Tíminn - 15.03.1986, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 15. mars 1986
Útboð
Landsbankinn óskar eftir tilboðum í smíði banka-
húss í Grindavík. Húsiðsteypistátilbúna botnplötu
og skal því lokið að fullu jafnt innanhúss sem utan.
Lóðarfrágangur er undanskilinn í þessu útboði.
Tilboðsganga skal vitja til Skipulagsdeildar
bankans, Álfabakka 10, II. hæð, gegn skilatrygg-
ingu að upphæð kr. 15.000. Tilboð verða opnuð á
sama stað, fimmtudaginn 10. apríl 1986, kl. 11:00.
Landsbanki
íslands
Útboð-Framræsla
Samkvæmt jarðræktarlögum býður Búnaðarfélag
íslands út skurðgröft á nokkrum útboðssvæðum
árið 1986.
Útboðsgagna má vitja hjá Búnaðarfélagi íslands,
Bændahöllinni við Hagatorg.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
16. aprílkl. 14.30.
Búnaðarfélag íslands
H
F býður þér þjónustu sína við ný-
byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis
Viö sögum í steinsteypu fyrir dyrum, gluggum, stigaopum, lögnum
- bæði í vegg og gólf.
Ennfremur kjarnaborum viö fyrir lögnum í veggi og gólf.
Þvermál boranna 28 mm til 500 mm.
Þá sögum við malbik og ef þú þarft aö láta fjarlægja reykháfinn þá
tökum viö það aö okkur.
Hífir leitast viö að leysa vanda þinn fljótt og vel, hvar sem þú ert
búsettur á landinu.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi
Bílasími 002-2183
Fífuseli 12
109 Reykjavík
sími 91-73747
KRANALEIGA • STEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN
Jörð til sölu
Til sölu jörðin Vakursstaðir I, Vopnafirði ásamt vél-
um og áhöfn.
Upplýsingar á kvöldin í síma 97-3475.
ber gjöld af slíkum fyrirtækjum en af
gamalgrónum atvinnurekstri.
Loks þurfa sjóðir atvinnuveganna
að snúa sér í vaxandi mæli að lánveit-
ingum til nýsköpunar í atvinnulífi.
Með frumvarpi til laga um sjóði at-
vinnuveganna, sem nú liggur fyrir
Alþingi, er ekki sist að því stefnt.
Eflaust má ýmislegt fleira til tína,
sem yrði til þess að efla sókn til ný-
sköpunar í atvinnulífinu. Um þetta á
miðstjórnarfundurinn að fjalla.
Leggja þarf drög að nýju og öflugu
átaki, sem renni fleiri stoðum undir
íslenskt atvinnulíf.
Framsóknarflokkurinn,
staða hansogframtíð
Þótt að sjálfsögðu mætti ræða ýt-
arlegar um efnahagsmálin og margir
séu þeir þættir þjóðmála, sem ég hef
ekki nefnt, tel ég rétt að ræða að lok-
um um Framsóknarflokkinn, stöðu
hans og framtíð.
Framsóknarflokkurinn hefurlengi
verið kjölfesta í íslensku þjóðlífi.
Hann á einhvern stærsta þáttinn í
þeim miklu framförum, sem hér hafa
orðið á undanförnum áratugum.
Hlutur flokksins hefur verið afger-
andi í því að skapa það velferðar-
þjóðfélag, sem hér er. Framsóknar-
flokkurinn er frjálslyndur, umbóta-
sinnaður flokkur. Hann leggur
áherslu á jafnræði og öryggi öllum til
handa og hvar sem þeir búa í land-
inu. f atvinnulífinu byggir hann jafnt
á samvinnuhreyfingunni og einstakl-
ingsframtaki.
Því nefni ég slík grundvallarsjón-
armið, að ég vil leggja áherslu á, að
þau eru ekki síður mikilvæg í dag en
þau voru fyrir 10, 20 eða 50 árum.
Pessi sjónarmið munu jafnframt um
ókomna framtíð vera sá grundvöll-
ur, sem flokkurinn byggir á.
Gjörbreytt þjóðlíf
Á undanförnum áratugum hefur
þjóðlífið hins vegar breyst mjög.
Fólksfjöldi í strjálbýli er orðinn að-
eins brot af því, sem hann var fyrir
tiltölulega fáum árum. Sjávarútveg-
urinn hefur tekið við hlutverki undir-
stöðuatvinnuvegar þjóðarinnar og
iðnaður ýmiss konar fer vaxandi.
Landið sjálft liggur ekki lengur fjarri
öðrum löndum. Það er komið í al-
faraleið og orðið mjög opið, m.a.
innflutningur allur frjáís. Fyrir
nokkrum árum þótti það í frásögur
færandi, ef menn, og sérstaklega
unglingar, ferðuðust til annarra
landa. Nú kaupa 90 þúsund íslend-
ingar sér farmiða til útlanda árlega,
og sá nemandi í menntaskóla telst
varla maður með mönnum, sem ekki
hefur verið erlendis, enda munu þeir
vart lengur finnast.
