Tíminn - 15.04.1984, Blaðsíða 4

Tíminn - 15.04.1984, Blaðsíða 4
r* . V « < StjNNtiÖAGUk'lá.APK'ÍL 1984 erlend hringekja ■ Hlýlegt viðmót er einkennandi fyrir regluna en meistarinn horfir björtum augum til himins á veggmyndinni bak við stúlkurnar. Diskótek reglunnar í Beriín ber heitið „Far Out“ og þar heilsa meðlimir safnaðarins gestum með hinni fornu kveðju Indverja. Baghwan-reglan á nppleið í Evrópn ■ hað er æði margt æðið til í heiminum. Það nýjasta er eins konar regla sem byggirá kenningum Bhagwan Shree Rajncesh sem er Indverji aö ætt og uppruna. Upphaflega var mikil áhcrsla lögð á frjálst kynlíf í reglunni cn cftir að hinn hræðilegi sjúkdómur AIDS fór að grassera víða um lönd og hrjá meðlimi reglunnar voru gerðar stefnumarkandi hreytingar. í stað frjáls kynlífs áður eru meðlimirnir nú hvattir til skírlífis auk þess sem mikil áhersla er lögð á að meðlimir reglunnar temji sér jákvætt hugarfar. Brosið er cins konar vörumerki ef svo má að orði komast. Baghwan-reglan á sér marga fylgjendur í Evrópu og reyndar miklu víðar en um 350 þúsund manns munu nú tilheyra söfnuðinum. Trúarleiðtoginn sjálfur býr á geysistórum búgarði sínum í Orcgonfylki í Bandaríkjunum og eru það jafnframt höfuðstöðvar reglunnar. Hann fcrðast ekki á milli safnaðanna heldur lifir tiltölulega einangruðu lífi á búgarðinum ásamt helstu lærisveinum sínum. Það sem hinir almennu meðlimir reglunnar fá að sjá af honum eru veggmyndir í líkamsstærð sem hanga uppi á samkomustöðum trúbræðra og systra. í Berlín þar sem reglan rekur diskotck cða öllu heldur eins konar gúrutek, vinna áhangendur reglunnar fyrir mjög lág laun eða fyrir helstu nauðþurftum. Starfsmennirnir eru sagðir hlýlegir í viðmóti og brosmildir og við opnunina á hverju kvöldi heilsar allur hópurinn brosandi með hinu sígilda indverska lagi, lófa í lófa. Níu prósent af hagnaði diskóteksins renna til gúrúsins í Oregon og nú munu um 50 slíkir staðir vera komnir í gagnið víðs vegar um Evrópu. Á Norðurlöndunum hefur verið tiltölulega lítið gert af því að útbreiða boðskapinn en þó munu Danir hafa orðið fyrstir til að taka trúna og þar í landi munu áhangendur reglunnar var um 200. í undirbúningi er nú að innrétta diskótek í Kaupmannahöfn í svipuðum stíl og annars staðar í álfunni. Það hefur vakið athygli að konur hafa verið hlutverk innan reglunnar og eru þar í öllum efstu stöðum. Gúrúinn sjálfur hefur skýrt þetta út með þeim orðum að ást konunnar komi frá hjartanu en maðurinn elski aðeins á vitrænan hátt. Af þessum sökum er konan hæfari til að leiða hvort sem um er að ræða fjölskyldu, söfnuð eða samfélag. ■ Rússneski kjarnorkukafbáturinn siglir heim á leið eftir árekstur- inn illa laskaður. Litlu munaði að þarna yrði um stórslys að ræða. M. Tveir RISAR mætast í myrkri ■ Flotaæfingar eru víðar stundaðar cn á Norður- Atlantshafi. Nú nýlega fóru fram miklar heræfingar á Japanshafi og áttu þar í hlut bandaríski sjóherinn og sá suður kóreanski. Bandaríska flugmóðurskipið Kitty Hawk tók þátt í æfingunum og hafði nýlokið hlutverki sínu í þeim þegar skipið rakst á fyrirstöðu og varð áreksturinn svo harður að þetta 80 þúsund tonna skip nötraði stafnanna á milli. Hér var ekki um neinn rekadrumb að ræða. Úti í náttmyrkrinu sáu skipverjar risastóran kafbát veltast undan skipinu, Ijóslausan og greinilega illa laskaðan. Við birtingu hófu þyrlur frá skipinu leit og komu brátt að rússneskum kjarnorkukafbáti af Viktor gerð. I fylgd með honum var rússnesk freigáta og hafði uppi merki sem þýða að um björgunarleiðangur væri að ræða. Svo virðist sem þeir kafbátsmenn hafi á síðustu stundu gert tilraun til að kafa undir flugmóðurskipið til að reyna að forðast árekstur en slíkt er ekki auðvelt verk í miklum flýti þar sem risar eins og Kitty Hawk rista tugi metra. Kafbáturinn og fylgdarskip hans virtust vera á heimleið og var greinilega um miklar skemmdir á skipinu að ræða. Risaveldin hafa góðar gætur hvert á öðru á úthöfunum og þegar flotaæfingar eru annars vegar er sérstaklega reynt að fylgjast vel með því sem er að gerast. Þegar teflt er á tæpasta vað hvað slíkt eftirlit snertir, liggur oft við árekstrum og jafnvel stórslysum. Ljóst er að í þessu tilviki skall hurð nærri hælum. Reyndar hafði bandaríski flotinn haft veður af kafbáti þessum og með honum hafði verið fylgst en af einhverjum sökum hafði honum tekist að komast undan og áður en áreksturinn átti sér stað höfðu menn algjörlega misst sjónar á honum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.