Tíminn - 23.12.1983, Síða 8

Tíminn - 23.12.1983, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurösson. Augjýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Siguröur Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaöur Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friörik Indriöason, Guömundur Sv . Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guöni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (iþróttir), Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guöbjörnssson. Ljosmyndir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafnr Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Flosi Kristjánsson, Guöný Jónsdóttir Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. Verð í lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuöi kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaöaprent hf. Ráðagerðir um að stórþyngja skatt- byrði Reykvíkinga ■ Það furðulcga hcfur gerzt, að meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur uppi ráðagerðir um að stórauka skattabyrði borgarbúa á næsta ári, enda þótt forstjóri Þjóðhagsstofnunar hafi eindregið lagt til, að skattbyrðin verði ekki aukin. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar hefur einnig bent á, að þetta eigi að vera bæjarfélögum mögulegt, þar sem hjöðnun verðbólgunnar muni draga stórlega úr útgjöldum þeirra. Þessar fyrirætlanir borgarstjórnarmeirihlutans voru ítarlega raktar í ræðu, sem Kristján Benediktsson flutti við fyrri umræðu í borgarstjórn um fjárhagsáætlunina fyrir 1984. Ræða Kristjáns var birt í Tímanum í gær. í ræðunni segir Kristján, að ríkisstjórnin ætli að miða álagningu tekjuskatis við áætlaða hækkun á meðaltekjum einstaklinga á næsta ári. Áætlað er, að þær hækki um 20% og er ætlunin að miða álagningu tekjuskattsins við það. Síðan segir Kristján: „Þvi nefni ég þetta hér, að útsvarið, sem er langstærsti tekjustofn borgarinnar, er lagt á sömu tekjur og bæði tekjuskattur og sjúkratryggingagjald. Þó er mikill munur á hvernig þessir skattar lenda á hinum ýmsu tekjuhópum. Útsvariö leggst prósentvís á því nær allar tekjur hvort sem þær eru háar eða lágar. Tekjuskatturinn er stighækkandi. Meginhluti hans kemur frá þeim aðilum, sem hafa háar tekjur og þeir sem litlar tekjur hafa sleppa viö hann með öllu. Útsvarið er því þungbærari skattur þeim aðilum sem eru með litlar eða miðlungstekjur. Skattasérfræðingur Þjóðhagsstofnunar, Bolli Bollason, lét hafa eftir sér í blaðaviðtali fyrir skömmu, að el' sveitarfélögin ætluðu ekki að auka skattbyrði þegna sinna á næsta ári umfram það sem er á þessu ári, þyrfti útsvarsupphæðin í heild að lækka um 800 milljónir miðað við óbreyttan álagningarstofn. í Reykjavík væri þessi upphæð um 320 milljónir króna. Þessar tölur voru við það miðaðar, að aðrir gjaldstuölar héldust óbreyttir frá álagningu þessa árs. í erindi forstjóra Þjóöhagsstofnunar, er hann flutti á ráðstefnu um fjármál sveitarféiaga fyrir skömmu, lagði hann ríka áherslu á, að sveitarfélögin gættu hófs í álagningu gjalda á næsta ári og lækkuðu gjaldstofna sína miðað við lækkandi tilkostnað. Miðað við það sem rakið hefur verið hér að framan hlýtur það að vekja l'urðu, að meirihlutinn í borgarstjórn skuli ætla sér að hækka tekjur af útsvörum um 42% á næsta ári, eða um 320 millj. kröna. En það eru ekki bara útsvörin sem eiga að hækka svo mjög. Tekjur borgarsjóðs í heild eiga að hækka um 712 millj. eða 42%. Þannig á greiðslubyrði miðað við forsendur og útreikninga Þjóðhagsstofnunar að stóraukast á næsta ári. Þetta gerist meðan útgjöld hækka einungis um 22.5% og er þó búið að reikna 6% launahækkun inn í kostnaðarliðina. Hækkun teknanna er nærri 400 milljónum meiri en útgjaldahækkunin. Það er vægt til orða tekið að segja, að þetta sé hrein óskammfeilni." Eins og kemur fram hér á undan, ráðgerir borgarstjórnarmeiri- hlutinn að hækka fleira en útsvörin. Fasteignagjöldin eiga að hækka um 63.9%. Aðstöðugjöldin eiga að hækka um 52%. Álögur stofnana og fyrirtækja eiga að hækka um 144.6%. Fulltrúar Framsóknarflokksins í borgarstjórn hafa lagt fram tillögur um lækkun útsvars og fleiri álaga, sem nema samtals um 180 milljónum kr. Þessar tillögur fengu ekki stuðning við fyrstu umræðu í borgarstjórn.Vonandi endurskoðar meirihlutinn hug sinn fyrir aðra umræðu fjárlaganna. Annars þverbrýtur hann loforðin, sem hann gaf fyrir borgarstjórnarkosningarnar síðustu, og stefnir fyrirætlun um hjöðnun verðbólgunnar í fyllstu tvísýnu. Þ.