Tíminn - 15.03.1986, Síða 15
Tíminn 15
Laugardagur 15. mars 1986
lllllll MINNING nilllillllillllillllillllilllllllllllllllllll
llllllllll!
lillllllll
Guðrún Sigurgeirsdóttir
Selfossi
Hún Gunna á „Fossi" er dáin. Mig
setti hljóðan er mér bárust þessar
fréttir símleiðis að morgni sunnu-
dagsins 9. mars sl. Nú er fallin frá
fórnfús og góð kona, voru fyrstu
hugsanirnar sem flugu um huga
minn.
Kynni mín af Gunnu, eins og hún
var. oftast kölluð, hófust fyrir um 8
árum er ég vann um tíma með bróð-
ursyni hennar.
Strax fyrsta skiptið sem ég sat í
eldhúsinu hjá henni og þáði góðan
kaffisopa og spjallaði við hana um
daginn og veginn, fann égað hún bjó
yfir mikilli hlýju og einlægni. Það var
engum í kot vísað sem átti Gunnu að
vini. Hún var alltaf góð viðræðu og
vel inni í flestum málum sem bar á
góma. Hún bjó einnig yfir mikilli
þekkingu um gömlu dagana og
hvernig lffið gekk fyrir sig þá. Oft
þegar hún sagði mér frá hlutum sem
gerst höfðu ígamla daga, einsogsagt
er, þá talaði hún tæpitungulaust, og
dró fátt undan sem máli skipti.
Margt af því sem ég veit um heimabæ
minn Selfosskaupstað, sem þróaðist
í túnfætinum hennar Gunnu, hef ég
gegnum spjall mitt við hana.
Gunna átti marga góða vini og ég
held að allir geti þeir verið sammála
um að hana var alltaf sérlega gott að
heimsækja. Stundum kom það fyrir
að brúnin var þung á manni vegna
einhvers persónulegs vandamáls eða
áhyggjuefnis þegar maður heimsótti
Gunnu, en þegar haldið var heim á
leið, var brúnin alltaf léttari, jafnvel
þó vandamálið hafi ekki verið til
lykta leitt. Gunna var fljót að setja
sig í spor annarra og sýndi þeim sem
átti bágt mikla hluttekningu. Þessir
eiginleikar öðrum fremur hafa áreið-
anlega aflað henni allra þeirra vina
sem hún átti.
Ég þakka fyrir að hafa fengið að
kynnast henni og minningin um góða
konu mun lifa í huga mér.
Bjarni, bróðir Gunnu og Sigurgeir
bróðursonur hennar, sem Gunna
hugsaði um heimilið fyrir og bar fyrir
brjósti í hverju efni, hafa nú misst
mikið.
Um leið og ég votta þeim tveimur
samúð mína svo og öðrum eftirlif-
andi ættingjum hennar, bið ég algóð-
an Guð að styrkja þau í sorginni.
Lárus Þór Kristjánsson.
Þunga sigursöngva syngur elfan
mest á Fróni, þar sem hún steypist á
flúðunum við Selfoss, myndar hring-
iður og breiðir síðan úr sér í hægum
straumi um Flóa og Ölfus til sjávar.
Hún hafði brotist undan jökulhettu
Langjökuls á öræfum, yljað sér við
Fögruhlíð á Kili, speglað skriðjökl-
ana við Hvítárvatn og myndað
friðartákn almættisins í regnbogans
litum í Gullfossi, þar sem hún hún
kyssir sunnlenskar byggðir. Þá flétt-
ast hún tæru bergvatninu í Soginu úr
Þingvallavatni, barmafull af lífs-
björg og orku, en kennir tregans í
hringiðunum við Selfoss, því senn
kveðurhún þennan dýrðargeim. „Þú
Árnesþing, ég elska nafnið þitt,“
sagði skáldið á Hæli og fljótið tekur
undir á flúðunum við Selfoss.
Hér á bakkanum verður í dag lögð
til hinstu hvílu Guðrún Sigurgeirs-
dóttir frá Selfossi eða Fossi eins og
gamli bærinn er gjarnan nefndur.
Hér var hún fædd og hér ól hún allan
sinn aldur við niðinn úr fljótinu, vax-
andi mannlíf og gæsku hins undur-
fagra héraðs, Gunnu þótti líka vænt
um allt fólk, einstök rausnarkona
heim að sækja og þeir voru margir,
sem sóttu hana heim, því Selfoss er í
þjóðbraut.
