Tíminn - 23.02.1984, Page 12
Fólk leggur nú meira upp úr gömlum munum
Fyrstu vörurnar
keyptar á mörkuðum
og uppboðum utanlands
Fyrstu vörurnar í verslunina keypti
Anna á mörkuöum og uppboðum í
Svíþjóð, Hollandi og Belgíu, og síðan
hefur hún reynt að fara a.m.k. tvisvar á
ári út til að kaupa inn, og þá oftast til
þessara sömu landa. - í Belgíu er oft
hægt að fá geysigóðar blúndur og dúka,
sagði Anna.
Allt, sem telst til einhvers konar
vefnaðarvöru svo sem gamalt flauel,
blúndur, dúkar o.s.frv. er sótthreinsað
þegar það kemur inn í landið. Það er víst
ráðstöfun til að verjast gin- og klaufa-
veiki, hvernig sem það kemur heim og
saman.
Blaðamaður Heimilistímans spurði
Önnu, hvort hún fengi ekki keypta
gamla muni hér á landi. Hún kvað svo
vera, bæði komi fólk með ýmsa hluti til
hennar, sem hún keypti, og svo væri það
orðið algengt, að þegar gömul dánarbú
væru gerð upp, þá væri hringt í sig til að
vita hvort hún vildi kaupa gamla muni.
— Oft er því áhugaverð-
asta hent á haugana
- Það versta er, sagði Anna, að þegar
hringt er í mig til að koma og skoða
gamla hluti úr dánarbúum, þá er oftast
búið að „taka til“ á gamla heimilinu og
jafnvel henda þvi á haugana, sem ég
hefði kannski haft mestan áhuga á, svo
sem gamalli handavinnu, dúkum,
gömlum fötum (fötin þurfa helst að vera
yfir 30 ára til þess að ég hafi áhuga á
þeim) ýmsum gömlum áhöldum, þvotta-
brettum, mjólkurbrúsum og öðru slíku.
Þetta eru orðnir safngripir. Ég vil ítreka
það, að fólk á að hugsa sig um, áður en
það hendir gömlum hlutum, því það eru
margir sem hafa áhuga á slíku dóti.
Nú orðið er hægt að fá gömul máluð
húsgögn afsýrð, svo viðurinn sjálfur
kemur í Ijós (reyndar ekki hægt við
spónlögð húsgögn). Þá njóta gömlu
húsgögnin sín aftur, þegar málningin
hefur verið fjarlægð.
„Ég væri orðin rík, ef..."
Eigandi „Fríðu frænku" segir, að
gamlir munir hækki mjög í verði erlend-
is, svo það sé orðið töluvert erfiðara að
kaupa inn en áður var. Verðmyndunin
hér á landi á gömlum hlutum hefur ekki
fylgst með, - en umsetningin eykst
■ Anna Rlngsted situr hér við búðarborðið, Á borðinu er bakki fuilur af ódýrum skartgripum, sem sumir hverjir eru hálffurðulegir. Á efri hiUunni eru könnur og
smáhlutir. Á veggnum efst tU hægri er gamall meðalaskápur úr viði. Hann er opnaður með því að færa tU rósettuna á framhliðinni. (Tímamyndir Árni Sæberg)
óðum, svo ég er bjartsýn, sagði verslun-
areigandinn.
- Ég væri orðin rík, ef nóg framboð
væri af svörtum, gömlum kjólum og
hvítum blúndudúkum, svo mikil hefur
eftirspurnin verið eftir þeim í vetur,
sagði Anna brosandi. Hver slíkur kjóll,
sem hefur komið í búðina selst eins og
skot. Mig vantar fleiri gamla svarta
kjóla!
Leikhús og kvikmynda-
framleiðendur
eru góðir kúnnar
- Ég hef selt leikhúsunum töluvert af
smámunum, þegar hefur vantað í svið-
setningu leikrita. Eins hafa kvikmynda-
framleiðendur komið hingað til að leita
að gömlum munum, en þeir vilja heldur
fá hlutina leigða, því að í kvikmynd er
þetta aðeins notað einu sinni, en leikhús-
in geta geymt leikmuni og notað þá svo
aftur seinna. Mér finnst mjög áhugavert
að hjálpa til við að leita að munum, til
að setja réttan svip á sýningu, hvort
heldur er fyrir svið eða í kvikmynd.