Þ. skrifað og skrafað Baráttuhugur í framsóknar- mönnum ■ Jóhann Einvarðsson skrifar grein í Framsýn, sem gefin cr út af framsóknar- mönnum í Kópavogi. Þar segir: Um þetta ieyti er liðið rúmlega hálft ár síðan ríkis- stjórn Steingríms Hermanns- sonar tók við völdum. Þegar hún tók við var verðbólgan komin talsvert á annað hundrað prósent miðað við ársgrundvöll. Ríkisstjórnin tók efnahagsmálin þegar föstum tökum og hefur ár- angur stcfnu hennar þegar borið umtalsverðan árangur, en talið er að í árslok verði verðbólgan orðin innan við 30%. Að vísu hefur hinn al- menni launamaður orðið að axla allmiklar byrðar, en hafa verður í huga, að ríkisstjórn- in einsetti scr að halda fullri atvinnu í landinu og hefur það tekist í aðalatriðum. þótt um tíma - og staðbundin vandamál hafi verið að eiga. En fullvíst er, hefði ríkis- stjórninni ekki tekist að snúa vcrðbólguhjólinu við þá hefði fjöldi fyrirtækja stöðv- ast og atvinnuleysi orðið mikið. Með stöðugu gengi og ört lækkandi fjármagnskostnaði hefur staða fyrirtækja styrkst verulega. En ekki skulum við halda að sigur sc í höfn. Skýrslur fiskifræðinga um mögulegan afla á næsta og næstu árum sýna, að við getum ekki vænst þess, að aflamagn aukist. Miklu frekar má búast við aflaminnkun. Hvað er þá til ráða? I fyrsta lagi verðum við að íullnýta þann afla sem að landi berst og umfram allt verður að hætta að henda verðmætum í sjóinn hvort sem þar er um að ræða lifur, slög eða jafnvel smáfisk. All- ur afli vcrður að fullnýtast. í öðru lagi verður að leggja aukna rækt við iðnaðinn hvort sem um stóriðju eða smáiðnað er að ræða. Full- yrða má, að verði tekið fullt tillit til aðstæðna, t.d. íbúa- fjölda, samgangna og niark- aða svo ekki sé talað um vannýtta orku, þá eru miklir möguleikar fyrir hcndi ekki síst í þessu kjördæmi, Reykjaneskjördæmi. Eg vona því bæði vegna þess árangurs, sem ríkis- stjórnin hefur þegar náð og ekki síður vegna þess vanda sem framundan er, að allir landsmenn sameinist um að gefa henni starfsfrið svo ekki fari aftur í sama. Eg er þess fullviss að þrátt fyrir erfið- leika hins almenna launa- manns, þá vill hann heldur herða beltið um tíma. en hverfa aftur til verðbólgu- spennunnar. Ríkistjórnin hef- ur sýnt að hún mun gera það sem í hennar valdi er til þess aö tryggja fulla atvinnu og létta byrði þeirra. sem verst eru settir. Fái ríkisstjórnin hinsvegar ekki frið til starfa á hún ekki, að hika við að rjúfa þing og efna til kosninga og gefa þjóðinni kost á að tjá sig. Staðreyndin er sú. að auð- vitaðerdeilt um allarákvarð- anir ríkisstjórna þegar þær eru teknar, en árangur talar sínu máli og ekki síst það, að nú er stjórnað en ekki látið reka á reiðanum. Við framsóknarmenn í Reykjaneskjördæmi lentum aftur í vor í þeirri erfiðu stöðu að missa þingsæti okkar. Þegar úrslit síðustu kosninga eru skoðuð kemur vel í ljós, hvað kosningalög- gjöfin er orðin úrelt. Hinir flokkarnir tryggja sér allir þingmenn úr kjördæminu með mun færri atkvæði en við fengum. Við hljótum því að gcra þá kröfu til forystu flokksins að hið fyrsta verði lagt fram á Alþingi frumvarp það að nýrri kosningalöggjöf sem samkomulag tókst urn milli formanna flokkanna á síðasta þingi, en þaö mun jafna nokkuð stöðu þéttbýlis- ins gagnvart dreifbýlinu, en alls ekki rétta. Jafnframt vilégáréttasam- þykkt þá, sem gerð var á síðasta kjördæmisþingi okkar: „Kjördæmisþingið fagnar því starfi sem byrjað er við endurskoðun stefnu- skrár flokksins. Þar vcrður að taka fullt tillit til breyttra þjóðfélagshátta, búsetu og atvinnuhátta. Þingið bendir í því sambandi á að nú búa að minnsta kosti 60 prósent þjóðarinnar í þéttbýlinu suð- vestanlands og nauðsynlegt er að endurskoða stöðu flokksins og stefnu með þá staðreynd í huga.