Tíminn - 15.04.1984, Page 6

Tíminn - 15.04.1984, Page 6
6 SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984 erlend hringekja ITOLSK BÖRN TIL SÖLU ■ (talska lögrcglan kom nýlega upp um hóp afbrotamanna sem höfðu sérhæft sig í sölu á smábörnum. Voru börnin seld á um 250 þúsund ísl. krónur og „kaupendurnir" fólk sem ekki getur eignast börn, en ítölsku adtleiðingalögin eru mjög ströng og erfitt mun vera að ættleiða börn þar í landi þar sem slíkt tekur mikinn tíma og skriffinnskan mikil og flókin. Lögreglan hafði hendur í hári fjögurra manna úr hópnum og þar á nteðal Ijósmóður sent haft hefur milligöngu um þessi sérkennilegu viðskipti. Starfscmi þessi hófst í fátækrahverfum á Sikiley og á Suður- Ítalíu. Hér var oftast um að ræða börn sem voru óvelkomin í heiminn cf svo má að orði komast. I’cssi börn voru keypt og þeim komið fyrir hjá fólki sem vildi borga fyrir það að eignast þau. Smám saman fóreftirspurnin að aukast cftir því sem flokkurinn færði út kvíarnar og þá tók hópur þessi að borga fátækum stúlkum peninga fyrir það að verða óléttarog koma síöan afkvæmum þeirra í verð. Eftir að börnin fæddust lýstu hinir verðandi feður því yfir að þeir ættu börnin og að mæðurnar æsktu þess að láta þeim efttir börnin og aö ekki yrði látið uppi hver móðirin væri en slíkt er lcyfilegt samkvæmt ítölskum lögum. Nokkru seinna lýstu svo hinar verðandi fósturmæður því yfir að þeim væri kunnugt um það að eiginmcnn þcirra hefðu eignast börn utan hjónabands og væru þær reiðubúnar að ættleiöa þau. Til að auka framboðið á börnum til sölu hafði glæpahópurinn samvinnu við gleðikonur sem voru margar hverjar útlendingar og áttu við fjárhagscrfiðleika að stríða svo og ciginkonur fanga sem dæmdir höfðu vcrið í langa fangelsisvist svo og ungar stúlkur úr fátækrahvcrfum sem ófá eru á Ítalíu. í cinu tilvikinu var um 13 ára gamla stúlku að ræöa sem sjálf hafði verið seld sem ungabarn. Eins og áður getur var á meðal þeirra sem handtckin voru Ijósmóðir að nafni Maria Mársala frá Salarni á Skililey. Á heimili hcnnar fannst listi yfir seld börn og mun þar hafa verið getið um raunverulegar mæður barnanna svo og um fósturforeldrana, þannig að með listann í höndum reyndist löreglunni auðvcld eftirlcitin. Meðal hinna handteknu voru cinnig þrír vcrslunareigendur úr sömu borg og við yfirheyrslur kont í Ijós að 10 prósent söjuverðsins höfðu gcngið til lífmæðra barnanna cn afganginn hefði hópurinn tekið í sinn hlut. Menn óttast nú að þrátt fyrir að upp hafi komist um glæpi þessa vcrði það ekki börnunum til góðs, því aö mæðrum þeirra verður gert að taka þau að sér en margar þeirra eru alls ekki hæfar til þcss og eiga bæði í fjárhagslegum og félagslcgum vandræðum. Ekki er heldur beint bjart framundan hjá hinum athafnasömu sölumönnum því þeirra bíður allt að 15 ára fangelsi. ■ ítalska lögregian hefur komið upp um glæpahring sem hafði böm til sölu ■Svo virðist sem harka sé að færast í leikinn í kapphlaupinu um útnefningu forsetaefni-Demokrata í Bandarikjunum ef dæma má af myndinni sem tekin var af Walter Mondale á kosningafundi. Mondale tilbúinn að fara út í Hart ■ WalterMondale.einnþeirrasemnú berst fyrir því að verða valinn sem forsetaefni Demokrata í Bandaríkjunum, fyrir næstu kosningar lætur ekki deigan síga í slagnum við Garry