Tíminn - 15.05.1986, Síða 5
Fimmtudagur 15. maí 1986 Tíminn 5
.11....... n«n '""I!!, ; ... .... .......... ....... ... ............ ■-'"Illllllillil;. ..
Gorbatsjov í sovésku sjónvarpi í gærkvöldi:
Kjarnorka úr böndum
Sovétleiðtoginn taldi slysið hið alvarlegasta -
Tilraunabann með kjarnorkuvopn framlengt
Moskva-Reuter
Mikhail Gorbatsjov leiðtogi Sovét-
ríkjanna sagði ígær að kjamorkuslys-
ið í Tsjernóbíl hefði í fyrsta skipti
sýnt mannkyninu kjarnorku sem
hefði farið úr böndunum. í ræðu
:sinni í gær tilkynnti Gorbatsjov
einnig um nýtt bann á kjarn-
orkuvopnatilraunir í Sovétríkjunum
og mun það standa fram til 6. ágúst
næstkomandi.
„Óhapp hefur hent okkur - slysið
í Tsjernóbíl kjarnorkuverinu,“ sagði
Gorbatsjov í sjónvarpsræðu til þjóð-
arinnar og var þetta í fyrsta sinn sem
hann ræddi opinberlega um slysið í
Tsjernóbíl.
Gorbatsjov varði meðhöndlun
stjórnvalda á slysinu og sagði upp-
lýsingar hafa verið gefnar sovéskum
almenningi um leið og þær höfðu
verið staðfestar. Leiðtoginn varði
nokkrum tíma í að skamma vestræna
fjölmiðla og vestrænar ríkisstjórnir
sem hann sagði hafa haft í frammi
mikla lygaherferð á hendur Sovét-
ríkjunum.
Tilraunabannið með kjarn-
orkuvopn sem Gorbatsjov tilkynnti
um þýðir að í ágústmánuði munu
Sovétmenn ekki hafa gert tilraunir
með kjarnorkuvopn í heilt ár. Sovét-
leiðtoginn endurnýjaði einnig í
ávarpi sínu áskorun til Reagans
Bandaríkjaforseta um að hitta sig
hið snarasta til að ræða kjarn-
orkuvopnabann. Vestrænir
embættismenn töldu bannið gert til
að betrumbæta ímynd Sovétríkj-
anna erlendis eftir slysið í Tsjernóbíl
og meðhöndlunina á því.
Þá gaf Gorbatsjov fyrstu opinber-
legu staðfestinguna á því að upphaf-
lega sprengingin í Tsjernóbíl hefði
orðið til vegna gufu sem myndaði
vatnsefni og hefði þetta ferli farið úr
böndunum.
Afleiöingar kjarnorkuslyssins í Tsjernóbíl:
Finnsk stjórnvöld
ráðleggja bílþvott
Benda einnig bændum á að gefa búfén-
aði sínum innandyra
Helsinki-Reuter
Finnsk stjórnvöld ráðlögðu í gær
bílstjórum vöruflutningabifreiða
þeirra sem koma frá Sovétríkjun-
um að þvo trukkana vel og vand-
lega áður en þeir héldu yfir til
Finnlands. Sögðu yfirvöldin þetta
nauðsynlegt til að losna við alla
mengun frá Tsjernóbíl kjarnorku-
verinu og hótuðu að stöðva
óþvegna vörutrukka við landamær-
in.
Engin lönd hafa sett bann á
vörur frá Finnlandi en yfirvöld
óttast að fréttir um geislamengun í
landinu geti átt eftir að hafa alvar-
legar afleiðingar, sérstaklega hvað
varðar útflutning á matvælum.
Nú þegar hafa finnsk fyrirtæki
tilkynnt um áberandi tregðu á sölu
finnsks osts á Bandaríkjamarkaði.
Einnig hafa margir bandarískir
ferðamenn hætt við Finnlandsför
sem þeir sameina oftast með heim-
sókn til Sovétríkjanna.
