Tíminn - 11.04.1984, Blaðsíða 10
itiitim
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL I9M
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 19W
íþróttir
Stefan Edberg
fékk skell!
■ Ungi sænski tennisleikarinn, Stefan
Kdberg, sein sigraði landa sinn Mats
Wilander í úrslitaleik í Grand-Prix
keppni fyrir skummu fékk hcldur betur
skcll í fyrradag í Grand-Prix keppni í
Luxemborg. Edberg tapaði 4-6 og 3-6 í
fyrstu umferð fyrir V-Þjóðverjanum
Erik Julen, og féll þar mcö úr keppninni.
Edberg er fjórfaldur heimsmeistari
unglinga, og vakti mikla athygli fyrir
skömmu á fyrsta meiri háttar fulloröins-
mótinu sem hann tók þátt í, þar sem
hann sigraði fyrst S-Afríkumanninn
Kevin Curran og síðan landa sinn Mats
Wilander í úrslitum. Viö þessa frammi-
stöðu færðist EdbergúrS3. sæti í 17. sæti
í uppröðun tennismanna yfir bcstu tcnn-
ismenn heimsins. Búist var við góðri
frammistöðu hans á þessu móti, en
raunin varð önnur, -SÖE
íslenska badmintonfólkið:
Komst ekki upp
■ Frábærri frammistöðu íslenska bad
mintonfólksins á Evrópumóti landsliða í
badminton lauk sorglega, því svo litlu
munaði að liðið ynni sér sæti í 2. dcild.
ísland tapaði fyrir Beigíu í úrslitaleik um
sigur í 3. deild, og þar með sæti í 2. deild
2-3 mjög naumiega.
Áður haföi íslenska liðið unniö Noreg,
Frakkland og Itaiiu 5-0, í sínum riðli, og
komist þannig í úrslit. Belgar komust í
úrslil, voru í riöli með Ungverjum og
Svisslendingum. íslendingar verða því
áfram í 3. deild. -SÖE
Bretar náðu Zolu
■ Bretar höfðu það af að gera Zolu
Budd, s-afrísku hlaupastúlkuna sem
hleypur berfætt og hefur slegið mörg
heimsmet að undanförnu án þess að fá
þau staöfest vcgna þjóðernis síns, aö
breskum ríkisborgara, og hafa þar með
styrkt lið sitt á Ölympíuleikunum í Los
Angeles verulega.
Eins og Tíminn skýrði frá fyrir all-
löngu, lagði Zola inn umsókn hjá breska
rikinu, um að verða breskur ríkisborg-
ari. I>að mun þö hafa verið að undirlagi
Brcta, því fleiri buöu Zolu heim, bæði
ítalir og Bandaríkjamenn. Bretar uröu
þó hlutskarpastir, og mun Zola eingöngu
hafa sótt um ríkisborgararétt þar. Málið
var því afgreitt á milli Zolu og Breta tyrir
alllöngu, en nú um helgina var það
tilkynnt, að stúlkan hefði fengið breskan
ríkisborgararétt. -SÖE
Víðavangshlaup ÍR
■ Víðavangshlaup fR 1984, fer fram á
sumardaginn fyrsta. 19. apríl. sem jafnframt
cr skírdagur. Er þetta i 69. sinn sem hlaupið
er haldið. Hlaupið hefst kl. 14.00 á vestari
bakka miðtjarnarinnar og sfðan er hlaupið
um Hljómskálagarðinn og nágrenni Háskól-
ans og eiiýaö í Tjarnargötu. Búningsaðstaða
verður á Melavellinum. Væntanlegir þáttlak-
cndur tilkynni þátttöku til þjálfara ÍR, þeirra
Hafsteins Óskarssonar og Guðmundar Þór-
arinssonar, eða í síma 10082, fyrir 15. april.
Fjölmörg verðlaun vcröa vcitt i hlaupinu.
-BL
Jabbar sló met
Chamberlains
■ Karecm Abdul Jabbar, körfutröllið
fræga. sem leikur með Los Angeles
Lakers í NBA deildinni í Bandaríkjun-
unt, náði þcini mikla áfanga um síðustu
helgi, að ná því aö hafa skorað flest stig
allra leikmanna sem leikið hafa í NBA.
