Tíminn - 20.04.1986, Side 12
-í
12 Tíminn
Sunnudagur 20. apríl 1986
„Lítið eitt um Reykjadalsá
Ein af þeiin laxveiðiám, sem hvað
minnsta umfjöllun hefur fengið sl. ár
er Reykjadalsá í Borgarfirði. Frétta-
ritari Tímans heimsótti nýlega for-
mann Veiðifélags Reykjadalsár, til
að fræðast lítillega um ána og veiði-
mál, en það er Sveinn Hannesson
bóndi í Ásgarði, sem er formaður
veiðifélagsins og hefur verið það sl.
áratug.
Reykjadalsá er bugðótt dragá og
gætir því mikils munar á vatnsmagni
eftir veðurfari, sl. ár var áin t.d.
mjög vatnslítil og veiddist því frekar
lítið í henni.
Meðaltalsveiði sl. 12 ára úr ánni
er: 140,2 laxar og 16 silungar.
Frá 1973 hefur Stangveiðifélag
Keflavíkur haft ána í leigu og eru
það því mest Suðurnesjamenn sem
þekkja ána og veiðistaði hennar,
fyrir utan Reykdælinga.
En nú hefur orðið breyting á sölu
veiðileyfa, þannig að veiðifélagið
selur sjálft veiðileyfin.
Leyfðar eru 2 stangir í einu. Hvert
útselt veiðitímabil er 2 dagar. Leyfð'
veiðitæki eru maðkur og fluga.
Sala veiðileyfa er nú hafin hjá
veiðifélaginu og er veiðitímabilinu
skipt í 6 verðflokka þannig:
Fjöldi Fjöldi Verðá
Frá hádegi Til hádegis daga: stanga stöng:
20/6 30/6 10 2 1.000,-
30/6 10/7 10 2 1.400,-
10/7 17/7 7 2 2.000,-
17/7 24/7 7 2 3.200,-
24/7 31/7 7 2 3.800,-
31/7 11/9 42 2 4.100,-
11/9 20/9 10 2 3.800,-
Staðfesta þarf pöntun á veiðileyfi Nú þegar er búið að selja nokkuð
með 50% greiðslu og þarf síðari af veiðileyfum en þó eru nokkur
greiðsla að berast fyrir 1. júní. leyfi óseld seinni part tímabilsins, en
Innifalið í verði veiðileyfa er aðstaða það er einmitt veiðilegastí tíminn, í
í veiðihúsinu við Kljáfoss. ágúst og september.
Sveinn Hannessun formaður veiðifélags Reykjadalsár.
. Ræktun hefur verið mikil s.l. ár,
þ.e. helst seiðasleppingar, en þó
voru þær litlar árið 1984, en þá var
gerð tilraun með að flytja lifandi lax
úr Klettsfljótinu, sem er einn besti
veiðistaðurinn í ánni og upp fyrir
hinn ófiskgenga Giljafoss, en það er
efsti veiðistaðurinn í ánni.
Kunnugir menn spá vaxandi fisk-
gengd í Reykjadalsá næstu árin,
samhliða hlýnandi sjó kringum land-
ið og aukinni ræktun.
Veiðifélag Reykjadalsár á 1,25%
í fiskeldisstöð Vesturlands á Laxeyri
en stöðin er rekin af hlutafélagi
veiðiréttareigenda í héraðinu. Sér
Laxeyrarstöðin um uppeldi seiða úr
klakfiski árinnar, til sleppingar
aftur. I byrjun október 1983 var
dregið á ána við Klettsfljót og feng-
ust þá 55 laxar á 2 1/2 klukkustund,
voru sumir laxarnir kreistir til hrogn-
töku, en öðrum var sleppt aftur fyrir
ofan Giljafoss. Auk þessara Iaxa
hefur mörg þúsund seiðum verið
sleppt fyrir ofan Giljafoss undanfar-
in ár og verður spennandi að sjá
árangur þeirra sleppinga.
Ef veiðimenn óska nánari upplýs-
inga um Reykjadalsá er upplagt fyrir
þá að slá á jrráðinn til Sveins Hann-
essonar í Ásgarði og fá upplýsingr
hjá honum í síma 5164.
MM.
Þegar þú greiðir með tékka, fyrir vöru eða
þjónustu, og sýnir Bankakortið þitt, jafngildir það
ábyrgðarskírteini frá viðskiptabankanum eða spari-
sjóðnum þínum, sem ábyrgist innstæðu tékkans
að ákveðinni hámarksupphæð og tryggir þannig
viðtakandanum innlausn hans. Viðskiptineiga
sér þannig stað að um leið og þú afhendir
tékkann, sýnirðu Bankakortið og viðtakandinn
skráir númer kortsins á hann.
Þannig er Bankakortið þitt tákn um trausta
viðskiptahætti. Hafðu Bankakortið því ávallt
handbært.
Bankakortið
- nauðsynlegt í nútímaviðskiptum
Samvinnubankinn, Útvegsbankinn, Alþýðubankinn,
Búnaðarbankinn, Landsbankinn, Verzlunarbankinn
og Sparisjóðirnir.
veitta