Tíminn - 15.02.1984, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 19M
■ Nú þegar sjónvarpið sýnir klukkutímum saman skíðagöngur og
skautahlaup fyrir áhugafólk, þar sem keppendur líkjast helst
vélmennum, er svolítil tilbreyting í því að sjá eitthvað innilegt og
mannlegt frá Olympíu-leikunum.
Þessi mynd af pari í skautadansi er af hinu fræga skautapari J ayne
Torvill og Christopher Dean, og hér eru það svo sannarlcga ekki
neinir „róbotar“ á ferðinni. Parið er þarna á æfingu fyrir keppnina
í skautadansi og þykir hafa ntikla möguleika í sinni grein. Ljósmynd-
arinn kallaði myndina „GULLKOSSINN“, og kannski verður það
sannnefni, þ.e.a.s. ef þau hreppa gullið.
sönginn, „Rís upp birkitré“.
lengst á ferli sínum, þegar
hann tefldi um heimsmeist-
aratitilinn við þá Botvinnik,
Keres og dr. Euwe að Alj-
ékhín heimsmeistara
látnum. „Þá sigraði Bot-
vinnik, en ég varð í þriðja
sæti.“
Teflirðu mikið enn þann
dag í dag?
„Nei, ekki nærrieinsmik-
ið og áður. Það gerir aldur-
inn.
Er það ekki samt svo að
skákmenn endast lengur nú
en fyrr, samanber árangur
manna eins og Smyslovs,
Kortsnojs og fleiri?
„Fólk er hraustara nú en
fyrr og lifir lengur. Það
gildir líka um skákmenn.“
Hverjir heldurðu að séu
sigurstranglegastir a mótinu
núna?
„Sovétmennirnir, Geller
og Balashov eru mjög sterk-
ir skákmenn. Það eru líka
sterkir menn frá Bandaríkj-
unum hér, eins og Larry
Christiansen, sem er mjög
öflugur skákmaður, svo og
Robert Byrne.
Hafði sigur Fischers í
einvíginu við Spassky á sín-
um tíma mikil áhrif á skák-
lífið í heimalandi ykkar og
skákáhugann þar?
„Það er slæmt að Fischer
skuli hafa hætt að tefla.
Hann gerði skákina vinsæla.
Það væri meiri skákáhugi
nú, ef hann hefði haldið
áfram. En ég held að hann
muni ekki tefla meir. Hann
hefur misst áhugann á að
tefla og ég held að hann sé
óhamingjusamur og ein-
mana maður. Nei, ég get
ekki fullyrt að hann hafi
verið sterkasti skákmaður-
inn sem kom fram eftir
stríð, Karpov t.d. er mjög
sterkur, þessir tveir menn
eru tvímælalaust í tölu
þeirra bestu.
-JGK
■ Ræöa Chernenkos á miöstjórnarfundin-
um benti til að hann ætlaði að fylgja í
megindráttum stefnu Andropovs
■ Gromyko mun sennilega fá enn meiri
völd i utanríkismálum.
Chernenko boðaði endur-
skipulagningu og aga
Hann forðaðist ádeilur á önnur ríki í ræðu sinni
FRÉTTASKÝRENDUR vinna
nú að athugun á ræðu þeirri, sem
Konstantín Chernenko flútti á
fundi miðstjórnar Kommúnista-
flokksins eftir að hann hafði
verið kjörinn formaður
flokksins. Ræðan þykirekki sér-
staklega hnitmiðuð. Margt í
henni sé orðað þannig, að
Chernenko vilji halda fleiri
leiðum opnum.
Ýmsir kaflar í ræðunrti benda
til þess, að það sé ásetningur
Chernenkos að halda áfram
þeirri stefnu Andropovs að auka
framleiðni með bættum vinnu-
brögðum og meiri aga. Hann
segir t.d. á einum stað (þýðing
APN):
„Spurningin um skipulagningu
og röð og reglu er lykill, sem er
okkur brýnt mál. Þar getur ekki
verið um neitt tvenns konar
sjónarmið að ræða. Sérhver
deyfð og ábyrgðarleysi hefur
ekki aðeins í för með sér alvar-
lega félagslegan og siðferðisleg-
an skaða. Við, kommúnistar, og
milljónir sovéskra þegna skiljum
þetta vel. Og það er eðlilegt að
ráðstafanir þær, sem flokkurinn
. hefur samþykkt í því skyni að
auka vinnu-framleiðslu- áætlun-
ar- og ríkisaga og efla sósíalískt
lögmæti hafi fengið góðar undir-
tektir allrar þjóðarinnar.