Sló hann þar með met körfuboltahetj-
unnar Wilt Chamberlain, sem cr að
líkindum sá bandarískur körfuknatt-
leiksmaður sem mesta frægð hefur hlotið
í heiminum.
Chamberlain skoraði alls 31419 stig í
NBA, en nú hefur Kareent Abdul Jabbar
skorað 31420 stig. Hann skoraði 22 stig
með Los Angeles Lakers gegn Utah Jazz
á föstudag, og náði þar með metinu.
-SÖE
■ Erna Lúövíksdóttir skorar gegn Frökkum í
Laugardalshöll í fyrrakvöld. Erna átti stórleik í gær,
sem og stöllur hennar, lék stórvel í vörn og sókn
þótt hún hafí ekki skorað.
i Tímamynd Árni Sæberg
GIHUÓN VANN ÖRUGGLEGA
— í piltaflokki á
frjálsum æfingu
vann samanlagt í stúlknaflokki
unglingameistaramótinu í
m í fimleikum — Hanna Lóa
■ Um síðustu helgi fór fram í Laugar-
dalshöll, unglingameistaramót íslands í
frjálsum æfingum Ihnleika. Keppendur
voru alls 27 frá 4 félögum. Sigurvegari í
piltaflokki var Guðjón Gíslason Ár-
nranni. Hann sigraði í öllum greinunum
6 sem keppt var í. í stúlknaflokki sigraði
Dóra Óskarsdóttir í þremur greinum af
fjórum, en henni gekk illa í keppni á
tvíslá og tapaði þar af sigrinum í saman-
lagðri stigakeppni. Þaö var Hanna Lóa
Friðjónsdóttir sem þar >arð hlutskörp-
ust, þrátt fyrir að hún sigraði ekki í
neinni grein. En árangur hennar var
jafnastur.
Úrslit í einstökum greinum pilta:
Gólfæfingar:
1. Guðjón Gíslason Ármanni, 8.40.
2. Guðjón Guðmundsson Ármanni, 7.70.
3. Kristján Stefánsson Björk, 7.35.
Bogahestur
1. Guðjón Gíslason Ármanni, 6.45.
2. Jóhannes Níels Sigurðarson Árm., 5.25.
3. Guðjón Guðmundsson Ármanni, 5.00.
Hringir:
1. Guðjón Gíslason Ármanni, 7.45.
2. Guðjón Guðmundsson, Ármanni, 6.10.
3. Jóhannes Níels Sigurðarson, Árm., 5.10,
Stökk: ■
1. Guðjón Gíslason Ármanni, 8.75.
2. Guðjón Guðmundsson Ármanni, 7.65.
3. Kristján Stefánsson Björk, 7.60.
Tvíslá:
1. Guðjón Gíslason Ármanni, 6.80.
2. Guðjón Guðmundsson Ármanni, 6.20.
3. Jóhannes Níels Sigurðarson Árm., 5.35.
Svifrá:
1. Guðjón Gíslason Ármanni, 7.45.
2. Guðjón Guðmundsson Ármanni, 6.55.
Samanlagt:
1. Guðjón Gíslason Ármanni 45.30.
2. Guðjón Guðmundsson Ármanni, 39.50.
3. Jóhannes Níels Sigurðarson Árm., 30.95.
Úrslit í einsökum greinum stúlkna:
Stökk:
1. Dóra Óskarsdóttir Björk, 8.60.
2. Bryndís Ólafsdóttir Gerplu 8.50.
3. Hanna Lóa Friðjónsdóttir Gerplu, 8.30.
Tvíslá:
1. Hlín Bjarnadóttir Gerplu, 7.85.
2. Hanna Lóa Friðjónsdóttir Gerplu, 7.80.
3. Bryndís Ólafsdóttir Gerplu 7.20.
Slá:
1. Dóra Óskarsdóttir Björk, 8.65.
2. Hanna Lóa Friðjónsdóttir Gerplu 8.40.
3. Hlín Bjarnadóttir Gerplu, 8.20.
Gólfæfingar:
1. Dóra Óskarsdóttir Björk, 8.65.
2. Hanna Lóa Friðjónsdóttir Gerplu 8.55.
3. Hlín Bjarnadóttir Gerplu, 8.45.
Samanlagt:
1. Hanna Lóa Friðjónsdóttir Gerplu, 33.05.
2-3. Dóra Óskarsdóttir Björk 32.70.
