Tíminn - 08.04.1984, Blaðsíða 16

Tíminn - 08.04.1984, Blaðsíða 16
SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 ie '■ , r FYRIR FERMINGARNAR Fjölbreytt úrval af skrifborðum fyrir unglinga og fullorðna. Sérstaklega gott verð. Einnig: Svefnbekkir, 4 gerðir. Vídeobekkir. Stereobekkir. Skrifborðsstólar. Kommóður. Bokahilluro.fi. Húsgögn og^ . , . Suðurlandsbraut 18 mnrettmgar simi se 900 Aðalskoðun bifreiða 1984 í Mýra og Borgarfjarðarsýslu fer fram við Bifreiðaeftirlitið í Borgarnesi kl. 09-12 og 13-16.30 eftirtalda daga: Þriðjudaginn 10. apríl í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Miðvikudaginn 11. apríl í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Fimmtudaginn 12. apríl i Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Föstudaginn 13. april i Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Þriðjudaginn 17. apríl í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Miðvikudaginn 18. apríl í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Þriðjudaginn 24. apríl í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Miðvikudaginn 25. apríl í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Fimmtudaginn 26. apríl í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Föstudaginn 27. apríl í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Miðvikudaginn 2. maí í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Fimmtudaginn 3. maí í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Föstudaginn 4. maí í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 Þriðjudaginn 8. maí í Borgarnesi kl. 9-12 og 13-16.30 LOGALAND 9. maí kl. 10-12 og 13-16.30 LAMBHAGI 10. maí kl. 10-12 og 13-16.30 OLIUSTOÐIN 11. maí kl. 10-12 og 13-16.30 Endurskoðun fer fram í Borgarnesi dagana 12-14. júní og í Lambhaga kl. 10-12 og Olíustöðinni kl. 13-16 þann 15. júní. Við skoðunina ber að framvísa kvittun fyrir greiddum bifreiða- gjöldum, tryggingaiðgjöldum og gildu ökuleyfi. Athugið að engin aðalskoðun fer fram á mánudögum. Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, 28. mars 1984 Itswm ■ Svifdreka-garpurinn flýgur niður yfir hið hrikalega fjallalandslag undir Elbrustindi, þar sem þrjú gil mætast. I svifdreka ofan af hæsta fjalli Evrópn Rússneski svifdrekagarpurinn Alexei Bútenko lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna ■ Hér er alltaf frost. Ef maður er lengi hreyf- ingarlaus smýgur ískaldur vindurinn jafnvel gegnum samfesting úr skinnum.Nú þarf að velja rétta augnablikið fyrir flugtakið. Kannski verður það eft- ir sekúndu... Augunum er skotrað yfir umhverfið, hratt eins og þegar maður dregur andann í síðasta sinn fyrir flugtak. Héðan að sjá er heimurinn óvenju- legur. Engin lykt, enginhljóð. Aðeins tveir litir: blár himinn og hvítur snjór, tengt saman með óreglulegum saunt- sporum Kákasus-fjallgarðsins. Langt fyrir neðansést grilla í dökkan blett - það er „Príjút", fjallahótelið fræga í hlíðum Elbrus. Ekkert hótel í heimi er í meiri hæð frá sjávarmáli. Hundrað hótelgestir beina nú sjónaukum sínum upp í tvíhöfða tindinn. Þeir bíða. Stundin er komin. Vindinn hefur lægt. Það er einsog umhverfið sé horfið. Viljinn og vöðvarnir skreppa saman í einn hnút og svo flýgur hann af stað eftir ákveðinni braut, burt frá landinu. Mjúk- lcga en af afli strekkist á böndunum sem tengja hann við vængina. Það merkir að vængirnir liggja vel í mótvindinum. Þetta