Tíminn - 15.03.1986, Side 16
16 Tíminn
Laugardagur 15. mars 1986
POPP III
Hljómsveitin Kukl
Tímamynd: Ari.
Mikið lifandi skelfing og ósköp
gengur Kuklinu vel í útlandinu.
Krakkarnir mega varla láta hljóð
frá sér fara öðruvísi en erlendir
gagnrýnendur falli á kné og lofi
guð.
Núna er hljómsveitin nýkomin
úr stuttum túr um Evrópu og gekk
vel, til gamans og glöggvunar fyrir
þau okkar sem venjulega horfum á
Kuklið spila í litlum sal og við hálf
þvingað andrúmsloft hér heima á
íslandi verður hér birt þýðing á um-
sögn þýsks blaðamanns um eina
tónleika Kuklsins. Umsögnin birt-
ist í Berliner szene, þann 26. febrú-
ar síðastliðinn.
„Um nóttina og morguninn eftir
dreymdi mig Kukl ennþá, þessa
frumlegu, ástríðufullu og óviðjafn-
anlegu hljómsveit frá íslandi.
Flutningur hennar er látlaust gos af
orku, ást, hatri, angist og sælu -
sérstaklega upplifa söngkonan og
söngvarinn allar andstæðustu,
öfgafylltu kenndir sínar á sviðinu í
stað þess að sýna þær bara. Það er
þó ekki um að ræða neina vand-
ræðalega sjálfsafhjúpun eða þörf
fyrir að láta á sér bera. E.t.v. vekur
útgeislun hljómveitarinnar að lok-
um hlýja og góða tilfinningu.
Samblandið af frumhippamennsku
og frumpönki er frumlegt, þar er
ekki um neina eftiröpun að ræða,
jafnvel Doors-tilvitnun verður hjá
Kukl þeirra eigið framlag. Auk
hinna öskrandi, kjökrandi, hlæj-
andi, ljómandi og hoppandi fram-
varða vekur trommuleikarinn sér-
staka athygli. Hann kann þá sjald-
HUGSKOTS
Hafin verður kennsla 15. mars
á eftirfarandi námskeiðum:
Grunnnámskeid BBC 12 stundir
Forritun 2 BBC 12 stundir
Ritvinnsla BBC 8 stundir
Sinclair grunnnámskeió 12 stundir
Sinclair tramhaldsnámskeió 12 stundir
Ritvinnsla BBC:
Kennarar:
Sveinbjörn Gröndal
Ragnar Ómarsson
Námskeið:
þri. 18. mars kl. 18.30-20.30
fös. 21. mars kl. 18.30-20.30
lau. 22. mars kl. 16.00-18.00
Grunn BBC:
Kennarar:
Sveinbjörn Gröndal
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
Námskeið:
mán. 17. mars kl. 18.30-20.30
mið. 19. mars kl. 18.30-20.30
fim. 20. mars kl. 18.30-20.30
lau. 22. mars kl. 10.00-12.00
Sinclair grunn:
Kennarar:
Sveinbjörn Gröndal,
Guðmundur Einarsson
Námskeið:
mán. 17. mars kl. 21.00-23.00
mið. 19. mars kl. 21.00-23.00
fim. 20. mars kl. 21.00-23.00
lau. 22. mars kl. 21.00-23.00
Forritun 2:
Kennarar:
Sveinbjörn Gröndal,
Guðmundur Ragnar Guðmundsson,
Sigurður Hr. Sigurðsson
Námskeið:
lau. 15. mars
sun. 16. mars
lau. 22. mars
sun. 23. mars
kl. 10.00-12.00
kl. 12.45-14.45
kl. 10.00-12.00
kl. 12.45-14.45
Sinclair framhald
Kennarar:
Sveinbjörn Gröndal
Guðmundur Einarsson
Námskeið:
þri. 18. mars
sun. 23. mars
þri. 25. mars
mið. 26. mars
kl. 21.00-23.00
kl. 15.00-17.00
kl. 21.00-23.00
kl. 19.30-21.30
• ••
• ••
•••••• ••••••
••• ••• ••••
HUGSKOThf
Veltusundi 3b
Sími24790
Risar í
framsæknu
alþjóða-
deildinni
gæfu list að spila nákvæmt en þó
drífandi og óþvingað. Með þung-
um takti og öruggum, skörpum
millislögum rekur hann hljómsveit-
ina áfram og án þess að mikið beri á
vindur bassaleikarinn sér inn í slag-
munstrið. Rafmagnsgítarleikarinn
cr glaðlyndur djöfull en hljóm-
borðsleikarinn spinnur hljóðvef
sinn með stóískri ró með smávindil
í munnivikinu að hætti Eastwoods.