Hvað varðar grundvallarstefnu
í þróun efnahagslífs okkar, þá
hefur flokkurinn þegar sett hana
skýrt fram. Aukin og hraðari
innleiðsla ávinninga á sviði vís-
inda og tækni í framleiðsluna,
framkvæmd umfangsmikilla og
víðtækra ráðstafana á að efla
framleiðsluöfl þjóðfélags okkar
á nýtt og betra stig.
Kerfi efnahagsstjórnunarinn-
ar og allt efnahagslíf okkar krefst
alvarlegrar endurskipulagning-
ar. Starf á þessu sviði er rétt
hafið. Þar er um að ræða um-
fangsmikla efnahagslega tilraun
til að efla réttindi og auka ábyrgð
fyrirtækjanna. Verið er að leita
nýrra aðferða og leiða stjórnunar
á þjónustusviðinu. Það verður
vafalaust hagnýtt og hjálparokk-
ur til að leysa mikilvæg strategísk
mál varðandi aukna framleiðni í
þjóðarbúskapnum.
Við skulum spyrja okkur
sjálfa: Verður það ekki þannig
að biðin eftir nýjum árangri af
tilraunum verður fyrir suma
forystumenn í þjóðarbú-
skapnum eins konar ástæða til
að fela eigin aðgerðarleysi og
óskina um að vinna upp á gamla
mátann? Það þarf ekki að taka
það fram, að endurnýjun í efna-
hagslífinu er mikilvægt mál. Það
er gott ráð að fylgja gömlu
reglunni á þessu sviði: Mældu
sjö sinnum og sagaðu svo. En
þetta afsakar ekki þá, sem vijja
alls ekki taka tillit til breyttra
aðstæðna og nýrra þarfa í líf-
inu.
Við væntum þess af starfs-
mönnum okkar í efnahagslífinu
að þeir sýni meira sjálfstæði á
öllum stigum, séu djarfir í leit
sinni og ef nauðsyn krefur, taki
réttlætanlega áhættu í nafni þess
að auka framleiðni efnahagslífs-
ins og tryggja bætt lífskjör þjóð-
arinnar."
ÞÁ LAGÐI Chernenko mikla
áherzlu á aukna vöruvöndun.
Hann sagði:
„Hin nýja fimm ára áætlun á
fyrst og fremst að vera upphaf á
miklum breytingum í gæðaátt á
sviði framleiðslu, fimm ára áætl-
un sem verður vendipunktur í
öllum greinum þjóðarbúskapar-
ins í átt til aukningar. Efnisleg
og tæknileg undirstaða og stjórn-
kerfi dagsins í dag ættu að kom-
ast á nýtt og meira gæðastig.
Það er engu að síður mikil-
vægara að tryggja aukin innri
tengsl milli efnahagslegra, fé-
lagslegra og menntalegra fram-
fara hinssovéskaþjóðfélags. Það
er ómögulegt að koma efnahags-
lífinu á nýtt gæðastig nema að
skapa nauðsynlegar félagslegar
og hugmyndafræðilegar forsend-
ur þar til. Það er einnig ómögu-
legt að leysa knýjandi vandamál
varðandi þróún sósíalískrar vit-
undar án þess að treysta á
trausta undirstöðu efnahagslegr-
ar og félagslegrar stefnu.“
UM alþjóðamálin sagði Chern-
enko m.a.:
„Baráttan fyrir varanlegum
friði, frelsi og sjálfstæði þjóð-
anna var ætíð í brennidepli hjá
Júrí Vladimirovits Andropov.
Undir forystu hans mótaði fram-
kvæmdanefnd miðstjórnar KFS
og helstu stofnanir ríkis okkar
virka utanríkisstefnu, spm
beindist að því að losa mannkyn-
ið við ógnun kjarnorkustyrjald-
ar. Þessi leníníska friðarstefna,
en útlínurhennarvorumarkaðar
í samþykktum síðustu þinga KFS,
er í samræmi við grundvallar-
hagsmuni sovésku þjóðarinnar
og í raun annarra þjóða heims-
ins. Og við lýsum því staðfast-
lega yfir: Við munum ekki hvika
um þumlung frá þeirri stefnu.
