Tíminn - 05.03.1986, Qupperneq 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 5. mars 1986
VIDUREIGN VIÐ
VERDBÓLGUNA
Ræöa Steingríms Hermannssonar, forsætisráðherra
á Norðurlandaráðsþingi 1986
Herra forseti, góðir þingfulltrúar,
A undanförnum árum hafa
stjórnmál á íslandi einkennst af
viðureigninni við verðbólguna og
síðustu árin einnig við erlendar
skuldir þjóðarinnar.
Þegar sú ríkisstjórn sem nú situr
kom til valda í maílok 1983, Itafði
verðbólga náð 130%. Var íslensku
atvinnu- og efnahagslífi með því
stefnt í stórkostlega hættu. Gegn
þcssari miklu verðbólgu var ráðist
með hörðum, lögbundum aðgerð-
um. bannig tókst að ná verðbólgu
niður á því ári úr 130% í u.þ.b.
2()%-30%.
Eftir hógværa kjarasaminga í
febrúar 1984 fór verðbólga áfram
hægt sígandi. Hins vegar urðu
ntjög Itáar launahækkanir í lok þess
árs til þess að verðbólga jókst á ný
um áramótin 1984-85.
Þcssi ár voru jafnframt mjög erf-
ið vcgna þess, að mikill samdráttur
varð í fiskveiðum okkar. Þjóðar-
tekjurnar fcllu af þeim sökum um
u.þ.b. 8% frá 1982 til 1984.
Þótt afli og þjóðarframleiðsla
færi á ný nokkuð vaxandi á s.l. ári,
varð það þó að ýmsu leyti íslcnsku
efnahagslífi erfitt. Vegna falls
Bandaríkjadollars og hækkunar á
Evrópu-gjaldmiðlum og japönsku
yeni versnuðu viöskiptakjörin
ntjög, því að útflutningur okkar ís-
lendinga er í ríkum mæli til Banda-
ríkjanna, en innflutningur að
mestu frá Evrópuþjóðum. Við
þcssar aðstæður reyndust þcir
kjarasamningar, scm gerðir voru á
miðju ári 1985, atvinnuvegunum of
crfiðir. Gengi varð því að síga
nokkuð. Afleiðingar af þessu urðu
þær, að vcrðbólga hefur verið
u.þ.b. 30-35% árið sem leið.
I byrjun þessa árs urðu miklar
breytingar á viðskiptakjörum.
Hækkun á fiskvcrði og lækkun á ol-
íuverði hefur bætt viðskiptakjörin
um u.þ.b. 3%. Sjávarafli hefur
sömuleiðis farið vaxandi.
Ríkisstjórnin lagði því á það
áherslu við aðila vinnumarkaðar-
ins, sem staðið hafa í samningunt
um kaup og kjör, að þessi bati yrði
nýttur til þess að draga nú verulega
úr verðbólgu, um leið og kaup-
máttur almennings væri styrktur.
Eftir miklar viðræður náðist s.l.
fimmtud.ag ntjög víðtækt sam-
komulag á hinum almenna vinnu-
„Á árinu 1983 var ráð-
ist gegn verðbólgunni
með hörðum lög-
bundnum aðgerðum.
Þannig tókst að ná
verðbólgunni niður á
því ári úr 130% í u.þ.b.
20%-30%.“
markaði um kaup og kjör, og sem
lögfest var á föstudaginn var á
grundvelli víðtækra aðgerða ríkis-
stjórnarinnar til lækkunar verölags
og til að bæta rekstrargrundvöll út-
flutningsatvinnuveganna, á aðgeta
leitt til hjöðnunar verðbólgu,
þannig áð hún verði um 7-8% lægri
í lok ársins.
Þetta mikla átak er ríkissjóði
kostnaðarsamt. Vegna lækkunar
tolla og skatta, lækka tekjur ríkis-
sjóðs um u.þ.b. 5%. Það mun leiða
til þess, að ríkissjóður verður með
rekstrarhalla nú í ár, en með inn-
lendri lántöku verður greiðslu-
jöfnuði náð.
Töluverð kaupmáttaraukning al-
mennings mun jafnframt leiða til
þess, að viðskiptahalli verður enn á
viðskiptum landsins við útlönd.
