Tíminn - 16.03.1984, Blaðsíða 4
FOSTUDAGUR 16. MARS 1984
fréttir
V
„VERIÐ AÐ NIÐURLÆGIA ÞETTA FDIX
-segja forsvarsmenn undirskriftasöfnunar gegn unglingataxtanum
■ Undirskriftasöfnun (jögurra lands-
samtaka ungs fólks gegn þeim ákvæðum
nýgerðra kjarasmninga þar sera kveður
á um iægri lágmarkslaun þeirra sem ekki
hafa náð 18 ára aldri eða unnið skemur
en 6 mánuði í sömu starfsgrein, var
kynnt á blaðamannafundi í gær. Að
undirskriftarsöfnuninni sem hófst í gær
standa Bandalag íslenskra sérskóla-
nema, lðnnemasamband Islands, Lands-
samband mennta- og Ijölbrautaskóla-
nema og Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins. Undirskriftarlistum þess-
um verður dreift á vinnustöðum og í
skólum en á þeim segir meðal annars að
þessi ákvæði komi mjög illa við skólafólk
í sumarvinnu og er skorað á atvinnurek-
endur,pg eða Alþingi að tryggja leiðrétt-
ingu þessa máls. Leitað verður samstarfs
við önnur landssamtök ungs fólks svo og
verkalýðsfélög út um land allt. Aætlað
er að söfnuninni Ijúki í byrjun næsta
mánaðar og verða listarnir þá afhentir
forsætisráðherra á útifundi við Alþingi.
„Og það verða engin þögul mótmæli",
sagði Ólafur Ólafsson einn forsvars-
manna söfnunarinnar, „og væntanlega
fáum við höfunda samninganna, þá
Ásmund Stefánsson og Magnús Gunn-
arsson til þess að vera viðstadda". í
greinagerð með undirskriftalistanum
kemur fram, að lágmarksdagvinnutekjur
unglinga á aldrinum 16 til 18 ára eru
11.509 meðan 18 ára og eldri frá 12.660.
Unglingataxtinn gildir jafnframt fyrir þá
sem ekki hafa unnið 6 mánuði í viðkom-
andi starfsgrein. „Það er verið að niður-
lægja fólk. Við teljum ekki að líta beri á
þetta fólk sem einhvern annars flokks
starfskraft", sagði Ólafur Ástgeirsson
fulltrúi BÍSN við söfnunina. Þá kom
fram hjá þeim félögum að mál þetta
snertir ekki aðeins námsmenn og ungt
fólk. Iðnnemar sem verið hafa í verk-
námi fá það í engu metið þegar þeir
hefja störf í faginu úti á vinnumarkaðin-
um. Sömuleiðis kemur þetta sér illa fyrir
heimavinnandi húsmæður sem eru að
fara út á vinnumarkaðinn. Þær fá hús-
móðurstarf sitt hvergi metið.
Við tökum ekki afstöðu til samning-
anna í heild, það eru þessi ákvæði um
unglingataxtana sem við viljum fá
hnekkt, sögðu forsvarsmenn undir-
skriftasöfnunarinnar. Við vitum, sögðu
þeir að þetta ákvæði var verslunarvara í
kjarasamningunum og hvað svo sem það
var sem fékkst í þeim kaupum þá teljum
við þetta forkastanleg vinnubrögð. Það
má ekki gerast að verkalýðshreyfingin
selji réttindi sem hún náði fram fyrir nær
50 árum. Eða hver hefur heyrt að
ástandið á íslandi sé verra 1984 en það
var í kreppunni miklu, sögðu fulltrúar
landssamtakanna fjögurra sem standa
að þessari undirskriftasöfnun.
Söfnun undirskrifta hófst í fyrradag
og hefur að sögn forsvarsmanna þegar
fengið frábærar undirtektir.
Norræna félagið
í Kópavogi:
,Hámark letinnar" var nafn vídeómyndarinnar sem nemendur gerðu, og sýnir þessi mynd er einn nemenda ekur upp aft skólatöflunni.
Kynning
á Göran
T unström
—aðalf undur á undan
■ Á sunnudagskvöldið efnir Norræna
félagið í Kópavogi til kynningar á sænska
rithöfundinum Göran Tunström, í Þing-
hóli, Hamraborg 11. Þá syngur kór
Menntaskólans í Kópavogi undir stjórn
Martial Nardeau.
Göran Tunström hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs í Stokkhólmi
í febrúarmánuði síðastliðnum. Á kynn-
ingunni mun Heimir Pálsson cand. mag.
sem sæti átti í verðlaunanefndinni fjalla
um Tunström og Arnhildur Jónsdóttir
leikkona lesa úr verðlaunabók hans
Juloratoriet í þýðingu Heimis.
Áður en vakan hefst verður haldinn
aðalfundur félagsins og byrjar hann
klukkan 20:00. Þar verður meðal annars
kynnt hópferð á vinabæjarmót í Norr-
köbing í Svíþjóð í sumar en staðurinn á
600 ára afmæli um þessar mundir og
verður mikið um dýrðir.