Foreldrar Gunnu voru hjónin á
Selfossi, Sigurgeir Arnbjarnarson
bóndi og Jóhanna Andrea Bjarna-
dóttir. Bræður hennar voru þrír, þeir
Arnbjörn kennari og kaupmaður á
Selfossi, Höskuldur Guðjón starfs-
maður Kaupfélags Árnesinga og
Bjarni bóndi á Selfossi, sem nú lifir
einn systkina sinna. Föðurforeldrar
þeirra systkina fórust bæði í land-
skjálftunum miklu þegar bærinn á
Selfossi hrundi. Sigurgeir heitinn á
Selfossi var meðal annars ættaður frá
Birtingaholti í Hrunamannahreppi.
Jóhanna heitin var af Bergsætti og í
frændgarðinum voru meðal annarra
sr. Jón eldprestur Steingrímsson og
Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri
sem brúaði elfuna miklu við Selfoss.
Árið 1925 fluttust móðurforeldrar
mínir að Tryggvaskála á Selfossi með
dætur sínar fimm og æ síðan hefur
verið órofa vinátta með fjölskyldu
minni og Fossfólkinu. Er beðið fyrir
innilegar þakkir til látinnar vinkonu
og félaga.
Þá voru nákvæmlega fimm hús á
Selfossi og getur hver og einn gert sér
þá gífurlegu breytingu á höfuðstað
Suðurlands í lund, sem fer pm Sel-
foss núna. Þessi mikla saga var lífið
hennar Gunnu minnar á Fossi. Hún
þekkti fólkið, tók þátt í gleði þess og
sorg, lífi og starfi. Hún var gleðigjafi
í vinahóp og höfðingi heim að sækja.
Sjálfsagt skipta þeir mörgum tonn-
um laxarnir, sem Gunna er búin að
gefa um ævina, og skipti þá engu
hvar viðtakandinn var á landinu.
Bjarni minn, Sigurgeir og Sigrún,
ég færi ykkur mína dýpstu samúð, og
ítreka saknaðarkveðjur frá móður
minni og systrum hennar. Algóður
guð geymi Gunnu mína á Fossi.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
l|l|!l!!lll
'Sí
verslunití
STÆRMYRIí
Starmýri
elqartilbo
Svali á
69
Hangikjöt úrbeinaður frampartur kr. 338 kg.
London lamb úrbeinaður frampartur kr. 389 kg.
Nautakjöt á mjög lágu verði:
Hakk kr. 326 kg.
buff kr.71Bkg.
innanlæri kr. 767 kg.
kr. 6 í pakka Heildósir af niður-
Egg á kr soðnum ávöxtum
105™ 75 kr. Allir fá að smakka.
Opið
frá 9—18 mánud.—fimmtud.
9—19föstud.
10—16laugard.
verslunin
Páskaegg komin í hillurn-
ar á niðursettu verði.
^§|Opið í hádeginu alla daga
Starmýrl 2
S. 30420-30425
£>/
fckSRARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir-
farandi:
RARIK-86002: Lágspennuskápar 1 kV, í dreifi-
stöðvar
Opnunardagur: Mánudagur 14. apríl 1986, kl.
14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropn-
unartíma og verða þau opnuð á sama stað að við-
stöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá
og með mánudegi 17. mars 1986 og kosta kr. 200.-
hvert eintak.
Reykjavík 13. mars 1986
Rafmagnsveitur ríkisins
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í eftirtalin
verk:
1. Norðurlandsvegur, Brú-Hrútatunga, 1986.
(Lengd 1,8 km, magn 16.500m3).
Verki skal lokið 1. júl í 1986.
2. Norðurlandsvegur, Múli-Vatnsnesvegur,
1986.
(Lengd 5 km, magn 58.000m3).
Verki skal lokið 30. september 1986.
3. Norðurlandsvegur, Arnarstapi-Skagafjarð-
arvegur, 1986.
(Lengd 4,3 km, magn 60.000m3).
Verki skal lokið 30. september 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 18. mars n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 7. apríl 1986.
Vegamálastjóri.
ra
Útboð
Tilboð óskast í gatnagerð og holræsi við Álfaheiði í
Kópavogi. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
bæjarverkfræðings, Fannborg 2 frá þriðjudeginum
18. mars 1986 gegn 3000 kr. skilatryggingu. Tilboð
verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 25. mars
1986 kl. 11. Verkinu skal lokið fyrir 8. júlí 1986.
Bæjarverkfræðingur.
t
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát
og útför
Tómasar Gíslasonar
frá Melhóli i Meðallagi
Reykjamörk 12, Hveragerði
Jytte Eiberg og börn
t
Þökkum innilega auösýnda samúð, hlýhug og vináttu viö andlát og út-
för
Guðmundar Jónassonar
frá Hólmahjálegu, Austur Landeyjum
Aðstandendur.