Hlín Bjarnadóttir Gerplu 32.70.
íSriðjT
íleikur
i
ÍSLAND VANN AFTUR
- valkyrjurnar í landslidinu lögdu Frakka
22-18 á Akranesi
■ íslendingar unnu Frakka öðru sinni
í landsleik í handknattleik kvenna á
Akranesi í gærkvöld, 22-18. Sigur ís-
lensku stúlknanna var öruggur, þær
náðu mest 7 marka forskoti í síðari
hálfleik, en framan af var leikurinn jafn,
og staðan 11-11 í leikhléi. Var mál
manna, að íslenska liðið hefði átt stór-
leik.
Gangur leiksins var í stuttu máli sá, að
liðin byrjuðu bæði af krafti og var jafnt
á öllum tölum í fyrri hálfleik. 11-11 í
hálfleik. í síðari hálfleik léku íslensku
stúlkurnar af miklum krafti, vörnin var
sterk og Kristín Brandsdóttir frá Akra-
nesi varði eins og berserkur, enda á eigin
„fjölum“. fslensku stúlkurnar skoruðu 6
mörk gegn 1 á 16 mínútum og náðu
forskoti 17-12. Síðan komst á jafnræði,
og er 6 mínútur voru til leiksloka var
staðan 22-15 fyrir ísland. Þær frönsku
skoruðu síðan 3 síðustu mörkin, 22-18.
íslenska liðið lék jafnt og vel í
leiknum. Varnarleikurinn var sérlega
góður, og markvarslan. Kolbrún Jó-
hannsdóttir varði vel í fyrri hálfleik, og
Kristín Brandsdóttir enn betur í síðari
hálfleik. Guðríður Guðjónsdóttir, Ing-
unn Bernódusdóttir og Kristjana Ara-
dóttir léku best í sókninni, og þær Rut
Baldursdóttir og Margrét Theódórsdótt-
ir sem komu inn í vörnina fyrir Guðríði
og Ingunni við hver skipti, áttu ásamt
Erlu Rafnsdóttur og Ernu Lúðvíksdótt-
ur frábæran leik í vörninni. Þá lék Sigrún
Blomsterberg vel á línunni.
Mörkin:Ingunn 6, Kristjana 6/1, Guð-
ríður 5/2, Sigrún Blomsterberg4 og Erla
Rafnsdóttir 3. Leikinn dæmdu Árni
Sverrisson og Hákon Sigurjónsson og
fórst þeim það vel úr hendi. Áhorfendur
á Akranesi voru á þriðja hundrað og
skemmtu sér vel. Bæjarstjóri Akraness,
Ingimundur Sigurpálsson var heiðurs-
gestur, og bauð bærinn liðunum og
aðstandendum þeirra til myndarlegrar
kaffidrykkju eftir leikinn.
-SÖE
■ íslands- og bikarmeistarar Völsungs í blaki kvenna. Á myndinni eru, efri röð frá
vinstrí: Hannes Karlsson þjálfari, Hermína Gunnarsdóttir, Ásdís Jónsdóttir, Jóhanna
Sigurbjörnsdóttir, Laufey Skúladóttir. Neðri röð frá vinstrí: Jóhanna Guðjónsdóttir,
Kristjana Skúladóttir, Ásta Bima Gunnarsdóttir. Sigurhanna Sigfúsdóttir, Stefanía
Guðlaugsdóttir.
Mynd Tumi.
