Tíminn - 07.02.1986, Blaðsíða 11
10 Tíminn
Hjúkrunarfræðingar
- Ijósmæður
Eftirtaldar stöður við heilsugæslustöðvar eru laus-
artil umsóknar nú þegar:
Keflavík, staða hjúkrunarfræðings
Seltjarnarnes, staða hjúkrunarfræðings
Selfoss, staða hjúkrunarfræðings
Dalvík, hálf staða hjúkrunarfræðings
Djúpivogur, staða hjúkrunarfræðings
Eyrarbakki, staða hjúkrunarfræðings og
Ólafsvík 75% staða Ijósmóður.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu fyrir 10. mars 1986.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
5. febrúar 1986
R
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.91-31815/686915
AKUREYRI:..96-21715/23515
BORGARNES:.........93-7618
BLÖNDUÓS:.....95-4350/4568
SAUDÁRKRÓKUR:.95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.....96-71489
HÚSAVÍK:...96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:......97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: .97-8303
interRent
fiokksstarf
ÞEGAR KOMIÐ
ER AF VEGUM
MEÐ BUNDNU
SLITLAGI . . .
V 'n« H
tekurþaðslnn
tíma að venjast | í
breyttum ff'Vi'J
, 1
//'
L ó'/i'li
■./)
aðstæðum .
FÖRUM VARLEGA!
Eyfellingar
Jón Helgason ráðherra og Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður
verða til viðtals og ræða þjóðmálin í félagsheimilinu Heimalandi þriðju-
daginn 11. febr. kl. 21.00. Allir velkomnir.
Gnúpverjar
Jón Helgason ráðherra og Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður
verða til viðtals og ræða þjóðmálin í Árnesi fimmtudaginn 15. febr. kl.
21.00.
Allir velkomnir.
Ungt fólk og borgarmálin
Opinn stjórnarfundur FUF verður haldinn þriðjudaginn 11. febrúar kl.
20.15 að Rauðarárstíg 18.
Dagskrá:
1. Stefnumál FUF í borgarstjórnarkosningum.
Allt ungt áhugafólk velkomið.
Stjórn FUF
Suðurnesjabúar
Hádegisverðarfundur laugardaginn 8. febrúar n.k. á Glóðinni kl.
12.00.
Dagskrá:
Fíkniefni og unglingarnir:
Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir flytur fyrirlestur og svarar
fyrirsþurnum. Allir velkomnir.
Björk, félag framsóknarkvenna,
Keflavík og nágrenni
ÍÞRÓTTIR 1!
II 1
Landskeppni í fimleikum:
Island-Skotland
keppa í fimmta sinn - Skotar ávallt sigrað
Á sunnudaginn verður lands-
keppni í fimleikum á milli íslendinga
og Skota. Keppnin verður í Laugar-
dalshöll og hefst kl. 15:00. Þetta er í
fjórða sinn sem þessar þjóðir leiða
saman hesta sína á fimleikadýnunum
og hafa Skotar ávallt haft yfirhönd-
ina hingað til. Bilið á milli liðanna
hefur hins vegar farið minnkandi í
hverri keppni. Alls koma hingað til
lands 17 manns frá Skotlandi en ís-
lenska liðið hefur verið valið af
Tækninefnd karla og kvenna og
skipa það eftirtalið fimleikafólk:
Stúlkur:
Dóra S. Óskarsdóttir, Gerplu
Hanna Lóa Friöjónsdóttir, Gerplu
Linda S. Pétursdóttir, Björk
Fjóla Ólafsdóttir, Ármanni
Ingibjörg Sigfúsdóttir, Ármanni
Vilborg Hjaltalín Ármanni
Til vara eru Hlín Bjarnadóttir, Gerplu og
Ester Níelsdóttir, Björk.
Piltar:
Davíð Ingason, Ármanni
Guðjón Guðmundsson, Ármanni
Guðjón Gíslason, Ármanni
Kristmundur Sigmundsson, Ármanni
Arnór Diegó Hjálmarsson, Ármanni
Jóhannes N. Sigurðsson Ármanni
Til vara eru Aðalgeir Sigurðsson, ÍBA og
Björn M. Pétursson, Ármanni.
Evrópumót í borðtennis - C-riðill:
íslendingar þriðju
Vantaði tilfinnanlega Tómas Guðjónsson
íslenska landsliðið í borðtennis
tók þátt í Evrópumóti landsliða, C-
riðli, um síðustu helgi. Keppt var á
Jersey. íslendingar höfnuðu í þriðja
sæti í keppninni en enginn vafi er á
að hagstæðari úrslit hefðu náðst ef
einn okkar allra besti borðtennis-
maður, Tómas Guðjónsson hefði
getað spilað með. Leikir íslending-
anna fóru á þann veg að Malta vann
fsland 4-3, Guernsey vann ísland 4-3
og Jersey vann ísland 6-1. íslending-
ar náðu hinsvegar sigri á Mön 4-3 og
San Marino 7-0. Stefán Konráðsson
stóð sig vel í íslenska liðinu og vann
flesta sína einliðaleiki. Þá áttu hann
og Hilmar góða leiki saman í tvíliða-
leik svo og Stefán og Sigrún Bjarna-
dóttir í tvenndarleik.
