Tíminn - 08.04.1984, Síða 23
23
■ Svart-hvítur draumur. Tímamyndir Sverrir.
Skemmtilegir tónleikar
með skemmtilegum
sveitum á Hótel Borg
■ Vonbrigði.
■ Þrjár hljómsveitir léku um síðustu
helgi á Hótel Borg. Þetta voru Lojpippus
og Spojsippus, Svart-hvítur draumur og
Vonbrigði.
Fyrst á sviðið voru Loj og Spoj, eins
og þeir eru oft kallaðir. Hljómsveitin er
skipuð tveimur skeggjuðum náungum,
þeim Tóta og Sveinbirni. Leikur Tóti á
synthesisera og síkvensera en Svein-
björn aðallega á trommur. Enginn eða
mjög takmarkaður söngur er í flutningi
hljómsveitarinnar, þetta er aðallega in-
strúmental tónlist. Það er langt frá því
að hér sé um að ræða tölvupopp. Öllu
heldur er tónlist þeirra félaga tölvuvætt
framúrstefnurokk. kröftugt og hug-
myndaríkt. Talað hefur verið um að
greina megi áhrif frá þýskum hljómsveit-
um í leik þeirra, og víst er að þeir nálgast
mjög ýmis konar iðnaðarrokk og -hljóð,
sem komið hafa frá því landi. En allt er
þetta vandað og skemmtilegt og þeim
peningum ekki illa eytt sem eytt er í að
kaupa sig inn á hljómleika með Lojpipp-
us og Spojsippus.
Þá komu Svart-hvítur draumur upp á
sviðið. Sú hljómsveit er skipuð þremur
drengjum. sem leika á trommur, gítar og
bassa, og er bassaleikarinn aðal söng-
krafturinn. Þessi hljómsveit hefur orðið
nokkuð fastmótaða stefnu í flutningi
sínum, og flytur nýbylgjurokk í ætt við
ýmsar góðar hljómsveitir, t.d. má greina
áhrif frá The Fall í sumum lögum. Langt
er þó frá að hijómsveitin geti talist með
þeim betri hér á landi, en þetta er traust
og þokkaleg hljómsveit.
Vonbrigði voru síðasta hljómsveit á
dagskrá, og fluttu sína tónlist með
venjulegum krafti og snilli. Tónlist
þeirra er að þróast yfir í að verða
nokkuð danshæf, það eru að koma
diskótaktar í sum lögin. Þeir tóku fá lög
af plötum sínum, ég man aðeins eftir
einu. Hitt var allt nýtt. Hljómsveitin er
greinilega í þróun og hefur nú staðið
mjög lengi fyrir góðum tónlistarflutn-
ingi. En uppsprettur tónlistarinnar virð-
ast vera óþrjótandi hjá þeim Vonbrigða-
mönnum.
Þegar yfir heildina er litið þá held ég
að Lojpippus og Spojsippus hafi verið
besta hljómsveitin þetta kvöld, þrátt
fyrir að Vonbrigði hafi staðið sig mjög
vel. En maður hefur heyrt í þeim betri.
ÁDJ.
Og þá er það óháði vinsældarlistinn í annað sinn. Ýmislegt
hefur gerst, Linton Kwesi heldur fyrsta sætinu, en nýja platan
með The Smiths skýst nú upp í annað sætið. Auk þeirra eru
X-mal Deutschland og Television personalities nýir á listan-
um.
1. (1) Making History ..........Linton Kwesi Johnson
2. (-) The Smiths ........................The Smiths
3. ( 2) Soul Posession..................Annie Anxiety
4. ( 6) Mi Cannaae Believe It...........Michael Smith
5. ( 4) Those Fucking Pricks Flux Of Pink Indians
6. ( 9) ln the Flat Field................... Bauhaus
7. (-) The Painted Word ...... Television Personalities
8. ( 8) War........................................U2
9. (-) Fetisch......................X-mal Deutschland
10. (10) Perverted By Languague...............The Fall
„SKRAMBI GOÐ "
og ekki dýr...
Athugið við eigum dráttarvélar
til afhendingar nú þegar.
Veltið þessu fyrir ykkur og veljið
hina vönduðu DEUTZ dráttarvél,
verðið er virkilega hagstætt.
Gerið heyvinnuvélapantanir sem fyrst.
Hafið samband við sölumenn
okkar,en athugið, nú erum við
að Borgartúni 26
Sendum ef óskað er íslenskan
upplýsingabækling og verðlista.
« H AMAR HF
'•■W véladeild
Borgartúni 26, Reykjavík. Sími 91-221 23. Pósthólf 1444.
Skoðið
TROMPIÐ
OKKAR!
DEUTZ-INTRAC
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Filmu- og plötugerð
• Prenfun
• Bókband
PRENTSMIDJAN
dddda h f.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI45000
ÁVALLT í LEIÐINNI
— opið í hádeginu — um heigar — laugardaga
kl. 9— 19 — sunnudaga kl. 10—12 og 1—19.
Útiliuiðir — Gluggar
Fullkomin samsetning
Gerum verötilboö Sendum gegn póstkröfu.
TRÉSMIÐJAN MOSFELL H.F-
HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06