Tíminn - 15.03.1986, Síða 24
Sykurlausar
u
ppf M !
Hálstöflur
I
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ sigraöi Ba
hrein 2-1 í landsleik í knattspyrnu sem háður
var í Bahrein í gaerkvöldi. Islendingarskoruðu
bæði mörkln ' í síðari hálfleik. Þetta var
siðari leikur liðanna en Bahrein vann fyrri leik-
inn með sama markamun 2-1. Eins og kunnugt
er var áætlað að íslenska landsliðið spilaoi
einnig i írak en af því varð ekki vegna stríðs-
ástands í landinu. Því voru aðeins leiknirþess-
ir tveir vináttuleikir við Bahrein, en þeir voru
jafnframt fyrstu leikirnir undir stjórn Sigfried
Held, hins nýja landsliðsþjálfara fslendinga í
knattspyrnu.
T
Tíminn
Laugardagur 15. mars 1986
Ríkisbankarnir lækka gjaldskrár:
„Ekki vegna hót-
ana ráðherra"
- segir bankastjóri Búnaðarbankans
Bankastjórn Búnaðarbank-
ans ákvað í gær að fella niður
nýju gjaldskrána um þjónustu-
gjöld. Hún gekk í gildi l.mars
sl., en var samþykkt 26. febrú-
ar. Var það síðar en aðrir bank-
ar auglýstu nýjar gjaldskrár.
Matthías Bjarnason við-
skiptaráðherra, hefur lýst yfir
að hann muni í næstu viku
senda bönkunum bréf og fara
fram á að gjaldskráin verði
lækkuð, og verði ekki farið eft-
ir þeirri beiðni muni hann
verða sér úti um lagaheimild til
að lækka þjónustugjöldin.
Stefán Hilmarsson, banka-
stjóri sagði í gær, að það væri
ekki vegna hótana ráðherrans,
að ákveðið hafi verið að lækka
þjónustugjöldin á ný, fremur til
þess að láta 10-12 millj, kr.
ganga til viðskiptavinanna.
„Við viljum einnig leggja
okkar af mörkum til að halda
verðlagi niðri eins og allir aðrir,
svo sem eins og Póstur og st'mi
og Ríkisútvarpið."
Því má bæta við að auglýst
hefur verið hækkun á póst-
burðargjöldum og auglýsinga-
taxta útvarps.
Stefán sagði að engin samráð
hafi verið verið við aðra banka
um lækkun þjónustugjaldanna,
en þegar sé búið að lækka tékka
heftin samkvæmt beiðni ráð-
herra.
í gær sendi Útvegsbankinn
frá sér eftirfarandi fréttatil-
kynningu: „í framhaldi af við-
tölum við viðskiptaráðherra,
Matthías Bjarnason, hefur
bankastjórn Útvegsbanka ís-
lands ákveðið að falla frá
hækkun á innlendri gjaldskrá
bankans, sem tók gildi 15.
febrúar sl. Gjaldskráin verður
því óbreytt frá því sem hún var
íjúlr 1985."
Landsbanki íslands hefur
einnig sent frá sér frétt þar sem
gerð er grein fyrir viðbrögðum
bankans við tilmælum við-
skiptaráðherra um endurskoð-
un hækkunar á þjónustugjöld-
um. ( fréttinni scgir að þrátt
fyrir að frá því að gjaldskrá
bankans var endurskoðuð frá
grunni og fram til dagsins í dag
hafi hækkanir gjalda verið und-
ir almennum verðlagshækkun-
um, sé bankastjórnin reiðubú-
in að verða við óskum ráð-
herra.
Palme
jarð-
settur
ídag
Olof Palme verður bor-
inn til grafar í dag, og
mun allt þjóðlíf í Svíþjóð
fara úr skorðum af þeim
sökum. í gær fór fram
minningarathöfn um
Palme á Lækjartorgi í
Reykjavík og voru þar
samankomin hundruð ís-
lenskra syrgjenda að
votta þessu mikilmenni
virðingu sína í hinsta
sinn. Forseti íslands
Vigdís Finnbogadóttir,
var meðal þeirra sem við-
staddir voru athöfnina í
gær og eins og sjá má
myndinni voru þar einnig
Guðlaugur Þorvaldsson
sáttasemjari og Jónas
Haralz bankastjóri. Að
athöfninni í gær stóðu Al-
þýðuflokkurinn, Sam-
band ungra jafnaðar-
manna og íslensk-sænska
félagið. Ræðumenn voru
Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra,
Kjartan Jóhannsson al-
þingismaður og Gunnar
Axel, sendiherra Svía á
íslandi. Myndin var tekin
þegar gerð var einnar
mínútu þögn í minningu
Palme. (Tímamynd: Árni Bjarna)
' LANDSBANKANS,
■. m
Húsnæðisreikningur Landsbankans
byggir á lögum um húsnæðissparnaðar-
reikninga: Með því að leggja ársfjórðungslega
inn á slíkan reikning öðlast menn rétt til
skattafsláttar sem nemur fjórðungi árlegs
innleggs.
Upphæð innleggs í hverjum ársfjórðungi skal
vera á bilinu 4.089 - 40.890 krónur.
Húsnæðisreikningur Landsbankans er
verðtryggður samkvæmt lánskjaravísitölu
og að auki er ávöxtunin ársfjórðungslega
borin saman við kjör annarra almennra
innlánsforma bankans. Þannig erávallt tryggð
hámarks ávöxtun.
Húsnæðisreikningur Landsbankans veitir rétt
til lántöku að sparnaðartíma loknum.
Lánsupphæð getur numið allt að fjórföldum
höfuðstólnum og endurgreiðist á helmingi
lengri tíma en sparnaðurinn stóð.
Innlegg vegna 1. ársfjórðungs verða
að berast fyrir 31. mars.
Landsbanki
íslands
Banki allra lanc
1