EVRÓPULiBÉÍKKRÁ
hriAð af mqdsuim
Liverpool eitt án meidsla f EM f kvöld
VOLSUNGSSHIIXUR
BIKARMEISTARAR
■ í kvöld þegar keppt verður í
undanúrslitum Evrópukeppnanna
þríggja í knattspyrnu, eru 6 bresk lið
í eldlínunni þar af 4 ensk. Englend-
ingar hafa þó nokkrar áhyggjur af
sinum inönnum, mciðsli hrjá öll lið
þeirra nema Englandsmeistara
Liverpool.
Holienski iandsliðsmaðurinn Arn-
old Múhren hjá Manchester United
er meiddur, og leikur ekki mcð
United gegn stjörnuliði Juventus
Tórínó í Evrópukeppni bikarhafa á
Old Trafford í kvöld. Þetta kemur
sér einstaklega illa fyrir Englending-
ana, því Ray Wilkins, enski
landsliðsmaðurinn, er í leikbanni og
leikur því ekki heldur með. Róður-
inn vcrður erfiður fyrir ensku bikar-
meistarana, að vera án tveggja iands-
liðstengiliða í leiknum. Þeir menn
sem koma til greina í þessar stöður,
eru Arthur Gralíam, scm hingað til
hefur vcrið varantaður Múhrens,
John Gidman, sem ekki hefur leikið
að ráði í aðalliði United á þcssu ári,
og Alan Davies, sem lék síðast með
í 210 mínútna bikarslag United gcgn
Brighton á Wembley í fyrra.
Heldur betur lítur út fyrir Totten-
ham í UEFA-keppninni í kvöld. þeir
fá menn inn um leið og þeir missa
menn út. Líkur eru á að bæði Steve
Archibald og Gary Mabbutt munu
byrja inná gegn Hadjuk Split Ray
Clemence markvörður, sem meiddist
á dögunum, kemur einnig inn í
hópinn, en aðcins sem varamaður.
Glenn Hoddle verður ekki með,
hann gekkst undir uppskurð í fyrra-
dag vegna meiðsla á hásin, og talið
er að það taki Hoddle 4-5 vikur að
jafna sig.
Hitt enska liðið í UEFA-keppn-
inni, Nottingham Forest. mun örugg-
lega lcika án Gary Birtles og Franz
Thijssen gegn Anderlecht í kvöld,
báðir eru meiddir í baki.
Hjá Liverpool verður einungis ein
breyting, frá síðasta Evrópuleik skipt
verður á John Wark og Craig
Johnston.
Auk lciks Manchester United og
Juventus, keppa Aberdeen og
Evrópumeistararnir frá Skotlandi, og
Portó frá Portúgal í undanúrslitum
Evrópukeppni bikarhafa.
Auk leiks Liverpool og Dynamo
Búkarest frá Rúmeníu, keppa í
undanúrslitum Evrópukeppni meist-
araliða Dundee United frá Skotlandi
og AS Roma, ítölsku meistararnir.
- SÖE.
Húsavíkurfljöðin
tvöfalt f vetur
Ri Völsungur frá Húsavík varð bikar-
meistari í blaki kvenna um síðustu helgi.
Völsungsstúlkurnar sigruðu Breiðablik í
úrslitaleik í Digrancsi í Kópavogi í
hörkuleik á laugardagskvöld, 3-2. Þar
með er Völsungur bæði íslands- og
bikarmcistari í kvennaflokki í blaki árið
1984.
Leikur liðanna var langur, og oft á
tíðum spennandi. Völsungurvann fyrstu
hrinuna 15-9, en síðan fóru í hönd tvær
unnu þvf
æsispennandi hrinur. Breiðablik jafnaði
metin með því að sigra 15-13 í annarri
hrinu, og eftir langa mæðu 18-16 í þeirri
þriðju, og var þar með komið yfir 2-1.
Eftir þetta var leikurinn Völsunga, orka
Breiðabliks virtist þrotin eftir erfiðu
hrinurnar tvær. Völsungur vann þriðju
hrinuna 15-3 og oddahrinuna 15-8. Þar
með urðu norðlensku valkyrjurnar
bikarmeistarar, og eru nýorðnar íslands-
meistarar. Glæsilegur vetur á enda hjá
liðinu. -SÖE.
