Tíminn - 15.05.1986, Síða 14
14 Tíminn
Fimmtudagur 15. maí 1986
FRAUGDE
PLÓGAR
„>«>• CV, '
Dönsk framleiðsla byggð á margra ára
reynslu bænda í Skandinavíu.
Tví og þrískerar.
BOÐI
S
F
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Innritun fyrir skólaárið 1986-1987.
Innritun fer fram dagana 2.-5. júní, að báðum
dögum meðtöldum. Innritað verður í eftirtalið nám:
1. Samningsbundið iðnnám.
2. Grunndeild málmiðna.
3. Grunndeild tréiðna.
4. Grunndeild rafiðna.
5. Grunndeild háriðna.
6. Grunndeild fataiðna
7. Grunndeild bókiðna.
8. Framhaldsdeild í vélvirkjun og rennismíði.
9. Framhaldsdeild í rafvirkjun og rafvélavirkjun.
10. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun.
11. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun
12. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði.
13. Framhaldsdeild í húsasmíði.
14. Framhaldsdeild í hárgreiðslu.
15. Framhaldsdeild í hárskurði.
16. Framhaldsdeild í bókiðnum.
17. Fornám.
18. Almennt nám.
19. Tækniteiknun.
20. Meistaranám.
21. Rafsuðu.
22. Tölvubraut
23. Tæknifræðibraut.
24. Öldungadeild í bókagerðargreinum.
25. Öldungadeild í grunnnámi rafiðna og rafeinda-
virkjun.
Innritun fer fram í Í.R. frá kl. 10.00-18.00 alla
innritunardagana og í Miðbæjarskólanum 2. og 3.
júní.
I.R.
Frá Menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður
Staða skólastjóra við Myndlista- og handíðaskóla
íslands er laus til umsóknar.
Við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi eru
lausar stöður kennara í eðlisfræði, stærðfræði,
tölvufræði og sálfræði (hlutastarf).
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 105 Reykjavík fyrir 10. júní næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
Frá Höfn í Hornafirði:
50 MILUÓNA TAP
Á KAUPFÉLAGINU
Meginástæður tap á fiskvinnslu og verslun,
ásamt háum fjármagnskostnaði
Frá Höfn í Hornafirði.
Þær fréttir bárust nýlega að Kaup-
félag Austur-Skaftfellinga á Höfn í
Hornafirði hefði verið gert upp með
50 millj. kr. tapi á síðasta ári.
Kaupfélagið er stærsti vinnuveitandi
á staðnum, greiddi rúmlega 1100
manns laun á síðasta ári og hafði að
meðaltali hátt á fjórða hundrað
manns í vinnu. Velta þess nam
rúmum milljarði króna á árinu.
Starfsemi þess er margþætt, en m.a.
rekur félagið allmargar verslanir,
stóra fiskvinnslustöð, sláturhús og
kjötvinnslu, mjólkursamlag, brauð-
gerð, fóðurstöð fyrir loðdýr og ann-
ast vöruflutninga. Umtalsverður
rekstrarhalli á þessum atvinnurekstri
er því stórmál sem snertir alla íbúa
í byggðarlaginu.
Nánar til tekið er þessu þannig
háttað að rekstrartekjur félagsins
nániu 1.037,6 milljónum, en rekstr-
argjöld samtals voru 1.003,9 millj.
Fjármagnsgjöld nettó voru 81,2
millj., og þar af voru vaxtagjöld,
verðbætur og gengistap 139,0 millj.
samanborið við 89,0 millj. 1984. Við
þetta bætast svo opinber gjöld og
fleira, svo að niðurstöðutala rekstr-
arreiknings félagsins er tap að upp-
hæð 50,1 millj.
Um helmingur af þessu er tap á
rckstri fiskvinnslunnar, en rekstrar-
halli hennar var 24,1 milij. Verslun
félagsins var einnig rekin með halla
sem nam 2,1 milijón. Á öðrum
greinum var hallinn minni, en engin
þeirra náði þó að skila neinu sem
nemur upp í sameiginlegan kostnað
félagsins. Þar er um að ræða skrif-
stofukostnað og ýmsa aðra sameigin-
lega kostnaðarliði sem ekki hefur
verið skipt niður á einstakar rekstr-
argreinar, er þeim er ætlað að standa
undir í sameiningu. Sá kostnaður
var 20,7 mihjónir.
Hermann Hansson kaupfélags-
stjóri ræddi þessi mál ýtarlega í
skýrslu sinni á nýafstöðnum aðal-
fundi félagsins. Hann gat þess m.a. að
veltuaukning í verslunum þess hefði
aðeins verið 25,6% sem væri augljós
minnkun þar sem verðbólga hefði
verið rösklega 30% á milli ára.
