Tíminn - 15.03.1986, Qupperneq 1
f V ^ ^ STOFNAÐUR1917
Itminti
RAUSTIR
MENN
SCttDIBIUBTÖBm
LAUGÁRDAGUR 15. MARS 1986 - 61. TBL. 70. ÁRG.
VERKSTJÓRNARFRÆÐSL-
AN heldur í dag, laugardag, ráöstefnu
um stöðu kvenna í stjórnunarstörfum.
Verkstjórnarfræöslan, sem heyrir undir
Iðntæknistofnun íslands hefur þessa
vikuna staöiö fyrir námskeiði í stjórnun
þar sem sérstaklega er tekið tillit til að-
stæðna kvenna m.a. var þar fjallað um
viðhorf og fordóma starfsliðs og stjórn-
endatil kvenna í stjórnunarstöðum. Það
lýsir nokkuð hlutdeild kvenna í þessum
málum að af þeim 1418 verkstjórum
sem útskrifast hafa af námskeiðum
verkstjórnarfræðslunnar eru aðeins 88
konur. Á ráðstefnunni í dag munu 6 kon-
ur úr hópi stjórnenda fjalla um ýmsar
hliðar á þessu máli, en ráðstefnan verð-
ur haldin í húsakynnum Iðntæknistofn-
unar á Keldnaholti við Vesturlandsveg.
Hún hefst kl. 13.30 og er öllu áhugafólki
opin.
STJÓRNARFRUMVARP hef
ur verið lagt fram í efri deild Alþingis um
fasteigna- og skipasölu. í frumvarpinu
er kveðið á um skilyrði þess að menn
hafi réttindi til að annast slík viðskipti.
Til þess að öðlast löggildingu sem
fasteigna- eða skipasali þarf hver mað-
ur samkvæmt frumvarpinu að hafa ís-
lenskan ríkisborgararétt, vera heimilis-
fastur hérlendis, vera fjárráða og hafa
forræði á búi sínu, hafa staðist próf
samkvæmt ákvæðum er dómsmála-
ráðuneytið setur með reglugerð oa
leggja fram trygginau. Þess má geta ao
frumvarpið gerir ráð fyrir að hæstarétt-
ar- eða héraðsdómslögmenn þurfi ekki
sérstakt leyfi til að annast kaup, sölu
eða skipti á einstökum fasteignum eða
skipum, ef það tengist lögmannstörfum
þéirra. Það þýðir jafnframt að þeir eru
undanþegnirfyrrnefndu prófi.
SJÓNVARPIÐ hefur ákveðið að
öll lögin tíu sem sýnd hafa verið í sjón-
varpinu síðustu viku, verði með í úrslita-
keppninni sem fram fer í kvöld. Efa-
semdir höfðu verið um hvort tvö af
lögunum væru gjaldgeng í keppninni,
en nú hefur sjónvarpið ákveðiö að þau
fái bæði að vera með. Sem sagt tíu lög í
kvöld, en ekki átta eins og leit út fyrir á
tímabili.
STJÓRN KAUPFÉLAGS
Svalbarðseyrar hefur óskað eftir
greiðslustöðvun nú eftir helgina. Kaup-
félagið hefur átt í miklum erfiðleikum
undanfarna mánuði.
MATTHÍAS Á. MATHIESEN
utanríkisráðherra var viðstaddur emb-
ættistöku dr. Mario Soares forseta Port-
úgals hinn 9. mars s.l. Matthías og ís-
lenskir embættismenn ræddu jafnframt
við portúgalska ráðherra um viöskipti
landanna, einkum saltfisktoll Efnahags-
bandalags Evrópu. í umræðum þessum
var lögð áhersla á að saltfisktollurinn
væri sameiginlegt vandamál beggja
ríkjanna, þar sem íslenskirtitflytjendur
sköðuðust í viðskiptum vegna hærra
verðs og portúgalskir neytendur þyrftu
að sama skapi að greiða hærra verð fyr-
ir vöruna. Portúgölsku ráðherrarnir
munu beita sér fyrir því að auka toll-
frjálsan kvóta á saltfiski á vettvangi
Efnahagsbandalagsins á næstunni.
