hafa
verið ráðnir sem nokkurskonar undir-
verktakar til að sjá um framkvæmdir hér
á landi.
Gísli sagði þegar ákveðið að mynd
þessi verði gerð. Framkvæmdir hér á
landi muni hins vegar ráðast af því hvort
þau leyfi fáist til kvikmyndatöku víðs
vegar um land, sem þeir séu núað leyta
eftir. Ýmsir staðir komi þar til greina.
Meðal þeirra er nýja hraunið í Vest-
■ Frá æfíngu á Rakaranum í SeviUa. F.v. Kristinn Sigfiundsson, Kristinn HaUsson
og Júlíus Vífill Ingvarsson.
La Traviata í óperurmi
30. desember:
Rakarinn frá Sevilla
frumsýndur 6.janúar
■ Næsta frumsýning hjá íslensku óper-
unni verður þann 6. janúar n.k., en þar
er á ferðinni gamanópera Rossinis,
Rakarinn í Sevilla. Leikstjóri er
Fransesca Zambello, aðstoðarleikstjóri
Kristín S. Kristjánsdóttir, en um leik-
mynd, búninga og ljós sjá Michael
Deegan og Sarah Conly.
Einsöngvarar í Rakaranum verða
Kristinn Sigmundsson, Sigríður Ella
Magnúsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson,
Kristinn Hallsson, Jón Sigurbjörnsson,
Elísabet F. Eiríksdóttir og Guðmundur
Jónsson. Og að sjálfsögðu koma fram
kór og hljómsveit íslensku óperunnar.
La Traviata verður sýnd í Gamla bíói
einu sinni yfir hátíðarnar, þ.e. þann 30.
desember.
-JGK
■ Guð gaf mér eyra verður á dagskrá á þriðja í jólum í Iðnó. F.v. Berglind
Stefánsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Sigurður Skúlason í hlutverkum stnum.
Leikfélag Reykjavíkur um
hátídarnar:
Guð gaf mér eyra
Hart í
■ Engin sýning verður hjá Iðnó á
annan i jólum, en þann þriðjaverður hið
vinsæla leikrit, Guð gaf mér eyra á
fjölunum. Það fjallar eins og kunnugt er
um samband heyrnarlausrar og mál-
lausrar stúlku við kennara sinn. í aðal-
hlutverkunum eru Berglind Stefánsdótt-
ir og Sigurður Skúlason.
bak
Fimmtudagskvöldið 29. desember
verður Hart í bak eftir Jökul Jakobsson
sýnt, en sýningar á því eru nú orðnar nær
30. Næsta frumsýning hjá Iðnó verður
um miðjan janúar á hinu þekkta leikriti
Brendan Behans, Gísl í þýðingu Jónasar
Árnasonar.
mannaeyjum. Endanleg ákvörðun verði
síðan tekin þegar umrædd leyfi fást, að
sögn Gísla.
Spurður nánar um efni myndarinnar
sagði hann: „Þeir segja gjarnan þarna úti
að þessi mynd eigi að vera svona „across
between Star Warsand E.T.", þ.e. skyld
þeim myndum". Hugmyndin sé að gera
mynd sem sé fjarlæg allri hinni miklu
tækni og tækjum - mynd um lífsbarátt-
una. Aðal söguhetjan nauðlendir einmitt
á hinni nýju plánetu.
- Eftir þá kannski eyðingu jarðarinn-
ar?
„Nei, við erum miklu jákvæðari, sem
kannski er eitt það ánægjulegasta við
þetta. Það er gengið út frá þeim punkti
að jarðarbúar hafi samið frið sín í milli
og séu nú farnir að kanna geiminn í
sameiningu. Vestrænir og austrænir
menn eru þar að vinna saman."
- Fyrir fátæka íslenska kvikmynda-
tökumenn - sem manni skilst að oftast
verði að veðsetja íbúðina áina meðan á
myndagerð stendur - hlýtur að vera
spennandi að fá slíkt verkefni frá einu af
stóru kvikmyndaverunum í Ameríku?
„Að sjálfsögðu erum við spenntir fyrir
þessu. Og vinnuaðstæðurnar verða auð-
vitað ekkert sambærilegar við það sem
við höfum búið við áður. Meiningin er
að starfsliðið verði íslenskt eftir því seni
tök eru á, þannig að við sjáum þarna
tækifæri á að það þjálfist upp fölk hér á
landi sem við síðar njötum góðs af við
gcrð innlendra verkcína. Þeir (hjá
20th Century Fox) eru einmitt mjög
áhugasamir um það að skilja eftir
reynslu.. Þeir hafa t.d. tekið mikið af
svipuðum myndum í Túnis þar sem varla
nokkur maður kunni nokkurn skapaðan
hlut í kvikmyndagerð fyrir um 10 árum.
