Tíminn - 20.04.1986, Blaðsíða 17
Sunnudagur 20. apríl 1986
Tíminn 17
Tyree við inælitæki sín, sem segja til um hvenær skuli vökva ug hve inikið
vatn þurfi til.
LÁTUM BLÓMIN
Kanadískur vísindamaður spyr
blómin ráða, hvernig megi koma í
veg fyrir vatnsskort í náinni framtíð
Þrátt fyrir að sú skoðun hafi rutt
sér til rúms undanfarin ár, að plöntur
og blóm taki fjörkipp, þegar talað er
við þau, hefur íslensk blómaverslun
auglýst söluvöru sína á þann hátt,
„að láta blómin tala“.
Undir þá kenningu íslenskra
blómasala, hefur kanadíski líffræð-
ingurinn, Melvin Tyree, rennt
stoðum, því að á meðan menn hafa
keppst við að spjalla og syngja fyrir
blómin sín, hefur hann hlustað!
Með því að breyta lítillega næm-
um raftækjum, sem notuð eru til að
finna galla í málmum, hefur Tyree
tekist að hljóðrita hátíðnihljóð, sem
plöntur gefa frá sér, þegar þær fá
ekki nóg vatn. Þessi hljóð getur
mannseyrað ómögulega numið,
nema með tækjum kanadíska lif-
fræðingsins.
Tyree vinnur nú við að hanna tæki
- örsmáa míkrófóna sem má koma
fyrir á kornstrái - svo bændur geti
áttað sig á hve mikið vatn uppskera
þeirra krefst og hvenær eigi að
vökva hana. MetnaðurTyrees liggur
í því, að bjarga verðmætum vatns-
birgðum jarðar með því að umbylta
fyrri aðferðum við vökvun.
„Aðgerða er þörf strax, til dæmis
í ríkjum austur af Klettafjöllum í
Bandaríkjunum,“ sagði Tyree, en
þar er búist við algerum vatnsskorti
innan 15 ára.
Melvin Tyree vann áður sem próf-
essor við Toronto háskóla í Kanada
en vinnur nú að rannsóknum sínum
í háskólanum í Vermont. Fréttir af
fyrstu tilraunum hans með tækin, á
ýmsum trjá- og plöntutegundum,
bárust landbúnaðarráðuneyti
Bandaríkjanna til eyrna árið 1983.
Edwin Fiscus, vísindamaður í land-
búnaðardeild Fort Collins í Kólo-
rado, Bandaríkj unum, þar sem hann
vinnur að rannsóknum á kornupp-
skerum, las um tilraunir Tyrees í
háskólaritlingi og bauð honum um-
svifalaust til sín til Koloradó. Saman
komust þeir að því, með því að
hlusta á plönturnar, að þeir gætu
stöðvað vatnseyðslu við ofvökvun, -
sérstaklega telja þeir það mikilvægt
í sólríkum héruðum, en þar nota
bændur nú tvöfalt eða þrefalt það
vatnsmagn til vökvunar sem til þarf,
að mati Myree.
Vatnið rennur um stilka plöntunn-
ar eftir mjóum æðum og þaðan,
scgir Fiscus, kemur hátíðnivælið ef
rakinn er ekki nægur. „Það er þetta
væl í æðunum sem tæki Tyrees
nemur.“ Tækin hljóðrita vælið og
magna það upp 10.000 sinnum, svo
það verði greinilegt mannlegu eyra.
í janúar síðastliðnum úthlutaði
Bandaríska ritið Tyree styrki sem
nam $50.000 til að halda rannsókn-
um sínum áfram fram í júlímánuð.
Ef niðurstöður verða viðurkenndar
og lofa hagnaði, áætlar Tyree að
smíða tilraunatæki til stórtækra til-
rauna á ökrum úti, -svo og mælitæki
sem sýnt geti bændum hvenær sé
best að vökva og hve mikið til þurfi.
„Þetta gæti orðið til þess, að bjarga
vatnsbirgðum Ameríku," sagði
Tyree að lokum. „Við eigum ekki til
ótakmarkaðar vatnsbirgðir."
GULLIBETRI
ítalskir fótboltakarlar ókyrrast:
Umsjón: Þórmundur Bergsson, Heimir Bergsson:
Verður áfram lokað
Engin áform eru uppi á Ítalíu um aö aflétt veröi banni við kaupum á erlendum knattspyrnumönnum
Nú er gripin um sig hálfgerð örvænting í herbúðum margra 1.
deildarliða á Ítalíu vegna þess að heyrst hefur að bann við kaupum á
erlendum leikmönnum verði áfram í gildi eftir HM í Mexíkó. Eins og
kunnugt er þá setti ítalska knattspyrnusambandið bann á verslun á
erlendum leikmönnum fyrir tveimur árum svo landsliðið gæti undirbúið
sig af kostgæfni fyrir HM. Rétt áður en bannið tók gildi þá keyptu ítölsku
liðin alla þá leikmenn sem þeim tókst að festa sér og þessir leikmenn
sem enn spila á Ítalíu eru nú taldir „innfæddir" og því er slegist um þá
þessa dagana enda renna samningar þeirra flestra út með vorinu.