Landbúnaðarráðuneytið finnska
hefur ráðlagt bændum að gefa
búfénaði sfnum innandyra og
hleypa ekki kúm sínum á beit fyrr
en þann 26. maí en þá ætti geislun
í grasi að vera orðin algjörlega
hættulaus.
Stríðsglæpamað-
urinn Artukovic:
Dæmdur
til
dauða
Zagreb-Reuter
Dómstóll í Júgóslavíu dæmdi í
gær Andrija Artukovic til dauða
eftir að hafa fundið hann sekan um
fjóra stríðsglæpi. Artukovic, sem nú
er 86 ára gamall, var einn af leiðtog-
um leppstjórnar nasista í Króatíu á
stríðsárunum.
Júgóslavneskir lögfræðingar
bjuggust þó við að dómurinn yfir
Artukovic yrði mildaður en hann
hefur fimmtán daga til að áfrýja
dauðadómnum.
Artukovic var innanríkisráðherra
í fasistastjórn þeirri sem sett var á
stofn í Króatíu árið 1941 og hafði
náið samstarf við Þjóðverja og ítali
í síðari heimsstyrjöldinni. Fasista-
stjórnin, eða „Ustasha“ eins og hún
nefndist, var ábyrg fyrir morðum á
meira en 900 þúsund almennum
borgurum og herföngum.
Dómstóllinn fann Artukovic sek-
an um að hafa verið einn af skipu-
Ieggjendum útrýmingarbúðanna í
Króatíu en það var opinber stefna
fasistastjórnarinnar að útrýma þeim
gyðingum, serbum og sígaunum sem
í náðist.
Stríðsglæpamaðurinn, sem fram-
seldur var frá Bandaríkjunum, er
eini háttsetti yfirmaður Ustasha sem
færður hefur verið fyrir rétt. Hinir
eru allir horfnir af sjónarsviðinu.
Ummerkin eftir loftárns Bandaríkjamanna á Líbýu voru ekki fögur en sitthvað er að ráðast á Libýu og Sýrland.
Forseti Arababandalagsins:
Arás á Sýrland
ekki óhugsandi
Varar viö afleiöingum slíkrar árásar
Chedli Klibi forseti Arababanda-
lagsins sagði í gær að Sýrlendingar
gætu átt von á árás en aðvaraði þau
lönd sem „hefðu völd til að snúa
hlutum til verri vegar“ í Mið-Austur-
löndum við afleiðingum slíkrar árás-
ar.
Hann átti hér greinilega við ísrael
og Bandaríkin en síðarnefnda ríkið
gerði árás á Líbýu og réttlætti hana
með að Líbýustjórn styddi við bakið
á hryðjuverkamönnum.
Klibi hélt blaðamannafund í
Moskvu í gær eftir þriggja daga
viðræður við æðstu leiðtoga Sovét-
ríkjanna. Þar sagði hann að ef gerð
yrði árás á Sýrland myndi hún hafa
alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi í
Mið-Austurlöndum og samband
arabaríkjanna og þeirra landa er
styddu slíka árás.
Klibi sagðist hafa átt viðræður við
Svindl og svínarí:
Sementsverksmiðja varð að
Tsjernóbíl kjarnorkuverinu
Róm-Reuter
RAI, hin ríkisrekna sjónvarps-
stöð á Ítalíu, hefur viðurkennt að
filmubútur sem sjónvarpsstöðin
sýndi og átti að vera af eldinum í
Tsjernóbíl kjarnorkuverinu var í
raun mynd frá sementsverksmiðju
í Tríest.
Talsmenn sjónvarpsstöðvarinn-
ar sögðu mistökin hafa uppgötvast
þegar sjónvarpsáhorfendur frá
Tríest í Norður-Ítalíu fóru að
hringja til stöðvarinnar í tugatali.
Bar þeim öllum saman um að
myndin væri frá sementsverk-
smiðju staðarins en ekki frá Tsjern-
óbíl.
RAI mun upphaflega hafa hafn-
að filmubútnum á þeim forsendum
að myndirnar væru frekar móðu-
kenndar og líktust ekki svo mjög
Tsjernóbíl kjarnorkuverinu.
