Tíminn - 08.02.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 08.02.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn Laugardagur 8. febrúar 1986 SPEGILL Aumingja Tootsie! „Enn þann dag í dag skil ég ckki konur, þrátt fyrir reynslu mína af Tootsie,“ segir Dustin Hoffman. „Ég skil sumt í fari þeirra, en þær eru og verða mér alltaf ráðgáta.“ t>ó er ekki hægt að segja að Dustin hafi ekki lagt sig allan fram um að setja sig í spor Toots- ie þegar hann klæddist kven- mannsgervi í samnefndri kvikmynd. Þar tókst svo vel upp að Tootsie var tekin sem fullgild- ur kvenmaður bæði af konum og körlum. En þegar Dustin fór á stúfana í gervi Tootsie og ætlaði að kanna viðbrögð ókunnugs fólks varð hann margs vísari um það sem konur ganga í gegnum. „Ég varð hvað eftir annað að bíta í það súra epli að enginn karl- maður leit á mig tvisvar. Og Jon Voight, sem ég lék á móti í Mid- night Cowboy, horfði bara hrein- lega í gegnum mig þegar ég reyndi að tala við hann. Steininn tók þó úr þegar ég var samferða Jose Ferrer í lyftu og reyndi að taka hann á löpp. Jose forðaði sér hið snarasta og spurði viðstadda hvaða „kerling" þetta væri eigin- lega!“ segir Dustin. Hann var farinn að sárvor- kenna Tootsie, en varð að viður- kenna þegar hann var búinn að virða hana fyrir sér í speglinum góða stund, að sjálfur myndi • hann ekki hafa áhuga á nánari kynnum við þessa konu. „Þegar ég gerði mér Ijóst að það væri aldrei hægt að gera hana fallega fann ég virkilega til. Það rannlíka upp fyrir mér að hún væri senni- lega of gömul til að eignast börn. Þá grét ég af meðaumkun með henni,“ segir Dustin. Hann segist samt hafa haft gott af að kynnst Tootsie og hennar vandamálum svona náið. „Ég er í eðli mínu frekur og óþolinmóð- ur, en konan mín segir að ég sé, miklu umburðarlyndari eftir að ég kynntist Tootsie. Aumingja Tootsie átti bágt en ég hafði gott af að kynnast henni,“ segir Dustin Hoffman. Mörgum leist vel á Tootsie í myndinni, en útkoman varð önn- ur þegar Dustin Hoffman fór í gervinu út á meðal fólks! „Dustin varð umburðarlyndari eftir að hann kynntist Tootsie,“ segir kona hans, Lisa. Það var mikið og vel vandað til þegar Dustin var breytt í konuna Tootsie. IIIII llllll III ÚTLÖND II 11111 Illllll 1111II1111 111 lllllll ■ 11 TRÍPÓLÍ — Muammar Gaddafi Líbýuleiötogi sagðist hafa skipað flugher sínum að fljúga í veg fyrir allar ísraelsk- ar farþegaflugvélar er hans menn rækjust á yfir Miðjarðar- hafi og snúa þeim til Líbýu. MANILA - í sjónvarpi stjórnarinnar á Filippseyjum var því haldið fram að stórsigur Ferdinands Marcosar forseta yfir andstæðingi sínum Corazon Aquino væri í uppsiglingu í forsetakosningunum sem lauk í gær. HÖFÐABORG - P.W. Botha forseti lýsti yfir afnámi hættuástands í sjö af þeim 38 héruðum sem búið hafa við þessi lög. Hann sagði í ræðu á þingi að ástand í mörgum hlutum Suður-Afríku væri nú að verða eðlilegt eftir miklar óeiröir síöustu tvö árin sem kostað hafa 1.100 manns lífið. WASHINGTON — Jean-Claude Duvalier, sjálfskipað- urforseti Haiti fyrir lífstíð, og fjölskylda hans flúðu þessa ey í karabíska hafinu í bandarískri herflugvél. í París var haft eftir talsmanni ríkisstjórnarinnar að Duvalier kæmi við í Frakklandi áður en hann færi til staðar sem enn hefur ekki fengist gefiö upp hver er. VESTUR-BERLÍN — Hinn aukni undirbúningur undir njósnaraskiptin milli Austurs og Vesturs hefur vakið upp umræður milli stjórnarerindreka og telja þeir bandarísk og sovésk stjórnvöld ætla að notfæra sér skiptin og búa til dramatískan fjölmiðlaatburð. Bandarískurembættismaður heimsótti Glienickebrúna sem verið hefur vettvangur undanfarinna njósnaraskipta. BEIRUT — Eldflauga- og skotárásir skáru á samgöngur milli svæða kristinna manna og múslima í Beirút. Á meðan bárust þær fréttir að herflokkar hefðu tekið sér stöðu á kristna svæðinu við hina svonefndu grænu línu og tekið þar við af fámennum herdeildum. MADRID — Spánski varaflotaforinginn Cristobal Colon De Carvajal - eða Kristófer Kólumbus - og bílstjóri hans voru jarðaðir í Madríd og var aðskilnaðarsinnum Baska hót- að hefndum. Þeir eru grunaðir um að hafa staðið á bak við morðin sem framkvæmd voru af byssumönnum í gær. TRICHUR, Indland — SkuggiféllásigurförJóhann- esar Páls páfa um aðalsvæði kristinna manna á Indlandi þegar hrundi og olli dauða eins áhorfanda og særði átján aðra. FRETTAYFIRUT NEWSINBRIEF TRIPOLI - Libya’s Muammar Gaddafi said today he had ordered his air force to intercept and divert to Libya and Israeli civilian airlinerfound flying across the Mediteranne- an. MANILA — Philippines government television claimed President Ferdinand Marcos appeared headed for a lands- lide win over opposition contender Corazon Aquino in yest- erday’s presidential election. CAPE TOWN — President P.W. Botha announced the lifting of a state of emergency in seven of the 38 districts aff- ected. He told parliament the situation in various parts of South Africa was, returning to normal after unrest which claimed nearly 1.100 lives in the past two years. WASHINGTON — Haitian President-for-life Jean- Claude Duvalier and his family left the rebellious Caribbean island in a U.S. air force plane, the U.S. said. In Paris, the French government said he would come to France first bef- ore leaving for another as yet undisclosed destination. WEST BERLIN — Preparationsfor a major East-West spy swap intensified in West Berlin amid diplomatic specul- ation that U.S. and Soviet authorities could turn the hand- over into a dramatic media operation. A. U.S. official visited the Glienick bridge, scene of past secret handovers. BEIRUT — Rocket and machinegun clashes cut links between Christian and moslem-held seoors of Beirut amid press reports that militiamen had replaced army units on the Christian side of the Lebanese capital’s „green line“ battlefront. MADRID — Spanish vice-admiral Christobal Colon de Carvajal in English, Christopher Coloumbus - and his dri- ver were buried here amid an outcry against their suspect- ed Basque separatist killers. Gunmen ambushed them here yesterday. TRICHUR, India - Pope John Paul’s triumphal prog- ress through the Christian heart of India was marred when a wall collapsed along the papal route, killing one person and injuring 18.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.