Tíminn - 08.04.1984, Blaðsíða 19

Tíminn - 08.04.1984, Blaðsíða 19
SUNNUDAGUR 8. APRIL 1984 STEFAN BRIEM 19 VINNSLA ..06 TOLVU- KYNNI IÐUNN " md é* ák* "^a Mas* SSrk % Gagnvinnsla og tölvukynni Komin cr úl hjá bókaforlaginu löunni bókin Gagnavinnsla og tölvukynni fræöslurit um tölvur og notkun þeirra, einkum ætluð þeim sem eru að hefja nám í framhaldsskóla og miðuð við að gagnast nemendum á ólíkum brautum. Eftir því sem notkun tölva á æ fleiri sviðum þjóðlífsins eykst vex þörfin á því að menn þekki nokkuð til þessa öfluga tækis. Þess vegna eru kynni af tölvum og gagnavinnslu með þeim orðin sjálfsagður námsþáttur í almenna skólakerfinu og er bókin samin með það í huga. í formála segir m.a.: „Efni bókarinnar er valið til að kynna lesendum hvers konar tæki tölva er, til að gera þeim grein fyrir getu hennar og takmörkum, til að koma þeim af stað við að hagnýta sér tölvu og ennfremur til að efla hæfni þeirra til að lifa og starfa í tölvuvæddu samfélagi." ( bókinni er ágrip af sögu tölvunnar og forsögu og skrá með fjölda orða, sem snerta viðfangsefnið, á íslensku, ensku og esper- antó. Höfundur bókarinnar er Stefán Briem, kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð, og er hér um fyrstu útgáfu að ræða í litlu upplagi til kynningar en von er á breyttri og endurskoðaðri útgáfu fljótlega. Gagnavinnsla og tölvukynni er 116 bls. Stensill offsetfjölritaði. U 1 1963 ua.Ana. S&' %il Tímarit Verkfræðingafélags íslands, 4. tbl. 68. árg., 1984, er komið út. Par eru birt erindi, sem flutt voru á ráðstefnu VFÍ í apríl á síðasta ári eftir Edgar Guðmundsson, um dæmi um þróun og sölu hugmyndar, Baldur Líndal um sjóefna- vinnsiu - feril frá hugmynd til framleiðslu, Valdimar K. Jónsson um mannaflaþörf í tæknisamfélagi, Þorvarð Jónsson um kennslu og þróun í fjarskiptafræðum og Ágúst Val- fells um verkfræði og menningu. Þá er greint frá inntöku nýrra félaga í VFÍ og Valgeirs Björnssonar fyrrverandi hafnarstjóra minst. Verktækni, fréttkþlað Verkfræðinga- félags íslands og Tæknifræðingafélags íslands, marshefti 1984, er komið út. Þar er sagt frá íslensku hugviti í hönnun ftskvinnslu- tækja, innmötunarvél fyrir vinnslulínur í fiskvinnslustöðvum, sem Vélsmiðja Sigurðar H. Þórðarsonar hefur um skeið framleitt og selt. Rætt er við Þorkel Jónsson, deildar- stjóra rafmagnsdeildar Tækniskóla fslands. Orðabelgur orðanefndar byggingarverk- fræðinga er á sínum stað. Þá er greint frá námskeiðum, sem verkfræðingum og tækni-- fræðingum standa til boða á næstunni. ANNAÐ ÚTBOÐ RÍKISVÍXLA 1 Ríkissjóður íslands hefur ákveðið að bjóða út ríkisvíxla, í samræmi við heimildarákvæði fjár- laga 1984 og meö hliðsjón afákvæðum laga nr. 79/1983. Öllum er heimilt að bjóða í víxlana. I í boði verða víxlar að nafnvirði samtals ■ ■ 30.000.000 kr. með útgáfudegi 13. apríl 1984 og gjalddaga 13. júlí 1984. I Hver víxill verður 50.000 kr. að nafnvirði og I ■ verður innleystur í Seðlabanka íslands á gjald- daga. Gera skal bindandi tilboð í heilt margfeldi af 10 '■ víxlum (þ.e. nafnverð 500.000 kr.). Heildartil- boðsverð þeirra skal tilgreint í heilum hundruð- um króna. Allir tilboðsgjafar skulu láta fylgja hverju tilboði sínu gjaldkeratékka, þ.e. tékki sem gefinn er út af innlánsstofnun, sem tilboðstrygg- ingu. Tékkinn skal vera að fjárhæð 10.000 kr. og stílaður á Seðlabanka íslands v/ríkisvíxlaút- boðs. Gangi tilboðsgjafi frá tilboði sínu, sbr. þó 7. lið, glatar hann fjárhæðinni, ella gengur hún upp í ríkisvíxlaviðskipti viðkomandi aðila eða verður endursend sé tilboði hafnað af ríkissjóði. Tilboð, sem ekki fylgir greind innborgun, skal meta ógilt. Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru: Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir, lífeyris- sjóðir, sem viðurkenndir eru af fjármálaráðu- neytinu, og tryggingafélög, sem viðurkennd eru af Tryggingaeftirliti ríkisins. 1 Tilboð má senda á sérstökum eyðublöðum sem • ■ fást í Seðlabanka. Tilboðin ásamt tilboðstrygg- ingu, ef um hana er að ræða, berist lánadeild Seðlabankans, Hafnarstræti 10, 101 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 11. apríl 1984 og séu í lokuðum ómerktum umslögum, að öðru leyti en því að þau séu sérstaklega merkt orðinu „Ríkisvíxlaútboð". 8, 9. 10. 11 Heimilt er að símsenda tilboð í telexi eða stað- festu símskeyti, og skulu þau berast fyrir sama tíma og getið er í 5. lið hér að framan. Sömu- leiðis má símsenda tilboðstryggingu, sbr. 4. lið. Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting eða afturköllun tilboðs skal hafa borist lánadeild Seðlabankansfyrir kl. 14.00 hinn 11. apríl 1984. Tilboðsgjöfum sem eiga tilboð sem tekið er, verður tilkynnt um það símleiðis fyrir kl. 16.00 hinn 12. apríl 1984. Staðfestingarbréf verða auk þess sendtil þeirra. Tilboðsgjöfum, sem eiga tilboð sem hafnað er eða eru ógild, verður ekki tilkynnt um það sér- staklega að öðru leyti en með endursendingu tilboðstryggingar í ábyrgðarpósti. Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega eins fljótt og hægt er, án vísunar til nafna til- boðsgjafa, með fréttatilkynningu til fjölmiðla. Greiðsla fyrir víxla, skv. tilboðum sem tekið verður, þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14.00 á útgáfudegi og verða víxlarnir afhentir eða póstsendir fyrir kl. 17.00 sama dag nema þess sé óskað sérstaklega að Seðlabankinn geymi víxlana. Berist greiðsla ekki á réttum tíma áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefjast tilboðs- gjafa um hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrirþann tíma sem greiðsla dregst, auk þess sem tilboðs- gjafi glatartilboðstryggingu sinni. Ríkisvíxlar þessir eru stimpilfrjálsir og án þókn- unar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu reglur og gilda hverju sinni um innstæður í bönkum og sparisjóðum. 12. Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar- stræti 10, Reykjavík. Reykjavík, 4apríl 1984 RIKISS J OÐURISLANDS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.