Tíminn - 15.03.1986, Side 4
4 Tíminn
Laugardagur 15. mars 1986
ÚTLÖND
SPEGILL
FRÉTTAYFIRLIT
STOKKHÓLMUR-Nikol
ai Ryzhkov forsætisráöherra
Sovétríkjanna bauö George
Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna aö eiga viö sig
viðræður um helgina en þeir
tveir munu hittast viö útför
Olofs Palme forsætisráðherra
Svíþjóðar
BONN - Helmut Kohl kansl
ari V-Þýskalands gaf út tilkynn
ingu þar sem hvatt var til auk-
inna tengsla milli Austur- og
Vestur-Þýskalands. Á sama
tíma eykst óvissan um að Erich
Honecker leiðtogi A-Þýska-
lands láti verða af heimsókn
sinni til V-Þýskalands á þessu
ári.
PARIS - Stjórnmálaleiðtog
ar í Frakklandi hafa lokið kosn
ingabaráttu sinni fyrir þing
kosningarnar sem fram fara á
morgun. í gær hafði þó franska
þjóðin mestan áhuga á fréttum
í sambandi við tilraunir til að fá
lausa frönsku gíslana sem
haldið er í Líbanon.
DARMSTADT, V-Þýska-
landi - Vísindamenn sögðu
upplýsingar sem sendar voru
til jörðu frá evrópska geimfar-
inu Giotto, eftir að það hafði
komist í námunda við hala-
stjörnu Halleys, geta gefið nýj-
ar vísbendingar um uppruna
sólkerfisins. Giotto komst
næst halastjörnu Halleys af öll
um rannsóknarförum sem það
hafa reynt en litlu munaði að
það eyðilegðist í agnaryki
halastjörnunnar.
VARSJÁ - Biskupar róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar í
Póllandi hafa harðlega gagn-
rýnt það sem þeir kalla endur-
nýjaða baráttu yfirvalda við að
boða trúleysi í skólum
landsins.
TOKYO - Bandaríski dollar-
inn var óstöðugur á verðbréfa-
mörkuðum í gær er bandarísk-
ir fjárfestingaraðilar misstu trú á
sínum eigin gjaldmiðli og veðj-
uðu á nýja efnahagssókn í
Japan. Á verðbréfamörkuðum
féll dollarinn á fáeinum mínút-
um og hafði ekki verið verð-
minni í samanburði við jap-
anska yenið síðan í október
1978.
KAUPMANNAHÖFN -
Danska ríkisstjórnin hefur lagt
fram sparnaðarráðstafanir
uppá 11 milljarða danskra
króna er miða að því að
minnka einkaneyslu og bæta
upp viðskiptahallann.
QUITO - Stjómvöld í Ecua-
dor lýstu yfir neyðarástandi í
landinu eftir að hersveitir hers-
höfðingja eins hafði náð á sitt
vald herflugvelli í höfuðborg-
inni. Þetta var önnur valdaráns-
tilraun hershöfðingjans á
nokkrum dögum.
MOSKVA - Sovésku geim-
fararnir Leonid Kizim og Vla-
dimir Solovyou eyddu fyrsta
deginum í geimfari sínu Soyuz
T-15 í að yfirfara tæki og leið-
rétta stefnu geimfarsins.
HONOLULU - Bandarísk-
ur dómstóll hefur sett tíma-
bundið bann á að tollþjónustan
fái bandaríska þinginu eöa
öðrum stofnunum í hendur
skjöl þau er Marcos fyrrum Fil-
ippseyjaforseti kom með með
sér til Hawai eftir að hafa flúið
heimaland sitt.
BOGOTA - Lögregla sagð-
ist hafa drepið Alvaro Fayad
einn af stofnendum og leiðtog-
um skæruliðasamtakanna M-
19.
Jayne Torvill og Christopher Dcan, þckktasta parið í skautaíþróttinni.
Þau hafa haldið saman í um 10 ár, en ekki gift sig, að því að best er vitað.
Þau segjast bæði vera mjög hjátrúarfull, eins og oft er um keppnisfólk.
Jayne safnar öllum böndum af blómvöndum, sem hent er til hennar á
skautasvellinu, en Chris segist aldrei fara í keppni nema í gömlum nærbux-
um frá Marks & Spencer, sem hann keypti fyrir mörgum árum.