Myndirnar voru hinsvegar
keyptar af Alþjóða sjónvarpsstofn-
uninni sem síðan dreifði þeim út til
RAI og bandarísku stöðvanna
NBC og ABC. Allar þessar stöðvar
notuðu filmubútinn í fréttaútsend-
ingum sínum.
Hin opinbera fréttastofa Ítalíu,
ANSA, sagði júgóslavneskan bor-
gara líklega vera ábyrgan fyrir
svindli þessu. Sá kappi sagðist hafa
tekið myndirnar þegar hann var í
fríi í Kænugarði.
Eduard Shevardnadze utanríkisráð-
herra og Andrei Gromyko forseta
og hefði hann rætt við þá um
Palestínuvandamálið og styrjöld ír-
ana og íraka. Hann ásakaði vestræna
fjölmiðla um að rugla saman hryðju-
verkum og réttlátri baráttu fólks
fyrir þjóðarrétti sínum og benti sér-
staklega á Palestínuaraba í þessu
sambandi.
í frétt blaðsins „The Jerusalem
Post“ í síðasta mánuði kom fram að
varnarmálaráðuneytið ísraelska tel-
ur ekki ólíklegt að til átaka eigi eftir
að koma milli ísraela og Sýrlendinga
áþessu ári. Sambúð ríkjanna tveggja
hefur farið versnandi að undanförnu
og einnig hafa Sýrlendingar verið
ásakaðir um að styðja við bakið á
hryðj uverkamönnum.
(Byggt á Reuter og The Jerusalem Post)
Alþjóða heilbrigöis-
málastofnunin:
Reykingar drepa
meira en milljón
manns árlega
Genf-Reuter
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
(WHO) hvatti í gær til aukinnar
baráttu gegn reykingum sem sagðar
voru drepa að minnsta kosti milljón
manns árlega.
Á árlegri ráðstefnu WHO var
einróma samþykkt yfirlýsing þess
efnis að reykingar gætu valdið
krabbameini og að vísindalegt sam-
band væri milli reykinga og annarra
alvarlegra sjúkdóma.
Hin 166 ríki sem aðild eiga að
WHO voru hvött til að hefja herferð
sem hefði það að markmiði að
útrýma reykingum fyrir næstu alda-
mót. Bent var á að fræðsla í skóla-
kerfinu og aukið upplýsingaflæði um
hættur reykinga væru baráttuaðferð-
ir sem mikið gildi hefðu.
í skýrslu sem ráðstefnugestirnir
fengu voru reykingar sagðar vera á
undanhaldi í flestum iðnaðarríkjun-
um. Hinsvegar færu reykingar vax-
andi meðal íbúa ríkja þriðja heims-
ins þar sem tóbaksfyrirtækin svifust
einskis í áróðri sínum.
Vélaeigendur:
TAKIÐ EFTIR!!!
Eigum fyrirliggjandi eða útvegum
með stuttum fyrirvaraeftirfarandi:
x Alla helstu varahluti fyrir
Caterpillar og Komatsu
vinnuvélar.
x Beltakeðjur og aðra
undirvagnshluti í allar gerðir
beltavéla.
x Slitstál, skerablöð og
tannarhorn fyrir jarðýtur og
veghefla.
x Riftannaodda fyrir jarðýtur.
x Spyrnubolta og skerabolta
allar stærðir.
x Stjórnventla og vökvadælur
fyrir 12/24 volta kerfi.
x Slitplötur og aðra varahluti í
mulningsvélar.
x Hörpunet allar stærðir fyrir
malarhörpur.
x Færibönd og varahluti í
færibönd.
x Drifkeðjurogfæribandakeðjur
fyrir verksmiðjur og
landbúnaðarvélar. Einnig fyrir
lyftara, vökvakrana, rafstöðvar,
loftpressur, götusópa,
dráttarvélar og flutningatæki.
ALLT Á EINUM STAÐ:
Og við teljum niður
verðbólguna hraðar en margir
aðrir.
VÉLAKAUP H/í=
Sími641045