Tíminn - 08.04.1984, Blaðsíða 9

Tíminn - 08.04.1984, Blaðsíða 9
SUNNUDAGUR 8. APRIL 1984 menn og málefni UM SAMEININGU BANKA OG SKATTAMÁL FYRIRTÆKJA Kjarasamningar komnir í höfn Það má segja, að kjarasamningar þeir, sem Alþýðusamband íslands og Vinnuveitendasambandið gerðu fyrr í vetur, hafi nú hlotið allsherjarsam- þykki, enda þótt nokkur félög hafi enn ekki gengið endanlega frá samningum. Kjarasamningar annarra aðila, eins og ríkisins og BSRB hafa markazt af kjarasamningum Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins. Sama má segja um samninga Dags- brúnar og Vinnuveitendasambandsins. Þar er aðalbreytingin sú, að fellt er niður ákvæðið um unglingataxtann. Raunar hafði það áður gerzt í reynd, því að nær allir atvinnurekendur utan Reykjavíkur höfðu lýst yfir því, að þeir myndu ekki notfæra sér ákvæðið. Hér var því búið að brjóta ísinn áður en Dagsbrún samdi. Sama gildir um minniháttar tilfærsl- ur milli launaflokka. Mörg félög voru búin að fá slíkar leiðréttingar, m.a. Blaðamannafélag íslands. Hinir nýju kjarasamningar, sem nú eru komnir í höfn, eru glöggur vitnis- burður um, að þjóðin viðurkennir réttmæti þeirrar meginstefnu ríkis- stjórnar Steingríms Hermannssonar, að viðnámið gegn dýrtíðinni skipti nú meginmáli og því verði ekki komizt hjá því að sætta sig enn um sinn við þá kjaraskerðingu, sem orðin var, þegar ríkisstjórnin kom til vaida. Efna- hagsmál þjóðarinnar verði að komast í það horf, að verðbólga sé ekki öllu meiri hér en í nágrannalöndunum okkar. Petta sé frumskilyrði þess, að hér geti í framtíðinni þróazt blómlegt at- vinnulíf, er leggi grundvöll að batnandi lífskjörum og aukinni atvinnu, svo að ekki komi til atvinnuleysis. Ríkisstjórnin má vissulega vel una þessum úrslitum. Hún hefði að sjálf- sögðu helzt kosið, að hægt hefði verið að fylgja þeim ramma, sem settur var í fjárlögum, en hann sprakk þegar útsvarslagningin var ákveðin í höfuð- borginni. Eftir það var ekki hægt að vænta þess, að samið yrði innan þessa ramma. Þótt niðurstaða kjarasamninganna sé þannig stuðningur við meginstefnu ríkisstjórnarinnar, má það ekki gleym- ast, að enn hefur ekki náðst nema áfangi í baráttunni við verðbólguna. Þessi áfangi getur tapazt og aftur sótt í fyrra horf, ef ekki verður áfram unnið markvisst og sleitulaust að því að hemja verðbólguna. Þar skiptir miklu máli, að ekkert sé látið ógert til að halda verðlagi innan hæfilegra marka. Takist það ekki mun kaupgjaldið elta það og gömlu víxlhækkanirnar koma aftur til sögu. Tillögur banka- málanefndarinnar Bankamálanefndin, sem starfað hef- ur um tveggja og hálfs árs skeið, hefur fyrir nokkru skilað frá sér tveimur frumvörpum, öðru um Seðlabanka Islands og hinu um viðskiptabanka. Bersýnilegt er að mikið verk liggur að baki þessum frumvörpum. Þau eru nú til athugunar hjá viðskiptaráðherra og vafalítið hjá bönkum og fleiri aðilum. f þeim er gert ráð fyrir ýmsum meiriháttar breytingum, sem vafalaust sumar hverjar eiga eftir að valda miklum umræðum áður en þær eru komnar í höfn. Veigamestu breytingarnar munu vera þessar: 1. Lögum um einstaka ríkisvið- skiptabanka og hlutafélagsbanka verði steypt saman í einn lagabálk og starfs- heimildir þessara banka samræmdar eftir því sem unnt er. 2. Sett verði ákvæði um lágmarks eigið fé viðskiptabanka, en þau ákvæði skortir í gildandi löggjöf. Jafnframt verði óheimilt að þær fasteignir, er viðskiptabanki notar til starfsemi sinnar, nemi að verðmæti meira en 65% af eigin fé banka. Með þessu telur nefndin að unnt sé að stemma að nokkru leyti stigu við fjölgun bankaúti- búa. 3. Ákvörðun um inn- og útlánsvexti verði færð úr höndum Seðlabankans og í hendur viðskiptabankanna sjálfra. Jafnframt verði samráð viðskipta- banka um ákvörðun vaxta bannað. Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn ákveði vexti af viðskiptum stnum við banka og hámarksvaxtabil inn-. og útlána. 4. Bankaeftirlitið verði fært undan bankastjórum Seðlabankans og heyrí framvegis undir bankaráð ög við- skiptaráðherra. 5. Viðskipti Seðlabankans við pen- ingastofnanir verði takmarkaðri en verið hefur og Seðlabankanum verði einungis heimiit að endurkaupa af- urðalán af viðskiptabönkunum en ekki skylt, eins og verið hefur. Er það í samræmi við það, sem segir um endur- kaup afurðalána í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. 6. Seðlabankinn greiði því sem næst 50% af hreinum arði í ríkissjóð, sem ekki hefur tíðkazt hingað til. 7. Æviráðning bankastjóra Seðla- bankans og ríkisviðskiptabanka verði afnumin. Heimild bankastjóra ti! að gegna öðrum störfum verði þrengd mjög verulega. 8. Heimilt verði að stofna hlutafé- lagsbanka með 100 rrrillj. króna lág- markshlutafé, sem sé allt innborgað við upphaf starfsemi. Hluthafar skulu eigi vera færri en 50 og má enginn þeirra fara með meira en Vs hluta atkvæða í félaginu. Engar hömlur má setja á meðferð hlutabréfa. Starfandi hlutafélagsbankar skulu aðlaga sig þessum skilyrðum innan þriggja ára. 9. Heimilt verði að setja á stofn hér á landi umboðsskrifstofur fyrir erlenda banka að fengnu leyfi ráðherra. Ekki mun hafa náðst samkomulag í nefndum um öll þessi atriði og áskilja því nefndarmenn sér rétt til að skila séráliti. Greinargerð, sem fylgja á frumvörpunum, er enn ekki að öllu leyti lokið. í bankamálanefndinni eiga sæti Þor- steinn Pálsson, Björn Líndal, Jón G. Sólnes, Lúðvík Jósepsson og Kjartan Jóhannesson. Bókun um sam- einingu banka Jafnhliða því, að bankamálanefndin hefur skilað áðurnefndum frumvörp- um, hefur hún birt eftirfarandi bókun um sameiningu og fækkun banka: „Eins og erindisbréf bankamála- nefndar gerir ráð fyrir, hefur nefndin mikið rætt hvernig unnt væri að fækka viðskiptabönkunum, sem eru nú sjö talsins, og mynda stærri og virkari rekstrareiningar innan viðskipta- bankakerfisins. Nefndin er sammála um að stækkun rekstrareininga með sameiningu viðskiptabanka væri til mikilla hagsbóta. Samhliða er, að mati nefndarinnar, nauðsynlegt að færa til viðskipti og útibú milli ríkisviðskipta- banka og tryggja þannig sem mest jafnræði með þeim hvað snertir stærð, viðskiptadreifingu og viðskiptaað- stöðu. Kostirnir við sameiningu eru, að áliti nefndarinnar, augljósir. Má þar nefna bætta þjónustu banka við at- vinnulífið og sparnað í bankarekstri. Einnig ætti sameining að stuðla að jafnari dreifingu milli banka á útlánum til atvinnuvega svo og jafnari land- fræðilegri dreifingu útlána. í frumvarpi því, sem nefndin hefur samið um viðskiptabanka, er að finna ákvæði, er eiga að hvetja til sameining- ar hlutafélagsbanka. Jafnframt hafa tvö meginsjónarmið verið sett fram í nefndinni um fækkun og sameiningu ríkisviðskiptabanka. Annars vegar er um innbyrðis samein- ingu tveggja ríkisviðskiptabanka að ræða, en hins vegar sameiningu ríkis- viðskiptabanka og hlutafélagsbanka. Nefndin gerir ekki tillögur með hvaða hætti þetta skuli gert, en meiri- hluti nefndarinnar, þeir Þorsteinn Pálsson, Björn Líndal og Jón G. Sólnes, telja, að það mundi flýta fyrir framgangi málsins, að ráðherra hefði I Mikligarður. forgöngu um tæknilega útfærslu sam- einingar, sem leggja mætti fyrir Al- þingi í frumvarpsformi, þegar Alþingi kemur saman í haust.