Tíminn - 23.02.1984, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1984
■ Aðeins einu sinni hefur Burt Reynolds leitað gxfunnar í
hjónabandi. Það var með Judy Came.
■ Dinah Shore var fastur fylginautur Burts Reynolds um langt skeið.
■ Um tíma leit út fyrir að Sally Field og Burt Reynolds myndu gifta
sig. Úr því varð þó ekki og kennir Burt því um að Sally hafði náð of
miklum frama sem leikkona.
fyrir ungt listafólk til að það geti
haft aðstöðu til að æfa sig og
þroska án þess að hafa áhyggjur
af fjármálum á meðan.
Þarna kom mikið af heims-
frægum tónlistarmönnum sem
kenndu og spiluðu með nemend-
unum, ég get nefnt Igor Ois-
trach, sem kom og spilaði á fiðlu
föður síns, Davids Oistrach, Jan-
os Starker sellóleikara, sem lék
hjá Tónlistarfélaginu núna í
vetur, William Primrose, sem er
Skoti af eldri kynslóðinni, var
nemandi Isais eins og Menuhin,
lék í hljómsveit Toscaninis og
með Tascha Heifetz. Svo má
nefna ungverjann Zoltán Szek-
ely, sem var vinur Bartóks og
Bartók samdi m.a. fyrir hann
annan fiðlukonsertinn og aðra
rapsódíuna. Hann var 1. fiðlu-
leikari í ungverska kvartettinum
sem starfaði í ein 30 ár og fékk
meðal annars Grand Prix fyrir
hljóðritanir á öllum kvartettum
Beethovens.
Námið þarna hefur gert það
að verkum að maður hefur
kynnst fólki út um allan heim,
núna í vor fer ég til dæmis til
Evrópu, fyrst til Leipzig og síðan
t.il Sviss, bæði til að sækja nám-
skeið og líka til að leika einleik
og kammertónlist.
Samt hefur þú ákveðið að
koma heim?
„Heilsu föður míns var tekið
að hraka, svo að ég ákvað að
koma heim um sinn. Svo var það
að Ragnar H. Ragnar hafði sam-
band við mig og bauð mér að
koma til Isafjarðar og kenna og
þar var ég í tvo vetur.
í vetur hef ég svo verið hér í
Reykjavík og hér er nægilega
mikið tónlistarlíf til þess að ég
get unnið fyrir mér án þess að
vera nokkurs staðar fastráðin.
Ég er að vísu ráðin til að spila á
sex tónleikum íslensku hljóm-'
sveitarinnar og leik auk þess
með hljómsveit íslensku óper-
unnar og þetta nægir mér til þess
að geta komist af án þess ,að
kenna og hef tíma til að æfa mig
sem er auðvitað það mikilvæg-
asta
-JGK
■ EF ÚRSLIT forkosninganna
í New Hampshire, sem fara fram
28. þ.m., verða á sömu leið og í
Iowa á mánudaginn var, benda
allar líkur til, að Walter Mondale
hafi eignazt nýjan aðalkeppinaut
í þeim forkosningum eða próf-
kjörum, sem eftir eru.
John Glenn verður þá úr leik
sem aðalkeppinautur Mondales,
en Gary Hart hefur tekið við af
honum sem helzti keppinautur
hans.
Pví hafði verið spáð í Iowa að
Mondale fengi langmest fylgi
hinna átta keppinauta, sem
keppa um forsetaframboð fyrir
demókrata, en Glenn myndi
koma næstur honum. Síðan yrðu
áhöld um þá John McGovern,
Alan Cranston og Gary Hart.
Úrslitin urðu þau, að Mondale
fékk 50%, Gary Hart 16.5% og
McGovern um 10%. Aðrirfengu
minna. Glenn fékk ekki nema
rúm 3% og lenti í 6. sæti.
Það skiptir nú meginmáli fyrir
Glenn að hann rétti hlut sinn í
New Hampshire. Til þess virðast
þó ekki miklar líkur. Bíði hann
nýjan ósigur þar, verður erfitt
fyrir hann að bæta stöðu sína
aftur.
Hann fær möguleika til þess í
prófkjörunum, sem fara fram í
fyrri hluta marzmánaðar. Mis-
takist honum þá, er hann senni-
lega úr sögunni sem frambjóð-
andi að þessu sinni.
Vafasamt er, að Mondale hafi
ástæðu til að fagna, þó að Glenn
heltist úr lestinni, ef Gary Hart
tekur sæti hans.
iisti
inni og notið vaxandi álits þar.,
Hann er ekki talinn eins róttækur
og áður og hafa sjálfstæðar
skoðanir í ýmsum málum. Mál-
flutning sinn hefur hann byggt á
því, að flokkur demókrata þyrfti
að breytast í samræmi við breytta
tíma og kringumstæður. Þess
vegna hefur verið litið á hann
sem fulltrúa yngri kynslóðarinn-
ar í flokknum, en Mondale til-
heyrði meira fortíðinni.
HART gerði skömmu eftir
áramótin grein fyrir skoðunum
sínum í viðtali við New York
Times.
Hann sagðist í efnahagsmálum
leggja megináherzlu á að fram-
leiðslan samlagaðist tæknibylt-
ingunni og frjálsari ajþjóðlegum
viðskiptum. Þá yrði að leggja
kapp á bætta þjónustu hins opin-
bera, eins og í sambandi við
samgöngur og náttúruvernd. Eitt
mikilvægasta skilyrði þess, að
Bandaríkin fylgdust með tím-
anum væri bætt og breytt
menntun. Á því sviði væru'
Bandaríkin að dragast aftur úr.
