Tíminn - 20.04.1986, Side 2

Tíminn - 20.04.1986, Side 2
2 Tíminn Sunnudagur 20. apríl 1986 INGIBJORG FER TIL BANDARÍKJANNA -synguráburtfarartónleikum í Garðakirkju í tilefni af því, að verðlaunahafi Söngvakeppni Sjónvarpsins, Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran, lýkur söngnámi hér á landi með burtfarartónleik- um á fimmtudaginn þann 24. þessa mánaðar, hafði blaðamaður helgarblaðsins við hana samband. Ingibjörg hefur stundað nám við Tónlistarskólann í Garðabæ síðast- liðin fjögur ár undir handleiðslu Snæbjargar Snæbjarnardóttur. Áður hafði hún sungið með barnakórnum og Bel Canto kórnum og oft nutu þessir kórar raddar hennar í einsöngshlutverkum, því að hún var ekki há í loftinu þegar fyrst varð vart óvenju góðra sönghæfileika. „Við höfum kallað þetta burtfar- arpróf, en það verður metið sem einsöngspróf. Ég er sem sé að Ijúka söngnámi hér á landi," sagði Ingi- björg Guðjónsdóttir í vikunni. „Tónleikarnir fara fram í Garða- kirkju á Álftanesi en að syngja í kirkju gefur mér ýmsa skemmtilega möguleika, svo sem að syngja með orgelundirleik og með kórsöng nema úr tónlistarskólanum. Efnisskrána reyndi ég að hafa fjölbreytta, - ég er með þýsk ljóð eftir Eric Satie og snjallt Ijóð eftir Rossini úr ljóða- flokki sem afar sjaldan er sunginn. Einnig munum við flytja Laudate Dominum eftir Mozart, en að sjálf- sögðu líka aríur eftir ítölsku meistar- ana; aríu Madame Butterfly úr samnefndri óperu Puccinis og Ave María sem Desdemóna syngur, úr Otello eftir Verdi. f þeirri aríu mun orgelið leika undir. Undirleikari minn á þessu prófi verður David Knowles, en hann samdi sérstaklega fyrir mig lag við Davíðssálm nr. 41 sem ég mun frumflytja í Garðakirkju." Það skal bent á að villa hefur slæðst inn í auglýsingar um ein- söngspróf Ingibjargar og verður prófið tekið klukkan 17.00 en ekki 20.30. Þetta er gert til að forðast árekstur við tónleika í Langholts- kirkju á fimmtudagskvöldinu. Tón- Ieikarnir eru að sjálfsögðu öllum unnendum sönglistarinnar opnir. „Ég hef að mestu einungis undir- búið mig undir þessa tónleika í vetur og það hefur bara gengið vel. Söng- námi mínu er samt langt í frá mcð öllu lokið, því að með haustinu hef ég nám í háskólanum í Indiana í Bandaríkjunum hjá víðfrægum próf- essor, Roy Samuelsen. Hann hefur kennt Bergþóri Pálssyni og konu hans, Sólrúnu Bragadóttir og Ernu Guðmundsdóttur." Greinilegt er, þó svo að Ingi- björgu Guðjónsdóttur hafi ekki tek- ist að hreppa verðlaunasæti í söngv- arakeppninni í Cardiff forðum, að hún á mikilli velgengni að fagna og það er ekki einleikið að ljúka ein- söngsprófi að loknu aðeins fjögurra ára námi, -og aðeins tvítug að aldri. -I'j- „Þessimynd erekkiásýn- ingunni, en hún er samt eftir mig,“ sagði Daði. SAMSÝNING AÐ KJARVALSSTÖÐUM Urn þessar mundir stendur yfir 3ja manna sýning að Kjarvalsstöðum; Daða Guðbjörnssonar, Helga Por- gils Friðjónssonar og Kristins Guð- brands Harðarsonar. Þeir sýna verk unnin í allra handa efni, skúlptúra. vatnslita-, olíukrítar og olíumyndir. Á sýningunni eru hátt á annað hundrað verk og er hún hin fjörleg- asta á að líta. Sýningin er opin til 26. apríl. (Fréttatilkynning) Ingibjörg Guðjónsdóttir (í miðið) og kennari hennar, Snæbjörg Snæbjarnardóttir (t.h.) kampakátar að loknum sigrinum í Söngvakeppni Sjónvarpsins. SKAGFIRSKA SÖNG- SVEITIN SYNGUR Tónleikar í Langholtskirkju Skagfirska söngsveitin og söngfé- lagið Drangey hafa starfað af fullum krafti nú í vetur. Kórarnir eru nú nýkomnir úr vel heppnuðu söngferða- lagi til Norðurlands, þar sem sungið var á sæluviku Skagfirðinga, - enda rennur söngsveitinni að sjálfsögðu blóðið til skyldunnar. Laugardaginn 19. apríl næst kom- andi verða kórarnir með tónleika í Langholtskirkju fyrir styrktarlelaga og aðra vini og velunnara. Flutt verða lög eftir íslenska og erlenda höfunda, meðal annars má finna á efnisskránni frumflutning á lögum eftir Sigvalda Kaldalóns og Þorkel Sigurbjörnsson. Þorkell mun hafa samið verkið sér- staklega fyrir Skagfirsku söngsveilina nú í vetur. Skagfirska söngsveitin var stofnuð árið 1970 og hefur starfað óslitið síðan. Fyrsti söngstjórinn var Snæ- björg Snæbjarnardóttir og var hún stjórnandi söngsveitarinnar allt til 1983. Þá tók við Björgvin Þ. Valdimars- son og hefur kórinn notið handleiðslu hans síðan. Undirleik með kórnum annast Ólafur Vignir Albertsson en ein- söngvarar eru Óskar Pétursson og Halla S. Jónasdóttir. Starfsári kóranna, en Drangey er einskonar hliðarkór úr söngsveitinni, lýkur á laugardegi 26. apríl með tónleikum í Félagsbíói í Keflavík klukkan 15:00. Skagfirska söngsvcitin með stjómanda sínum, Björgvini Þ. Valdimarssyni, sem er lengst til vinstri.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.