Tíminn - 28.05.1986, Síða 16
Kosningaskrifstofur
Framsóknarflokksins
í Reykjaneskjördæmi
Framsóknarfólk sem vill taka þátt í kosningastarfi, hafiö samband viö
viökomandi kosningaskrifstofur.
Kópavogur
Hamraborg 5, opin daglega frá kl. 10-12 og 14-22. Sími 41590.
Garðabær - Goðatúni
Kosningaskrifstofan er opin virka daga kl. 17.00-19.00 um helgar kl.
14.00-16.00 og öll kvöld. Sími 46000.
Frambjóðendur eru til viðtals á opnunartíma.
Hafnarfjörður
Hverfisgötu 25, verður opin virka daga J<l. 14.00 til 18.00 og 20.30 til
22.00, sími 51819 og 651958.
Grindavík
Suðurvör 13.
Kosningasímar 8410 og 8211.
Kosningastjórar: Kristinn Þórhallsson, sími 8022 og Svavar Svavars-
son, sími 8211.
Keflavík
Austurgötu 26. Opin mánudaga til laugardaga frá kl. 16.00-18.00 og
frá kl. 20.00 til 22.00 en þá verða frambjóðendur flokksins til viðtals.
Miðnes
Hjallagötu 7, sími 7420. Skrifstofan er opin öll kvöld frá kl. 20.00 og
á kjördag frá kl. 8.00. Frambjóðendur og sveitarstjórnarfulltrúi
B-listans eru til viðtals á skrifstofunni.
Kosningastjórar: Óskar Guðjónsson og Jón Frímannsson.
Seltjarnarnes
Eiðistorgi 17 2. hæð símar 615214, 615441 og 616380.
Skrifstofan er fyrst um sinn opin kl. 71.00 til 19.00 virka daga og 15.00
til 19.00 laugardaga og sunnudaga.
Njarðvík
Holtsgötu 49, alla virka daga frá kl. 18.00 til 22.00 og 14.00 til 18.00
laugardag og sunnudag. Sími 4634 og 4435.
Stuðningsmenn eru beðnir að athuga hvort þeir séu á kjörskrá.
Heitt á könnunni. - Lítið inn.
Kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins Akranesi
Kosningaskrifstofa Framsóknarfélaganna á Akranesi opin daglega
frá kl. 14.00 til 22.00.
Heitt á könnunni. Komið og fylgist með kosningastarfinu. Símar 2050
og 3248.
Kosningaskrifstofa
B-listans á Seyðisfirði
Öldugötu 11 efri hæð opið öll kvöld frá kl. 20.00 til 23.00 og 16.00 til
19.00 um helgar sími 2107.
Kosningastjóri Gunnar Sigurðsson - heimasími 2478.
Framsóknarflokkurinn á Seyðisfirði.
Kosningaskrifstofa
B-listans ísafirði
Opið daglega frá kl. 13.00 til 18.00 og á kvöldin, sími 4316 og 3690.
Alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarflokkurinn ísafirði.
Kosningastofa
Framsóknaflokksins Suðurlandi
Kosningaskrifstofa fyrir allt kjördæmið verður opin að Eyrarvegi 15
Selfossi allan maí mánuð frá kl. 15.00-19.00 virka daga sími 99-2547
og hafið samband.
Allir velkomnir.
Kosningaskrifstofa Framsóknar-
flokksins Hornafirði
Opnuð hefur verið kosningaskrifstofa í húsi Slysavarnafélagsins. Hún
er opin öll kvöld og um helgar sími 97-8135. Kosningastjórar
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Sverrir Aðalsteinsson og Sverrir Guðna-
son.
Framsóknarfélag Hornafjarðar
Selfossbúar
Opið hús á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 18.00 og 19.00 að
Eyrarvegi 15.
Komið og ræðið málin.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss
16 Tíminn
DAGBÓK
Miðvikudagur 28. maí 1986
Hljómsveitin Hálft í hvoru eins og hún er nú skipuð.
„Hálft í hvoru“
- tónleikar á Borginni
Hljómsveitin „Hálft í hvoru" heldur
tónleika á Hótel Borg í kvöld, miðvikud.