Erlendar skuldir munu því heldur
aukast á árinu 1986. Þær eru, eins
„Ríkisstjórnin lagöi því
á þaö áherslu viö aðila
vinnumarkaðarins að
þessi bati yröi nýttur til
þess aö draga nú veru-
lega úr verðbólgu, um
leið og kaupmáttur al-
mennings væri
styrktur.“
og fyrr segir, eitt megin vandamál í
íslensku efnahagslífi, en tekist hef-
ur á undanförnum þremur árum að
koma í veg fyrir umtalsverða aukn-
ingu þeirra. Erlendar skuldir eru nú
um 53% af landsfrantleiðslu. Ef nú
tekst sem horfir að ráða niðurlög-
um verðbólgunnar, verða þau
verkefni mikilvægust í íslensku
efnahagslífi á næstu árum að koma
í veg fyrir nýja verðbólguskriðu Og
draga úr erlendum skuldum.
í þessu skyni leggur íslenska
ríkisstjórnin nú mikla áherslu á ný-
sköpun í atvinnulífi. Ætlunin er að
auka verulega fjölbreytni í íslensku
atvinnulífi. í þvískyni hefurauknu
fjármagní verið veitt til rannsókna
og sett á fót þróunarfélag, sem ætl-
að er að aðstoða áhættusöm cn álit-
leg ný fyrirtæki.
í þessu sambandi leggjum við
áherslu á aukið samstarf Norður-
landanna. Með samvinnu ntilli
Norðurlandanna má bæta ntark-
aðsstöðu norrænna atvinnuvega í
harðri samkeppni á alþjóðamark-
aði. Norræn samvinna þarf nú að
miða að því að skapa skilyrði íyrir
aukinn hagvöxt, en cin forsenda
hans er efling útflutnings. Með
samstarfi má ná betri stöðu á
mörkuðunum, m.a. á sviði útflutn-
—
„í byrjun þessa árs
uröu miklar breytingar á
viðskiptakjörum.
Hækkun á fiskverði og
lækkun á olíuverði hef-
ur bætt viðskiptakjörin
um u.þ.b. 3%. Sjávar-
afli hefur sömuleiöis
farið vaxandi.“
ingsverkefna, þar sem ekki síður er
flutt út hugvit og þekking en vörur.
Efling samstarfsins út á við á þó alls
ekki að verða á kostnað hins innra
samstarfs. Innri styrkur á sviði
ntenningar- og félagsmála er ein-
mitt forsenda árangurs út á við í
skiptum við aðrar þjóðir, ekki síð-
ur en öflugt atvinnulíf.
Það er ánægjulegt að verða þess
var, að áhugi atvinnulífsins á norr-
ænu samstarfi er vaxandi, bæði í
orði og verki. Starf Gyldénhamm-
er-hópsins ergott dæmi unt þennan
áhuga. Hugntyndirnar sem koma
fram í skýrslu hópsins eru athygl-
isverðar, ekki síst varðandi sam-
starf á sviði iðnaðarrannsókna og
tækniþróunar.
A þessu ári eru tíu ár liðin frá því
að Norræni fjárfestingabankinn
tók til starfa. Til hans var stofnað
að frumkvæði forsætisráöherra
Norðurlanda. Á þessum tíu árum
hefur bankinn eflst og er nú stærsta
stofnun hins opinbera norræna
samstarfs.
Hinn góði árangur Norræna
fjárfestingabankans er ekki síst að
þakka Bert Lindström, sem hefur
verið bankastjóri hans frá upphafi.
Bert Lindström mun láta af starfi
sínu hjá Norræna fjárfestingabank-
anum í vor. Ég vil nota þetta tæki-
færi til að þakka honum vel unnin
störf í þágu norrænnar samvinnu.
Nordisk handlingsplan, sem
samþykkt var á síðasta þingi
Norðurlandaráðs, er góður grund-
völlur fyrir sameiginlega stefnu-
mótun í efnahagsmálum. Nú er
nauðsynlegt að fylgja því eftir nteð
raunhæfri framkvæmd. Við íslend-
ingar minnum á tvennt í þessu
sambandi; Við leggjum áherslu á
að eiga fulla aðild að UNI-lánum
hjá Norræna fjárfestingabankan-
um, og við ítrekum enn að styrki til
atvinnuvega verður að lækka, ekki
síst á sviði iðnaðar og sjávarútvegs,
í öllum löndunum. Norðurlöndin
eiga að berjast sameiginlega fyrir
þessu máli á alþjóðavettvangi.
Ég er þeirrar skoðunar, að sam-
starf í útllutningsmálum með stofn-
un samnorræns útflutingsráðs sé at-
hyglisverð hugmynd. Einnig tel ég
mikilvægt að tryggja áhættufé til
forathugana á arðsemi útflutnings-
verkefna, með aðstoð Norræna
verkefnaútflutningssjóðsins. Þetta
er mjög mikilvægur þáttur í að auð-
velda fyrirtækjum, ekki síst hinum
smærri, að kanna ný verkefni.