MOpin vikaff hjá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum:
FJ0LMHHJIN
VAR VINSÆLT
VWFANGSEFNI
■ Útvarpsrekstur, blaðaútgáfa, kvikmyndagerð, matargerðarlist og fegrun
skólans og nemenda hans var meðal þess sem nemendur Framhaldsskóla
Vestmannaeyja einbeittu sér að á „Opinni viku" sem haldin var í skólanum
dagana 27. feb. til 2. mars s.l. Allir starfshóparnir sem myndaðir voru í skólanum
þessa viku lögðu einnig fram sinn skerf í daglegunt UPPÁKOMUM sem meðal
annars beindust að því að reyna á þolrifin í kennurunum - hve fjölfróðir og
fjölhæfir þeir reyndust.
Fjölmiðlun var vinsælt viðfangsefni á vikuviiinunnar síðan uppi um alla veggi
opnu vikunni. Útvarpshópurinn á lokadeginum. Hópur um leiklist og
„Blóðrás" útvarpaði 7 klukkustunda félagsstörf æfði stutta leikþætti, funda-
dagskrá um bæinn daglega. Efni dag- störf ogframsögn. Fegrunarhópurinn sá
skrárinnar var létt tónlist, upplestur, um fegrun á umhverfi skólans og á
viðtöl og leikþættir. Innanhúsfréttablað- félögum hópsins og var það vinsælt
ið „Slúðrið" kom út daglega og skóla- ' viðfangsefni. Enginn hópur mun þó hafa
blaðið „Skyggnir" síðan í lok vikunnar. hlotið lof eins margra og matreiðsluhóp-
Nemendur í furðufatnaði dreifðu blað- urinn sem bauð öllum upp á heitan mat
inu um bæinn. Vídeóhópur gerði leikna í hádeginu alla daga vikunnar og endaði
mynd í léttum dur. Hópurinn samdi síðan með glæsilegu kaffiboði fyrir nem-
handritið, lék og annaðist upptöku endur,aðstandendurþeirraogstarfslið.
myndarinnar, sem þau sýndu síðan á Opnu vikunni lauk meðskólaskemmt-
síðastadegivikunnar. Þátók Ijósmynda- un Hallarlundi og síðan dansleik sem
hópurinn fréttamyndir af ýmsum 4. árs nemendur stóðu fyrir. Þess skal að
skemmtilegum uppákomum, m.a. þær lokum getið að Framhaldsskólinn í
myndir sem birtast hér með frásögn Vestmannaeyjum mun útskrifa sína
þessari. fyrstu stúdenta á komandi vori og er því
Ýmisslistiðjaáttieinnigmargaáhang- mikill vorhugur sagður í skólastarfinu
endur. Handlistahópur vann að búta- um þessar mundir.
saumi oe hnýtingu og sýndi árangur - HEI.
V í
A k*w
■ „Maður getur alltaf á sig blómum bætt“ var mottó fegrunarhópsins.
Myndir Ljósmyndahópur F.V.
■ Æfing á ieikþætti: Elín og Magnús leikstjóri.
Bæjarstjórn
Siglufjardar:
Mótmæla
leyfis-
veitingum
til rækju-
vinnslu
■ Bæjarstjórn Siglufjarðar samþykkti
á fundi sínum nýlega að mótmæla harð-
lega leyflsveitingum til rækjuvinnslu um-
fram það sem nægir til að nýta þekkt mið
innan skynsamlegra marka. Einkum og
sérílagi mótmælir bæjarstjórn nýjum
eða fyrirhuguðum vinnsluleyfum til að-
ila, sem ekki munu geta rekið rækju-
vinnslu nema með því móti að láta veiða
rækju úti fyrir Norðurlandi, landa henni
í norðlenskum höfnum og aka henni
síðan í bílum þvert yflr landið til vinnslu.
Benda Siglfírðingar á að slík nýting á
humarmiðunum fyrir Suðurlandi kæmi
að flestra mati ekki til greina.
Bæjarstjórn Siglufjarðar minnir jafn-
framt á tilmæli sín til sjávarútvegsráð-
herra frá því í okt. s.l. um að gerð verði
ítarleg rannsókn á veiðiþoli rækjustofns-
ins fyrir Norðurlandi. Þar sem margt
bendi nú til að stór hluti íslenskra
fiskiskipa muni stunda úthafsrækjuveið-
ar fyrir Norðurlandi á komandi sumri,
telja Siglfirðingar stóra hættu á ofveiði.
Nýjar rækjuvinnslustöðvar víðs vegar
um land muni ýta undir þá þróun, því
Ijóst sé að þekkt rækjuslóð, t.d. við
Eldey, eða óþekkt rækjumið út af Aust-
'urlandi muni ekki standa undir aukinni
hráefnisþörf nýrra rækjuvinnslustöðva.
-HEI