KRUMMI
..mig minnir endi-
lega að í gamla daga
hafi þeir alltaf siglt til
Miklagarðs."
Missir Mikligarður
starfsleyfi?
- Borgarstjóri leggst gegn starfsleyfi stórmarkaðarins til frambúðar.
- Davíð er að klekkja á borgarbúum en ekki SÍS, segir Alfreð Þorsteinsson.
Núverandi borgarstjórnarmeiri-
hluti leggst gegn því að Mikligarð-
urs.f. sem rekið hefurstórmarkað í
Holtagörðum, fái starfsleyfi til
frambúðar.
Svo sem kunnugt er fékk Mikli-
garður starfsleyfi, þegar vinstri
menn stjórnuðu borginni, til fimm
ára. Við opnun hans skapaðist mik-
il samkeppni meðal stórmarkað-
anna sem kom fram í lækkuðu
vöruverði til neytenda.
Hafnarstjórn Reykjávíkur hefur
haft málið til meðferðar og skilað
áliti sínu þar sem lagst er gegn veit-
ingu starfsleyfis til frambúðar.
Kristján Benediktsson fulltrúi
Framsóknarflokksins í hafnarstjórn
mótmælti í bókun þessari ákvörð-
un hafnarstjórnar og telur að með
því sé verið að reyna að takmarka
samkeppni við aðra stórmarkaði.
Á borgarráðsfundi s.l. þriðjudag
var þetta mál til meðferðar og lagð-
ar fram umsagnir hafnarstjórnar,
umferðarnefndar og Skipulags-
nefndar Reykjavíkurborgar.
t>á lagði borgarstjóri fram tillögu
þar sem hann telur að vinstri meiri-
hlutinn hafi beitt pólitísku valdi til
að veita Miklagarði starfsleyfi í 5
ár. Síðan segir í tillögu borgar-
stjóra: „Þrátt fyrir að sá rekstrarað-
ili, sem hérá hlut að máli, gat þann-
ig alis ekki gert ráð fyrir að þessi
rekstur gæti verið til frambúðar á
hafnarsvæðinu, er lagt til að leyfið
verði framlcngt um 2 ár frá 1. janú-
ar 1987 að telja meðan fram fer
endurskipulagning á athafnarsvæð-
inu í Sundahöfn."
Málinu var síðan frestað.
Þctta er erfitt mál fyrir borgar-
stjórnarmeirihlutann þegar kosn-
ingabaráttan er að hefjast. Óráðlegt
þykir að svipta Miklagarð starfs-
leyfi nú vcgna þess hve ótvíræðu
hlutvcrki hann þjónar fyrir neyt-
endur og hætt við að kjósendur
yrðu lítt hrifnir af slíkri ákvörðun.
Ef tillaga borgarstjóra verður
samþykkt, sem búast má við, missir
Mikligarður slarfsleyfi samkvæmt
henni 1. janúar 1989. Þá verðureitt
og hálft ár til borgarstjórnarkosn-
inga og má búast við að niálið
verði þá fyrnl í augunt almennings.
S.l. laugardag fjallaði Morgun-
blaðið um þctta mál og í miðviku-
dagsblaði Morgunblaðsins er grein
eftir Alfreð Þorsteinsson fram-
bjóðanda Framsóknarflokksins í
Reykjavík og fyrrverandi borgar-
fulltrúa. Tíminn leitaði til Alfreðs
um álit hans á tillögu borgarstjóra.
„Ég tel þcssa tillögu borgarstjóra
algerlega ófullnægjandi. Það er
sýnilega stefnt að lokun Mikla-
garðs á núverandi stað eftir 2 ár.
