Tíminn - 15.03.1986, Page 3
Laugardagur 15. mars 1986
Tíminn 3
Þriðjungur þjóðarauðsins í einkabílum og íbúðum:
Sama verðmæti í einka-
bílum og fiskiskipunum
Fjölbreytileg
ferðakaupstefna
- á vegum Útsýnar og flugfélaganna
Á morgun sunnudag verður
haldin ferðakaupstefna í Broad-
way í Reykjavík. Hér er um að
ræða umfangsmikla kynpingarsýn-
ingu á því markverðasta sem er að
gerast í ferðamálum hérlendis og
erlendis, en að þessari kaupstefnu
standa Flugleiðir, Arnarflug og
Ferðaskrifstofan Útsýn, ásamt
ýmsum erlendum aðilum.
Ferðakaupstefnan mun verða
með svipuðu sniði og gerist á slík-
um samkomum erlendis, þar sem
ókeypis landakort og myndir frá
fjölmörgum löndum verða afhent,
vídeómyndir sýndar og sérhæft
fólk úr ferðamannaiðnaðinum veit-
ir leiðbeiningar og upplýsingar. Má
t.d. nefna að Útsýn hefur látið gera
sérstaka kynningar-vídeómynd af
þessu tilefni. Kynntir verða ferða-
möguleikar til fjölmargra landa, en
auk margháttaðs fróðleiks um lönd
og ferðir í máli og myndum verður
tískusýning, og skemmtiatriði og
kaffiveitingar verða til sölu. Allir
gestir fá happdrættismiða og er
vinningurinn sumarleyfisferð með
Útsýn, en vinningsnúmer verða
dregin strax að lokinni sýningu og
birt í blöðum næsta dag.
Kaupstefnan hefst kl. 13.30 og
stendur til 17.00.
-BG
Viðræður um
kísilmálminn
Fjórði formlegi viðræðufund-
ur samninganefndar iðnaðaráð-
herra og RTZ Metals, Ltd. um
byggingu og rekstur kísilmálm-
verksmiðju á Reyðarfirði var
haldinn í Reykjavík 10. og 11.
þ.m. Þá var aðalforstjóri RTZ
Metals, Ltd. á ferð hér á landi í
boði iðnaðarráðherra 19.-21.
febrúar og kynnti sér aðstæður
hér á landi.
Upphaflega var gert ráð fyrir að
ljúka mætti tilteknum áfanga í
samningsgerðinni íþessum mán-
uði þannig að leggja mætti fram á
Alþingi því er nú situr frumvarp
til laga um breytingu á lögum nr.
70/1982, um kísilmálverksmiðju
á Reyðarfirði. Á viðræðufundin-
um í Reykjavík 10.-11. mars var
ákveðið að hverfa frá þessum
áformum og stefna að því að
ljúka samningsgerðinni í heild
næsta haust, þannig að undirrit-
un allra samninga RTZ Metals
og íslenska ríkisins, svo og fylgi-
samninga, geti farið fram undir
lok septembermánaðar 1986,
takist samningar milli aðila.
Með því móti mætti leggja málið
í heild fyrir Alþingi strax í upp-
hafi þings næsta haust.
í framhaldi verður síðan
stefnt að því að semja um ein-
staka verkþætti við byggingu
verksmiðjunnar fyrir 1. janúar
1987 og að byggingafram-
kvæmdir hefjist vorið 1987. Er
þá við það miðað að framleiðsla
frá fyrsta ofni verksmiðjunnar
(árleg framleiðslugeta 14.400
tonn af málmi) hefjist á árinu
1989 og að síðari ofninn (árleg
Sameiginlegt
prófkjör í
Njarðvík
I dag og á morgun fer fram sameig-
inlegt prófkjör Alþýðuflokks, Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
fyrir bæjarstjórnarkosningar í
Njarðvík. Hefst kosning báða dag-
anakl. 10.00 og stendur til kl. 19.00.
Niðurstaða prófkjörsins er bind-
andi fyrir þrjú efstu sæti listanna
nemi þátttaka í prófkjörinu 25% af
kjörfylgi viðkomandi flokka í síð-
ustu bæjarstjórnarkosningum.
í framboði fyrir Framsóknarflokk-
inn eru eftirtaldir: Bragi Guðjóns-
son, Gunnar Ö. Guðmundsson,
Gunnlaugur Óskarsson, Hrefna
Kristjánsdóttir, Karl K. Arason,
Kristjana B. Gísladóttir, Ólafur
Þórðarson, Óskar S. Óskarsson.