Mér er Ijóst, að ýmsum þykja þær
breytingar, sem orðið hafa, síður en
svo til góðs. Undir sumt í þeirri gagn-
rýni get ég tekið. Ég er hins vegar
sannfærður um, að þær voru og eru
óh jákvæmilegar og margt er til bóta.
HRINGIÐ OG FÁIÐ FREKARI UPPLÝSINGAR.
Nýbýlaveg 8 (Dalbrekku megin)
200 Kópavogur Sími 46216
Ýmiskonar plastílát
Höfum fengið ýmsar stærðir
og gerðir af plastílátum:
Þar á meðal bala m/höldum, í
stærðinni 75 og 90 Itr. - 90 Itr.
stampa (rúnnaða) og 52 Itr.
stampa m/höldum, - auk
annarra plastíláta í ýmsum
stærðum, svo sem kassa og
fötur. Eigum nú á lager plast-
kör (tvöföld) 500 Itr. á góðu
verði.
Lífskjör okkar íslendinga byggj-
ast nú að stórum hluta á útflutningi
og batnandi lífskjör undanfarinna
ára nánast að öllu leyti. Við erum
þannig orðin mjög háð erlendum
mörkuðum. Landið hlaut því að
opnast og samskipti við aðrar þjóðir
að stóraukast. Það hlaut aftur á móti
að hafa mikil áhrif til breytinga á ís-
lenskt þjóðfélag. Ég er ósammála
þeim, sem telja að flest eða allt slíkt
hafi orðið til ills. Þvert á móti held ég
að margt hafi orðið til góðs, þótt
annað sé að sjálfsögðu lítt eftirsókn-
arvert. Ég er t.d. þeirrar skoðunar,
að íslensk æska í dag sé betur undir
lífsbaráttuna búin en við á mínum
aldri vorum sem unglingar. Unga
fólkið í dag veit meira og er víð-
sýnna.
Hraði breytinganna hefur stöðugt
farið vaxandi og mun enn vaxa á
næstu árum. Hátæknin mun halda
innreið sína á öllum sviðum. Nú geta
einstaklingar náð 7-8 erlendum sjón-
varpsstöðvum beint með tiltölulega
litlum kostnaði. Eftir fá ár verða slík-
ar stöðvar orðnar margfalt fleiri og
móttakan auðveldari.
Breytingarnar og
flokkarnir
En hvers vegna er ég að rekja
þessa þróun? Jú, vegna þess, að hún
hlýtur að hafa gífurleg áhrif á starf-
semi stjórnmálaflokka. Égerþeirrar
skoðunar, að enginn íslenskur
stjórmálaflokkur hafi til fulls gert sér
grein fyrir þeim áhrifum. Hver sá
flokkur, sem vill vera lifandi og
sterkur, verður þó að skilja þessar
breytingar og laga sig eftir þeim.
Grundvallarstefna okkar fram-
sóknarmanna um j afnræði og öryggi,
velferð og gott mannlíf verður að
sjálfsögðu hin sama. En þeim mark-
miðum mun þurfa að ná eftir öðrum
leiðum en áður voru farnar. Við
náum slíku t.d. aldrei með því að
ætla að stöðva straum breytinganna.
Hins vegar á að vera unnt að breyta
farvegi þeirra nokkuð, þannig að
betur falli að íslensku þjóðfélagi.
í þessum málum er Framsóknar-
fokkurinn, eins og aðrir flokkar hér á
landi, skiptur. í heild höfum við ekki
brugðist rétt við breytingunum. í
stað þess t.d. að sannfæra þjóðina
um hið augljósa, að strjálbýli og
þéttbýli þessa lands verður aldrei að-
skilið, höfum við látið öfgamenn,
sem ráðast í ræðu og riti gegn land-
búnaði og landsbyggðinni almennt,
setja okkur í varnarstöðu. Þjóðin
getur ekki búið án skynsamlegs land-
búnaðar, það vita í raun allir viti
bornir menn. Þó hefur þessi áróður
jafnvel skipt flokknum í strjálbýlis-
og þéttbýlismenn.
Ég sagði áðan, að þróuninni verð-
ur ekki breytt með því að stöðva
strauminn. f opnu þjóðfélagi verður
ekki komið í veg fyrr breytingarnar
með bönnum. Hvaða vit er í því að
banna íslenskum aðilum útvarps- og
sjónvarpsrekstur á sama tíma og ein-
staklingar geta frjálsir náð í fjöldann
allan af erlendum stöðvum, og það
án eftirlits. í opnu þjóðfélagi verður'
straumnum fyrst og fremst breytt
með því að búa fólkið undir breyt-
ingarnar með menntun og fræðslu.
