Tíminn - 15.03.1986, Blaðsíða 18

Tíminn - 15.03.1986, Blaðsíða 18
18 Tíminn Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Starfsfólk óskast til eftirtalinna starfa: Hjúkrunarfræðingar á öldrunardeildum, Seli I og B-deild, lyflækningadeild, handlækningadeild, skurðdeild og geðdeild. Einnig til afleysinga áöll- um deildum í sumar. Sjúkraiiðar frá 1. apríl n.k. og til sumarafleys- inga. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 96- 22100. Forstöðumaður á barnaheimilið Stekk, frá 1. maí n.k., einnigfóstra í fulltstarffrásamatíma. Heimilið er opið frá kl. 07.10-19.00 virka daga. Aldur barna 2-6 ár. Deildaskipting að vissu marki. Allar nánari upplýsingar gefur forstöðumaður Stekks, sími 96-22100. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eii LAUSAR STÖÐUR HiÁ 'V REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Hjúkrunarfræðinga á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á allar vaktir í sumarafleysingar við heimahjúkrun. Sjúkraliða á allar vaktir í sumarafleysingar við heimahjúkrun. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400. Deildarmeinatækni í fullt starf á rannsóknar- stofu. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsu- gæslustöðva í síma 22400. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð ásér- stökum umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16:00 mánudaginn 31. mars. ^RARIK N RAFMAGNSVEUUR RlKISINS Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa lausttil umsóknar starf tæknifulltrúa á svæðisskrifstofu Rafmagns- veitnanna á Blönduósi. Óskað er eftir rafmagns- tæknifræðingi eða manni með sambærilega menntun. Starfiðfelstm.a. í hönnun, áætlanagerð, eftirliti, uppbyggingu og rekstri rafveitukerfis. Nánari upplýsingar um starfið gefur rafveitustjóri Rafmagnsveitnanna á Blönduósi. Umsóknir er greini menntun aldur og fyrri störf sendist starfsmannadeild fyrir 10. apríl 1986. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118, 105 Reykjavík m IAUSARSTÖÐURHJÁ M REYKJAVIKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Rafmagnsiðnfræðingur óskast til eftirlitsstarfa í innlagnadeild Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Upplýsingar um starfið gefur starfsmannastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur í síma 686222. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sér- stökum umsóknareyðublöðum sem þarfástfyrir kl. 16:00 mánudaginn 31. mars. Laugardagur 15. mars 1986 SKÁK iiniiiiiiiiiiiiiii ÁsmundurÁsgeirsson skákmeistari 80 ára Ásmundur Ásgeirsson skákmeist- ari varð áttræður í gær, 14. mars. Hann er elstur þeirra sem íslands- meistaratitil hafa hlotið, en þá nafn- bót hlaut hann fjórum sinnum og hélt henni jafnvel enn lengur, því á þeim árum sem yfirburðir hans yfir aðra íslenska skákmenn voru hvað mestir voru veður oft válynd, heims- stríðið síðara vofði yfir og skall loks á. Það kom fyrir að keppni í lands- liðsflokki félli niður. Ásmundur varð auk þess Skákmeistari Reykjavíkur þrívegis og margvíslega aðra titla vann hann. Hann átti um tíma fs- landsmetið í blindskák, tefldi marg- oft fyrir íslands hönd, oftast þó á Ól- jympíumótum