“ Áramót nálgast og á þeim tímamótum heita menn sjálf- um sér gjaman einhverju. Við framsóknarmenn skulum heita því, að láta ekki deigan síga og nýta vel tímann til næstu kosninga til þess, að cffa Framsóknarflokkinn hér í kjördæminu. Ef allir leggj- ast á eitt þá er ég þess fullviss að í næstu kosningum, að fenginni leiðréttingu á kosn- ingalöggjöfinni, þá tryggjum við okkur 2 þingmenn í kjör- dæminu. Um leiðogégþakkastuön- ing og velvild á síðustu árum, sendi ég Kópavogsbúum mínar bestu óskir unt gleðileg jól og farsæld á komandi ári. Sýnum gætni Ragnar Snorri Magnússon bæjarfulltrúi í Kópavogi skrifar forystugrein sama blaðs og segir: Nú styttist mjög í það að upp renni kveðjustund ársins 1983. Á áramótum staldra menn gjarnan við, rifja upp atþurði liðins árs, þá sorg og gleði, erfiðleika eða hagsæld sem það færði þeim. Á þess- um tímamótum leiða menn einnig oft hugann að því hvernig næsta ár muni gefast þeim. Undanfarin ár hefur verið ríkjandi hér gengdarlaus verðbólga sem leitt hefur til versnandi lífskjara fólksins og sífellt erfiðari greiðslu- stöðu þjóðarbúsins útávið. Verulegra hugarfarsbreyt- inga er nú farið að gæta hjá fólki til verðbólgunnar, það sýnir skoðanakönnun sú sem Hagvangur gerði, og var ný- lega birt. Út úr niðurstöðum hennar má glögglega lesa, að þjóðinni er farið að skiljast hvert böl verðbólgan er enda kemur fram, að verulegur meirihluti þeirra sem spurður var og tók afstöðu, er reiðu- búinn að taka á sig nokkra tímabundna kjaraskerðingu til að ná þessum skaðvaldi niður, sem verðbólgan svo sannarlega er. Augljóst er og öllum kunn- ugt að aðgerðir ríkisvaldsins nú, hafa orðið til þess að nokkur kjaraskerðing hefur orðið síðari hluta ársins sem nú er að kveðja. Það er líka viðurkennt af öllum, að áframhaldandi óðaverðbólga hefði einnig þýtt verulega kjaraskerðingu. Þaðvar mik- il ógæfa að ekki tókst að sameinast um niðurtalningar- stefnu Framsóknarflokksins sem reynd var með áþreifan- legum árangri árið 1981. Nú eru launþegar þessa lands að súpa seyðið af því ósam- komulagi sem varð milli þá- verandi stjórnarflokka um þessa raunhæfu leið í efna- hagsmálum, því hætt er við að einhverjum reynist erfitt að fóta sig við svo snögg umskipti sem hér hafa orðið. Nú veltur á miklu að fyllsta gætni verði viðhöfð svo að bölvaldur atvinnuleysisins knýi hér ekki dyra. Þá er einnig mikilvægt að ekkert það verði aðhafst sem magna myndi hér verðbólgu upp að nýju. Bæjarráð Kópavogs hefur nú ákveðið að lækka álag útsvars úr 12.1 prósentustigi niður í 10.8, og auk þess veita 10% afslátt af fasteigna- skatti af íbúðarhúsnæði. Þrátt fyrir þessa lækkun tekna bæjarsjóðs, á fram- kvæmdageta bæjarinsekkiað minnka að mun. því meiri- hluti bæjarstjórnar hefur lagt sig fram um að fyllsta aðhalds sé gætt í bæjarrekstrinum og skuldasöfnun eigi sér ekki stað, heldur miklu fremur gengið í það að bæta lausa- fjárstöðu bæjarsjóðs og er nú þessi stefna að skila sér með góðum árangri. Auk árangurs af þessari aðhalds- stefnu er það skoðun meiri- hluta bæjarstjórnar Kópa- vogs að eðlilegt sé að draga nú úr skattheimtu eins og frekast er kostur og á þann hátt koma til móts við minnk- andi kaupmátt launafólks, en í þessu felst að sjálfsögðu viss viðurkenning á nauðsyn þeirra aðgerða sem ríkis- stjórnin stendur fyrir. Þegar og ef tekst að koma á jafnvægi í efnahagslífinu skapast tækifæri til aðgerða sem smám saman munu bæta kaupmátt launa til lengri tíma. en ekki eyðast upp á þriggja mánaða fresti. Það væri verðugt heit um þessi áramót. launafólki til handa, að gefa ríkisstjórn og öðrum þeim sem haft geta áhrif þar á, frið til að skapa slíkt jafnvægi. I því eru svo augljósir hagsmunir okkar fólgnir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.