Tíminn - 15.03.1986, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 15. mars 1986
Sjávarréttagerðin hf. á Akranesi
hóf formlega vinnslu í gær:
„Mikilsvert að
reyna nýjungar11
- sagöi sjávarútvegsráðherra
Sjávarréttagerðin hf. á Akra-
nesi hóf formlega vinnslu á
krabbadýrum í gær. Tilrauna-
veiðar og vinnsla hafa staðið yfir
í rúmlega ár, en formlega hóf
fyrirtækið störf í gær.
Alls eru um fimmtíu manns
sem hafa atvinnu hjá fyrirtæk-
inu, og eru þá taldir þeir sem
stunda veiðarnar.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra var meðal gesta
sem komu upp á Skaga þegar
fyrirtækið tók til starfa í gær.
Hann var spurður um þýðingu
þessa verkefnis fyrir sjávarút-
veg; íslendinga.
„Það er óskaplega erfitt að
setja til um það. Eg get nefnt
sem dæmi, að árið 1983 var farið
að stórauka úthafsrækjuveiðar.
Þá voru ekki margir sem töldu
mikla möguleika í því. Það ár
var útflutningur á rækju um 300
milljónir. Síðastliðið ár var út-
flutningur í kringum 1,8 millj-
arðar og stefnir upp á við. Þetta
var ekki gróði sem við sáum
fyrir.
Við vitum það að margarfiski-
tegundir hér við landið, krabba-
dýr og skeldýr eru ekki nýtt.
Aðalatriðið er að sinna þessum
málum og halda áfram, gefast
ekki upp. Síðan getur þetta allt í
einu komið. Það er mikilsvert að
vera sífellt að reyna eitthvað
nýtt. Ég minni á það að það er
ekki langt síðan það þótti sjálf-
sagt að henda humri í hafið. Nú
þykir hann lostæti,“ sagði
Halldór.
Kristján Einarsson fram-
kvæmdastjóri tók við heillaósk-
um frá fundargestum, og meðal
annars óskaði bæjarstjórn fyrir-
tækinu góðs gengis.
Elliheimilið við Dalbraut:
Til hvers að
auglýsa stöðuna?
Allir hjúkrunarfræðingar, sem
stunda nám við framhaldsnáms-
braut Hjúkrunarskóla íslands í
stjórnun, 30 talsins, hafa skrifað
undir athugasemd við þá ákvörð-
un félagsmálaráðs Reykjavíkur
að mæla mcð því við borgarráð að
ráða Margréti S. Einarsdóttur
sem forstöðumann elliheimilisins
við Dalbraut.
í athugasemd hjúkrunar-
fræðinganna er bent á að annar
umsækjandi um þetta starf Hrönn
Jónsdóttir hafi ein umsækjenda þá
menntun sem þarf fyrir það starl
sem auglýst er. Hrönn er að Ijúka
30 eininga stjórnunarnámi, sem
samsvarar einu námsári á há-
skólastigi. Hún hefur reynslu af fé-
lagsmálum og hefur verið formað-
ur Kennaradeildar Hjúkrunarfé-
lags íslands og sinnt ýmsum trún-
aðarstörfum innan félagsins. Hún
er hjúkrunarfræðingur, hefur lok-
ið geðhjúkrunarfræði og hefur
margra ára reynslu sem deildar-
stjóri. Hrönn hefur jafnframt
kennarapróf og hefur undanfarin
ár starfað sem deildarstjóri við
geðhjúkrun í Hjúkrunarskóla ís-
lands og séð um kennslu á því
sviði.
Þá segir í athugasemd hjúkrun-
arfræðinganna að Margrét S. Ein-
arsdóttir sé sjúkraliði og núver-
andi formaður Sjúkraliðafélags
fslands. Hún hafi um árabil starf-
að að félagsmálum og unnið
margháttuð trúnaðarstörf fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og sé vara-
maður í borgarstjórn.
Að undanskildum þeim
skamrna tíma sem hún hefur leyst
al' í starfi því sem nú er auglýst, er
þessum hópi hjúkrunarfræðinga
ekki kunnugt um stjórnunarstörf
Margrétar né heldur að hún hafi
menntun í stjórnun.
í framhaldi af þessum saman-
burði á menntun og reynslu um-
sækjenda sé Ijóst að ekki hafi ver-
ið lagt til grundvallar umsagnar
félagsmálaráðs venjulegt mat á
hæfni umsækjenda og varpa
hjúkrunarfræðingarnir fram
spurningu til hvers staðan hafi yfir
höfuð verið auglýst? Tilgangurinn
með þessari athugasemd sinni
segja hjúkrunarfræðingar í stjórn-
unarnámi vera að veita upplýsing-
ar í því skyni „að hlutlausar stað-
reyndir og málefni, stjórni gerð-
um þeirra sem ákvarðanir taka,
með hagsmuni þeirra í huga sem
málið varðar," eins og segir í
niðurlagi athugasemdarinnar.
Enn eiga borgarráð og borgar-
stjórn eftir að fjalla um umsóknir
um stöðu forstöðumanns elli-
heimilisins við Dalbraut. -BG
Steingrímur Hcrmannsson forsætisráðherra.
Tíma-mynd Sverrir
Miðstjórnarfundur
Framsóknarflokksins
Miðstjórnarfundur Framsóknar-
flokksins var settur í gær og stendur
fram á sunnudag. Á annað hundrað
manns úr öllum kjördæmum eiga
sæti í miðstjórninni.
í gær fíutti Steingrímur Her-
mannsson formaður flokksins yfir-
litsræðu. í henni ræddi hann stjórn-
málaástandið, kjarasamningana, at-
vinnumál, vaxta- og peningamál,
o.fl. Ræða Steingríms birtist í heild á
síðu 8-10 í dag.
Guðmundur Bjarnason ritari
flokksins flutti skýrslu ritara og Guð-
mundur G. Þórarinsson gjaldkeri
flokksins sína skýrslu. Þá flutti
Steingrímur Hermannsson skýrslu
um útgáfumál flokksins. Almennar
umræðurliófust kl. 18 og stóðu fram
eftir nóttu.
í dag verða nefndarstörf, en fyrir
miðstjórn liggur m.a. að fjalla um
endurskoðun laga flokksins. Þá
verða rædd útgáfurnál, sveitarstjórn-
armál, flokksmál og kosið í trúnað-
arstöður flokksins, stjórn og fram-
kvæmdastjórn.
Guðmundur G. Þórarinsson
gjaldkeri gefur ekki kost á sér til
endurkjörs, en á miðstjórnarfundi í
fyrra lýsti hann því yfir að hann
myndi aðeins gegna embættinu ' í
eitt ár til viðbótar.
í kvöld verður sameiginlegur
kvöldverður miðstjórnar og á morg-
un lýkur fundinum með kosningu
varamanna og afgreiðslu mála.
Sinfóníuhljómsveit
ísiands FMMTUDAGSTONLEIKAR
20. mars kl. 20.30
í Háskólabíói
stjórnandi: Thomas Sanderling
Einleikari: Szymon Kuran, fiöla
Beethoven: Sinfónía nr. 8 op. 93
Szymanowski: Fiðlukonsert nr. 1
Wagner: Forspil að meistarasöngvum
Miðasala í bókaverslunum Eymundssonar, Lárusar Blöndal og í ístóni