28. maí kl. 21.30. Tilefnið er útkoma
nýrrar hljómplötu og heitir hún Götu-
mynd (Aðg. 350 kr.) Á tónleikunum
flytur hljómsveitin einnig nokkur lög af
Kaffisala á kosningadaginn í
Safnaðarheimili Neskirkju
Það er orðin hefð af áratuga iðkan að
selja gestum og gangandi kaffi og meðlæti
í safnaðarheimilinu á kjördegi. Og geta
þar allir átt góð erindislok, hvað sem
stjórnmálaskoðunum líður.
Eins og jafnan áður er það kvenfélagið,
sem hefur veg og vanda af veitingum,
jafnframt því sem basarhornið verður á
sínum stað með eigulegum munum á
góðu verði. Þeir þekkja það velunnarar
Neskirkju hvað konurnar í kvenfélaginu
hafa lagt ríkulega af mörkum um árin til
kirkju sinnar og má eiginlega segja að þær
hafi lagt hönd að flestu á einhvern veg,
sem varð til eflingar safnaðarstarfi og er
Útivistarferðir
Kvöldganga í Esjuhlíðar verður farin í
kvöld, miðvikud.kvöldið 28. maí kl.
20.00. Leitað „gulls“ og gengið um Þver-
fellið.
Myndakvöld á nmmtudagskvöldið 29.
maí kl. 20.30. í Fóstbræðraheimilinu,
Langholtsvegi 109. Sumarleyfisferðir
kynntar, m.a. Homstrandir, einnig
myndir úr frábærum jöklaferðum Útivist-
ar frá hvítasunnunni.
Sumarleyfisferðir 13.-17. júní - 5
dagar.
1. Látrabjarg - Ketildalir o.fl. Gist í
Breiðavík og víðar. Landskoðun, fugla-
skoðun.
2. Bakpokaferð - frá Þingvöllum um
Hlöðuvelli og Brúarárskörð. Upplýsingar
og farmiðar á skrifstofunni Grófinni 1.
Símar 14606 og 23732.
Þorsmörk og Helda-Hraunteigur (2
dagar) næstu helgi. Útivist
gullplötu Gísla Helgasonar „Ástarjátn-
ingu.“
Hljómsveitina skipa nú: Gísli Helga-
son, Herdís Hallvarðsdóttir, Guðmundur
Benediktsson og Hannes Jón Hannesson,
en þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur
fram á tónleikum með hljómsveitinni.
Hljómsveitin „Hálft í hvoru“ áformar
síðan að fara tónleikaferðir um Iandið nú
í sumar.
að þessu sinni nærtækt að minna á
sívaxandi starfsemi fyrir aldraða, sem nú
orðið fer fram fjóra daga vikunnar yfir
vetrartímann í safnaðarheimilinu. Slík
verk og önnur ámóta, sem kvenfélagskon-
ur bera hitann og þungann af, verða seint
fullþökkuð sem skyldi. Ég heiti á vestur-
bæinga og aðra þá sem eiga taugar til
Neskirkju að láta konurnar finna hlýleika
og þakklæti fyrir störfin á laugardaginn
kemur, með því að fjölmenna að hlað-
borðinu þeirra og njóta þess, sem fram
verður borið og styrkja um leið vaxandi
og dýrmæt störf fyrir söfnuðinn. Kaffisal-
an hefst klukkan tvö á laugardaginn, en
tekið verður við munum á basarinn
fimmtudag og föstudag frá kl. 17-19.
Guðmundur Óskar Ólafsson
Frímþing ’86
19. landsþing Landssambands íslenskra
frímerkjasafnara var haldið á, Húsavík
laugardaginn 26. apríl sl. Þingið var
haldið á Húsavík til að heiðra Frí-
merkjaklúbbinn Öskju, sem varð 10 ára
um þessar mundir. Af því tilefni hélt
klúbburinn frímerkjasýningu, FRÍM-
ÞING '86, sem er nú stærsta frímerkja-
sýning, sem haldin hefur verið utan
Reykjavíkur og nágrennis.