Fimleikar:
UNGUNGARNIR
HL SVÍÞJÓÐAR
— og keppa þar á NM unglinga
■ Islenska unglingalandsliðið í fim-
leikum heldur á morgun til Svíþjóðar,
þar sem liöið tekur þátt í Noröurlanda-
móti unglinga. Mótið , sem haldið er í
Lugnert-Höllinni í Falun, stendur yfir
laugardag og sunnudag. Eftirtaldir ung-
lingar taka þátt í mótinu fyrir íslands
hönd:
Hanna Lóa Friðjónsdúttir Gcrplu.
Dóra Óskarsdótir Björk.
Bryndís Ólafsdóttir Gerplu.
Guðjón Gíslason Ármanni.
Guðjón Guðmundsson Ármanni.
Arnór Diego Ármanni.
Fararstjórí liösins er Lovísa Einarsdótt-
ir, en þjálfarar eru Waldmar Czizmow-
sky og Bao Naijang.
- BL.
JÓNAS JÓ OG C0.
■stúlknanna 11. DEIUNNA
!í kvöld
| ■ Kvennalandslið Island og Frakk-
Ilands i handknattleik mætast í þriðja
sinn á jafn mörgum dögum, í kvöld.
I Leikið verður í Vestmannaeyjum og
* hefst leikurinn kl. 19.30. - BLj
■ Jónas Jóhannesson, miðherjinn há-
vaxni úr Njarðvík, sem leikið hefur og
þjálfað körfuknattleik í Sandgeröi
undanfarin tvö ár, náði því takmarki um
helgina að koma sér og lærisveinum
sínum í 1. dcild í körfuknattleik. Reynir
vann bæði Snæfell frá Stykkishólmi og
Iþróttafélag Menntaskólans á Egils-
stöðum í úrslitakeppninni sem haidin
var í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi á
Egilsstöðum um síðustu helgi.
Reynir sigraði Snæfell 78-59 á laugar-
dag og ÍME 74-48 á sunnudag. IME
vann Snæfell á föstudag í hörkuleik,
76-75.
- SÖE:
Akureyrarmótið í kraftlyftingum:
KÁRI MEÐ BESTA AFREKJÐ
■ Kári Elísson vann besta afrekið á
Akureyrarmótinu í kraftlyftingum um
helgina. Það bar til tíðinda á þessu móti,
að Kári setti ekki íslandsmet eins og
hann er vanur að geraá öllum mótum
sem hann keppir á. Kári keppir í 67,5 kg
flokki, og lyfti 220 kg í hnébeygju, 150
kg í bekkpressu og 240 kg í réttstöðu-
lyftu, samanlagt 610 kg.
Annars var það einvígi þeirra Víkings
„heimskautabangsa" Traustasonar, og
Hjalta Ursúsar Árnasonar úr KR sem
vakti mesta athygli á mótinu. Þeir
kepptu í 125 kg flokki, og fór svo að
Víkingur sigraði með 802,5 kg samanlagt
á móti 772,5 kg hjá Hjalta, eða „dísel-
power" eins og lyftingamenn kalla hann.
Sigurvegarar í öðrum flokkum urðu
Heiðar Björnsson í 75 kg. flokki, lyftij
440 kg, Freyr Aðalsteinsson í 82,5 kg
flokki með 640 kg, Flosi Jónsson í 90 kg
flokki með 492,5 kg Jóhannes Hjálmars-
son í 100 kg flokk í með 620 kg og Bragi
Konráðsson í 1 lOkgflokki með475kg.
Athygli í þessu móti vakti Eiríkur S.
Eiríksson, sem er nýlega byrjaður að
æfa kraftlyftingar. Þar er mikið efni á
ferðinni, en Eiríkur lyfti 492,5 kg.
samanlegt. Hann keppir í 100 kgflokki.
- gk/Akureyri
■ íþróttafélag stúdenta varð bikarmeistari í blaki um helgina, sigraði íslandsmeistara Þróttar 3-1 í úrslitaleik. Myndin var
tekin eftir leikinn, þar sem stúdentar í kæti sinni halda á Björgúlfi Jóhannssyni þjálfara, en hann heldur á Ljómabikarnum
glæsilega. Á myndinni eru frá vinstri: Indriði Arnórsson, Kjartan Páll Einarsson, Ómar Geirsson, Haukur F. Valtýsson,
Stefán Magnússon, Friðjón Bjarnason, Þórður Svanbergsson, Friðbert Traustason, Páll Svansson og Þorvarður Sigfússon.
