Tíminn - 23.08.1986, Page 2
2 Tíminn
Laugardagur 23. ágúst 1986
„Af þessum ástæðum fagna ís-
lenska friðarnefndin og Sovéska
friðarnefndin því frumkvæði ríkis-
stjórnar Sovétríkjanna, sem felst í
einhliða banni við tilraunum með
kjarnorkuvopn."
Þetta kemur m.a. fram í sameigin-
legri yfirlýsingu fulltrúa Sovésku
friðarnefndarinnar og íslensku frið-
arnefndarinnar, en hér á landi eru
nú staddir tveir fulltrúar sovésku
nefndarinnar í boði þeirrar íslensku.
í yfirlýsingu nefndanna segir enn-
fremur, að þær muni fagna því ef
leiðtogafundur stórveldanna yrði
haldinn á þessu ári og að þær vonist
til að á slíkum fundi verði samið um
róttækar ráðstafanir í afvopnunar-
málum. Jafnframt er það gagnrýnt,
að af hálfu Bandaríkjanna og
bandamanna þeirra hafa ekki komið
fram neinar „raunhæfar tillögur" á
þessu sviði og að þessir aðilar hafi
viljað „gera sem minnst úr mikilvægi
friðartillagna Sovétríkjanna", eins
og það er orðað.
íslenska friðarnefndin var stofn-
uð 1951 af einstaklingum sem liugð-
ust vinna að því að koma í veg fyrir
3. heimsstyrjöldina, en Sovéska
friðarncfndin er regnhlífasamtök,
þar sem allar viðurkcnndar hrcyt'ing-
ar og samtök innan Sovétríkjanna
sem hafa frið á stefnuskrá sinni eiga
aöild að. Sovésku gestirnir heita
Pavel Naúmov og Alexander Kant-
zarin. Sá síðarnefndi er starfsmaður
Sovésku friðarncfndarinnar, en sá
fyrrnefndi er varaformaður hennar
og er jafnframt þingmaður Æðsta
ráðsins og var á síðasta áratug yfir-
maður Upplýsingadeildar APN.
Á fréttamannafundi scm nefnd-
irnar héldu í gær til að kynna
yfirlýsingu sína var hr. Naúmov
spurður að því hvort Sovéska friðar-
nefndin endurspeglaði friðarhreyf-
ingar í Sovétríkjunum almennt.
Sagði hann það vera og benti á að
ekkert væri óeðlilegt við það að slík
hreyfing styddi stefnu stjórnvalda í
sínu hcimaiandi þcgar sú stefna væri
í raun friðarstefna, eins og stefna
Sovétmanna væri í dag. Hann var
einnig spurður hvort stefna Sovét-
ríkjanna í Afganistan væri friðar-
stefna, og svaraði hann því til að
stríðið í Afganistan væri ekki hvað
síst styrjöld Bandaríkjamanna.
Sagði hann í því sambandi, að
auðvelt væri að benda á allan þann
fjármagnsstuðning sem frá Banda-
ríkjunum rynni til þess að viðhalda
stríðinu í gegnum stuðning við
skæruliða staðsetta í Pakistan. Sov-
étmenn væru hinsvegar að styðja við
bakið á almennu afgönsku fólki.
Báðir sovésku fulltrúarnir undir-
strikuðu sjálfstæði Sovésku friðar-
nefndarinnar gagnvart stjórnvöldum
og bentu á að hún nyti engra fjár-
framlaga frá ríkinu heldur væri fjár-
mögnuð með frjáisum framlögum.
- BG
Ólafsvík:
Slys um borð í Má
Skipverji af togaranum Má frá
Ólafsvík slasaðist á hcndi er togarinn
var að hífa inn hlerana. Maðurinn
varð fyrir flottrollshleranum sem var
utan á síðu togarans og slóst í
skipverjann. Togarinn var staddur
út á Látragrunni þegar slysið átti sér
stað, um kl. 9 á fimmtudagsmorgun-
inn en sigldi þegar af stað í land og
var skipverjinn sendur með flugi til
Reykjavíkur um kl. 16.00 en togar-
inn kom til hafnar um kl.15.00.
ABS
Nýr forstöðumaður
hjá Skipadeildinni
Frá blaðamannafundinum þar sem yfirlýsing friðarnefnda Sovétríkjanna og Islands var kynnt. F.v. Bergþóra
Einarsdóttir túlkur, Pavel Naúmov þingmaður Æðsta ráðsins og varaforseti Sovésku friðarnefndarinnar, Haukur
Már Haraldsson formaður íslcnsku friðarnefndarinnar, og Alexander Kantzarin starfsmaður Sovésku friðarnefndar-
innar. Tímamynd - Sverrir
Friðarnefndir fagna
frumkvæði Gorbachevs
Stefán Eiríksson hefur verið ráð-
inn forstöðumaður Sölu- og mark-
aðsdeildar Skipadeildar Sambands-
ins. Hann er menntaður í sölu- og
markaðsmálum og hóf störf hjá
Skipadeildinni 1978. Þar vann hann
fyrst við almenn skrifstofustörf, síð-
an við afgreiðslu erlendra skipa og
loks í sölu- og markaðsdeild.
