Tíminn - 08.04.1984, Side 22
SUNNUDAGUR 8. APRIL 1984
O «r«
22
nútíminn
hann er til í músík hlýtur hann að vera
annars staðar. Síðan er bara að finna
kraftinn og nýta. Ég er ekki að spila
tónlist tónlistarinnar vegna."
- England?
„Jú, ég er þar í skóla. Ég sit þar og
brosi framan í landslýð og hef gaman af.
Djöfuls ég. Það er það sem ég er að
finna út með Kristni gítarleikara í Iss,
eða Nitsirk eina og ég kalla hann. í þessu
verkefni er líka Bragi, bassaleikarinn
fyrrverandi í Purrknum, og það erum
fyrst og fremst við þrír. Sigtryggur
verður líklega á trommur. Nitsirk kemur
líka heim og saman ætlum við að taka
upp plötu, svona nostalgíska plötu.
Reyndar á verkefnið að heita P.P.
Djöfuls ég. Menn geta lesið það út úr
því sem þeir vilja.
Með P.P. djöfuls ég ætlum við að rífa
niður allt sem búið er að byggja upp. Við
viljum fá nýjan fíling, fá fólk til að taka
afstöðu, en ekki lenda í afstöðuleysi."
- Heldurðu að þetta takist hjá þér?
„Nei,nei. Þetta verður ekki lokaupp-
gjör.“
- Þú hlýtur að hafa fylgst vel með í
Bretlandi.
„Ég er ekki nógu ánægður með
Bretland, það fer í taugarnar á mér. Ég
hata þessa hljómsveit, The Smiths, sem
nú er sem vinsælust, þetta er með því
leiðinlegra sem ég hef heyrt og séð.
Annars var þarna mikil aðgerð, ólögleg
mótmælahöld scm hétu „Stop The City“.
The City er fjármálahverfi Lundúna, og
það var aksjón með rauðri ntálningu og
reyksprengjum. Þetta var hópur óháðs
Einar Örn í rusli, 2. hluti.
Tímamyndir Arni Sæberg.
VvVU»
i skera upp herör“
Einar Örn í viðtali við Nútímann
■ Einar Örn Benediktsson fyrrum söngvari í Purrk Pillnikk og núverandi söngvari
í Kukli er kominn til landsins. Hann kom í marslok, nánar tiltekið aðfaranótt
nmmtudagsins 29. mars. Skömmu síðar tókst að ná viðtali af honum, sem og myndurn.
Einar var fyrst spurður að því hvað
hann væri að gera hér á íslandi, en sem
kunnugt er hefur hann dvalist í Bretlandi
að undanförnu.
„Við erum að koma Kukli í gang. Nú
er komið að þessu mánaðartímabili sem
við byrjuni að vinna aftur. Við verðum
með 2-3 konserta hér, og undirbúum
síðan utanlandsferð."
- Hvað á að gerast í henni?
„Við förum og spilurn á Norðurlönd-
unum, Berlín, París, Hollandi, Ítalíu og
Bretlandi. í Bretlandi spilum við í
London með Flux Of Pink Indians.
Undirbúningurinn undir þessa hljóm-
leikaferð hófst um áramót og stendur
fram í ágúst þegar við förum."
- Erþetta til að fylgja plötunni eftir?
„Jú, ætli það ekki. Hún kemur í maí
og verður gefin út í Crass merkinu. Fólk
vcit alveg af þessu og platan ætti að
seljast eitthvað. Það hefur fullt af fólki
komið til mín þegar ég hef verið að spila
með Flux, út af þessum einu hljóm-
leikum sem Kukl spilaði í London og
sagt að þetta væri gott. Svo að ég á von
á góðum viðtökum."
- Þú hefur verið að spila með Flux Of
Pink Indians.
„Já, ég er þar fastur meðlimur, en ég
ræð hvenær ég spila, þarf ekkert að fara
á æfingar, ég spila bara á trompet með
þeim þegar ég vil. Þetta var þannig að á
nýju plötunni þeirra er trompetleikur,
og þeir ætluðu að spila efni af nýju
plötunni á hljómleikum. Ég sagði þeim
að ég gæti spilað á trompet, og síðan hef
ég spilað með þeim.