Það er Ijóst, félagar, að árang-
urinn af þeim aðgerðum, sem
miða að því að varðveita og efla
frið er í miklum mæli kominn
undir því hversu mikil áhrif sós-
íalísku landanna eru á alþjóða-
vettvangi, hversu öflugar,
markvissar og samræmdar að-
gerðir þeirra verða. Lönd okkar
álíta friðinn sitt lífshagsmuna-
mál. í því efni munum við leitast
við að efla samvinnu við öll lönd
hins sósíalíska samfélags á öllum
sviðum, þar á meðal svo mikil-
vægu sviði sem efnahagssviðinu,
erum við að leggja mikið af
mörkum til málstaðar friðarins,
framfara og öryggis þjóðanna.
Þegar við ávörpum bræðra-
lörtdin, segjum við: í Sovétríkj-
unum munuð þið finna sem áður
traustan vin og tryggan banda-
mann.
Eitt grundvallaratriði í stefnu
fiokks okkar og sovéska ríkisins
á sviði utanríkismála hefur verið
og verður samstaða með
þjóðum, sem hafa varpað af sér
oki nýlendustefnunnar og lagt út
á. braut sjálfstæðrar þróunar.
Einkum með þjóðum, sem hafa
orðið að hrinda af sér árásum
heimsvaldaaflanna, sem skapa
hættulegar aðstæður blóðugs of-
beldisog styrjaldarhættu íhinum
og þessum heimshlutum. Að
taka afstöðu með réttlátri bar-
áttu þjóðanna og að vinna að því
að útrýma slíkri hættu er í dag
óaðskiljanlegur og mikilvægur
þáttur í baráttunni fyrir varan-
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjori, skrifar
legum friði á jörðu. Afstaða
flokks okkar t þcssum efnum cr
skýr, hrcin og göfug. Og við
munum aðhyllast hana áfram.
Nú skal vikið að samskiptun-
um við kapitalísku löndin. Hinn
mikli Lenín arfleiddi okkur að
reglunni um friðsamlega sambúð
ríkja, sem búa við ólíkt stjórn-
skipulag. Við erum stöðugt
tryggir þessari reglu. Nú á
dögum, á kjarnorkuöld og öld
nákvæmra eldflauga, er fólki
þörf á henni meira en nokkru
sinni fyrr. Því miður virð' '
sumir leiðtogar í hinum
ísku löndum ekki gera sér grein
fyrir því eða vilja það ekki.
Við sjáum í dag vel þá ógnun,
sem mannkyninu stafar af kæru-
leysislegum aðgerðum árásarafla
heimsvaldasinna - og við segum
það fullum hálsi til að beina
athygli fólks um heim allan að
því. Við þurfum ekki hernaðar-
yfirburði. Við höfum ekki í
hyggju að þröngva vilja okkar
upp á aðra. En við leyfum ekki
að því hernaðarlega jafnvægi,
sem skapast hefur, verði raskað.
Og við skulum ekki láta neinn
velkjast í vafa þar um: Við
munum sjá til þess að varnar-
máttur landsins verði efldur, að
við höfum nægar aðferðir til að
kæla höfuðið á hernaðarsinnun-
um. Þetta er, félagar, mjög
mikilvæg forsenda til að varð-
veita friðinn.
Sovétríkin sem mikið sósíal-
ískt afl gera sér fulla grein fyrir
ábyrgð sinni gagnvart þjóðunum
varðandi varðveislu og eflingu
friðarins. Við erum fylgjandi
friðsamlegri og gagnhagkvæmri
samvinnu við öll ríki í öllum
álfum. Við erum fylgjandi frið-
samlegri lausn allra deilúmála á
alþjóðavettvangi með alvar-
legum, jöfnum og raunhæfum
viðræðum. Sovétríkin munu
vinna með öllum ríkjum, sem
eru reiðubúin til að aðstoða við
að draga úr spennu á alþjóða-
vettvangi og skapa traust í heim-
inum. Með öðrum orðum - með
þeim sem vilja ekki láta hlutina
leiða til styrjaldar, heldur efla
undirstöðu friðar. Við álítum að
til þess að ná fram þessum mark-
miðum skuli nota öll tiltæk ráð,
þar á meðal Sameinuðu Þjóðirn-
ar, sem hafa verið stofnaðar til
að varðveita og efla friðinn."
Það vekur ekki minnst athygli,
að í ræðukaflanum, sem fjallar
um alþjóðamálin, forðast Chern-
enko ádeilur á önnur ríki.