Stefán er 35 ára og er kvæntur
Ragnheiði Torfadóttur.
Stefán Eiríksson.
Þekkingar-
getraun á
Tæknisýningu
Einn liður í Tæknisýningu
Reykjavíkurborgar í Borgarleikhús-
inu hefur verið þekkingargetraun
sem dregið er í daglega. Keppninni
er þannig háttað að á bakhlið hvers
aðgöngumiða eru krossaspurningar
sem hægt er að finna svör við með
því að skoða sýninguna vandlega.
Þorbjörg Guðmundsdóttir er ein
hinna heppnu. Hún vann tuttugu
tommu sjónvarpstæki og kom það í
góðar þarfir því á heimili hennar var
einungis ellefu tommu svart-hvítt
tæki fyrir. „Nú þarf ekki lengur að
keppa um sæti í stofunni heima,“
sagði hún.
Verðlaunin í þekkingargetraun
Tæknisýningar eru annars samtals
300 og eru sjónvarpstæki, útvarps-
tæki, hljómflutningstæki, ljós-
myndatæki, og ljósmyndabækur
Hjálmars R. Bárðarsonar, auk frí-
miða í strætó og sund út afmælisárið.
Haft verður samband við vinn-
ingshafa jafnóðum og dregið er.
Framsókn
með próf-
kjör á Suð-
urlandi
Framsóknarmenn á Suðurlandi
hafa ákveðið að efna til skoðana-
könnunar um val á frambjóðendum
vegna næstu alþingiskosninga þann
25. október n.k. Skoðanakönnunin
á að vera opin öllum stuðningsmönn-
um flokksins í kjördæminu sem ekki
eru skráðir í annan stjórnmálaflokk
og fæddir eru 1969 eða fyrr.
Ætlast er til að menn bjóði sig
fram í skoðanakönnunina, en einnig
er fulltrúum flokksfélaga heimilt að
nefna menn til framboðs að fengnu
samþykki þeirra. Framboð eiga að
hafa borist framboðsnefnd 5 vikum
áður en skoðanakönnun hefst og
framboð skal birt a.m.k. 4 vikum
áður en skoðanakönnunin fer fram.
Gert er ráð fyrir að kjörstaðir verði
í öllum sveitarfélögum, þóþau minni
geti sameinast um staði.
Númera skal við minnst 6 nöfn til
þess að kjörseðill verði gildur, en
heimilt að númera við allt að 12
nöfn. Niðurstöður verða bindandi
hjá þeim er hljóta yfir 50% greiddra
atkvæða. Talning verður með þeim
hætti að 1. sætið hlýtur sá er flest
atkvæði fær í það sæti, 2. sætið sá er
flest atkvæði fær í 1. og 2. sæti og svo
framvegis.
TIL SOLU
NOTAÐAR VÉLAR
IH 574hydro
Deutz Intrac
Ford county
Ford
Ford
MF
78
2004 ’83
7704 ’82
7000 75
3000 74
690x4 ’84
JCB traktorsgrafa D-3 ’74
BOÐIIhf
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800
Hér sést árangur torfhleðslu, hvolfbyggingar og grímugerðar, en allt þetta
verður kennt á námskeiðinu. Ekki fylgir sögunni hvort kennt sé á gamla
Deutzinn í leiðinni. (Timamynd Sverrir)
Námskeið:
Andlit og hús
gerð úr torfi
Næstu tvær helgar verður haldið
námskeið í torfhleðslu, hvolfbygg-
ingarlagi og grímugerð úr torfi í
Vatnsmýrinni í Reykjavík. Kennt
verður hvernig raða á saman hvolf-
laga burðarvirki af einfaldri gerð
sem byggt er upp af þríhyrningum.
Einar Þorsteinn Ásgeirsson hönnuð-
ur leiðbeinir við það. Kennslu í
torfhleðslu annast Tryggvi Hansen
og verða þar kynntar þær hleðsluað-
ferðir sem tíðkast hafa á Islandi í
gegnum tíðina. Hnaustegundir eru
klambra, kvíahnaus, þríhyrna,
hornhnaus og strengur.
Grímugerð sér Sigríður Eyþórs-
dóttir um og kennir hún þátttakend-
um að búa til andlitsgrímur úr torfi.
Námskeiðið verður laugardag og
sunnudag, 23. og 24. ágúst og 30. og
31. ágúst n.k.
ABS