Tíminn - 07.02.1986, Blaðsíða 2

Tíminn - 07.02.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn Föstudagur 7. febrúar 1986 Bræðsluofn Steinullarverksmiðjunnar stilltur: Elkemverksmiðjurnar skaðabótaskyldar? Krá Krni Wtrarinssyni, Kljotum Fyrsta tilraun af þrem til að full- reyna bræðsluofn Steinullarverk- smiðjunnar á Sauðárkróki, stendur nú yfir, en ofninn hefur reynst mun orkufrekari en ráð var fyrir gert. Steinullarverksmiðjan verður nú keyrð stanslaust í 7 sólarhringa og aftur síðar í mánuöinum og reiknað er með að síðustu keyrslulotu Ijúki fyrir páska og lýkur þá ábyrgöar- keyrslu ofnsins. Mun þá koma í ljós hvort málmbræðsluofninn uppfyllir þau skilyrði sem gert var ráð fyrir í kaupsamningi eða hvort framleið- endurnir teljast skaðabótaskyldir en þetta mun vera fyrsti ofn sinnar teg- undar sem Elkemverksmiðjurnar í Noregi hafa selt. Fulltrúar Elkemverksmiöjanna eru nú á Sauðárkróki og verða þar meða á ábyrgðarkeyrslunni stendur. Þeir munu reyna að ná sem allra bestri stillingu hvað varðar orku- notkun og framleiðslu ofnsins. Ann- ar tækjabúnaður er mestmegnis frá Finnlandi og Þýskalandi og hefur reynst ágætlega. Fyrstu fimm mánuðina sem verk- smiðjan starfaði var hún aðeins í gangi frá mánudagsmorgni til fimmtudagskvölds og var þá unnið á tveim 12 tíma vöktum. Hugsanlegt er að teknar verði upp þrískiptar vaktir þegar ofninn hefur veriö stillt- ur endanlega. Starfsmenn verk- smiðjunnar eru nú 34, þar af standa 14 vaktir. Steinullin sem frantleidd er hefur líkað ágætlega og selst jafnharðan, en framleiðslan fer mest til sölu á Reykjavíkursvæðinu og annast Ríkisskip flutningana suður. Bræðsluofn Steinullarverksmiðjunnar blæs massanum, 15-1600°C heitum á safnfæribandið Tímamynd öi> Bifreiðafríðindi ráðherra: Hjálp- samur smyglari Fertug kona var tekin með 160 grömm af hassi í vösunum, þegar hún kom frá Hollandi á þriðju- dag. Efnið fannst við leit á Kefla- víkurflugvelli. Við rannsókn málsins kom í Ijós að konan var að smyglaefninu fyrirferðafélaga sinn 25 ára gamlan karlmann. Hvorugt hefur áður verið viðriðið smygl á fíkniefnum til landsins. Maðurinn hefur viðurkennt aö eiga cfnið og segist hann hafa bcðið konuna að koma því í gegn- um tollinn, scm hún og reyndi. Rannsókn málsinser lokið. - ES Tengjast launakjörum þingmanna og ráðherra segir Guörún Helgadóttir Á fundi sameinaðs Alþingis í gær fór fram fyrsta umræða um þingsá- lyktunartillögu Jóhönnu Sigurðar- döttur um bifreiðamál ríkisins. Til- laga þingmannsins felur í sér að sér- stök bifreiðafríðindi ráðherra verði afnuntin og þá jafnframt að það veröi gildandi fordæmi fyrirríkisbankana. Jóhanna Sigurðardóttir tók fyrst til máls sem flutningsmaður. Hún minnti á að Alþingi hefur áður álykt- að um umrætt málefni á þá lund að fríðindin falli niður. Vilji þingsins væri því Ijós. Sarnt sem áður hefði verið sett reglugerð þvert ofan í téð- an vilja. „Það er furðulegt að Stein- grímur Hermannsson, sem fyrir fimm árunt lýsti því yfir að það væri óeðlilegt að ráðherrar fengju bifreið- ar til einkaeignar á öðrum kjörum en aðrir í landinu, situr nú í ríkisstjórn sem er ábyrg íyrir reglugerð sem gengur gegn þessu," sagði hún. Jóhanna minnti á hvernig að þing- flokkarnir hefðu brugðist við þegar Ijóst varð að bankastjórar ríkisbank- anna áttu að fá greiddan um 450.000 króna launaauka í stað bifreiðafríð- inda. Þá hefðu t.d. stjórnarliðarsent frá sér ályktanir þar sem tiltækið var fordæmt. Nú væri málum svo komið að bankaráð Lándsbankans hefði ákveðið að grciða bankastjórum fyrningarfé af bifreiðum þeirra í samræmi við fyrrnefnda reglugerð. Hvorki hefði gengið né rekið. „Það vantar ckki að ráðamenn skori á launafólk að sýna ráðdeild og sparnað. Því er mikilvægt að þeir sýni gott fordæmi en ekki tvöfalt sið- gæði,“ sagði Jóhanna að lokum. Valdimar Indriðason tók til máls sem formaður bankaráðs Útvegs- bankans og skýrði frá því að bif- reiðamál bankastjóra hefðu aftur verið tekin fyrir hjá Útvegsbankan- um í byrjun þessa mánaðar. Það hefði verið ákvcðið að gefa banka- stjórunum kost á því hvort heldur þeir vildu nota