Óvissa og langur undirbúningstími
dregur úr áræðni fyrirtækja í þessu
efni. jafnvel þótt horfur um arð-
semi til lengri tíma séu góðar.
Samstarf í alþjóðastofnunum,
ekki síst fjármálastofnunum, sem
Norðurlöndin eiga aðild að, er
mikilvægt. Vert er að athuga hvort
hagkvæmt er fyrir Norðurlöndin að
eiga sameiginlega aðild að slíkum
stofnunum í þeim tilvikum þar sem
engin ein þjóð hefur talið hagsmuni
sína nægilega til að réttlæta aðild á
eigin spýtur. í því efni má t.d.
nefna j^róunarbanka og þróunar-
sjóði unt heim allan.
Ég vil að lokum vekja athygli á
tillögu, sem fyrir þessu þingi liggur
um norræna rannsóknastofnun á
sviði líffræði á íslandi. ísland er að
mörgu leyti vel til slíkra rannsókna
fallið. Ég er sannfærður um, að
samstarf Norðurlandanna, eins og
lagt er til í þessari tillögu, mun
verða öllum þjóðunum til hags-
bóta.
Herra forseti.
Ég hef kosið að ræða fyrst og
fremst efnahagsmálin, enda ofar-
lega á baugi í mínu landi. Ég vil þó
að lokum leggja áherslu á mikilvægi
samstarfs á sviði menningar- og fé-
lagsmála. Auk legu landanna er
það sameiginleg arfleifð, sent tengir
okkur saman. Það ber að styrkja.
RIKHARÐUR ÞRIDJI
í ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Laugardaginn 8. mars frumsýnir
Þjóðleikhúsið leikritið um Ríkharð
þriðja, eftir William Shakespeare, í
þýðingu Helga Hálfdanarsonar, og
er það frumflutningur verksins hér á
landi og jafnframt í fyrsta skipti sem
íslenskum leikhúsgestum gefst kost-
ur á að sjá uppfærslu á einum kon-
ungaleikja meistarans frá Stratford.
Leikstjóri er John Burgess frá
breska þjóðleikhúsinu, tónlist ereft-
ir Terry Davies, leikmynd eftir Liz
da Costa, búningar eftir Hilary Bax-
ter og lýsing eftir Ben Ormerod, en
þau koma öll frá Bretlandi.
Það er Helgi Skúlason sem leikur
hið fræga titilhlutverk, hinn kaldrifj-
aða kroppinbak Ríkharð, en með
önnur stór hiutverk fara Róbert
Arnfinnsson, Rúrik Haraldsson,
Flosi Ólafsson, Margrét Guðmunds-
dóttir, Kristbjörg Kjeld. Herdís Þor-
valdsdóttir, Ragnheiður Steindórs-
dóttir, Sigurður Skúlason, Erlingur
Gíslason, Sigurður Sigurjónsson og
Jón S. Gunnarsson auk fjölda
annarra, en alls fara utn fjörutíu
leikarar með hlutverk í sýningunni.
Það er skemmtileg tilviljun að Valur
Gíslason fer með hlutverk í sýning-
unni, en hann lék sitt fyrsta hlutverk
í fyrstu Shakespeare-.uppfærslunni
hér á landi er Leikfélag Reykjavíkur
sýndi Þrettándakvöld fyrir réttum
sextíu árum.
Þetta leikrit Shakespeares byggir á
sögu Ríkharðs konungs þriðja sem
ríkti á Englandi 1483-1485. Stuttur
valdaferill hans var viðburðaríkur og
fullur af ógn og spillingu. Shakesp-
eare hagræðir söguefninu lítillega
eftir þörfunt lcikverksins, enda er
ekki nauðsynlegt að þekkja blóðug-
an feril þessa sögulega kóngs til að
njóta leiksins. Þarna er einfaldlega
sögð saga valdaráns og harðstjórnar
og því lýst hvernig Ríkharður myrðir
sér leið í hásætið og heldur völdum af
djöfullcgri flærð uns yfir lýkur. Rík-
harður leikritsins er hinn dæmigerði
einræðisherra og hægt er að líta á
hann sem hliðstæðu slíkra manna
hvar sem er og hvenær sem er.
Æfingar á Ríkharði þriðja hafa staðið yfir um nokkurt skeið. Þetta fræga
leikrit Shakespeares verður frumsýnt i Þjóðleikhúsinu þann 8. mars n.k.
Mynd-J.Ó.