Ástæður þessa taldi hann m.a. sam-
drátt í framkvæmdum, fækkun að-
komufólks og samdrátt í ferða-
mannastraumi um héraðið. Við
þessu taldi hann óhjákvæmilegt að
bregðast með því meðal annars að
minnka breidd í vöruvali og draga
saman í vörubirgðum.
Um fiskvinnsluna gat hann þess
að afkoma hennar hefði ekki verið
jafnslæm og nú síðan árið 1978.
Þetta stafaði að stærstum hluta af
gengisþróun síðasta árs, en þá lækk-
aði dollarinn þannig að einungis
3,7% fleiri krónur fengust fyrir hann
í lok ársins heldur en í byrjun þess.
Samfara þessu hækkuðu Evrópu-
myntir, sem aftur hafði áhrif til
hækkunar á SDR gjaldmiðilseining-
unni.Það olli því að afurðalán urðu
mun dýrari heldur en verið hefði ef
þau hefðu verið reiknuð í sömu
mynt og afurðirnar eru seldar í, þ.e.
í Bandaríkjadollar. Þessi hækkun
olli þvf að greiða þurfti 12% fleiri
fslenskar krónur fyrir hverja SDR
einingu í októberlok heldur en í
ársbyrjun.
Þá hafði það einnig sín áhrif á
rekstur fiskvinnslunnar að allmiklar
almennar verðhækkanir urðu innan-
lands í kjölfar um 30% verðbólgu.
Þar á meðal urðu hækkanir á fisk-
verði og vinnulaunum, og athygli
vekur að á sama tíma og framleiðslu-
verðmæti afurðanna hækkaði um
50% hækkaði andvirði hráefnisins
um 66%. Hermann gat þess sérstak-
lega til skýringar á þessu að framlegð
fiskvinnslunnar hefði aðeins orðið
25,1% á móti 31,6% árið 1984. Þar
að auki valda skreiðarbirgðir félags-
ins verulegum vanda, en telja má að
beinn og óbeinn kostnaður vegna
þeirra á síðasta ári hafi ekki numið
minnu en 5 milljónum króna.
Hermann vék einnig að afkomu
annarra fyrirtækja með svipaðan
rekstur og sagði m.a.:
„Af þeim upplýsingum, sem ég
hef fengið um rekstraruppgjör ým-
issa annarra fyrirtækja, er ekki um
neitt einsdæmi að ræða hjá okkur að
taprekstur skuli hafa verið á síðasta
ári. Það virðist vera mjög víða hjá
fyrirtækjum með svipaða starfsemi,
bæði kaupfélögum og fiskvinnslufyr-
irtækjum. Hins vegar er Ijóst að
taprekstur annarra fyrirtækja gerir
okkur ekkert léttara fyrir, heldur
sannar okkur einungis að hér er að
einhverju leyti um almennan vanda
að ræða.“
-esig
Frá aðalfundi Kaupfélags Héraðsbúa:
930 MILUÓN
KRÓNA VELTA
en 14 milljóna peningalegt tap
Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöð-
um hélt aðalfund sinn 3. maí. Á
fundinum kom m.a. fram að heildar-
velta félagsins á síðasta ári var 930
milljónir króna. Tap varð á rekstri
félagsins, og var beint peningalegt
tap 14 milljónir, en bókhaldslegt tap
28 milljónir.
Þorsteinn Sveinsson kaupfélags-
stjóri sagði í samtali við blaðið að
ein helsta ástæða þessa taps væri
minnkandi velta, sem ekki hefði náð
verðbólgustiginu. Þetta taldi Þor-
steinn að stafaði ekki síst af minni
ferðamannastraumi austur á síðasta
ári en oft áður, sem aftur hefði orðið
vegna þess hve veðurlag þar hefði
verið óhagstætt í fyrra. Líka hefði
þarna átt hlut að máli feiknalega
mikið aukinn fjármagnskostnaður.
Einnig hefði söluskattur hækkað
tvívegis á árinu, og félagið hefði
ekki hækkað vörubirgðir sínar upp
sem því svaraði en hins vegar þurft
að borga skattinn. Þá sagði hann að
við þetta hefði bæst það að tap hefði
orðið á báðum frystihúsum félagsins.
Þau eru á Reyðarfirði og Borgarfirði
eystri, en tap félagsins á þeim báðum
var um 7 milljónir króna.
Tveir stjórnarmenn í félaginu
hættu á þessunt fundi, þeir Steinþór
Magnússon, sem verið hefur for-
maður þess undanfarin 17 ár, og
Ingimar Sveinsson sem fluttur er af
félagssvæðinu. í stað þeirra voru
kosin Jón Kristjánsson alþm. og
Þórdís Bergsdóttir frá Seyðisfirði.
Er hún fyrsta konan sem tekur sæti
í stjórn Kf. Héraðsbúa.
Fundurinn samþykkti ályktun þar
sem skorað er á stjórnvöld að vinna
að hafnargerð á Borgarfirði eystri.
Félagsmenn í Kaupfélagi Héraðsbúa
eru 1031. -esig