Það var fyrst síðar, löngu eftir
tónleikana sem ég gat skilgreint
hljómsveitina: Það er út í hött að
reyna að greiða tónlist Kukls í
sundur meðan hljómsveitin spilar.
Það sem umfram allt vekur furðu
og hrifningu við hjómsveitina er
hve hún er lokaður og samstilltur
hópur. Aldrei hef ég séð Ijósmynd-
arann minn jafn hamingjusaman
við vinnu sína: hann smellti látlaust
af, ölvaður af bjór og gleði og
brosti út að eyrum. Mér leið
svipað.
Maður verður bergnuminn af að
horfa á söngkonuna. Þessi lág-
vaxna stúlka á óljósum aldri virðist
vera spegill sálarinnar, það er eins
og maður sjái í henni sjálfan sig
hlæja, öskra, fyllast angist eða
gleðjast. Auk þess er hún kannski
fallegasta stúlkan í heimi, en það
kemur henni ekki við.
Karlsöngvarinn hefur líka sína
töfra og er sá eini sem gerir hæðnis-
legar athugasemdir öðru hverju,
augljóslega í ölvuðu gríni.
„Ó, komdu með mér,“ sagði mað-
urinn. „Þegar við erum sex saman
getum við farið um allan heiminn,"
segir í uppáhalds ævintýrinu mínu úr
safni Grimmsbræðra. „Sex fara um
allan heiminn." KUKLI ætti að tak-
ast það, þetta með allan heiminn.
Ævintýrið endar vel fyrir sex-
menningana: „Þá fóru sexmennin-
garnir heim með áuðæfi sín, skiptu
þeim á milli sín og lifðu ánægðir það
sem eftir var." Að eilífu.
Þetta er brot af því sem þýska
pressan segir af Kuklinu. En þau ná
ekki einungis árangri á tónleikum.
Eins og frant hefur komið í Tíman-
um þá gaf breska tónlistarblaðið
nýju plötunni þeirra, Holidays In
Europe, fimm stjörnu umsögn, þann
hæsta dóm sem hægt er að hugsa sér.
Þá má geta þess að platan er kom-
in í 25. sæti óháða breska vinsælda-
listans, samkvæmt New Musical Ex-
press (l. mars ’86) og lagið
Dismembered hefur að undanförnu
setið í efsta sæti vinsældalistans
Radio Liberttúr í París. Allt þetta
afrekar Kukl meðan við islendingar
kostum hundruðum þúsunda í undir-
búning söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva, peningum sem ef
til vill eiga aldrei eftir að skila sér til
baka.
Við eigum Kukl og það er stað-
reynd að hljómsveitin er álíka land-
kynning og ef ekki meiri en Hófí og
handboltaliðið til samans. Gefum
þeim sjens hér heima.
-ÞGG.
DAMIEN CHALAUd THIERRY DELAVAU Pnnn
p._ ‘TRIS0MIE2r AU SPOTLGHT
RADIO LIBERTAIRE - PARIS (Sg.A FM u n
SUNDAy NIGHTS 8.00PM - 10.30 PM
"öismembered"
3/DMrm5SCUR!Tn'heGeíag“^ -------(^BONDAGEUPtraclc
.—
TMr.?«JEWARTAND ................-....(THIRDMIND)LP
8/DAUAÍsE,TA"AA:,heVeneer°fD—
f r,H“^A WUMBA: ............(SWEATBOX) 12”
2/ GO vS“: "Die . .............(AGITPROP) 7"
c ,NMENT ISSUE: ............-• (NER) LPiraclc.
i Jusf NeverSfops" __
OFETHE WHEEl:,FOUNTA,N °f YOD™) LP
...................-;WUTE)LPlrack.
I s/nuciear DEVICE*
"Arriba Espana.Abajo La Dicloluro"..
■ (THIRDMIND) 12".
• (BONDAGE) LP.
Vinsældalisti Radio Libertair i París.