bíl í eigu bankans eða eigin bíl samkvæmt afskriftarreglu. Þó þannig að verð bifreiðarinnar fari aldrei yfir eina milljón króna. Guðrún Helgadóttir sagði að hér væri verið að tala um mál þar sem ekki væri allt sem sýndist. Það væri vissulega rétt að engin ástæða væri til þess að ráðherrar eignuðust bíla á betri kjörum en aðrir. hins vegar væri engin ástæða til þess að störfum hlaðnir menn þyrftu að nota tíma sinn til óþarfa umstangs og lands- menn vildu 'líklega að ráðhcrrar kæmust hjá því. Guðrún tcngdi þingsályktunartil- löguna þeirri neikvæðu umræðu sem vart hefur orðið við oftar en einu sinni um kjör þingmanna og ráð- herra. Beindi hún sérstaklegaorðum sínuni til þingfréttaritara sem þætti fengur í að blása út mál á við bif- reiðafríðindin. Fréttamenn skyldu athuga að þeir hefðu líklega hærri laun en hinn almenni þingmaður og það ætti við fleiri. „Þessi þáttur skiptir engum sköp- urn í ríkisrekstrinum. Er ekki kom- inn tími til að það fari fram heiðarleg umræða um þetta mál. Hér yrði um fáránlegan sparnað að ræða,“ sagði Guðrún. Jóhanna Sigurðardóttir sté aftur í ræðustól og ítrekaði þá skoðun sína að ákjósanlegt fyrirkomulag bif- reiðamála ráðherra væri að sami hátt- ur yrði hafður á eins og með embætt- ismenn þ.e. notaðarríkisbifreiðarog gerð ítarleg grein fyrir notkuninni. Jón Baldvin Hannibalsson sagði kominn tíma til að þcssi „lítilmótlegi og hvimleiði" þáttur í þjóðlífi íslend- inga, sem bifreiðamál ráðherra væru, kæmist í varanlegt horf. Al- þingi hefði þegar orðið sér til skammar í þessu máli með því að lýsa yfir vilja sínum án þess að fram- fylgja þeirri viljayfirlýsingu frekar. „Þetta er fyrst og fremst skattamál. Hið eilífa bakdyrafúsk ráðherranna felst í því að bifreiðafríðindi koma til móts við tekjulækkun ráðherra er þeir iáta af embætti. Þá þurfa þeir að greiða skatta af mun hærri tekjum en þeir hafa og geta því gripið til þess ráðs að selja á frjálsum markaði bifreið keypta með fríðindum," sagði hann. Jón Baldvin sagði það óeðlilegt að bæta stjórnmálamönnum kjör undir borðið og hvað bankastjóra varðar þá virtist engin starfsnauðsyn benda til þess að þeir þyrftu bifreiðar meir en aðrir. Þarna væri í raun um for- réttindi að ræða og í skjóli þeirra þrifist spilling sem græfi undan eðli- legu trausti. Því væri samþykkt þingsályktunartillögunnar spurning um „prisipafstöðu". Guðrún Helgadóttir tók til máls í annað sinn og sagði að menn skyldu ekki gleyma því álagi sem fylgir þing- manns- og ráðherrastörfum sem „ei- lífur skotspónn þjóðarinnar". Hún minnti á að laun þingmanns eru nú 68,128 krónur og að sjálf hefði hún sjaldnast meir en 40.000 krónur til framfærslu, sem væri ekki nándar nærri nóg. Lausn málsins fælist því í allsherjar uppstokkun launamála þingmanna og ráðherra. - SS Aths. blm.: Vegna samanburðar Guðrúnar Helgadóttur á launakjör- um blaðamanna og þingmanna skal þess getið að byrjunarlaun blaða- manns eru nú skv. taxta BÍ kr. 16.639 og geta hæst orðið eftir 17 ára starfsaldur kr. 31.777. Mikið siglt með loðnuna Að undanförnu hafa verið færri bátar á loðnumiðunum en oft áður, og stafar það af því að margir sigla með aflann, en aðrir hafa verið í frí- um og að skipta um nætur. Þrátt fyrir þetta hefur veiðin verið ágæt hjá þeim sem eru á miðunum og í fyrra- dag t.d. höfðu 14 skip tilkynnt um 10.000 tonna afla. í eftirmiödaginn í gær hafði hins vegar lítil sem engin veiði verið. Af þeint tæpiegá milljón tonnum sem mátti veiða samkvæmt hcildar- kvótanum á þessari vertíð eru nú eft- ir um 125.000 tonn. Bátarnir sigla með aflann um allar trissur, til Skotlands. Shetlandseyja, Danmerkur, Noregs og Færeyja, auk þess sem landað er á höfnum allt austur á Seyðisfjörð og suður með til Vestmannaeyja en miðin eru nú út af Ingólfshöfða. Nóg löndunarrými er því fyrir hendi hér heima. Að sögn Andrésar Kristjánssonar hjá loðnu- nefnd er meira um siglingar nú en oft áður og taldi hann að þar skipti mestu að betra verð fengist úti auk þess sem lægra olíuverð erlendis hvetti enn frekar til siglinea. - BG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.