Tíminn - 28.05.1986, Síða 20
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
skipar 2. sæti á lista Framsóknarflokksins
við borgarstjórnarkosningarnar 31. maí
1986.
ÞJONUSTUKJARNAí
SUÐUR-MJÓDD.
Hver Islendingur skuldar 281 þús. í útlöndum:
Erlendu skuldirnar
aldrei verið hærri
- komust í rúmlega 56% af landsframleiðslu í fyrra
Nettóskuldir íslendinga við útlönd
námu orðið 62.253 milljónum f árs-
lok 1985 ef reiknað var á meðalgengi
ársins (um 67.920 millj. á gengi um
áramót), sem jafngilti um 56,1% af
vergri landsframleiðslu. „Þetta er
hæsta nettóskuldastöðuhlutfall sem
verið hefur“, segir m.a. í nýjustu
Hagtíðindum Seðlabankans um
stöðu þjóðarbúsins út á við. Með
nettóskuldum er átt við allar skuldir
íslands við önnur lönd að frádregn-
um erlendum eignum og öðrum
kröfum á útlönd. Skuldahlutfallið
hafði hækkað úr 53,3% af VLF árið
áður. Hækkun langra erlendra lána
á árinu nam um 5.465 milljónum
miðað við meðalgengi ársins 1985.
Nærri fimmti hluti (19,2%) út-
flutningstekna þjóðarinnar fór til
greiðslu vaxta og afborgana (þar af
10,4% í vextina eina) af þessari
skuldasúpu í fyrra. Það hlutfall lækk-
aði þó frá árinu áður vegna lækkandi
vaxta erlendis.
Ef spár um viðskiptajöfnuð ársins
1986 ganga eftir telur Scðlabankinn
Arnarflug:
Hlutafjár-
loforð
staðfest
Arnarflug hefur nú náð samning-
um við alla helstu lánardrottna sína
og uppfyllt þau skilyrði sem þeir
einstaklingar og fyrirtæki settu á
sínum tíma fyrir þátttöku í hlutafjár-
aukningu og fjárhagslegri endur-
skipulagningu félagsins.
Helgi Jóhannsson framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða og talsmaður
þeirra sem hyggjast leggja fé í fyrir-
tækið sagði í samtali við Tímann í
gær, að verið væri að ganga endan-
lega frá hlutafjáraukningu, þar sem
þeir sem gefið hafa hlutafjárloforð
staðfesta þau. Fyrirhugaður var í |
gærkvöld fundur með hinum nýja
hluthöfum, þar sem hlutafjáraukn-
ingin yrði formlega staðfest.
horfur á minni erlendri skuldasöfnun
en undanfarin ár og áætlar að skulda-
hlutfallið geti þá komist niður í 50%
af VLF í árslok 1986. Þar sé um að
ræða .samverkandi áhrif af lækkun á
gengi Bandaríkjadollars og aukinni
framleiðslu. Þrátt fyrir að reiknað er
með lægri vöxtum á alþjóðamarkaði
er gert ráð fyrir að greiðslubyrði af
lánum haldist óbreytt, þar sem af-
borganir af lánunum þyngist á móti.
Til að átta sig betur á hvað 67.920
milljón króna skuld um áramót þýðir
má geta þess að væri henni skipt
jafnt niður á alla íslendinga kæmi
um 281 þús. kr. á herðar hvers og
eins eða rúmlega 1,1 milljón á hverja
meðalfjölskyldu. Fyrrnefnd 5.465
milljóna króna skuldaaukning á ár-
inu samsvarar um 22.600 kr. á hvern
íslending að meðaltali eða um 90
þús. króna skuldaaukningu á hverja
meðalfjölskyldu.
Rás Akl. 14:00 í dag:
B-vítamín
Kynning á frambjóð-
endum B-listans á
nokkrum stöðum und-
ir stjórn Jóns Ólafs-
sonar
B-vitamín verður á dagskrá
rásar A í dag kl. 14:00. í þættin-
um mun Jón Ólafsson spretta úr
spori með efstu mönnum B-list-
ans í Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði, Seltjarnarnesi,
Garðabæ, Mosfellssveit og Akra-
nesi. Spiluð verður hressileg tón-
list þess á milli. Rás A er eins og
flestir vita á FM 103 og þátturinn
stendur í einn og hálfan tíma.
ABS
Stálfélagið hjá
skiptaráðanda:
Stjórnin
reynir að
bjarga
fyrirtækinu
Á í viðræðum við
erlenda aðila
Stjórn Stálfélagsins á nú í samn-
ingaviðræðum við erlenda aðila sem
telja raunhæfan rekstrargrundvöll
fyrir rekstri stálverksmiðju hérlend-
is, en eins og fram hefur komið er
félagið nú til gjaldþrotaskipta hjá
skiptaráðanda f Hafnarfirði. Að
sögn Sigtryggs Hallgrímssonar,
starfsmanns Stálfélagsins, á fyrirtæk-
ið fyrir skuldum samkvæmt ársreikn-
ingi síðasta árs. Ástæðan fyrir því að
það er nú til gjaldþrotaskipta er
úrskurður Hæstaréttar 2. maí um
greiðslustöðvun að kröfu eins kröfu-
hafa. En stjórn félagsins hyggst róa
að því öllum árum að bjarga fyrir-
tækinu frá gjaldþroti og voru stjórn-
armenn bjartsýnir um það á fundi í
gær.