Þá væri mikilvægt að stuðla að
auknum jöfnuði milli kynþátta,
stétta, kynja og kynslóða.
I stuttu máli virðist mega segja
um skoðanir Harts, að hann sé
bæði fylgjandi hóflegri markaðs-
stefnu og velferðarþjóðfélagi.
Það þurfi jöfnum höndum að
gæta þessa hvoru tveggja. Dæmt
á ameríska vísu mun þessi af-
staða talin heldur til vinstri. í
Evrópu myndi heldur litið á
hann sem miðjumann.
Gary Hart geturorðið Mond-
ale erfiður keppinautur
Glenn virðist ætla að heltast úr lestinni.
Úr því mun fást skorið í New
Hampshire, en þar hefur Hart
unnið kappsamlega að undan-
förnu, án þeSs þó að láta mikið á
því bera. Ýmsir fréttaskýrendur
voru farnir að spá því fyrir
helgina, að hann myndi reynast
drjúgur þar.
Rætist þær spár og nái Hart
öðru sæti, mun vegur hans mjög
vaxa og honum verða auðveldara
að fá framlög í kosningasjóðinn,
en það skiptir ekki litlu. Án
ríflegs kosningasjóðs kemst eng-
inn í framboð í Bandaríkjunum,
a.m.k. ekki í forsetakosningum.
GARY HART er yngstur
þeirra áttmenninganna, sem
keppa um framboð af hálfu demó-
krata, að Jesse Jackson undan-
skildum.
Hart er 46 ára, fæddur 28.
nóvember 1937, fæddur og upp-
alinn í Kansas, en stundaði
menntaskólanám sitt í Okla-
homa. Lagaprófi lauk hann við
Yaleháskóla 1964, en það þykir
góð viðurkennning að hafa laga-
próf þaðan.
Að loknu laganámi fékk Hart
starf hjá dómsmálaráðuneytinu
í Washington, en varð síðar
sérstakur ráðunautur Stewarts
Udall innanríkisráðherraí stjórn
þeirra Kennedys og Johnsons.
Hann gegndi báðum þessum
störfum skamma hríð. Árið 1967
hélt hann til Colorado og hefur
verið búsettur þar síðan. Hann
hóf þar lögfræðistörf og vann sér
gott álit. Hann tók vaxandi þátt
í stjórnmálum og beitti sér sér-
staklega gegn þátttöku Banda-
ríkjanna í Víetnamstriðinu.
Þetta átti sinn þátt í því, að
hann gerðist kosningastjóri
McGoverns í forsetakosningun-
um 1972. Hart er talinn hafa átt
í utanríkismálum hefur Hart
lagt áherzlu á, að Bandaríkin
stuðluðu að friði í Mið-Ameríku
og hættu að styrkja einræðis-
stjórnir þar. Hvert ríki þar ætti
að fá að ráða málum sínum
sjálft, án erlendrar íhlutunar,
stefna beri að vopnahléi í E1
Salvador og hætta hernaðar-
legum stuðningi við stjórnarvöld
þar. Einnig í Hondúras og Gu-
atemala. Þá eigi að veita ríkjum
Mið-Ameríku eins konar Mars-
hallhjálp.
í máluni Austurlanda nær
leggur Hart áherzlu á nána sam-
vinnu við ísrael, en taka verði
tillit til réttinda Araba. Nauðsyn-
legt sé að skilja sérstöðu Sýr-
lands og taka fullt tillit til þess í
viðræðum um þessi mál.
Hart vill draga verulega úr víg-
búnaði, t.d. að hætt verði við
smíði hinna fyrirhuguðu MX-
eldflauga og B-l-sprengjuflug-
véla, Hann vill hins vegar bæta
og auka hefðbundinn vopnabún-
að. Hann leggur áherzlu á samn-
inga við Rússa um afvopnun.
Hann segist gera sér góða von
um jákvæðan árangur slíkra
samninga, en ekki vegna þess að
hann treysti valdhöfum þeirra
meira en hóflega, heldur sé þetta
ekki síður hagsmunamál þeirra
en Bandaríkjamanna.
Hart er af íhaldsmönnum ásak-
aður fyrir að hann sé of frjáls-
lyndur. Margir hinna frjálslyndu
telja hann hins vegar orðinn of
íhaldssaman. Því hefur verið
sagt um pólitískar skoðanir hans,
að þær séu hvorki fugl né fiskur.
Hart mótmælir þessu. Hann seg-
ist byggja á stefnu demókrata
frá tíð Franklins Roosevelt og
Johns Kennedy, en hins vegar
verði að samræma hana breytt-
um aðstæðum.
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
■ Er keppninni milli Mondales og Glenns lokið?
drjúgan þátt í því, að McGovern
sigraði í prófkjörunum og varð
því útnefndur frambjóðandi
demókrata. I forsetakosningun-
um sjálfum beið McCovern mik-
inn ósigur fyrir Nixon.
Hart lét þann ósigur ekki
beygja sig. Hann hélt áfram
þátttöku sinni í stjórnmálabar-
áttunni. Árið 1974 bauð hann sig
fram í Colorado í kosningu til
öldungadeildar Bandaríkjaþings
og náði kjöri, þótt ýmsir teldu
þá, að kosningastjóri McGo-
verns væri ekki líklegur til sigurs.
Hart náði endurkosningu til
öldungadeildarinnar 1980. Hann
hefur getið sér gott orð í deild-