Félag frímerkjasafnara á Akureyri hef-
ur nýlega sagt sig úr Landssambandi ísl.
frímerkjasafnara, og gat formaður þess í
skýrslu sinni og sagðist vonast til að FFA
gengi fljótlega aftur í sambandið. Fyrir
þinginu lá inntökubeiðni Frímerkja-
klúbbs Selfoss og var hún samþykkt
einum rómi. Formaður LlF er Jón Aðal-
steinn Jónsson. Útbreiðslufulltrúi var
kjörinn Finnur Kolbeinsson, Fljótaseli 3,
109 Reykjavík. Þeir sem hafa áhuga á
upplýsingum um stjirfsemi LlF, og eins á
myndun félaga eða klúbba í heimabyggð
sinni snúi sér til hans.
Sýning á M0KKA
Kristján Fr. Guðmundsson sýnir vatns-
litamyndir á Mokka við Skólavörðustíg,
en sýningin var opnuð 22. maí. Þetta er
þriðja einkasýning Kristjáns. Hann var
listaverkasali í Reykjavík, lengst af á
Týsgötu 3 frá árunum 1960-1975. Kristján
er fæddur 1909.
Vatnslitamyndirnar eru 20, en tvær
myndir eru málaðar með olíulitum: Frá
Þingvöllum, súlur (olía á striga) og Úr
Herjólfsdal í Vestmannaeyjum (olía á
pappa).
Áéfók 1988
^uvtí’ilsnt* íK')ð.m íjall.t
ÁrbókF.Í. 1986:
Snæfellsnes norðan fjalla
Árbók 1986 fjallar um - Snæfellsnes
norðan fjalla - og hefur Einar Haukur
Kristjánsson, skrifstofustjóri, tekið sam-
an efni um þetta svæði. Einar Haukur
skrifaði einnig Árbók 1982, en hún fjallar
um Snæfellsnes sunnanvert, frá Löngu-
fjöru að Olafsvíkurenni.
Árbókin 1932 fjallar einnig um Snæfells-
nes og eru höfundar þeirrar bókar: Helgi
Hjörvar, Ólafur Lárusson, Jón Eyþórs-
son og Guðmundur G. Bárðarson.
í Árbók 1982 var sérstakur kafli um
jarðfræði Snæfellsness alls eftir Hauk
Jóhannesson jarðfræðing, en í Árbók
1986 er ritgerð um gróðurfar á Snæ-
fellsnesi, og hefur Eyþór Einarsson grasa-
fræðingur tekið saman þann kafla. Með
ritun þessara tveggja árbóka er lokið
lýsingu á Snæfellsnessýslu allri. 1 Árbók
1986 er skrifað um: Olafsvíkurkaupstað
að fornu og nýju, Fróðárhrepp, Eyrar-
sveit, Helgafellssveit, Stykkishólmshrepp
og Skógarstrandarhrepp. Vönduð heim-
ildarskrá er birt strax á eftir meginmáli og
til mikils gagns fyrir þá sem vilja leita
frekari upplýsinga um einstök svæði.
Næst eru staðanöfn skráð í stafrófsröð og
að lokum er kaflinn Félagsmál. Ritstjóri
Árbókar Ferðafélagsins er Þorleifur Jóns-
son bókavörður.
Frjáls verslun
Sérrit um viðskipta-,
efnahags- og atvinnumál
Tímaritið Frjáls verslun, 3. tbl. þessa
árs er nýkomið út. 1 þessu tölublaði
Frjálsrar verslunar er fjallað um misræm-
ið í tollskránni og fyrirsögn í ritstjórnar-
greininni er: Völundarhús tollskrárinnar.
Þá kemur fréttaþáttur, þar sem víða er
komið við. Næst er grein um efnahags-
mál: Verðbólguspá almennings - 60%
þátttakenda spá verðbólgu undir 20%. Þá
eru það tollar. Ófremdarástand í tolla-
málum: Háir verðtollar og hrópandi mis-
ræmi. Þar er sagt frá misræmi í toll-
skránni, og t.d. eru hreinlætistæki þar
talin til lúxusvara. Margar greinar um
tollamál fylgja á eftir, þar sem tekin eru
fyrir sérstök mál í hverri grein. Stjórnun-
arfélag íslands er 25 ára, og af því tilefni
er rætt við Þórð Friðjónsson, nýkjörinn
formann. Borgarmálin voru góður skóli -
segir Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri í viðtali. Forsíðumynd blaðsins er
einnig af Markúsi Erni. Ýmsar fleiri
greinar eru í blaðinu, sem kom fyrst út
1939. Ritstjóri er Kjartan Stefánsson.