Stálfélagið var stofnað árið 1982
með það í huga að endurvinna
íslenskt brotajárn. Stjórn þess hefur
síðan þá átt í viðræðum við erlenda
aðila og ríkissjóð um þátttöku í
fyrirtækinu en þær viðræður hafa
ekki borið árangur enn. Allar kann-
anir á fyrirtækinu hafa bent til mikillar
arðsemi. -gse
-HEI
Við uppsetningu sýningarinnar. Lögreglumenn fylgjast grannt með öllu sem fram fer.
Picasso sýningin sett upp á Kjarvalsstöðum:
DÝRGRIPIRNIR UNDIR
EFTIRLITILÖGREGLU
- 50-55 verk eftir meistarann verða á sýningunni
Tímamynd: Pétur.
f gær voru dýrgripir Pablo Picasso
fluttir til Kjarvalsstaða. Þar var
strax hafist handa við að taka
málverkin upp úr kössum og fylgst
var með spenningi með hverjum
einasta hlut, er hann var dreginn
fram í dagsljósið.
Milli 50 og 55 verk verða á
þessari einstæðu sýningu, og mörg
þeirra meðal þekktari verka meist-
arans. Meðal þeirra má nefna
„portret af Jaqueline R. með
rósir“, frá 1954. Á bakhlið hefur
Picasso skrifað, - „til Jaqueline,
25.4. ’67“. Myndirnarspanna allan
feril Picassos, en ekki var komið í
ljós í gær hvort nokkrar myndir frá
hinu fræga bláa tímabili væru með
í farangrinum.
f dag kemur siðan Jaquelin ekkja
Picasso til landsins, en sýningin
verður hengd upp á morgun.
phh.
Breytingar á Japanstogurunum:
Slippstöðin býður
- aðrir íhuga samstarf - 28 erlendir aðilar sýna áhuga
Frestur til að skila inn tilboðum í
togarana sex sem Félag japanskra
skuttogaraeigenda (FJAS) Ityggst
láta breyta hefur verið framlengdur
til 16. júní, en átti fresturinn á því
að renna út 5. júní. Að sögn Steinars
Viggóssonar hjá Ráðgarði, sem sér
um útboðin f.h. FJAS, er þetta gert
vegna þess að menn tóku nokkuð
seint við sér og fjölmargir erlcndir
aðilar hafa viljað koma hingað til
lands og skoða skipin. Alls hafa 28
erlendir og 4 innlendir aðilar óskað
eftir útboðsgögnum. Hér er um að
ræða umfangsmesta verkefni af
þessu tagi sem boðið hefur verið út
hér á landi og nemur það hundruð-
um milljóna. Þegar útboðsgögn lágu
fyrir á sínurm tíma kom til tals að
einhverjar hinna íslensku skipa-
smíðastöðva hefðu með sér samstarf
um verkið ef það mætti verða til þess
að það yrði unnið hér heima. Af
þeim fjórum fyrirtækjum sem fengið
hafa útboðsgögn hafa fyrirtæki á
suð-vestur horninu verið að íhuga
þessi mál þó ekki hafi komið fram
neitt formlegt 'samkomulag milli
þeirra. Þau fyrirtæki sem fengið hafa
útboðsgögn sunnanlands eru Þorgeir
og Ellert, Stálvík og Stálsmiðjan.
Slippstöðin á Akureyri hyggst hins
vegar bjóða í verkið upp á eigin
spýtur. Matthías Sveinsson fram-
kvæmdastjóri Stálvíkur sagði í sam-
tali við Tímann í gær að það væri
stefnt að því að nokkrar smiðjur og
aðrir sem væru í þessum iðnaði
stæðu saman að tilboðsgerðinni og
ein og sér
þeir hefðu þegar leitað til 17-18 aðila
í því sambandi. Hugmyndin væri að
Stálvík myndi bjóða í verkið og
þessir aðilar yrðu þá undirverktakar.
Hann sagði að hugmyndin gengi
m.a. út á að ná saman smiðjunum á
suðvestur horninu s.s. Stálsmiðjunni
o.fl. Hvað varðar samstarf við stærri
aðila eins og Þorgeir og Ellert á
Akranesi og Slippstöðina á Akureyri
sagði hann að sh'kt hafi ekki verið
formlega tekið til urmæðu, en þó
væri Ijóst að þeir ættu auðveldara
með samstarf við aðila á eða nálægt
höfuðborgarsvæðinu. Engu að síður
væru þeir mjög opnir fyrir samstarfi
við hvern sem er hvar sem er á
landinu, ef það gæti aukið líkurnar
á því að verkið héldist í landinu.
Sigurður Ringsted yfirverk-
fræðingur hjá Slippstöðinni á Akur-
eyri sagði við Tímann í gær að þeir
hefðu ákveðið að bjóða í skipið og
að þeir væru það sterkir að þeir gætu
gert það upp á eigin spýtur.
-BG