Tíminn - 23.08.1986, Síða 20

Tíminn - 23.08.1986, Síða 20
Ferðist með VISA VALSMENN héldu efsta sæti 1. deildar meö sigri i Garðinum í gærkvöldi, 1-0. Paö var Sigurjón Kristjánsson sem skoraöi sigurmark þeirra um miðjan síöari hálfleik. Þá unnu Fylkismenn sigur á ÍR- ingum í 3. deild og dofnuðu þar meö vonir ÍR-inga um 2. deildar sæti. ÍK úr Kópavogi stendur heldur betur að vígi. »Í—»aawM Laugardagur 23. ágúst 1986 Það fór vel á með börnunum á Eskifírði og Vigdísi Finnbogadóttur. (Tímamynd-Svanfríður) Forsetinn heim- sækir Eskifjörð Frá Svanfríði Hagwaag, fréttaritara Tímans á Austfjurðum Fimmtudaginn 21. ágúst kom Vigdís Finnbogadóttir, forscti íslands, í heimsókn til Eskifjarðar. Dagskráin hófst klukkan 14.00 við Grunnskólann ogskoðaði Vigdís þar myndlistarsýningar á verkurn Stein- þórs Eiríkssonar frá Egilsstöðum og Einars Helgasonar, Austfirðings sem nú býr á Akureyri. Þá skoðaði forsetinn málverkasýningu á vcgum verkamannafélagsins Árvakurs og Listasafns ASÍ. Einnig skoðaði for- setinn muni úr postulíni eftir um 40 konur á Eskifirði sem hafa sótt námskeið í postulínsmálun hjá Kolfinnu Kctilsdóttur. Heimsókn á barnahcimili var næst á dagskrá og þar tóku börnin á móti Vigdísi og spjölluöu við hana eins og börnum einum er lagið. Að síðustu var gamla rafstööin skoðuð, hún var stofnuð 1911. Um kvöldið var kvöldverður í hátíðarsal skólans fyrir gesti bæjar- ins. Scinna um kvöldið var kvöld- vaka í Valhöll með fjölbreyttu efni, m.a. Ick lúðrasveit Eskifjarðar undir stjórn Jóns Lundbergs, bæjarstjóri llutti ávarp, Rögnvaldur Sigurjóns- son lék á píanó, Róbert Arnfinnsson og Ásdís Skúladóttir lásu upp'. Þá flutti forsetinn ávarp, Gísli Magnús- son lék á píanó, Einar Bragi las upp og að endingu söng Eskjukórinn undir stjórn Ágústar Ármanns. Hluti steinasafnsins sem nú er til sýnis á Lambeyrarbraut 5. (Tímamynd-Svanfríöur) Eskifjöröur: Einstakt steina- safn til sýnis Á 200 ára afmæli Eskifjarðar hef- ur verið til sýnis einstakt steinasafn á Lambeyrarbraut 5, á heimili hjón- anna Sörens Sörensen og Sigurborg- ar Einarsdóttur. Þó þau hafi aðeins safnað steinum síðan 1976 er ótrú- legt hvað safnið er stórt. Hjónin hafa kostað alla uppsctn- ingu safnsins sjálf en þetta er þeirra tómstundagaman. Sagði Sigurborg að þau hefðu kynnst mörgu fólki sem hefði þetta sama áhugamál, sem betur fer, segir hún því þá taka útlendingarnir ekki bestu steinana og flytja þá úr landi. Veistu ailt sem þú þarft að vita um bankamál? Þarftu að kynna þér lánamöguleika? Innlánsreikninga? Vaxtakjör? Eða aðra þætti bankaþjónustu? í Spjaidhaga Samvinnubankans finnur þú gagnlegar upplýsingar um þjónustu bankans: H-vaxtareiknÍngur Samvinnubankans er óbundinn sparireikningur, verðtryggður með vöxtum. Hann ber í upphafi almenna spari- sjóðsvexti sem stighækka. Kjör H-vaxtareikn- ings eru reglulega borin saman við kjör 3 og 6 mánaða verðtryggðra reikninga bankans. Reynist kjör verðtryggðu reikninganna betri leggst Hávaxtaauki við áunna vexti H-vaxta- reiknings. Verðtryggðir reikningar Samvinnubankans eru bundnir í 3, 6,18 og 24 mánuði. Vextir leggjast við höfuðstól um áramót og eru lausir til útborgunar næstu 12 mánuði þar á eftir. Reikningarnir eru verðtryggðir miðað við láns- kjaravísitölu. Sparivelta, Húsnæðisvelta, Ferðavelta og Launavelta veita allar rétt til láns eftir ákveðnum reglum sem háðar eru tímalengd viðskipta og innlánum reikningseigenda. í Spjaldhaga Samvinnubankans finnurþú nánari upplýsingar um þessa þætti og aðra í þjónustu bankans, t.d. erlendan gjaldeyri, VISA- greiðslukort, vaxtakjör, gengisskráningu og margt fleira. Bankinn gefur út ný spjöld eftir þörfum - þú skiptir um í þínum Spjaldhaga. Þannig hefur þú alltaf við höndina réttar upplýsingar um þjón- ustu Samvinnubankans. Þjonusla íþína Þágu 1slTndsBanki HF. Til fróðleiks má geta þess að orðið Spjaldhagi er ekki nýyrði heldur er Spjaldhagi forn þingstaður Eyfirðinga. Árið 1492 var haldið þar þriggja hreppa þing og frá sama ári er til skiptabréf gert í Spjaldhaga. í sóknarlýsingu Grundar- og Möðruvallasóknar frá 1840 nefnir síra Jón Jónsson (1787-1869) Spjaldhagahól „hvar til forna var og enn skal sjást leifar af einum dómhring.“ Okkur fannst orðið hins vegar vel við hæfi og ákváðum að glæða það nýrri merkingu. Líttu inn í næsta Samvinnubanka og fáðu Spjaldhaga - eða hringdu og við sendum þér hann. SPJALDHAGI - ALLAR UPPLÝSINGAR Á EINUM STAÐ SAMVINNUBANKI ISLANDS HF.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.