Tíminn - 23.12.1983, Side 20

Tíminn - 23.12.1983, Side 20
Opiö virka daga 9-19 laugardaga 10-16 H HEDD Shemnijvegi ?C Kopavogi Simar (91 )7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 w abriel HÖGGDEYFAR — m _ _|_ | . • namarsnuic QJvarahlutir simiaesio. Hamarshöfða 1 Ritstjorn86300 — Auglysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 Föstudagur 23. desember 1983 Auglýsingar hjá Ríkisútvarpinu í svipuðu magni og fyrir jólin í fyrra SJÓNVflRPH) HEFUR FYliT SMN KVÓTA — örlítið minni auglýsingar á Rás I, en Rás II gerir meira en bæta það upp Innbrot I Blóma- borg I Hveragerði Þjófurinn gómaður af lögreglunni ■ Innbrot var framiö í Blómaborg í Hvcragerði að- faranótt miðvikudags og stoiið þaöan talsverðu magni af úrum, skartgripum og gjafa- vörum. Lögreglan á Selfossi handtók ungan mann úr Hveragerði vegna þessa máls á miðvikudag og játaði hann innbrotið við yfirheyrslur. Vís- aði hann síðan á þýfið og komst það allt til skila. Að sögn lögreglunnar á Sel- fossi er innbrotsþjófurinn góð- kuoriingi lögreglunnar og varð m.a. fyrir stuttu uppvís að innbroti í útibú Kaupfélags Árnesinga í Hveragerði. Mað- urinn var enn í yfirheyrslum hjá lögreglunni í gær. Ekki munu hafa vcrið urihar neinar skemmdir á innbúi Blómaborgar í innbrotinu en Blómaborg er gróðurhús og því viðkvæmt fyrir skemmdum. - GSH. ■ „Það er ákveðið þak á aug- lýsingatíma í dagskrá sjónvarps- ins, 12 mínútur þrisvar sinnum á kvöldi, 10 mínútur á eftirmið- dögum á laugardögum og sunnu- dögum og 3 mínútur fyrir frétt- irnar á kvöldin. Þetta þak er það sama og í fyrra og það hefur verið alveg nýtt, nú eins og í fyrra, þannig ég tel að auglýsing- ar nú séu ekki minni en þá,“ sagði Auður Óskarsdóttir aug- lýsingastjóri sjónvarpsins í sam- tali við blaðið í gær. Hún sagði að ekki væri hægt að gefa neitt upp um auglýsingatekjur sjón- varpsins á þessu stigi, það yrði ckki tekið saman fyrr en um áramót. „Það hefur verið um óverulega minnkun að ræða hjá okkur á Rás 1,“ sagði Þorbjörg Guð- mundsdóttir, auglýsingastjóri hljóðvarps, en ég endurtek að sú minnkun er mjög óveruleg og kemur aðallega fram í minni auglýsingum á morgnana en ver- ið hefur. Þetta tel ég ekki stafa af því að Rás II er komin til skjalanna, heldur einhverjum öðrum orsökum, þá dettur manni auðvitað í hug minni fjár- ráð auglýsenda. Rás II hefur ákveðinn auglýsingakvóta eins og sjónvarpið, þar var gert ráð fyrir að brjóta upp dagskrána þrisvar sinnum á hverjum klukkutíma með auglýsingum í þrjár mínútur í hvert sinn, en þeim kvóta hefur alls ekki verið náð. Þar kann að ráða einhverju um að fólk hafi ekki áttað sig á hinum nýja miðli og möguleikum hans. En samanlagt koma rásirn- ar út með meiri auglýsingar en í fyrra,“ sagði Þorbjörg. Jeppi valt í Fljótshlíð UNG STÚLKA MEIDDIST TALSVERT í BAKI ■ IJng stúlka meiddist tals- vert í baki þegar jeppabifreið sem hún ók valt út af Fljóts- hiíðarvegi á móts við Tuma- staði á miðvikudagskvöld. Stúlkan var flutt á Sjúkrahúsið á Selfossi. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var mikil hálka á veginum þegar slysið varð og er henni kennt um. Tatsvert hefur verið af umferðaróhöpp- um á svæði Hvolsvallarlögregl- unnar í desember og má rekja þau flest til hálku og erfiðra akstursskilyrða samfara henni. - GSH. -JGK Friðarhreyfingar: EFNA TIL BLYSFAR- AR NIÐUR IAUGA- VEGINN í DAG ■ Ýmis friðarsamtök gangast fýrir blysför um Laugaveg á PWMksmessu. Gengið verður ftá Hlemmtorgi niður á Lækjar- og verður safnast saman á Htemmtorgi kl. 17.00 og blys tendruð og kl. 17.30 verður lagt af stað niður Laugaveg á Lækjar- térg. Engin ávörp verða flutt en Háskólakórinn og Hamrahlíðar- kórinn syngja á leiðinni. Að Mysförinni standa, Friðarsamtök listamanna, Samtök lækna gcgn kjamorkuvá, Samtök eðlisfræð- inga gegn kjarnorkuvá, Friðar- hreyflng íslenskra kvenna, Menningar- og friðarsamtök ís- lenskra kvenna, Samtök her- stöðvaandstæðinga, Friðarhóp- ur einstæðra foreldra, Friðar- hópur fóstra og Friðarhópur þjóðkirkjunnar. Yfirlýsing hreyfinganna vegna göngunnar er þessi: Við trúum á umburðarlyndi og samninga í samskiptum manna og þjóða, en höfnum ofbeldi og ofstæki. Við vonum að „gjörvöll mannkind" eigi sér framtíð, en óttumst tortímingu alls lífs. Við biðjum leiðtoga þjóðanna að leggja niður vopn. Við trúum á afvopnun en höfnum ógnarjafnvægi gereyð- ingavopna. Við vonum að stöðva megi framleiðslu kjarnorkuvopna en óttumst hernaðarhyggju stór- velda. Við biðjum leiðtoga þjóðanna að leggja niður vopn. Við trúum á hlutverk íslend- inga á alþjóðavettvangi að stuðla að friði og afvopnun. Við vonum að ísland standi með þeim þjóðum sem stöðva vilja framleiðslu kjarnorku- vopna. Við biðjum leiðtoga okkar eigin þjóðar að styðja sérhverja viðleitni til friðar á jörðu. _jGk Ljósadýrðin eykst þegar dregur að jólum og Ijósmyndararnir verða rómantískari, Tímam. Árni Sæberg, .WWIi W*m. dropar Verður togarinn að gullskipi? ■ „Mikil urðu vonbrigði gull- skipsmanna er það kom í Ijós í haust að gullskipið sem þeir töldu sig vera búna að finna var gamall þýskur togari sem strandaði á Skeiðarársandi árið 1903. Svo kann þó að fara að togarinn verði að „gullskipi“ þrátt fyrir allt“, að því er segir í nýjasta hefti Sjávarfrétta. „Mun engin- togari þessarar tegundar vera til í heiminum og nokkrir aöilar munu hafa áhuga á því að ná honum upp og fá hann til varðveislu. Kann svo að fara að gullskipsmenn verði fengnir til þess að bjarga togaranum úr sandinuin og gætu þannig fengið a.m.k. eitthvað upp í þann mikla kostnað sem þeir hafa lagt út í. Leitin að gullskipinu mun svo halda áfram, jafnvel þótt marg- ir haldi því nú fram að þar sé ekki eins mikið að finna eins og gullskipsmenn telja.“ ...og sjá hvað þá verður úr Sverri?? ■ Mönnum hcfur orðið tíð- rætt um þá ákvörðun iðnaðar- ráðherra Sverris Hermanns- sonar, að endurvekja Z-una á ný til vegs og virðingar innan ráðuneytisins hvað svo sem reglugerðir segja. Hermann Jóhannesson, starfsmaður í menntamálaráðuneytinu, setti þessa limru saman í tilefni síðustu atburða: Það var gott þegar landsfeður létu okkur losna við hvimleiða zetu, því við ritum öll rétt, bara ef regla er sett, sem er miðuð við minimal getu. En mín hugmynd er hreint ekki verri, að hætta að skrifa með erri. Ekkert hik eða sút, bara henda því út, og sjá hvað þá verður úr Sverri. Krummi KRUMMI. ...Svei, Svei...!

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.