“ Holtagarðar Vegna óvenjumikilla árása Mbl. á samvinnuhreyfinguna um þessar mundir, hefur Edendur Einarsson for- stjóri S.Í.S. sent Mbl. grein, sem birtist þar 25. f.m. Hann víkur fyrst að því, að oft hafi andað köldu í Mbl. í garð samvinnuhreyfingarinnar en sjaldan meira en nú. Erlendur Einarsson segir síðan: „Ekki verður ljóslega ráðið hver sé orsök þeirrar skæðadrífu, sem nú stendur yfir, en ýmislegt bendir til þess að ný og glæsileg verzlunarmiðstöð við Sund, sem reist var af samvinnu- mönnum til þjónustu fyrir reykvíska neytendur valdi þar -nokkru um. I þeirri umræðu ber lítið á umhyggju fyrir hag neytenda, en Mikligarður hefur sannarlega orðið til að lækka verulega vöruverð á Reykjavíkursvæð- inu. í stað þess er gerð tilraun til að gera rekstrarfyrirkomulag Miklagarðs tortryggilegt. Tel ég nauðsynlegt að fara um það mál nokkrum orðum jafnframt því að gera að umtalsefni annan langvarandi misskilning um skattfríðindi sam- vinnufélaganna, sem blandazt hefur inn í þá umræðu. Kaupfélögin, sem stóðu að stofnun Miklagarðs, hafa nú þegar umfangs- mikinn verzlunarreksturásinni könnu. Mikligarður var hugsaður sem viðbót við markaðshlut félaganna, en einnig og ekki síður sem tækifæri fyrir um 21.000 félagsmenn viðkomandi kaup- félaga til þess að gera enn hagkvæmari innkaup en áður. Það þótti því betur við hæfi að kaupfélögin stæðu beint og með ótakmarkaðri ábyrgð að rekstri Miklagarðs, í stað þess að gera það að hlutafélagi nteð takmarkaðri ábyrgð. Að forminu til var því ákveðið að Mikligarður yrði sameignarfélag við- komandi kaupfélaga og Sambandsins og er hlutur Sambandsins 30%. Samkvæmt lagaákvæðum um sam- eignarfélög geta eigendur ákveðið sjálfir í félagssamningi hvort félagið sé sjálfstæður skattaðili eða ekki og gildir sú heimild um öll sameignarfélög. Meginreglan er sú að sameignarfélög eru ekki sjálfstæðri skattaðilar, en hins vegar ef þau æskja hins gagnstæða skal það tilkynnt sérstaklega. Nýjustu dæmin um sameignarfélög auk Mikla- garðs, sem ekki eru sjálfstæðir skattað- ilar, eru Kreditkort s.f., sem eru í eigu Útvegsbanka íslands, Verslunarbank- ans og þriðja fyrirtækis, og VÍSA - ísland, sem er í eigu 5 banka, þar af tveggja ríkisbanka". Mergur málsins Erlendur Einarsson bendirennfrem- ur á það í greininni, að enda þótt tekju- og eignarskattur yrði lagður á Holtagarða, myndu slíkir skattar ekki nema miklum fjárhæðum. Þetta stafar af tveimur ástæðum. Fyrri er sú, að slíkir skattar hvíla ekki þungt á fyrirtækjum. Samanlagð- ur t.d. er tekjuskattur félaga ekki áætlaður nema 335 millj. króna í núverandi fjárlögum eða 1.8% af heildarsköttum ríkisins: Hin ástæðan er sú, að það er stefna Holtagarða að selja ódýrt, og mun því ekki safnast mikill tekjuafgangur hjá fyrirtækinu. Annars er mergur málsins, að til Miklagarðs er stofnað samkvæmt ákvæðum laga um sameignarfélög og fylgt meginreglu þeirra laga um skatta- lega stöðu þess félagsforms. Tilraunir til að gera slíkt tortryggilegt eru byggð- ar á vanþekkingu éða misskilningi, nema hvort tveggja sé, og hljóta að dæma sig sjálfar. Skattamál fyrirtækja Andstæðingar samvinnufélaganna reyna enn að hampa því, að samvinnu- félögin njóti sérstakra fríðinda í skatta- málum. Erlendur Einarsson víkur að þessu í grein sinni og segir: „Andstæðingar