Steindór Sigurðsson, Valur Guð -
mundsson og Vilmundur Árnason.
framleiðslugeta 14.400 tonn af
málmi) verði tekinn í notkun ári
síðar, þ.e. 1990.
Nærri lætur að jafn stór hluti þjóð-
arauðs Islendinga felist í einkabíla-
flota landsmanna og í öllum fiski-
skipaflotanum - í kringum 14 millj-
arðar króna í hvoru um sig. Á árun-
um 1974-1984 óx raungildi fiski-
skipaflotans um 34% - enda blöskr-
aði mörgum offjárfestingin f togur-
unum á þessum árum. Raungildi
einkabílaflotans óx þó gott betur,
eða um 42% þrátt fyrir nokkur mög-
ur ár, sem margir hörmuðu að fólk
hefði „ekki efni á“ að kaupa fleiri
bíla. Tölur þessar eru frá Þjóðhags-
stofnun og gilda fyrir árið 1984 nema
annars sé getið.
Fiskiðnaðurinn í landinu er aftur á
móti ekki nema hálfdrættingur á við
einkabílaflotann með unr 7,8 nrillj-
arða af þjóðarauðnum. í atvinnu-
bifreiðum geymast síðan um 4,7
milljarðar króna til viðbótar, eða
gott betur en í stóriðjufyrirtækjum
hérlendis. Verðmæti alls bílaflotans
jafngildir öllum iðnaðarfyrirtækjum
á íslandi, að fiskiðnaði frátöldum.
Til gamans má geta þess að öll
„undanrennumusterin" og '.slátur-
húsahallirnar" jafnast aðeins á við
9% af bílaflotanum.
Árið 1984 reiknaðist Þjóðhags-
stofnun til að samanlagður þjóðar-
auður okkar væri 272.687 nrilljónir
króna. Hlutur hvers íslendings hefði
þá verið um 1.136.200 kr. ef jafnt
væri skipt, eða um 4,2 millj. kr. á
hverja „vísitölufjölskyldu".
Lang stærsti hlutinn, 28% - 76,4
milljarðar króna - geymist í íbúðar-
húsunum okkar. Til að vega á móti
þeim hluta þarf; allar opinberar
byggingar í landinu, öll raforkuver.
rafveitur og jarðboranir, allt versl-
unarhúsnæði, skrifstofuhúsnæði og
gistihús og stjóriðjufyrirtækin tvö,
en allt þetta telst 76,6 milljarða
króna virði.
Annar stór sjóður felst í
samgöngumannvirkjum okkar.
samtals 13% af þjóðarauðnum eða
rúmir 35 milljarðar króna. Þar af eru
allir vegir og brýr metin á um 13,4
milljarða, eða heldur lægraen einka-
bílaflotinn. Heldur minni upphæð,
um 12,5 milljarðar, bætist síðan við í
gatna- og holræsakerfum. Sam-
kvæmt þessu þarf að leggja í mun
dýrari framkvæmdir til að bíiarnir
komist um heldur en verði þeirra
nemur. Þeir tæplega 9 milljarðar sem
ónefndir eru liggja í höfnum og flug-
völlum.
Þá má nefna að rúntlega 5% þjóð-
arauðsins felst í landbúnaðinum,
sem er álíka hlutfall og í verslunar-,
skrifstofu- oggistihúsnæði í landinu.
-HEI.
Leiðrétting
Bændur á Þorvaldseyri hafabent á
þá leiðu villu í grein í fimmtudags-
hlaði Tímans að afköst nýja rnötun-
arvagnsins séu gerð heldur lítil. í
greininni átti að standa: Það tekur
okkur aðeins unt 3 stundarfjórðunga
að gefa um 100 gripum mcð þesstt
móti. -G.S
\/ev
Söludeildin verður opin laugardag
og sunnudag kl. 10.00 til 16.00.
Afar hagstæð greiðslukiör
VERÐSKRA:
LADA1200 .................Uppseldur
LADA1500 skutbíll, 4ra gíra ..Var 249.694,- Nú 178.440,- Ný sending áætluð 182.955,-
LADA1500 skutbíll, 5 gíra Uppseldur
LADASAFÍR................ Var 229.794,- Uppseldur Ný sending áætluð 166.526,-
LADALUX...................Var 259.888,- Nú 189.869,- Ný sending áætluð 189.869,-
LADA SPORT LS, 5 gíra.....Var 426.915,- Nú 315.874,- Ný sending áætluð 317.283,-
Ryðvörn innifalin í verði.
Allir okkar bilar eru árgerð 1986, ryðvarðjr og tilbúnir til afhendingar strax.
Mikið úrval af notuðum bílum til sýnis og sölu
< BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF.
U) ,]íj SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236