Smámunirnir gefa sviðsmyndinni réttan
blæ.
Á meðan blaðamaður stóð við hjá
„Fríðu frænku" kom leikhúsmaður til að
leita að leikmunum fyrir uppsetningu
leikritsins „Dúfnaveislunnar“ í Borgar-
nesi á næstunni. Hann spurði m.a. um
dúka og blúndur o.fl.
í versluninni er margt að sjá og
■ Það kennir margra grasa í gluggun-
um hjá „Fríðu frænku“
þangað koma safnarar og grúskarar og
gefa sér góðan tíma. Eigandinn segir að
það sé oft sama fólkið, sem kemur aftur
og aftur. Sumir safna gömlum póstkort-
um, aðrir postulíni, t.d. kaffi- og súkku-
laðikönnum - og eiga kannski svo tug-
um skiptir af könnum! Sumir leita að
gömlum myndum, en þær koma stund-
um inn í verslunina í sambandi við kaup
á dánarbúum.
Japanskir kímonóar
frá aldamótum
Nú nýlega hefur íslendingur, sem
búsettur er í Japan, keypt fyrir verslun-
ina gamla japanska kímonóa. Sumir
þeirra eru frá aldamótunum. Kímonóar
þessir eru úr silki og ofnum efnum og
allir handsaumaðir.
„Það er ekki eitt vélarspor að finna á
þessum flíkum", sagði Anna. Hún sagði
að þessir sloppar væru keyptir í sér-
stökum kímonó-verslunum. I París ku
þessar flíkur nú þykja það fínasta fína.
Hingað komnir kosta kímonóamir frá
1800 krónum og upp í rúmlega 3000.
Mjög falleg nærföt eru til í versluninni,
bæði blúndukot (íslensk) og lérefts-nær-
föt með ísaumi og blúndum. Þau eru frá
Hollandi.
Meðan blaðamaður var að dást að
nærfötunum kom ung kona inn, og
spurði um hvíta bróderaða dúka. „Dúk-
urinn þarf að vera eins og 50 sm langur,
ílangur - ekki ferkantaður, helst með
fallegri blúndu,“ sagði hún. Hún vissi
sem sagt alveg hvað hún vildi, - og
áreiðanlega hefur hún fundið dúkinn
hjá „Fríðu frænku“.
■ „Verðmætamat er að breytast hjá
fólki. Það leggur meira upp úr gömlum
munum nú en fýrir nokkrum árum.
Áhuginn hefur aukist gífurlega t.d. á
ýmsum gömlum smámunum. Þessir hlut-
ir fara vel í gömlu húsunum, sem verið
er að gera upp, - en þeir eiga líka vel við
í nýjum íbúðum, einkum þar sem eru
viðarinnréttingar", sagði Anna
Ringsted, eigandi verslunarinnar „Fríðu
frænku" í Ingólfsstræti. Sú verslun selur
aðallega gamla muni, - dúka, postulín,
gluggatjöld, föt og margt fleira.
Verslunin „Fríða frænka“ verður
þriggja ára í maí í vor. Eigandinn hafði
áður búið í Svíþjóð, og þarkynnst
mörkuðum og verslunum með gamla
muni og datt í hug að stofnsetja slíka
verslun hér í Reykjavík.
„VERÐMÆTAMAT ER AÐ BREYTAST
— segir Anna Ringsted, eigandi verslunarinnar FRÍÐU FRÆNKU
■ Þama má sjá marga hlutí, sem
þóttu hversdagslegir fyrir nokkr-
um árum - en em nú orðnir
safngrípir. Takið eftír stóra tölu-
boxunum. Verslunin keypti gaml-
an lager af tölum, og margir koma
til þess að leita að einbverjum
sérstökum hnöppum eða tölum.
■ Leikhúsmaður í leit að leik-
munum. Það fór vel á með þeim,
og hann ætlaði að koma aftur,
þegar Anna hefði fundið það sem
vantaði.