Tíminn - 15.05.1986, Side 3
Fimmtudagur 15. maí 1986
Tíminn 3
Kaup á notuðum bifreiðum:
T rassaskapur fyrri
eigenda reynist dýr
- ótilkynnt eigendaskipti geta kostað þúsundir
Margir kaupendur notaðra bif-
reiða hafa orðið óþyrmilega fyrir
barðinu á trassaskap fyrri eigenda
varðandi umskráningar á bifreiðum.
Að sögn Guðna Karlssonar for-
stöðumanns hjá bifreiðaeftirlitinu
kemur það fyrir að menn þurfa
jafnvel að greiða hált í verðmæti
bifreiðar, í ógreiddarsölutilkynning-
ar. „Það er mjög mikið um það að
fólk kemur hingað grandalaust og
ætlar að tilkynna eigendaskipti á
bifreiðum, en þá liggja margar til-
kynningar hér hjá okkur og viðkom-
andi verður að greiða þær allar til
þess að fá bílinn á sitt nafn,“ sagði
Guðni.
Gjöld fyrir skráningar á notuðum
bifreiðum hafa hækkað umtalsvert
upp á síðkastið. Það er því fyllsta
ástæða að vara fólk við því að kaupa
notaðar bifreiðar, nema kanna fyrst
hvort gengið hefur verið frá eigenda-
skiptum allt til þess dags að viðkom-
andi kaupir bifreiðina.
Þórarinn Eldjárnsson bílasali sem
Tíminn ræddi við á bílasölu Matthí-
asar sagði að það væri mikið um að
nýir eigendur lentu í þeirri aðstöðu
að greiða fyrir fyrri eigendaskipti og
oft umtalsverðar upphæðir. Hann
benti sérstaklega á að mikið væri um
að bílar sem ekki hefðu verið urn-
skráðir, væru seldir í gegnum bíla-
markað Dagblaðsins og þyrfti fólk
að kynna sér þetta atriði vel áður en
það gengi frá kaupum.
- ES
Aprílhækkanir:
Bílar hækk-
uðu um 3,8%
- Yen og mark hækkaöi
Verð á nýjum bílum hækkaði
að meðaltali um 3,8% frá byrjun
apríl til byrjunar maímánaðar,
samkvæmt útreikningum Hagstof-
unnar á framfærsluvísitölunni.
Samkvæint því hefur t.d. 400 þús.
króna bíll hækkað að meðaltali um
rúmar 15 þús. krónur á einum
mánuði. Þetta olli því aðeinkabíla-
liðurinn í vísitölunni hækkaði í
mánuðinum um 1,5% þrátt fyrir
6,7% verðlækkun á bensíni.
Samkvæmt upplýsingum Hag-
stofunnar var verðhækkunin nokk-
uð misjöfn, eða frá 0-5% eftir
tegundum og framleiðslulöndum.
1 aprílmánuði hækkaði verð á al-
gengustu Evrópugjaldmiðlum og
yeni um 4,5% sem skýrir hækkun
bíiverðsins. _ HEI
íslendingum þykir sopinn góöur:
Landinn drakk
fyriréÖÓmillj.
- fyrstu þrjá mánuði ársins
Tæpar 600 milljónir króna hafa
íslendingar tínt upp úr buddunum
sínum til kaupa á áfengi frá ÁTVR
fyrstu 3 mánuði þessa árs. Áfengis-
sala ÁTVR var 504 milljónir króna
á þessu tímabili. En 17-18% þess
áfengis (85-90 millj.) fer til veitinga-
húsa þar sem það u.þ.b. tvöfaldast í
verði þannig að heildarsöluverðið
verður hátt í 600 millj. Til fróðleiks
má t.d. geta þess að fyrir þær u.þ.b.
10,5 milljónir lítra af nýmjólk sem
þjóðin hefur keypt á sama tímabili
hefur hún þurft að greiða um 370
millj. króna, eða tæplega Vi á við
„brjóstbirtuna".
Söluaukningin frá sama tímabili
1985 er um 28,6%. Magns er ekki
getið í skýrsium áfengisvarnarráðs.
En áfengish'ður framfærsluvísi-
tölunnar hefur aðeins hækkað unt
12,6% frá febr. 1985 til febr. 1986,
sem ætti að gefa nokkurn saman-
burð.
Þótt meðalaukningin sé 28,6% er
aukningin mjög mismunandi milli
einstakra útsölustaða ÁTVR.
Lang mest söluaukningin hefur
orðið á Selfossi, 42,4%. Einnig tölu-
vert umfram meðaltalið í Vest-
mannaeyjum með 39,4% aukningu
og Akranesi með 35,4%. Siglfirðing-
ar hafa aftur á móti aukið áfengis-
kaupin lang minnst, aðeins 20,7%
milli ára. Aukningin í Reykjavík,
þar sem 70% allrar áfengissölu þjóð-
arinnar fer fram, er aðeins undir
landsmeðaltalinu eða 27,8% frá
fyrsta ársfjórðungi 1985 til sama
tíma í ár.
- HEI
Alfreð á f undi hjá SKÝRR
Nú er sá tími sem frambjóðendur í bæjarstjórnarkosningunum heimsækja vinnustaði og kynna stefnu sína og
flokks síns. Þessi mynd var tekin þegar Alfreð Þorsteinsson, sem skipar 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í
Reykjavík, heimsótti Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar í hádeginu í gær. Tímamynd -Svcrrir
HVERS VEGNA
FRAMSÓKNARFLOKKINN?
Sigrun Magnúsdóttir,
kaupmaður
• Framsóknarflokkurinn er félagshyggjuflokkur
• Framsóknarflokkurinn er samvinnuflokkur
• Framsóknarflokkurinn er flokkur fólks á öllum aldri
Sveinn Grétar Jónsson, Helgi S. Guðmundsson,
Guðrún Einarsdóttir,
kennari
Pruður Heigaaonir,
iðnverkakona
Hallur Magnússon, nemi Margeir Danielsson,
framkvæmdastjóri
Alfreð Þorsteinsson,
forstjóri
Dr. Þór Jakobsson,
veðurfræðingur
ÞAU SKIPA 10 EFSTU SÆTIN Á B LISTANUM í REYKJAVÍK