og var í hinni frægu |skáksveit landans sem vann Copa Argentina á Olympíumótinu þar í landi 1939. Ég var farinn að bera mikla virð- ingu fyrir Ásmundi löngu áður en ég sá manninn í fyrsta sinn og var hann fyrir áratugum síðan búinn að draga sig úr þátttöku í opinberum mótum. Skákblað Sveins Kristinssonar og Þóris Ólafssonar sem kom út á árun- um 1950—’53 kynnti manninn fyrir mér, en á þeim árum var Ásmundur farinn að draga nokkuð í land. Hann tefldi mest á millistríðsárunum þó einkum á fjórða áratugnum, þegar segja má að hann hafi ekki átt jafn- oka hér á landi og áttu íslendingarnir þó marga frambærilega skákmenn s.s. Eggert Gilfer, Baldur Möller og Jón Guðmundsson. Mér er minnis- stæð lýsing Skákritsins á þessum heiðursmanni en þeir Sveinn og Þór- ir skrifuðu gott og kjarnyrt mál eink- um þó Sveinn og er þó ekki hallað á Þóri sem sá meira um fjárhagshliðina og var yngri maður en Sveinn. Þetta er ritað í desember 1951: „Mörgum þykja skákir Ásmundar nokkuð gruggugar og erfitt að eygja hina rauðu þræði baráttunnar, a.m.k. þar til út í endatafl er komið. Eiturefnanámskeið Dagana 24. og 25. mars n.k. verður haldið nám- skeið í notkun eiturefna í landbúnaði og garðyrkju hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins á Keldna- holti. Námskeiðið er einkum ætlað þeim er vilja öðl- ast leyfisskírteini til að mega kaupa og nota efna- samsetningar í A-hættuflokki. Þátttaka tilkynnist í síma 91-10533 og 91-82230 í síðasta lagi 20. mars. Þátttökugjald kr. 2500. Eiturefnanefnd / Gpps, klaufi varstu ... en þetta gerir svo sem ekkert til Effco þurrkan gerir hluti sem þessa að smámáli Enginn sem á Effco þurrku kipp- utan. Það er alltaí öruggara að hafa ir sér upp við svona smáslys. Enda Effco þurrkuna við hendina, hvort þurrkar Effco þurrkan upp allt sem sem það er á heimilinu. i sumar- sullast og hellist niður. Með Effco bústaðnum. bátnum eða bílnum. þurrkunni er enginn vandi að halda Já. það er fátt sem reynist Effco eldhúsinu finu. sama hvað gengur þurrkunni ofraun. á. Hún gerir eldhússtörfin ánægju- legri en nokkru sinni fyrr. En hún er ekki bara til að þrífa þess háttar ósköp. Þú notar hana líka til að þrífa bilinn - jafnt að innan sem Effco-þurrkan faest á betri bensínstöðvum og verslunum. Helldaala Hðggdoyflr — EFFCO simi 73233 fieffco-Þumcan V-*. « Því verður heldur eigi neitað, að línurnar eru oft ekki sem skýrastar í skákstíl Ásmundar, og oft er erfitt að átta sig í fljótu bragði, hvað fyrir honum vakir. Af þessu leiðir hins-- vegar að því 0ftar sem maður fer yfir skákir hans, því nær kemst mað- ur því að skynja hugrenningar vík- ingsins og fær dýpri skilning á stílnum. Ásmundur kemur snemma skák-' arinnar auga á sín „strategísku" hlut- verk og vinnur síðan af allri sinni orku og hæfileikum að framkvæmd þeirra. En til þess hentar að sjálf- sögðu ekki ætíð að ganga beint fram- • an að andstæðingnum án viðeigandi forleiks. Andstæðingurinn hefur einnig sín „strategísku” áform á Umsjón: Helgi Ólafsson prjónunum, og það verður að taka fuilt tillit til þeirra. Það getur verið hentugt að hylja áform sín reykskýi flókinnar stöðu og bíða þess að hin „strategíska" snekkja andstæðings- ins taki niður á grynningum órökvís- innar. Þá er hentugur tími til að slá út í sínum eigin tromplit. Þar sem Ásmundur hefur lítið lagt upp úr að læra teóríur er skákstíll hans að mestu laus við hinn leiða „te- ’ órítíska" blæ sem er yfir stíl margra skákmeistara og er frumlegri og persónulegri en ella. í endataflinu er Ásmundur sér- staklega traustur og harðvítugur og kunnur að því að þvinga vinning út úr „dauðum jafnteflisstöðum“. Endatöflin teflir hann að jafnaði með stærðfræðilegri nákvæmni, en jafnframt af þeim þrótti og þeirri óbilgirni sem er honum svo eigin- leg.“ Höfundur tæpir síðan á þeim erf- iðleikum sem skákmeistarar landsins áttu við að stríða á þessum árum og er það fróðleg lesning. Eins og áður sagði hafði Ásmundur um þetta leyti lítið teflt nema í landsliðskeppnum og að mati höfundar afrækt þjálfun sína: „Þetta er að nokkru leyti eðlilegt. Landið er afskekkt, og er því ís- lenskum skákmeisturum óhægt um vik að fá að spreyta sig á sér sterkari mönnum, er þeir hafa náð hámarks- styrkleika á íslenskan mælikvarða, ef þeir vilja halda tryggð við fóstur- jörðina og yfirgefa ekki þetta hrjóstruga land fyrir fullt og allt.“ Á þeim tíma er Ásmundur var upp á sitt besta og tómstundir manna dreifðust á færri svið áttu fremstu skákmenn þjóðarinnar því láni að fagna að verk þeirra voru grand- skoðuð af áhugamönnum og eru enn! Ég þvældist á sínum tíma í gegnum allt Skákritið þeirra Sveins og Þóris og skákir Ásmundar voru mér sérstaklega hugstæðar, einkum þó sú sem hér fer á eftir og var tefld á Olympíumótinu annálaða, árið 1939: Hvítt: Ásmundur Ásgeirsson Svart: Julio Bolbochan. Nimzoindversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Db3 4. Dc2 er algengasti leikur hvíts en einnig er leikið 4. a3 o.fl. 4. -cS 5. dxc5 Rc6 Annar möguleiki er að leika 5. - Ra6 með hugmyndinni - Da5 og - Rxc5 6. Rf3 Re4 7. Bd2 Rxc5 Þannig lék Nimzowitsch sjálfur vörnina. Löngu seinna tefldist skák- in Barczay-Tal í Miskolc 1963 - svona: 7. - Rxd2 8. Rxd2 Bxc5 9. e3 0-0 10. Be3 b6 11. 0-0 Bb7 12. Re4 Hb8 (!) 13. Hdl f5 14. Rxc5 bxc5 15. Da3 De7 með nokkuð jöfnu tafli. 8. Dc2f5 9. a3 Bxc3 10. Bxc3 0-0 11. b4 Re4 12. Bb2d6 Annar möguleiki var 12. - b6 13. e3 Einnig kemur 13. g3 til greina. 13. -a5 14. b5 Ef 14. Db3, þá 14. - axb4 15. axb4 Hxal 16. Bxal Dbóo.s.frv. 14. - Re7 15. Bd3 Rc5 Ekki sem verst að eiga slíka holu fyr- ir riddarann. 16. Hdl Dc7 17. 0-0 e5 18. Rd2 Með þessum leik vinnur Ásmundur tvennt, hann valdar c-peðið og rýmir fyrir f-peðinu. 18. - Be6 19. f4 Hae8 20. Hf2 Leikið til þess að geta síðar leikið Bfl og síðan g3 og Bg2. Til greina kom 20. Hf3. 20. -b6 21. Be2 Rg6 22. Bf3 Gefur svörtum kost á 22. - exf4. 22. - Rd7? Hér hefst riddaraflakk svarts sem er illskiljanlegt ef tekið er tillit til þess að riddarinn stendur vel á c5 23. g3 He7 24. Bc6 Rb8 25. Bg2 Rd7 26. Bc6 Rb8 27. Bg2 Þráleikið til að vinna tíma. 27. -e4? Svartur vill ekkert jafntefli en leikur- inn er í meira lagi vafasamur því hann opnar línur fyrir biskupinn á b2 og auðveldar hvíti að hefja sóknarað-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.