Knattspyrnusambandið hefur
ekkert gefið út um það hvort bann-
inu verði aflétt. „Eins og er þá er
bann við kaupum á erlendum leik-
mönnum og ekkert hefur verið rætt
um að aflétta því,“ sagði einn af
forráðamönnum knattspyrnusam-
bands Ítalíu fyrir stuttu.
Preben Elkjær ætlar liklegast
vera áfram hjá Verona.
að
Sautján ieikmenn, þar af tíu
erlendir, eru með lausa samninga í
vor. Þar að auki losnaði einn þeirra
undan samningi um daginn til að
spila í heimalandi sínu. Það er
Graeme Souness sem spilaði með
Sampdoria. Sá sem virðist líklegast-
ur til að fylla skarð hans er Brassinn
Toninho Cerezo hjá Roma. Samn-
ingur hans við Roma er útrunninn
og ekki líklegt að hann verði endur-
nýjaður. Hinsvegar er Cerezo dýr og
ekki víst að samningar náist þó
margt bendi til þess.
Roma hefur verið að gera hosur
sínar grænar fyrir Dananum Klaus
Berggreen sem nú spilar með Pisa og
mun hann eiga að spila við hliðina á
Boniek hinum pólska sem enn á tvö
ár eftir af sínum samning. Þá hafa
Roma-menn einnig átt við Preben
Elkjær hjá Verona en hann mun
sennilega skrifa undir nýjan samning
við Verona.
Fiorentina hefur pláss fyrir tvo
erlenda leikmenn - en hvert lið má
aðeins hafa tvo erlenda leikmenn í
sínum herbúðum - eftir að Daniel
Passarella fór til Inter Mílanó. Fior-
entina hefur áhuga á Hollendingnum
Willem Kieft sem spilar með Pisa og
Englendingnum Paul Rideout sem
spilar með Bari. Rideout og landi
hans Gordon Cowans hafa báðir
spilað með Bari í vetur og gerðu á
sínum tíma tveggja ára samning við
félagið. Bari er hinsvegar á leið í 2.
deild og þá rennur samningurinn
sjálfkrafa út. Hvað Cowans gerir er
ekki alveg vitað en hann hefur lýst
yfir vilja sínum til að vera á Ítalíu
áfram svo framarlega sem ekki komi
freistandi tilboð frá Englandi.
Inter Mílanó mun ekki ætla að
endurnýja samning sinn við Liam
Brady og undirstrika kaupin á
Daniel Passarella frá Fiorentina það.
Þar að auki er Rummenigge áfram
hjá félaginu svo ekki verður um
1 meiri aukningu á þeim bæ. Hvað
Brady gerir er ekki víst en hann mun
vera spenntur fyrir að fara aftur til
Englands og spila þar.
Efsta liðið í deildinni (þegar þetta
er skrifað) Juventus þarf ekki að
hafa áhyggjur af kaupum á erlendum
stjörnum. Platini endurnýjaði samn-
ing sinn við liðið fyrir stuttu og
Daninn Laudrup er aðeins búinn
með eitt af tveimur árum á sínum
samning. Hinsvegar vantar Juventus
þjálfara þar sem Trapattoni hefur
ákveðið að hætta eftir þetta tímabil.
Hann hefur verið við stjórnvölinn
hjá iiðinu í 10 ár.
Áhangendur Napólí munu fá að
fylgjast með goðinu Maradona í
a.m.k. eitt ár enn en ekki er vitað
hvort landi hans Daniel Bertoni
verði áfram en hans samningur renn-
ur út í sumar.
Mark Hateley og Ray Wilkins
verða áfram hjá AC Mílanó sem
hefur fest kaup á nokkrum heima-
mönnum til að aðstoða þá á næsta'
keppnistímabili.
Landsliðsþjálfari ítala, Enzo Be-
arzot, hefur farið þess á leit við
Knattspyrnusambandið að það
stöðvi öll viðskipti með leikmenn
fram yfir HM svo hann geti verið í
algeru næði með sína menn fram að
því. Þeir hafa líka heimsmeistaratitil
að verja svo ekkert má truflajtá.
Ef hinsvegar markaðurinn verður
opnaður aftur strax eftir HM er ekki
gott að segja hvað gerist.
Enzo Bearzot landsliðsþjálfari ítala.
Hann vill frystingu til að geta undir-
búið sjálfa heimsmeistarana fyrir
HM í Mexíkó.
Graeme Souness er nú á förum frá
kvæmdastjóri í Skotlandi.
Sampdoria til að gerast fram-