Lokaatriðið í sýningu þeirra í Wembley-sýningunni í London.
óhemju hrifningu
áhorfenda
Þau Jayne Torvill og Christop-
her Dean, skautaparið fræga,
höfðu unnið til allra þeirra verð-
launa sem hægt var að hljóta í
skautalistinni, - verið Bretlands-
meistarar, Evrópumeistarar og
Ólympíumeistarar og meira að
segja hlotið orðuna MBE (árið
1980) í heimalandi sínu, Englandi,
auk margs konar heiðursverðlauna
annarra. Þau drógu sig því út úr
keppnis-heiminum, en byggðu upp
sína eigin sýningu og hafa, ásamt
aðstoðarfólki sínu, sýnt listhlaup
og dans á skautum víða um heim.
Við sjáum hér myndir frá sýningu
þcirra í Wembley í London, sem
hefur vakið mikla aðdáun áhorf-
enda.
Með þessum myndum voru birt-
ar ýmsar upplýsingar um skauta-
parið. Við teljum hér til nokkrar
þeirra.
Jayne er fædd 7. október 1957,
en Chris27. júlí 1958. Þau eru bæði
frá Nottingham og borgarráðið þar
styrktu þau svo þau gætu æft fyrir
alþjóðamótin sem þau tóku þátt í
árum saman. Sagt var að þau hefðu
fengið 14.000 sterlingspund á ári
hverju frá borgaryfirvöldum.
Jayne og Chris æfðu fyrst saman
haustið 1975. Fyrsta æfing þeirra
var kl. 6 að morgni, og þau voru
bæði svo syfjuð, að þau segjast lítið
sem ekkert muna frá æfingunni.
Áður en þau fóru út í það að iðka
einungis skautaíþróttina vann
Jayne á skrifstofu hjá tryggingarfé-
lagi og Chris var lögregluþjónn.
„Það var leiðindadjobb", sagði
hann síðar „ég hafði óbeit á því að
þurfa að handtaka fólk. Eftir vinnu
þurfti svo að ganga frá pappírum
og hanga á skrifstofu við skýrslu-
gerð, svo ég komst ekki á æfingar
fyrr en seint og síðar meir!“
Það er mikill kostnaður við að
taka þátt í skautamótum, svo sem
búningakostnaður og sérstök útsetn-
ing á tónlist o.fl. Þau Chris og
Jayne borguðu yfir 4000 pund (240
þús. kr.) fyrir útsetningu og upp-
töku á laginu Bolero, sem þau
unnu heimsmeistaratitilinn á.
Þau eru heiðursborgarar í Nott-
ingham, en Jayne var leið yfir því,
að á heiðursskjalinu vantaði y-ið í
nafnið hennar. Hún var skrifuð
Jane!
Sá sem útsetur skautadansa
þeirra núna - kann alls ekki á
skautum! Hann heitir Graham
Murphy og er frá Ástralíu. Hann
hefur nýtekið við starfinu sem
dansahöfundur þeirra.
Bolero-dansinn þeirra tók tvo
mánuði í æfingu hjá skautaparinu,
en hann þótti líka alveg sérstæður
og annað eins hafði ekki sést „á
ísnum“. Rússarsögðu aðþettaværi
ekki skautadans heldur líkara
ballett og voru ekkert ánægðir.
Nú hafa þau Jayne og Chrisgert
mikla lukku með nýjum dansi.
„Söngur Indlands" heítir hann.
Það var nýi dansahöfuncfurfnn sem
sá um alia útsetningu á því númeri
og hefur hlotið mikinn heiður fyrir.
Æfing við Söng Indlands tók aðeins
6 daga, en þá höfðu þau náð þessum
dansi eins og þau hefðu æft hann
árum saman.
Bæði Jayne og Chris byrjuðu að
æfa á skautum 10 ára gömul, en þau
voru 18 ára þegar þau æfðu saman
fyrst.
„Söngur Indlands“ heitir nýi dansinn sem er mesta glansnúmerið þeirra
nú.
Skautameistararnir Jayne Torvill
og Christopher Dean á Wembley
Sýning þeirra vekur