Auka verður skilning unglinganna
og alls fjöldans á heilbrigðu, íslensku
mannlífi. Þannig mun, í straumi
breytinganna, standa upp úr það sem
íslenskt er og gott. Þá óttast ég ekki
um íslenskt þjóðfélag, þrátt fyrir
gjörbreytta framtíð.
Ég efa ekki að sumum þykir ég
taka of djúpt í árinni. Að sjálfsögðu
er hverjum það frjálst. Ég held hins
vegar að það sé síður en svo. Mér er
fullkomlega Ijóst jafnframt, að þeir
eru fjölmargir framsóknarmenn,
sem skilja það sem er að gerast í
þjóðfélaginu engu síður, og jafnvel
betur, en ég. Ég hef hins vegar
áhyggjur af því, ef Framsóknar-
flokkurinn í heild bregst ekki
skynsamlega við. Ég hef þær áhyggj-
ur ekki aðeins vegna flokksins sjálfs,
heldur einnig vegna hins íslenska
þjóðfélags, því það er bjargföst
skoðun mín, að þjóðin þurfi ekki
síður á Framsóknarflokknum og
stefnu hans að halda næstu ári en
undanfarna áratugi. Hvernig eigum
við þá að bregðast við?
Hvernig á að bregðast við?
Við eigum að ræða um breyting-
arnar, óskir fólksins og kröfur, með
opnu og jákvæðu hugarfari. Við
verðum að hefja nýja og sterka sókn
í þéttbýlinu. Við megum aldrei halda
fram hlut strjálbýlisins á kostnað
þéttbýlisins. Við eigum að leggja
áherslu á sameiginlega hagsmuni.
Við eigum að hætta andstöðu gegn
breytingum, sem eru óhjákvæmileg-
ar, en undirbúa menn til að þola þær,
og stuðla að þeim, sem eru jákvæð-
ar, eins og við vinnum ötullega að ný-
sköpun í atvinnulífinu. Viðeigumað
leggja áherslu á fræðslu æskunnar,
ekki síst á ýmsum framtíðarsviðum
og að sjálfsögðu á heilbrigt mannlíf.
Við skulum sannfæra þjóðina um, að
Framsóknarflokkurinn er vfðsýnn
flokkur og opinn fyrir mörgum þeim
breytingum, sem eru að gerast.
Oft hefur verið sagt, að framtíðin
sé þeirra, sem yngri eru. Á þessum
tímum breytinga hygg ég, að svo sé-
jafnvel fremur en áður. Okkur sem
eldri erum ber því að hvetja þá yngri
til þess að taka þátt í stjórnmálum og
víkja svo að þeir megi komast til
áhrifa.
Við fögnum stóraukinni þátttöku
kvenna í stjórnmálum og ekki síst
miklu starfi Landssambands fram-
sóknarkvenna innan flokksins. En
það er ekki nóg. Konum ber meiri
aðild að forystusveit. Eftir næstu
þingkosningar skulu þær verða
nokkrar í þingliði flokksins.
Sumir segja, að flokkurinn þurfi
að vera utan ríkisstjórnar til þess að
endurskoða og skipuleggja sitt innra
starf og sína stefnu. Það skal ég ekki
meta og tel reyndar rangt að gefa
nokkrar yfiflýsingar um slíkt. Þar
verða málefnin að ráða. Undir hitt
tek ég, að flokksstarfið þarf að auka
og efla, hvort sem við erum innan
eða utan ríkisstjórnar. Það ber að
gera án tafar.
í vor verða kosningar í sveitar-
stjóma og í síðasta lagi að ári kosn-
ingar til Alþingis. Þótt ég geri á þess-
ari stundu ráð fyrir því, að stjórnar-
samstarfið haldist út kjörtímabilið,
vil ég engu um það spá. Við skulum
ætíð gera ráð fyrir því, að upp úr geti
slitnað hvenær sem er. Um leið og
kosningar til sveitarstjóma em undir-
búnar, er rétt að hafa í huga kosn-
ingarnar til Alþingis, og nauðsynlegt
er að hefja undirbúning strax að
kosningum í vor loknum.
Framsóknarflokkurinn hefur um
áratugi verið það afl í íslenskum
þjóðmálum, sem hefur komið í veg
fyrir að öfgarnar til hægri og vinstri
næðu undirtökum. Þörfin fyrir slík-
an flokk verður ekki síður mikil á
næstu árum og áratugum. Við skul-
um sjá til þess, að Framsóknarflokk-
urinn sinni því hlutverki vel. Til þess
verður hann að vera áfram sterkur
og öflugur. Þjóðin þarfnast Fram-
sóknarflokksins.
III LAUSAR STÖÐUR HiA
'V REYKJAVÍKURBORG
Byggingardeild Borgarverkfræöings, Trésmiðja,
óskar eftir að ráða rafvirkja eða rafiðnfræðinga
með löggildingu, til starfa við viðgerða- og umsjón-
arstaf í Reykjavík.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sér-
stökum umsóknareyðublöðumsem þarfástfyrirkl.
16:00 mánudaginn 31. mars n.k.