Tímamynd Árni Sæberg.
15
umsjón: Samúel Öm Eriingsson*
„Stuttgart
er topplið“
- segir Udo Lattek þjálfari
Bayem Miinchen
Frá Guðmundi Karlssyni, íþróttafréttamanni
Tímans í V-Þýskalandi:
■ „Hingað til hef ég alltaf sagt að það
séu engin topplið hér í V-Þýskalandi, en
þessi leikur var mcira en frábær lcikur,
og verð ég því að endurskoða afstöðu
rnína", sagði Udo Lattek, þjálfari Bay-
ern Múnchen eftir leik Bayern Múnchen
og Stuttgart uni helgina. „Stuttgart er
besta liðiö sem hingað hefur komið á
keppnistímabilinu", sagði Lattek.
„Við hefðum alveg eins getað unnið,
ég er mjög ánægður mcð mtna tnenn því
það er ekki auðvelt að sækja Bayern
Múnchen heim," sagði Helmut Bcnt-
haus þjálfari Stuttgart eftir leikinn. -
Þess má geta, að Bayern Múnchen
tapaði síðast stigi á heimavelli fyrir 7
mánuðum.
G.Ka/SÖE
Mikil spenna
á Spáni
■ Mikil spenna ríkir nú í I. deildar-
keppninni á Spáni í knattspyrnunni.
Meistararnir, Atlctico de Bilbao töpuöu
um hclgina fyrir Rcal Bctis 0-2, en á
meðan sigruðu Barcelona og Real
Madrid. Barcelona vann Real Zaragoza
1-0, og Real Madrid vann Murcia 3-2.
Atletico de Bilbao og Reul Madrid
hafa nú 43 stig, en Barcclona hcfur 42
stig. Aðcins þrjár umferðir eru nú eftir
á Spáni.
-SÖE
Porto með 8
■ Porto vánn stórsigur á Pcnefiel í
pörtugölsku I. deildinni í knattspyrnu
um helgina, 8-1. Það var handhafi guil-
skós Adidas, Portúgalinn Gontez, sem
skoraði flest mörk Porto, 4 alls. Benfica
sigraöi Boavista 1-0, og hefur því enn
tveggja stiga forskot á Portó.
-SÖE
PSV afturúr
■ PSV Eindhoven. sent hcfur hangið í
Feyenoord í holiensku fyrstu deildinni í
knattspyrnu undanfarnar vikur, dröst
aftur úr Jóhanni Cryuff og félögum uin
helgina. gerði markalaust jafntcfli við
Haarlem. Feyenoord vann á meöan
Roda JC Kerkradc 5-2 og hefur nú
tveggja stiga forskot, hefur 46 stig, PSV
Itefur 44, og Ajax hefur 43 stig. Ajax
vann um helgina Fo Ahcad Eagles 3-1.
-SÖE
Bordeux velt
af toppnum
■ Bordeaux var velt af toppi I. deildar
í Frakklandi um helgina, eftir margra
vikna setu þar. Monaco sigraði Borde-
aux 2-1, og hefur nú eins stigs forystu á
Bordeaux. Fjórar umferðir cru eftir í
Frakklandi.
LAVAL, lið Karls Þórðarsonar gerði
enn eitt markalausa jafnteflið unt helg-
ina, nú gcgn Metz. Cannes, lið Teits
Þórðarsonargcrði jafntefli viðCastellani
í annarri deildinni, 1-1. Teitur skoraði
markið með fallegum skalla.
-SÖE
Jafntefli
- hjá Everton og Arsenal
■ Einn leikur var í ensku knattspyrn-
unni í fyrrakvöld. Everton og Arsenal
skildu jöfn, hvorugt liðið skoraði mark.
Leikið var á Goodison Park.
-SÖF.