En nú er orðið þar um 1.000 manna lið
sem orðið er vant flestum störfum í
sambandi við kvikmyndagerð."
- Fylgir þessu ekki mikill búnaður og
mikið lið - og hvað um leikarana?
„Það verður geysi mikill búnaður og
hátt í 200 manns þegar flest verður.
Leikstjóri vcrður Richard Loncaine
(sem m.a. leikstýrði myndinni Trúboð-
anum, sem sýnd hefur verið í Stjörnu-
bíói). Leikararnir verða bæði bandarísk-
ir og breskir og frá fleiri Evrópu-
löndum."
- Verða engir íslendingar frantan við
myndavélina?
„í myndinni verða mikil gerfi þannig
að ekki ber svo mikið á einstaklingunum.
Eitthvað mun verða af Islendingum. En
myndin er frekar fámenn að undan-
skyldri einni sfórri hópsenu, sem líklega
verður tekin í Bretlandi en ekki hér. Það
er eina senan sem útheimtir nokkuð
mikið jarðrask svo við höfum af þeim
ástæðum lagst gegn því að hún verði
tekin hér og þcir skilja okkar sjónarmið
í því máli. Brctareiga afturá móti gamla
leirnámu sem þcir mega athafna sig
mikið í og gömul náma er eiginlega mjög
heppileg til myndatökunnar. Væri þessi
sena tekin hér á landi myndu þeir
íslendingar sem tækju þátt í henni hins
vegar skipta hundruðum."
Spurður að lokum hvort hann telji
ekki að leyfin fáist og myndatakan fari
fram hér á landi, svaraði Gísli: „Jú, við
verðum að vera bjartsýn".
Bæknr frá Leiftri 1983
llm heima og geima
eftir dr. Þór Jakobsson.
40 þættir um starf og
árangur vislndamanna
og tilraunir þeirra til
þess aS leysa lifsgát-
una. Á aSgengilegan
hátt er greint frá inn-
lendum og erlendum
fréttum frá rannsókn-
um i margvislogum
fræSigreinum. Heill-
andi uppgötvanir eru
gerSar á hverju ári. ——
Bókin er skreytt 75
myndum eftir Bjarna
Jónsson, listmálara.
212 bls. VerSt 469,00.
Augliti til auglits
Bókin fjallar fyrst og
fremst um þaS þegar
konur hittast. Erum
vlS Vesturlandabúar aS
spilla tiltrú þróunar-
landanna. Hve djúpt
ristir sú samúS, sem
viS hrósum okkur af?
Höfundur litur vanda-
málin frá nýjum sjón-
arhóli og af næmleika
konusálar.
Höf.: Elin Bruusgaard.
SigriSur Thorlacius
þýddi. 231 bls.
VerS: kr. 469,00.
WMr.z
Orð og dæmi
25 ræSur og greinar
eftir dr. Finnboga GuS-
mundsson, landsbóka-
vörS. Greinarnar fjalla
um fom efnl, um fáein
siSari tima skáld, um
bækur, bókasöfn og
bókamenn, um ættir og
ættfræSi — og ýmsan
annan fróSleik, sem
fólk hefur ánægjn af.
301 bls.
VerS: kr. 599,00.
FRANKOG JÓt
VARÚLFUR
UM NOTT
(HAMKIIN V» MXOM
NANCY
e« UyiukunuU vemlu kalpplinvonna
CABOLYN KEENE
nr. 30 og 31 i bókaflokknum
um HARDY-brœSur. Æsl-
spennandi aS vanda og viS-
burSarikar um spæjara-
störf þessara vösku stráka.
Sögurnar heita:
Varúlfur um nótt
Lykill galdramannsins
VerS: kr. 266,00.
FrankogJöi
Nancy-bækurnar
eru eins og hiuar fyrri
bækur um þessa ein-
stöku leynilögreglu-
stúlku, skemmtilegar
og spennandi frá upp-
hafi til enda. Þessar
bœkur eru nr. 33 og 34
i sama flokki og heita:
NANCY og leyndarmál
knipplinganna.
NANCY og griska
leynitákniS.
VerS: kr. 266,00.
BÆKURNAR FÁST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM
JGK