Hér er um grófa pólitíska misbeit-
ingu valds að ræða, sérstaklega
þegar það cr haft í huga að aðal-
keppinautur Miklagarðs, sem er
Hagkaup, hefur í hálfan annan ára-
tug fengið að stunda sína verslun í
friði í iðnaðarhúsnæði en í máli
Miklagarðs er beitt þeim rökum að
verslunin verði að víkja vegna þess
að hún sé á hafnarsvæði."
t>á sagði Alfreð Þorsteinsson:
„Mikligarður hefur ekki, og mun
ekki trufla hafnarstarfsemi á næstu
árum. Það er því alger fyrirsláttur
að nauðsynlegt sé að Mikligarður
flytji starfsemi sína eftir 2 ár eins og
borgarstjóri leggur til.
Davíð Oddsson telur sig líklega
vera að ná sér niðri á SÍS með þess-
ari aðgerð sinni, en hann áttar sig
ekki á því að með þessu er hann
fyrst og fremst að klekkja á borgar-
búum almennt, sem notið hafa
góðs af lægra vöruverði í Reykja-
vík, sem Mikligarður hefur átt stór-
an þátt í að skapa.“
Borgarstjóri vitnar til álits sér-
fræðinga borgarinnar sem hafi á
sínum tíma lagst gegn því að Mikli-
garður fengi starfsleyfi á núverandi
stað. Hvað viltu segja um það?
„Þegar borgarstjóri talar um
sérfræðinga þá á hann væntanlega
við helstu embættismenn borgar-
innar sem flestir eru flokksbundir
sjálfstæðismenn. Éggefekki mikið
fýrir álit þeirra. Ég vona hins vegar
að borgarstjóri sjái að sér í þessu
máli og veiti starfsleyfi til a.m.k. 5
ára eins og Kristján Benediktsson
borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins hefur lagt tiU‘
Frð Miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins
Timamynd:Sverrir
Forsætisráöherra um stjórnarsamstarfið:
GETUR SLITNAD
HVENÆR SEM ER
Skorar á miöstjórnarmenn að undirbúa kosningar
Aðalfundur miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins hófst síðdegis í
gær. Formaður flokksins, Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra, flutti samkvæmt venju ræðu
í upphafi fundar þar sem hann fjall-
aði um ástand og horfur í þjóðmál-
um og svo innri mál Framsóknar-
flokksins.
Steingrímur gerði m.a. að um-
talsefni þær hröðu breytingar sem
eiga sér .stað um þessar mundir á
öllum sviðum íslensks þjóðlífs og
sagðist bjartsýnn á að vel menntuð
og víðsýn æska aðlagaði sig vel að
þeim. Síðan bætti hann við: „Ég
hef hins vegar áhyggjur af því, ef
Framsóknarflokkurinn í heild
bregst ekki skynsamlega við. Ég
hef þær áhyggjur ekki aðeins vegna
flokksins sjálfs, heldur einnig
vegna hins íslenska þjóðfélags, því
það er bjargföst skoðun mín, að
þjóðin þurfi ekki síður á Fram-
sóknarflokknum og stefnu hans að
halda næstu árin en undanfarna
áratugi."
Forsætisráðherra minntist stutt-
lega á stöðu stjórnarsamstarfsins
og sagði síðan í lok ræðunnar: „í
vor verða kosningar til sveitar-
stjórna og í síðasta lagi að ári kosn-
ingar til Alþingis. Þótt ég geri á
þessari stundu ráð fyrir því, að
stjórnarsamstarfið haldist út kjör-
tímabilið, vil ég engu um það spá,
við skulum ætíð gera ráð fyrir því,
að upp úr geti slitnað hvenær sern
er. Um leið og kosningar til sveitar-
stjórna eru undirbúnar, er rétt að
hafa í huga kosningarnar til Al-
þingis, og nauðsynlegt er að hefja
undirbúning strax að kosningum í
vor loknum.“
-SS