Tíminn - 20.04.1986, Blaðsíða 6
6 Tíminn Sunnudagur 20 apríl 1986
- um skömmtun og áfengiseftirlit á Grænlandi
Saga Grænlands er saga banna og skömmtunar. Árið 1782, 41 ári eftir að Grænland hafði
verið lýst dönsk nýlenda, bannaði nýlendustjórnin alla sölu og neyslu Grænlendinga á áfengum
drykkjum, þó svo Dönum hafi verið veitt ríkulega. Bráðlega höfðu þó myndast forréttindahópar
hvað þetta mál varðaði, því kristilegirflokkarog Grænlendingar í þjónustu danskra kaupmanna
áttu hægt með að útvega sér áfengi, - þó ekki væri í sama magni og Danir. Opinberir starfsmenn
voru verðlaunaðir með áfengi fyrir dugnað við að f lensa hvali, ganga eftir vatni eða brjóta kol.
1929 var komið á áfengisskömmtun, en með því jukust forréttindi fyrrgreindra hópa, og loks
árið 1953, þegar Grænland prílaði skör hærra í augum danskra og varð hluti konungsríkisins,
urðu raddir háværari, sem mótmæltu mismuninni f þjóðfélaginu.
Að Grænlendingar eigi við
drykkjuvandamál að stríða er engin
ný bóla og hefur stjórn þeirra gripið
til ýmissa ráða við að kveða niður
þann leiða anda. Áfengiskaup og
neysla þess var leyfð á Grænlandi
15. desember 1954. en þá hafði
áfengið verið heldri manna drykkur
allt frá upphafi. En 1978 var enn
komið á skömmtunarkerfi, - eitt
fyrsta verk heimastjórnarinnar ný-
sköpuöu, til að stemma stigu við
ofneyslu landans, sem hálflamaði
allt athafnalíf í landinu.
Frá 1. ágúst 1978 átti hver Græn-
lendingur sem orðinn var fullra 18
ára og ekki afplánaði dóm, rétt á 72
stiga skömmtunarseðli í mánuði. (
Bjórinn kostaði þá 1 stig af spjald-
inu; sterkur bjór hálfu stigi rneira; 75
cl af léttvíni kostaði 3 stig, (en á því
var 6 stiga afsláttur til að koma á
suðurevrópskri „vínmenningu"; 75
cl af sterkari vínum var 12 stiga
virði, eða jafn mikið og 35 cl af
brenndu víni.
Glæpir og lögbrot
Á þessu kerfi var stór Ijóður. Þrátt
fyrir að bannað væri, að gefa öðrum
af skömmtunarseðli sínúm, varð lög-
brotið að algengri iðju Grænlend-
inga. Bindindismenn sáu sér þarna
leik á borði að auðgast lítillega á
sölu skömmtunarmiða sinna og brátt
gengu seðlarnir, Ijóst og leynt, kaup-
um og sölum, því að meira að segja
var sett upp skilti í kjörbúð um, að
þar mætti næla sér í áfengismiða
fyrir gjald. Á sínum tíma kostaði 72
stiga skömmtunarörk tæpar 6.000
nýkrónur íslenskar. Þessi galli á
kerfinu varð meðal annarra til þess,
að skömmtun var lögð niður 1.
apríl, 1982.
• Samt sem áður hafði skömmtunar-
kerfið auðvitað einnig jákvæðar
hliðar:
- Innflutningur á áfengi og neysla
þess minnkaði stórlega. Árið 1978
var heildarneysla hreins vínanda
513.627 lítrar en 1979 406.856 lítrar.
Á Grænlandi búa eðeins 50.000
manns, - þar af eru 33.700 18 ára og
eldri. Um það bil 80% íbúa eru af
grænlensku bergi brotnir en 20% af
dönsku.
Neysla á heimilum minnkaði
stórum.
Börnum og unglingunt var sýnd
meiri umhyggja; barnaheimili sem
áður voru full út úr dyrum nær
tæmdust.
- Umsóknir um tafarlausa fjár-
hagsaðstoð ríkisins urðu nær óþekkt
fyrirbæri, en félagsmálastofnun
Grænlands hafði átt í nógu að snúast
áður.
- Með því, að Grænlendingar
gátu ekki lengur eytt öllu sínu fé til
kaupa á áfengi, varð uppsveifla í
öðrum verslunargreinum, svo sem
fataverslunum, hljómtækjabúðum
og matvöruverslunum.
- Glæpir urðu mun færri, - sér-
staklega misþyrmingar, morð og til-
raunir til slíks voru hverfandi. Þótt
að skömmtun hafi í raun ekki hafist
fyrr en á miðju ári 1979, fækkaði
morðum á því ári um 33%. Kynferð-
isafbrotum fækkaði um 19%, úr 93 í
75 á ári, og sjálfsmorð og sjálfs-
morðstilraunum fækkaði um 12% úr
42 í 37. Handtökum vegna ölvunar
fækkaði um 26% og akstur undir
áhrifum varð 17% fátíðari en áður.
- Samkvæmt grænlenska glæpa-
eftirlitinu (RLR) komu færri vanda-
mál upp vegna í'anga með skilorðis-
bundinn dóm, meðan á skömmtun-
um stóð. Stofnunin losnaði einnig
við að fyrirskipa mönnum antabus-
inntöku, þar sem hinir dæmdu fengu
einfaldlega ekki í hendur skömmt-
unarseðla.
Þegar liðið var á skömmt-
Ógnum ekki framtíðinni með drykkju.
unartímabilið tók glæpum
þó aftur aö fjölga. Að þessu sinni
voru það ekki nauðganir og mis-
þyrmi'ngar sem voru lögreglunni
miklir þyrnir í augum, heldur mikið
frekar rán, þjófnaður og innbrot í
þeim tilgangi að útvega skömmtun-
arseðla.
Hinir neikvæðu þættir skömmtun-
arinnar urðu hinum jákvæðu yfir-
sterkari og í apríl 1982 féllu menn
frá kerfinu og opnuðu takmarka-
lausa áfengisverslun. Nú skyldi beita
áróðri og upplýsingaherferð til að ná
niður ofdrykkju Grænlendinga.
Gull í greipar Bakkusar
Á skömmtunarárum grænlenskra
hafði nýr fjandi hafið innreið sína í
landið, sem var eiturlyfin. Þannig
réðist nú þursinn tvíefldur gegn
stúku og templurum og aftur riðuðu
innviðir grænlensks atvinnulífs til
falls. Um sömu mundir dró Græn-
land sig út úr FS (fjárhagssameining-
unni, EG) en styrkir úr henni voru
3,9% af heildartekjum Heimastjórn-
arinnar árið 1982. Þar sem Græn-
lendingar reiknuðu nú með skorti,
hefur frelsun áfengissölunnar ekki