Hart. Hinn síðarneíndi hefur til þessa ekki verið mjög þekktur en hefur þó skotið Mondale ref fyrir rass við atkvæðasmölun ísumum ríkjumogsiglir nú hraðbyr upp á stjörnuhimininn þar vestra. Mondale hefur þó síður en svo í hyggju að gefast upp og á einum kosningafundinum dró hann upp boxhanskana til að leggja áherslu á orð sín og lét þess getið að hann mundi berja á Hart ef baráttan færi í hart. Getnaðar- varnarpillur í morgunmat ■ Danski læknirinn Birgit Petersson hefur skorið upp herör gegn notkun getnaðarvarnapillunnar meðal ungra danskra stúlkna. Hún staðhæfði nýlega í grein í tímaritinu Forum for Kvindeforskning að mæður þar í landi gæfu dætrum sínum pilluna í morgunvcrð og bendir á dæmi þar sem slíkt hafi verið gert í fimm ár áður en stúlkan lagðist fyrst með karlmanni. Bæði mæður og dætur þeirra fá lækna til að skrifa upp á lyfseðla til að fá pilluna og þrátt fyrir að margir læknar hafi uppi efasemdir varðandi það að mjög ungar stúlkur noti hana láta þeir undan þrýstingnum að sögn Petersson. Hún heldur því fram að á undanförnum árum hafi orðið mikil aukning í notkun getnaðarvarnapillunnar meðal mjög ungra kvenna allt niður í 13 ára aldur. Birgit Petersson varar við þessari þróun og bendir á að alls ekki sé vitað hvaða áhrif það hafi á ungar stúlkur að nota lyf sem áhrif hafi á hormónastarfsemi ■ „í starfi mínu verð ég vör við að stúlkur allt niður í 13 ára aldur noti pilluna“, segir læknirinn Birgit Pet- þeirra löngu áður en þær eru fullvaxta. Að hennar áliti eigi konur ekki að nota slík lyffyrrenvið 18 til 19ára aldur svo fremi að þær yfir höfuð noti lyf af þessu tagi. Þess í stað mælir hún með notkun smokka eða annars þess útbúnaðar sem komi í veg fyrir þungun en hafi ekki bein áhrif á hormónastarfsemi kvenna. Carlos enn að verki ■ Nýlega létu frönsk yfirvöld frá sér fara tilkynningu um það að allt benti til þess að hinn dularfulli og eftirlýsti Carlos hefði verið höfuðið á bak við sprengjuárásir sem gerðar voru í vetur í Suður-Frakklandi. Sprengingar þesar kostuðu fintm manns lífið og þrjátíu og þrír voru illa særðir eftir árásirnar. Önnur sprengjan sprakk á brautarstöð í Marseille og hin í hraðlestinni sem gengur á ntilli Marseille og Parísar. í bréfi sem sent var Parísarlögreglunni eftir árásirnar lýsa sarntök sem kenna sig við vopnaða arabíska byltingu. sig ábyrga fyrir sprengingunum. Rithandarsérfræðingar telja sig geta fullyrt að hinn alþjóðlegi hermdarverkamaður sem gengur undir nafninu Carlos hafi skrifað bréfið og ■ Hinn margeftirlýsti Carlos, Guð- faðir borgarskæruliðanna er enn tal- inn hafa verið að verki kemur það heim og saman við aðrar upplýsingar sem lögreglunni hefur tekist að afla sér varðandi þá sem að baki verknuðunum stóðu. Carlos þessi hefur víða komið við sögu og er nú einn þeirra manna sem hvað mest hefur verið lýst eftir í sögu afbrotanna. Hann stóð á bak við mjög umtöluð mannrán í Vínarborg árið 1975 þegar nokkrum olíumálaráðherrum OPEC ríkjanna var rænt og er þar aðeins urri að ræða eitt af fjöldamörgum mannránum sem hann er talinn hafa skipulagt. Hann hefur og mjög oft verið talinn hafa skipulagt sprengingar og önnur skemmdarverk í álfunni á undanförnum árum en aldrei hefur tekist að hafa hendur í hári hans.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.