samvinnuhreyfing- arinnar mikla mjög fyrir sér það hag- ræði, sem samvinufélögin hafi af þvf að mega endurgreiða félagsmönnum sínum hluta af tekjuafgangi í formi afsláttar af viðskiptum áður en tekju- skattur er á lagður. Sérstaklega blæðir þeim það í augum að samþykkja megi að leggja veittan viðskiptaafslátt til félagsmana sem séreign hvers og eins á stofnsjóðsreikninga þeirra. Nú er það svo að réttlæti næst ekki alltaf með því að láta nákvæmlega sömu reglur gilda um alla hluti án tillits til aðstæðna. Mismunandi skattaá- kvæði um hlutafélög og samvinnufélög endurspegla fyrst og fremst eðlismun á þessúm tveimur félagsformum, sem gera ókleift að beitt sé sömu skattaregl- um. f því sambandi er rétt að undir- strika að í samvinnufélögunum er ekki um neitt innborgað áhættufjármagn (hlutafé) að ræða. Af því leiðir að samvinufélögin geta ekki nýtt sér skatt- ívilnanir hlutafélaga varðandi arð og jöfnunarhlutabréf. Sama má segja um afsláttarheimildir samvinufélaganna, þær henta ekki hlutafélögunum þar sem félagsréttindi í hlutafélögum eru bundin við fjármagnið, áhættufé eig- endanna, en ekki þátttöku í starfsem- inni, þ.e. umfang viðskipta líkt og í samvinnufélögum. Þrátt fyrir þennan mismun og mismunandi skattákvæði er að sjálfsögðu sanngirnismál að þeg- ar upp er staðið greiði mismunandi félagsform sambærilega skatta. Við teljum að svo sé, enda hefur aldrei verið sýnt fram á það með rökum að samvinnufélög greiði minni skatta en hlutafélög". í þesu sambandi gera andstæðingar samvinufélaganna sér oft tíðrætt um innstæður í stofnsjóðsreikningum fé- lagsmanna og telja þau skapa sam- vinnufélögunum óeðlileg hlunnindi. Um þetta segir Erlendur Einarsson: „Samkvæmt reikningum kaupfélag- anna fyrir árið 1982 (1983 liggur ekki fyrir) námu instæðurá stofnsjóðsreikn- ingum félagsmanna um 1% af heildar- efnahag allra félaganna eða innan við 30 m. kr. Til samanburðar væri fróðlegt að vita hvað uppsafnaður frádráttarbær arður allra hlutafélaga í landinu t.d. síðustu 10 ár, og þá eftir útgáfu jöfnunarhlutbréfa og áður en tekju- skattur væri á lagður, hefði numið háum fjárhæðum. í framhaldi af því geta menn svo dundað sér við að reikna og gera samanburð á skattaí- vilnunum hlutafélaga og samvinnufé- laga“. Krítarkortin Stærstu samtök neytenda, verka- lýðshreyfingin, hafa mótmælt því hvernig krítarkortin hækka verðlagið. Sama hafa margar stórverzlanir í Reykjavík gert. Sú skuldaverzlun, sem hér er hafin fyrir frumkvæði bankanna, vekur að vonum furðu. Eins og fyrirkomulagi krítarkortanna nú er háttað, hljóta þau að leiða til hækkaðs vöruverðs. Þau leggja verulegar byrðar á verzlun- ina og hún hefur ekki önnur úrræði en að hækka vöruverðið. Þetta mun bitnar þyngst á þeim, sem staðgreiða viðskipti sín. Hér er á ferðinni gamla sagan, að skilamenn verða að borga fyrir skuldarana. Ef svo heldur áfram sem nú horfir, verða staðgreiðslumennirnir að fá sér krítarkort og hætta staðgreiðslu í verzlunum. Það er ekki hægt að sætta sig við það, að staðgreiðslan verði refsiverð. Afleiðing þess verður hins vegar sú, að verzlanir þurfa enn að hækka verðlagið. Ríkisstjórnin verður að gefa gaum að þeirri stórfelldu skuldaverzlun, sem hér er að hefjast fyrir atbeina bank- anna. Lausnin er einföld. Eigendur krítarkortanna eiga að bera kostnað- inn, sem leiðir af þessari þjónustu, en hvorki verzlanir né staðgreiðslumenn. Þórarinn Þorarinsson, ritstjóri, skrifar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.