er áttunda flugárið hans, fjórtánda flugið yfir hliðum Elbrus. Hann svífur nteðfram snæviþöktum hlíðunum í fjögurhundruð metra hæð yfir þeim. í hvilftum fyrir neðan sjást stígar eftir fjallgönguntenn í nýfoknum snjó. Ekki komast nærri allir svona hátt upp, þótt þeir beri engan farangur. Gangan er erfið og hættuleg og tekur marga klukkutíma, súrefnisskorturinn háir mönnum. En Bútenko þurfti að bera svifdrekann upp á Elbrustind. Hann vegur 25 kílógrömm. Og hann þurfti að bíða í fimm sólarhringa eftir að veður gæfi til flugs. Veðrið var umhleyp- ingasamt. Næturnar voru stjörnubjartar og Alexéi lagði af stað fyrir dögun ásamt fjallgöngumönnunum, yfirgaf hlýtt hó- telið og hélt út í kuldann og fjallaþögn- ina. En þegar allir erfiðleikar virtust að baki og hann var kominn á staðinn þar sem hann hafði komið svifdrekanum fyrir í skjóli strax fyrsta daginn, komst hann að raun um að það var lífshættulegt að fljúga. Ýmist geisaði hvassviðri eða ský huldu hlíðarnar- lenti maður í slíku skýi mundi enginn finna mann eftir það. ■ Alexei Bútenko. Hann lagði því af stað niður hlíðina aftur með hópnum. Drakk ógrynni af tei með fjallgöngumönnunum á hótel „Prijút" til að fagna sigri þeirrayfir Elbrus-tindi. En þennan dag hafði hann heppnina með sér. Mælitækin sem fest eru við drekann sýna að hraðinn er 50 km á klukkustund - lóðrétt niður er hann 7 metrar á sekúndu. Það er einsog það á að vera. Þarna er jökulröndin. Uppúr grjót- ruðningnum standa staurar sem halda uppi stólalyftum sem fara niður hlíðina. Farþegar lyftunnar hjálpa honum eftir megni með glaðlegum köllum og hrópum. Ekki veitir honum af stuðningi, því nú er alvarlegt augnablik framundan. Nú flýgur hann yfir Hringsjá, sent er áfangastaður á leiðinni. Þar er hættu- svæði. Þar koma saman þrjú gil, einsog þrjú blástursrör. Og þar eru engir pallar til að nauðlenda á ef þess gerðist þörf. Aðeins hvassar klettabrúnir og stórgrýtt urð. Frá Hringsjá er honum beinlínis blásið yfir í Azau-gilið. Þar er loftstraumurinn jafnari og hægari. í staðinn fyrir snjó og ís og nakta kletta háfjallanna koma nú grænar sléttar hlíðar. Kátur lækur skoppar niður hlíðina, runnar vaxa á bökkum hans. Alexei svífur í hægum sveigum frá einni hlíð til annarrar, nýtur lífsins og stefnir að lendingarstaðnum. sem er mjór en annars ágætur pallur nálægt ferðamannahótelinu „Azau". Rétt þar hjá er bílastæði þar sem hann geymir Lada-bílinn sinn með rúmgóðu farang- ursrými á þakinu - fyrir svifdrekann. Fólk kemur hlaupandi að pallinum. Alexei kemur auga á vini sína úr svif- drekaklúbbnum. Þeir eru enn ekki nægi- lega reyndir til að fljúga ofan af Elbrus, og verða að láta sér nægja enn um stund að svífa af Tsjeget-tindi, sem er næstum helmingi lægri. Þangað má komast svo til alla leið með stólalyftu. Lyftunum var komið þar upp fyrir skíðafólk. Á veturna er mannþröng hér í hlíðunum. En á sumri er þetta kjörinn staður fyrir svif- drekaflug. í landinu eru nú hundruð svifdrekaklúbba, þúsundir svifdreka. Hratt svífur hann niður að steyptum pallinum síðustu metrana. Hann ýtir frá sér stönginni og það er einsog svifdrek- inn skjóti upp kryppu þegar hann dregur úr hraðanum. Fætur hans lenda harka- lega á jörðinni. Það er ekki auðvelt að standa af sér höggið, en það gerir fyrsta flokks svifdrekaflugmaður. Endir. Flugið af Elbrus tók 37 mínút- ur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.