Iþróttamaður Siglufjarðar:
Baldur fyrir valinu
Frá Erni Þórarinssyni, Fljótum:
Baldur Benónýsson var kjörinn
íþróttamaður ársins 1985 á Siglufirði.
Það eru Kiwanismenn á staðnum
sem hafa staðið fyrir þessu kjöri um
árabil. Baldur, sem var fastamaður í
knattspyrnuliði KS á síðastliðnu
sumri, hafði áður verið valinn
leikmaður ársins af félögum sínum í
KS liðinu. Honum voru veittar
viðurkenningar sem þessari nafnbót
fylgir í veglegu hófi sem Kiwanis-
menn héldu fyrir stuttu.
Þá var Gústaf Björnsson fyrir
nokkru síðan ráðinn þjálfari KS í
knattspyrnu og mun hann spila með
liðinu jafnframt þjálfuninni. Gústaf
kemur til Siglufjarðar um páska og
mun verða út keppnistímabilið. Sigl-
firðingar munu skarta svo til
óbreyttu liði í 2. deildinni nema hvað
Mark Duffield ku vera á förum. Col-
in Tacker mun koma til landsins
fljótlega og verða með í sumar.
Deildarkeppni BSI
Deildarkeppni Badmintonsam-
bands íslands verður haldin á
morgun, laugardag og sunnudag.
Keppnin fer fram í Seljaskóla og í
TBR-húsinu við Gnoðarvog.
Keppnin hefst með setningu í Selja-
skóla kl. 9.30 á laugardagsmorgun.
Keppt er í tveimur deildum. í 1.
deild keppa 6 lið (TBR-A-B-C-D-E
og ÍA-A) og í 2. deild keppa 12 lið
(KR-A, Víkingur, TBR-F-G-H, ÍA-
B, UMSB-A-B, TBA, KR/TBR,
HSKogBH).
I Pólverjar spiluðu knatt-
spyrnuleik gegn argentínska
meistaraliðinu Boca Juniors í
fyrradag. Leikið var í Argentínu
og sigruðu Pólverjar 1-0. Þeir
léku án Bonieks og Zmunda en
Dziekanowski skoraði eina mark
leiksins á 77. mínútu.
| Danir eru nú á keppnisferð
um olíuríkin við Persaflóa. I
fyrradag spiluðu Danir við lið Ba-
hrain og sigruðu létt 5-1. Allan
Simonsen skoraði tvö marka
Dana en Tommy Christensen
gerði enn betur og skoraði
þrennu.
| Egyptar léku um daginn gegn
Austria Vín frá Austurríki i vin-
áttuleik. Egyptarsigruðu2-1. Al-
Khateib og Ála Maihoub skoruðu
fyrir heimaliðið en Dreits svaraði
fyrir Austurríkismennina.
■ Lappar munu að öllum líkind-
um spila sinn fyrsta knattspyrnu-
landsleik síðar á þessu ári. Lapp-
arnir munu sennilega mæta liði frá
Álandi sem liggur á milli Svíþjóð-
ar og Finnlands. Leikurinn ku
eiga að fara fram í norska bænum
Kautokeino sem liggur nyrst í
Noregi.
Ivan Lendl vann sennjlega auðveld-
asta sigur sinn á tennismóti um helg-
ina. Þá átti hann að spila við Tim
Mayotte frá Bandaríkjunum í úrslit-
um á bandaríska meistaramótinu fyrír
atvinnumenn innanhúss. Mayotte
varð að gefa leikinn vegna meiðsla.
Hann kom fram á völlinn og baðst
afsökunar á því að þurfa að gefa leik-
inn en meiðslin væru það slæm að
hann gæti ekki spilað.
Þá sigraði Chris Evert Lloyd á tenn-
ismóti í Florida hún sigraði Stefll
Graf 6-3 og 6-1 í úrslitaleik. Fyrir
þennan sigur fékk hún eina milljón
en Lendl varð nokkru ríkari fyrir
sinn sigur hann hafði um eina og
hálfa milljón uppúr engu.
Föstudagur 7. febrúar 1986
Föstudagur 7. febrúar 1986
ÍÞRÓTTIR
Henning Henningsson átti góðan leik með Haukunum í gærkvöldi. Sérlega duglegur leikmaður og skorar grimmt þegar svo
ber undir.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Tímamynd Árni Bjarna
KAUPLEIGA
Þarftu að fjárfesta á næstunni í vélum, tækjum, innréttingum,
bílum, flutningatækjum, lyfturum, dráttarvélum eða öðru slíku?
Gengur illa að fá lán í viðskipta-
bankanum til þessara fjárfestinga vegna
þess að það skerðir möguleika þína á
rekstrarlánum?
eflvíkingar saitaðir
af hressum Haukum
Getur viðskiptabankinn aðeins lánað
þér fé til skamms tíma, t.d. nokkurra
mánaða?