Annars er ég kominn heim til að skera
upp herör. Mér finnst fólk vera ægilega
dauft. Það segir að það sé ekkert að
gerast. Það gerist náttúrlega ekki neitt ef
enginn gerir neitt."
- Hvað á að gera?
„T.d í sambandi við Kukl, við höfum
mikla möguleika að taka rokkconseptið
og nauðga því alveg hryllilega. Við
höfum öll 3ja ára reynslu úr rokktónlist,
og nú tökum við reynsluna saman, og
það kemur út úr því frumkraftur. Við
ætlum að sameina þennan kraft saman
og hreyfa við fólki, því það er nauðsyn-
legt að gera það. Mér finnst að við
þurfum að segja stopp og ekki lengra."
- Varðandi?
„Varðandi ásigkomulag íslands. Og
hvernig framtíðin eigi að vera, hvort við
eigum að vera svefngenglar, einhverjar
leikbrúður annarra. Það er búið að sýna
sig hvort sem það er vinstri eða hægri að
það gengur ekki upp."
- Hvernig kemur músíkin inn í þetta?
„Ég nota tónlistina fyrst og fremst til
að sannfæra sjálfan mig að það sé
einhver kraftur til að breyta til, fyrst
fólks sem stóð í þessu, og CRASS voru
þar með. Flux er eiginlega eina hljóm-
sveitin sem stendur hörð á sínu með
CRASS.
Heróín er ódýrara en hass þarna úti,
og mikið af underground-folki er farið í
það, bæði í London, Glasgow og Lond-
onderry. Það er mikið um að í dökkum,
þunglyndum pörtum Englands sé fólk
lamað af heróíni. í staðinn fyrir að
kaupa sér bjór þá kaupir það sér fix. Ég
vildi ekki sjá þetta hér. Ég held að það
sé unnið markvisst að því að fá fólk á
heróín. Ég hefði aldrei trúað því að
þetta væri svona sjúkt.
Núna er það að verða mottó hjá mér
að verða eins sjúkur og veröldin sem ég
er í. Með því get ég skilið hana og barist
gegn sjúkleikanum. Það þýðir þó ekki
að ég fari að nota heróín. Frekar að ég
geri sjúka músík.
Ég er farinn að hata ýmislegt fólk, eins
og Thatcher. Það er alveg undarlegt að
þetta sé í gangi. Síðan þegar ég kem til
íslands þá sé ég miniútgáfur út um allt,
og það er.alveg jafnmikil þörf að breyta
hér. Það er alveg furðulegt að sjá
hvernig Bretland er komið í vasann á
Bandaríkjamönnum. Alveg ótrúlegt að
fylgjast með þessu Cruise-eldflauga
máli. Það er bara Bandaríkjastjórn sem
getur skotið eldflaugunum, Bretar mega
ekki snerta þær, þetta fyrrverandi stór-
veldi"
- Eitthvað að lokum?
„Þetta er ekki að lokum. þetta erbara
byrjunin. Nú fer þetta í gang."
- ÁDJ
Fréttir af hljóm-
plötunni frá SATT
■ SATT hyggur nú á hljómplötuút-
gáfu. 10. apríl er síðasti dagurinn sem
menn geta skilað upptökum fyrir plötuna
eða plöturnar, því reiknað er með að
þær verði a.m.k. tvær. Mikill áhugi
hefur verið fyrir þessari útgáfu, og nóg
er úr að velja á plöturnar, að sögn
Jóhanns G. Jóhannssonar hjá SATT.
Plöturnar munu koma út í maí. Meðal
listamanna sem verða á plötunni má
nefna Magnús Þór Sigmundsson, Egil
Ólafsson, Magnús Eiríksson, Valgeir
Guðjónsson og Sigurður Bjóla, hljóm-
sveitin Með nöktum, Centaur, DRON,
Qútsí, Qútsí, Qútsí, sem að sögn flytur
tónlist í ætt við Devo og Talking Heads.
Einnig verður Eiríkur Hauksson með
eitt lag, Jón Ragnarsson, Þórir Baldurs-
son, Bergþóra Árnadóttir, Tappi Tíkar-
rass með tvö lög, Hask og Bylur. Þrátt
fyrir fjölbreytninga er ætlunin að velja
efnið þannig að nokkur heildarsvipur
verði yfir prójektinu.
-ÁDJ.