Tíminn - 28.05.1986, Síða 13
Tíminn 13
Miövikudagur 28. maí 1986
Tekjur: 168.ÍMK) frankar á ári (um
80.500 kr. á mán.), fyrir fullt starf og
yfir\'innu Alain, sem er rennismiður í
Renault bílaverksmiðju rétt utan við
París og fullt starf Odile, sem vinnur
við vélritun í fasteignasölu. Þau fá
auk þess 3.500 kr. í barnabætur. á
mánuði
Heimili: Fjögurra herbergja hús í
litlu þorpi um 70 km frá París, sem
þau keyptu fyrir 285 þús. franka (um
1.640 þús. kr.) Afborgun og vextir
eru um 5 þús. frankar, eða tæp 29
þús. kr. á mánuði sem er um 36% af
heildar fjölskyldutekjunum. Þau
hafa sjónvarp, hljómflutningstæki
og heimilistölvu.
Bíll: Hann er á gömlum Renault 4,
sem vinur hans gaf honum, en hún á
Renault 14.
Matur: Matarreikningurinn er rúm
16 þús. kr. á mánuði. Pau sögðust
hafa góðan mat og kaupa 3-4 vín-
flöskur á viku.
Frístundir: Alain hefur gaman af
fiskveiðum og eyðir í þær um 6.500
krónum á ári. Odile hefur gaman af
sjónvarpinu, sonurinn stundar fót-
bolta en dóttirin er í danstímum í
skólanum. Veitingahúsa- og leikhús-
ferðir lögðust af þegar þau keyptu
húsið.
Sumarfrí: Prátt fyrir 5 vikna sumarfrí
hafði fjölskyldan á síðasta ári ckki
efni á meira en hálfs mánðar tjald-
ferðalagi, sent greitt var niöur af
bílaverksmiðjunni.
Ýmislegt: Að búa úti á landi kostar
þau m.a. um 5 þús. krónur í bensín
á mánuði og tæp 3 þús. kr. í
ferðakostnað fyrir krakkana í
skólann. Odiel lætur sig komast af
með um 1.200 í fatapeninga á mán-
uði, en krakkarnir fá töluvert af
notuðum fötum af frændum og
frænkum. Alain segir: „Eftir ferð til
Bretlands hcld ég að það sé ekki
mikill mismunur á afkomu fólks,
nema Itvað kaupgeta Breta er minni.
Við höfðum það betra áður en við
keyptum húsið og raunar er ég
heldur svartsýnn á framtíðina."
Breska fjölskyldan: Paul Pierpoint
(36), Patricia (34), Claire (8) og
Samantha (7 ára).
Tekjur: 8.640 pund á ári (44.900 kr.
á mán.) fyrir vinnu Pauls við færi-
band í Auslin-Rover bílaverksmiðj-
unni og 40% vinnu Patriciu sem
ritari í tryggingafyrirtæki. Auk þess
fá þau um 3.660 kr. í barnabætur á
mánuði.
Heimili: Fjögurra herbergja hús
skammt frá bílaverksmiðjunni sem
kostaði 30.000 pund (1,9 millj. kr.)
Afborgun og vextir cru um 6.900 kr.
á mánuði. Pau hafa’ þvóttável,
sjónvarp, video og hljómflutnings-
tæki og börnin heimilistölvu. Engar
mánaðargreiðslur vegna atborgun-
arkaupa.
Bfll: 10 ára gamall Austin-mini, sem
kostaði 75 þús. kr.
Matur: Til matarkaupa fara 170-195
pund á mánuði (c.a. 11-12 þús. kr.).
Þau fara saman út að borða 3-4
sinnum á ári og bjóða skyldfólki
stundum heim í mat.
Frístundir: Dæturnar fara í ballett-
tíma tvisvar í viku og fara stundum
í sund. Paul fer á bar og fær sér í glas
með mági sínum hvert föstudags-
kvöld, en einnig hefur hann gaman
af veiðum. Hvorugt hjónanna reykir.
Sumarfrí: Fjölskyldan skreppur í 2ja
vikna ferð til Devon og Cornwall á
eigin vegum, sem allt f allt kostar um
400 pund (25 þús. kr.). Þau hafa
aldrei farið til útlanda.
Ýmislegt: Dæturnar fá um 125 kr.
vasapeninga á viku. Hjónin sögðu:
„Okkur líður vel og njótum góðrar
afkomu. Það er mannlegt eðli að
langa alltaf í eitthvað meira en
maður hefur, en við erum ánægð
með að njóta suntarleyfisins í hcima-
landinu. Auðvitað væri gott að hafa
stærri bíl, en við höfum nýlega keypt
húsið. Kannski við séum bara í eðli
okkar fremur ánægt fólk.“.
ítalska fjölskyldan: Assunta (37) og
Giulio Posella (40), María (17),
Antonio (15) og Caterina (18 ára).
Laun: Alls 19.535.040 lírurá ári (um
43.400 kr. á mán.) fyrir fulla vinnu
og yfirvinnu Guilio, sem er verk-
stjóri á færibandi í Fiatbílaverk-
smiðju í Turin og hálft starf Assunta
sem eftirlitsmaður í skóla.
Heimili: Fjögurra herbergja leigu-
íbúð í 9 hæða blokk í Turin. Leigan
er rúmlega 3 þús. kr. á mánuði.
Sjónvarpið er 10 ára gamalt svart
hvítt. Þau eru ekki með neinar
mánaðarlegar afborganir.
Bfll: Fiat 127 sem „hefur séð betri
daga“, um 37 þús. króna virði.