Getur viðskiptabankinn aðeins lánað
þér hluta af fjárfestingarupphæðinni?
- Það skildu 42 stig í lokin og var reyndar aldrei spurning um úrslit - Haukarnir
spiluðu góða vörn en Keflvíkingar voru hræðilegir
Hér var ætlunin að hæfist góð grein um spennandi og
skemmtilegan leik í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Því
miður verður að segjast eins og er að ekkert af því taginu er
hægt að rita hér. Það eina sem skrifa ætti eru úrslit leiksins:
Haukar 93, Keflavík 51.
Ökuleikni á ís
Bifreiðaíþróttaklúbbur Iðnskólans mun í
samvinnu við Bindindisfélag ökumanna standa fyr-
ir ökuleikni á ís næstkomandi sunnudag þann 9.
febrúar og hefst keppnin kl. 14:00. Keppnin fer
fram á Leirutjörn. Keppendur verða frá Iðn-
skólanum en Bindindisfélag ökumanna í samvinnu
við Iðnskólann mun sjá um undirbúning og fram-
kvæmd keppninnar.
Keppnin er fólgin í að aka eftir ákveðinni braut og
fremja allskonar þrautir á leiðinni. Aliir keppend-
ur munu aka á Mazda 323 sem Bílaborg hefur lánað
til keppninnar. Verðlaunin eru einnig gefin af Bíla-
borg og eru þau í formi dekkja.
Hér má þó ekki láta staðar numið
enda um töluvert pláss
að ræða sem fylla verður út. Til að
skrifa ei tthvað þá er hægt að segj a frá
því að Haukarnir voru góðir í gær-
kvöldi á sínum heimavelli. Þeir spil-
uðu frábæra vörn og notuðu skyndi-
upphlaup af öryggi og skynsemi eins
og toppliði ber. Keflvíkingar voru lé-
legir og eflaust er til sterkara orð en
lélegir yfir körfuknattleiksmenn sem
varla gátu gripið bolta í gær. Sem
betur fer er þetta ekki hið rétta eðli
Keflvíkinga. Þeir lentu bara í hönd-
unum á mun betra liði og áttu þar að
auki einn af sínum verri dögum.
Nú til að fara fljótt og örugglega
yfir sögu þessa leiks þá voru Hauk-
arnir með forystu allan tímann. Þeir
komust fljótlega í 21-11 og síðar í
fvrri hálfleik var staðan orðin 35-17.
Á þessum kafla í fyrri hálfleik gekk
ekkert upp hjá Suðurnesjamönnun-
um en allt hafnaði ofaní hjá Hauk-
um. Staðan í leikhléi var 41-26.
Fyrstu sex stig seinni hálfleiks
voru Hauka og eftir það var ekki snú-
ið aftur. Fljótlega var munurinn 30
stig og síðan 40. Lokatölur 93-51 eða
42 stig sem segir ansi margt þrátt fyr-
ir að Haukar hafi notað alla sína
menn.
Ólafur Rafnsson skoraði mest
Hauka eða 21 og komu mörg þeirra
úrgóðum skyndiupphlaupum. Pálm-
ar gerði 19, Henning 18 og Eyþór 15
og var grimmur í fráköstum ásamt
Kristni. Webster skoraði lítið en
blokkaði þeim mun meira. Sigurður
Ingimundarson skoraði 11 stig fyrir
ÍBK en Guðjón gerði 10.
þb
Sænska meistaramótið í skíðagöngu:
Watford lagði City
Watford lagði Manchester City í fjórðu umferð
ensku bikarkeppninnar í gær með 3 mörkum gegn
1. Watford mætir Bury í næstu umferð. Þá sigraði
West Ham Ipswich 1-0 í framlengdum leik og mæt-
ir Man. United á heimavelli ■ næstu umferð.
Einar varð níundi
Einar Ólafsson skíðagöngukappi
frá ísafirði varð í 9.sæti í 50 km göngu
á sænska meistaramótinu í gær. Ein-
ari gekk vel allan tímann og var um
tíma í 6.sæti. Hann kom í mark um
sex mínútum á eftir Mögren sem
sigraði. Alls hófu 99 keppendur
gönguna þar á meðal allir bestu
göngumenn Svía að Gunde Svan
undanskildum.
Ef svarið við þessum spurningum er já, því reynirðu þá ekki
nýja fiármögunarleið - KA UPLEIGU?
Samvinnusjóður íslands hf. er reiðubúinn að ræða við þig um
lán til slíkra fjárfestinga að fullu til nokkurra ára.
INNFLYTJENDUR OG UMBOÐSMENN! Kaupleiga er
ein algengasta aðferðin við íjármögnun véla og tækja til
nokkurra ára.
Haíðu samband við Þórð Ingva Guðmundsson, framkvæmda-
stjóra, í síma 68 68 58 og leitaðu upplýsinga.
SAMVINNUSJÓÐUR ÍSLANDS HF.
HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK SÍMI68 68 58