Matur: Matarútgjöldin 725 þús. lírur
(um 19.400 kr.) á mánuði. Hann
hefur niðurgreitt fæði á vinnustað
Fjölskyldan borðar aldrei úti.
Frístundir: Að mestu eytt fyrir fram-
an sjónvarpið. Þau fara aðeins ein-
staka sinnum í boð, en aldrei á bíó
eða í leikhús. Hann hefur gaman af
smíðum en hún af gönguferðum upp
í fjöllin. Krakkarnir skreppa stöku
sinnum á hamborgarastaði og María
fór á sundnámskeið á síðasta ári.
Giulio reykir pakka á dag.
Sumarfrí: Fjölskyldan hefur aldrei
komið til útlanda. í ágúst dvelja þau
3-4 vikur hjá skyldfólki sínu.
Ýmislegt: Giulio fær aukamánaðar-
laun í júlt' og desember, scm varið er
til kaupa á gjöfunt og jólamat. Scm
dæmi um verð netndu þau um 6 þús.
krónur fyrir jakkaföt eða kápu og
um 1.900 kr. fyrir par af skóm.
Giulio sagði: „Við höfum ekki yfir
neinu að kvarta, en dreyntir um að
eignast eigið hús með smá garði og
nokkur ný húsgögn, en vitum að það
er útilokað að láta hann rætast. Við
vildum flytja sunnar þar sem veðrátt-
an er betri, en þar er enga vinnu að
fá. Við höfum alltaf verið leigjendur
- bærinn á þessa íbúð. Þó Fiat gefi
okkur afslátt af nýjum bíl höfum við
ekki efni á að borga af honum. Allt
sem við getum sparað fer til fata-
kaupa og í sumarfríið.
Spænska fjölskyldan: María (38) og
Jose Luis Morillas (38), Roberto
(14) og Selia (10 ára).
Tekjur: Um 1.809.600 pesetar á ári
(43.500) kr. á mán.) fyrir fullt starf
og yfirvinnu Jose sem er vélvirki í
Ford bílaverksmiðju nálægt Valens-
ia. Maria hefur unnið sem hjúkrun-
arkona en cr ckki í starfi núna.
Heimili: Fjögurra herbergja blokk-
aríbúð sent þau keyptu fyrir 9 árum.
Mánaðarlegar afborganir og vextir
eru nú um 9.000 pesetar (2.600 kr.).
Þau hafa sjónvarp, hljómflutnings-
tæki, þvottavél og frystikistu.
Bfll: Ford Orion sem kostaði um 275
þús. fyrir hálfu öðru ári, sem þau
borga af um 4.200 kr. á mánuði.
Matur: Matarreikningurinn er um
12.900 kr. á mánuði. Þau borða úti
með vinum 1-2 í mánuði, en bjóða
þeim aldrei heim í mat. Þau fá sér
vín með matnum þegar þau borða
úti.
Frístundir: Jose fer á akurhænu og
héraskytterí og á silungsveiðar.
Sonurinn fer í útilegur en dóttirin
stundar skólasport. Þau fá ekki
nema um 50 kr, í vasapeninga á
viku.
Sumarfrí: Helminginn af ntánað-
arsumarfríi notar fjölskyldan til
heimsókna á einhverja aðra staöi á
Spáni. Hinum helmingnum verja
þau hjá foreldrum hjónanna. Sumar-
frísútgjöldin áætla þau um 37 þús.
kr. á ári.
Ýmislegt: Til fatakaupa ver fjöl-
skyldan um 30 þús. krónum á ári,
mest á börnin. Til gjafa fara um 4.400
kr. á ári. Jose sagði: „Eg held að við
njótum betri afkomu en verka-
mannafjölskyldur gera yfirleitt, en
við höfum þó ekki efni á „pakka-
ferð“ til útlanda eins og Englending-
ar gera gjarnan. Ég býst einnig við
að félagsleg þjónusta sé betri í
Bretlandi en hér.“ María bætir við:
„Öll höfum við okkar drauma - ntig
langar t.d. í smá sumarbústað. Ég er
heldur ckki hrifin af umhverfinu
hér, en verðlagið hækkar stöðugt
svo það yrði erfitt að flytja á betri
stað.“
Sambyggðir hverfisteinar
og smerglar
150 mm steinn Kr. 5.290,- m. sölusk.
200 mm steinn Kr. 7.428,- m. sölusk.
Dönsk gæðavara
Heildsölubirgðir
— ■* ? « am mm t_1_11 _ ______Li_ .. _ ___
■ \M ■ VELAVERSLUN
Bíldshöföi 18, 112 Reykjavík. Sími 685840
Laus
Embætti skattstjóra Noröurlandsumdæmis eystra,
er laust til umsóknar og veitist frá 1. júlí 1986.
Umsækjandi skal hafa lokiö prófi í lögfræöi,
hagfræði eða viðskiptafræði eða vera löggiltur
endurskoðandi eða hafa aflað sér sérmenntunar
eða sérþekkingar um skattalöggjöf og framkvæmd
hennar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist tekjudeild fjármálaráðuneytis,
merktar „staða 260“ fyrir 10. júní 1986.
r»n
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar að Dvalar- og skjúkradeild Horn-
brekku Ólafsfirði. Umsóknarfrestur til 10. júní
1986. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
96-62480 eða á kvöldin í síma 96-62257.
t
Bróðir minn
Sigfús Kristjánsson
frá Innra Leiti Skógarströnd
dvalarheimilinu Höfða Akranesi lést 16. þessa mánaðar, Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda.
Kristjana Kristjánsdóttir